Morgunblaðið - 08.03.1961, Side 12
12
MORGVNBLAÐ1B
Miðvik'udagur 8. marz 1961
Utg.: H.f Arvakur. Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalatræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
SIÐASTA HÁLMSTRÁIÐ FOKIÐ
CÍÐASTA hálmstrá stjórn-
arandstöðunnar í baráttu
hennar gegn lausn fiskveiði-
deilunnar við Breta er nú
fokið út í veður og vind.
Flokkar hennar, Framsóknar-
menn og kommúnistar, hafa
undanfarið haldið því. fram,
að enda þótt Bretar hafi hyit
ið því með samkomulaginu
við íslenzku ríkisstjórnina að
falla frá mótmælum sínum
gegn 12 mílna fiskveiðitak-
mörkunum, þá hafi það alls
ekki í för með sér viðurkenn
ingu þeirra á þessum fisk-
veiðitakmörkunum í framtíð-
inni.
Bjarni Benediktsson, dóms-
málaráðherra, las á Alþingi
í fyrrakvöld upp álitsgerð frá
lagadeild Háskóla íslands um
þetta atriði. Er þar tekinn af
allur vafi í þessum efnum.
Auðvitað var þó ekki um
neinn vafa að ræða í hugum
allra þeirra manna, sem
vildu á annað borð skilja
samkomulagið um lausn fisk-
veiðideilunnar. Með því var
frá upphafi ljóst, að Bretar
viðurkenndu á skýlausan hátt
12 mílna fiskveiðitakmörkin.
En vegna vefenginga stjórn-
arandstöðunnar er mjög gagn
legt að dómsmálaráðherra
skyldi leita álits lagadeildar
Háskólans um þetta atriði.
En í því segir m.a., að þeg-
ar réttarágreiningur sé milli
tveggja aðila og annar hefur
andmælt skilningi hins eða
aðgerðum, en lýsir síðan yfir
því fyrirvaralaust, að hann
falli frá andmælum sínum,
sé það skýrt svo samkvæmt
almennum lagasjónarmiðum,
að með því skuldbindi sá að-
ili sig til að hverfa endan-
lega frá andmælum sínum og
tjói ekki að hafa þau uppi
síðar. Gegnir þessu eigi síð-
ur í milliríkjaviðskiptum,
segir lagadeild Háskólans. Ef
greint orðalag verður þáttur
í samningi milli brezku og
íslenzku ríkisstjórnanna „telj
um við því að samningurinn
feli í sér skuldbindingu fyrir
brezka ríkið, um að virða
framvegis 12 mílna fiskveiði-
lögsögu umhverfis Island, ef
fiskveiðideilan verður leyst
með þessum hætti“.
Undir þessa álitsgerð rita
prófessorar lagadeildar Há-
skólans, þeir Theodór B. Lín-
dal, Árrtiann Snævarr og
Magnús Þ. Torfason. Ólafur
Jóhannesson prófessor óskaði
ekki að taka þátt í meðferð
málsins í lagadeildinni með
því að hann á sæti á Alþingi.
Fróð«legt verður að sjá,
hvort Framsóknarmenn og
kommúnistar halda áfram að
berja höfðinu við steininn og
halda því fram, að í sam-
komulaginu felist ekki full
viðurkenning á 12 mílna
fiskveiðitakmörkunum.
HIN HEILBRIGÐA
DÓMGREIND
SIGRAR
TVTIÐURRIFSBANDALAGIÐ
■^ — Framsóknarmenn og
kommúnistar — hafa undan-
farið verið á mikilli gandreið
um híð íslenzka þjóðfélag.
Áróður þeirra hefur allur
beinzt að því að sanna al-
menningi, og þá fyrst og
fremst verkalýðnum til
lands og sjávar, að núver-
andi ríkisstjórn ætti þá ósk
heitasta að gera lífskjör hans
sem hörmulegust, og að sú
stefna, sem stjórnin fylgdi
hefði leitt hrun og eyðilegg-
ingu yfir þjóðina. Jafnframt
hafa þessir bandamenn hald-
ið því fram, að með lausn
fiskveiðideilunnar við Breta
væri ríkisstjórnin að fórna
rétti íslands um aldur og
ævi.
En staðreyndirnar sýna, að
þessi taumlausi áróður stjórn
arandstöðunnar hefur ekki
haft mikil áhrif. Hann hef-
ur ekki sigrazt á heilbrigðri
dómgreind almennings í land
inu. í verkalýðsfélögunum
hafa kommúnistar og Fram-
sóknarm. farið hverja hrak-
förina á fætur annarri. Síð-
asta dæmi þess er kosningin
í Iðju. Þar vinna lýðræðis-
sinnar og stuðningsmenn nú-
verandi ríkisstjórnar einn
mesta sigur sem þeir hafa
unnið fyrr og síðar í nokkru
verkalýðsfélagi í landinu.
Svipuð saga gerist svo
gagnvart lausn fiskveiðideil-
unnar. Samtök sjómanna og
útvegsmanna um land allt
lýsa yfir stuðningi sínum við
stefnu ríkisstjórnarinnar í
málinu. Framsóknarmenn og
kommúnistar verða allsstað-
ar undir þar sem stjórnar-
sinnar mæta þeim.
