Morgunblaðið - 14.03.1961, Qupperneq 11
Þriðjudagur 14. niarz 1961
MORCVTShLAÐlÐ
11
Fögnuður að
fengnum sigri
SÍÐASTLIÐIÐ xnánudagskvöld,
þegar öldur ljósvakans báru þá
íregn út yfir landsbyggðina, að
friður væri saminn við Breta og
landhelgisdeilan leyst á þann veg
að íslendingar höfðu unnið allt
og engu tapað, og blöðin síðan
birta samningsgerðina með ýtar-
legum skýringum, er staðfesta í
einu og öllu að íslendingar höfðu
-unnið stórglæsilegan sigur í þess
ari hamrömmu deilu, að matt
hefði ætla að hrifningaralda færi
um allt þjóðfélagið, svo mikil, að
þakklæti frá einstaklingum og
samtökum félli sem skæðadrífa
yfir stjórnarvöldin, sem svo vel
hofðu á málunum haldið. Vissu-
lega hafa margir latið fögnuð
sinn í ljós yfir þessari farsælu
lausn og enn fleiri gieðjast í
hljóðri þögn. Áreiðanlega er stór
meirihluti þjóðarinnar ekki að-
einíS samþykkur gerðum ríkis-
stiórnarinnar í mál pe.ssu en fagn
ar því, að með samkomulaginu
hafi náðst miklu meiri hagsbæt-
ur fyrir íslendinga, en bjartsýn-
ustu menn þorðu að vona.
hegar þess er gætt, að litla
vopnlausa þjóðin okkar áttx í
höggi við stórveldi sem skefja-
laust varði meinntan rétt sinn til
fiskveiða við ísland með vopna-
Ví idi, og hefði haldið þeim hátt-
um svo lengi sem ekki fékkst al-
þjóðasamþykkt fyrir skýlausum
rétti okkar, er það næsta undra-
•vert, hve fljótt gekk að semja efí-
ir að ríkisstjórnin tók málið í
sínar hendur og hvað hagkvæm
Jausnin varð.
Þegar Norðmenn á sl. ári færðu
út fiskveiðilögsögu sina í tólf
mílur, en veittu Bretum jafn-
framt rétt í næstu tíu ár til fiski-
veiða innan tólf mílna markanna,
þá óttuðust margir og ekki að
ástæðulausu að þeir samningar
mundu spilla mjög fyrir góðum
árangri af viðræðum íslendinga
og Breta. En þrátt fyrir þau ó-
hollu áhrif sem þessi samningar
hafa haft á samningsumleitanir
ríkisstjórnar íslands og Bret-
lands, ganga íslendingar með sig-
ur af hólmi.
Skylt er að viðurkenna að all-
ar aðgerðir ríkisstjórnarinnar í
landhelgismálinu hafa einkennzt
éf festu, einurð og góðum skiln-
ingi á drengilegum samskiptum
þjóða. Sakaruppgjöfin sl. ár var á
kjósanlegur áfangi á leiðinni. Sú
viturlega ráðstöfun varð i fyrsta
lagi til að framlengja vopnahlé
Bretanna, og í öðru lagi hafa
þær óefað auðveldað vinsamlega
endurskoðun Breta á máiinu.
Með rökum getur enginn neit-
»ð, að þetta samkomulag er
stærsti stjórnmálasigurinn sem
íslenzka þjóðin hefur unmð síð-
»n hún fékk fullveldi mála sinna.
En þetta er ekki aðeins scórkost-
Jegur stjórnmálasigur heldur eigi
»íður siðferðilegur stórsigur, sem
gefur öllum öðrum fordæmi um
hvernig deilur þjóða ber að leysa.
Þegar athugað er að með út-
færslu grunnlínanna eru friðuð
mikilsverð uppeldissvæði ung-
fisks, að stærð samtals rúml. 5000
ferkílometrar og fiskveiðilögsag-
an stækkar að sama skapi, og
hrezk skip fá leyfi til fiskveiða
eðeins sem svarar um 9 mánuði
eamtals á þriggja ára tímabili, á
takmörkuðum svæðum, sem eru
alls litlu stærri en friðunarsvæð-
ið, þá eru skiljanleg ummæli
hins brezka manns, Dennis
Welch, þegar hann segir að fríð-
indi Breta til fiskveiða við ís-
landsstrendur sé hreinasta
„humbukk". Og er það hverju
crði sannara. Þess vegna höfum
við íslendingar allt unnið en engu
tapað eins og segir í upphafi þess
arar greinar.
Ef samningar hefðu ekki verið
gerðir hefði deilan haldið áfram
með harðvítugum árekstrum og
iíklega óhugnanlegum afleiðing-
um. Hefði þá og sennilega lengi
dregist að rétta grunnlínurnar,
sem þó var mikil nauðsyn.
Þjóðin stóð einhuga að stækk-
un landhelginnar 1952 og 1958.
Því miður hefur kornið í ijós að
kommúnistar ætluðu sér, að iata
það mál þjóna.sínum annarlegu
sjórarmiðum. Nú ætti þjóðin eigi.
síður en þá að vera einhuga í
þessu mikla velferðarmáli og
fagna því að friður um það er
tryggður um alla framtíð, En
hvað skeður? Það óskiljanlega.
Upplýstur ramakveini í öllum
herbúðum stjórnarandstöðunntr,
ekki bara kommanna, sem þekkt-
ir eru að þeirri iðju að naga ra>t-
ur þjóðarmeiðsins, heldur einn-
ig Iramsóknarmanna, „þjóðlega
lýðræðisflokksins“.
Ætlast hefði mátt til að Fram-
sóknarmenn hefðu nú sýnt þar.rh
drengskap og manndóm, að við-
urkenna, þó ekki væri nema með
þögninni, að lausn land'helgis-
deilunnar væri slík að betra hefði
ekki verið á kosið. Algengt er að
stjórnarandstaða í þroskuðum
lýðræðisþjóðfélögum, hafi sam-
stöðu við stjórn sína í mikils-
verðum málum, og þakki henni
farsæla lausn þeirra sbr. lýðræð-
isflokka gí Bretlandi. Vissulega
er mikill fjöldi óbreyttra liðs-
manna í Framsóknarflokknum
fyllilega sammála ríkisstjórninni
um þetta mál, hvaða afstöðu sem
þeir kunna að taka til þess, á