Þessi þróun málanna er
vissulega gleðilegt tímanna
tákn. íslenzkur almenningur
Þeir slást á mánudag
geldur lausung við lygi upp-
lausnaraflanna. Heilbrigð
dómgreind fólksins ræður af-
stöGu þess til vandamálanna.
ÓÁNÆGJA
BRETA
t ÖRVÆNTINGU r»inni hef-
ur Tíminn gripið til þess
að halda því fram, að það
hlakki í Bretum yfir þeirri
undanlátssemi íslendinga
sem komi fram í samkomu-
laginu um lausn fiskveiðideil
unnar. v
Hér hefur farið enn sem
fyrr, að Tímanum hefur orð-
ið villugjarnt á braut sann-
leikans. Öllum sem til þekkja
ber saman um það, að í öll-
um brezkum blöðum og með J
al brezkra útgerðarmanna og,
sjómanna, ríki megn óánægja
með samkomulagið og að al-
mennt sé talið, að íslending-
ar hafi unnið mikinn sigur í
málinu.
Þessi skoðun kom greini-
lega fram í fréttaþætti sem
fréttamaður útvarpsins, séra
Emil Björnsson flutti í ríkis-
i^tvarpið sl. laugardagskvöld.
Var það birt hér í blaðinu í
gær með leyfi fréttastjóra út-
varpsins. f útvarpsþætti sín-
um komst Emil Björnsson m.
a. að orði á þessa leið:
„Eg hef séð blaðagreinar
j um samkomulagið í 30—40
brezkum blöðum, öllum
helztu blöðum Lundúnaborg-
ar, Edinborgar, togaraútgerð-
arbæjanna og blöðum fleiri
borga. Og jafnframt hef ég
hlýtt á umræður í brezka
þinginu út af samkomulag-
inu. Og hér í Bretlandi eru
ekki skiptar skoðanir um
þetta samkomulag. Það er i
enginn ánægður með það fyr-
ir Bretlands hönd, og margir
sáróánægðir og vonsviknir.
Þetta fer ekkert eftir stjóm-
málaskoðunum manna hér,
að því er virðist, sum stjórn
arblöðin eru sízt mildari í
garð stjórnarinnar í þessu
máli en blöð stjórnarandstöð-
unnar. Og jafnvel í þinginu
hafa heyrzt raddir úr hópi
stuðningsmanna stjórnarinn-
ar, sem gagnrýna samkomu-
lagið og lýsa vonbrigðum“.
Þetta voru ummæli frétta-
ritara útvarpsins í London
um afstöðu manna þar í
landi til samkomulagsins við
íslendinga.
NÆSTKOMANDI mánu-
dag fer enn fram einvígi
þeirra Floyd Pattersons og
Ingemar Johanssons um
heimsmeistaratitilinn í
hnefaleik í þungavigt. —
Þetta er þriðja einvígi
þeirra. í hinu fyrsta sigr-
aði Johansson, en síðast
sigraði Patterson. Báðir
meistararnir æfa nú eftir
beztu getu og hafa þeir
ráðið sér ráðgjafa til að
fylgjast með síðasta sprett
inn. Floyd hefur fengið
Joe Louis fyrrverandi
heimsmeistara sér til að-
stoðar, en Ingo Max
Schmeling, sem einnig er
fyrrverandi heimsmeistari.
æfingum, og virðast þeir ekki
eiga sjö dagana sæla.
EKKERT SÆL.DARLÍF
Einn helzti frömuður hnefa-
leikaíþróttarinnar í Florida,
Angelo Dundee, hefur lýst
heimsókn sinni í æfingastöð
Ingos. Segist hann aldrei hafa
vitað til þess að boxari hefði
jafn marga hnefaleikara til að
æfa með og þarna voru. En
þeir entust lítið. Fyrst var Joe
Esperti fluttur í sjúkrahús eft-
ir slæmt högg á auga. Tony
Laquatra fékk glóðarauga og
varð að hætta. Billy Stephan
barðist við meistarann, en
lenti öðru hvoru í vegi fyrir
hægri hendi hans og féll í
hvert sinn. Áður hafði honum
verið þannig lýst að hann væri
eini hnefaleikarinn sem hefði
fjögur augu, tvö brún og tvö
blá.
★
Keppnin á mánudaginn fer
fram í Convention Hall 1
Miami Beach, Florida.
SAGAN ENDURTEKUR SIG
í>að er sögulegt við þessa
tvo ráðgjafa að þeir eru gaml-
ir kunningjar. Árið 1936 sló
Max Joe niður í tóiftu lotu en
er þeir mættust aftur árið
1938 sló Joe Max niður í fyrstu
lotu. Voru þeirra S'amskipti
því svipuð keppnum Floyds og
Ingos. Nokkuð hefur verið
skrifað í blöð vestan hafs að
Xngo tæki ekki æfingarnar
nógu alvarlega, og er áber-
andi hve mikið hefur verið
gert til að bæla niður öll slík
skrif. Það er til dæmis algjör-
lega bannað að senda út mynd
ir frá æfingastöðinni í Palm
Beaeh í Florida sem sýna Ingo
með unnustu sinni Birgit
Lundgren. Hins vegar er mik-
ið sent út af fréttum um þá . . . og þjálfarl hans,
menn, sem Ingó slæst við_ á Max Schmeling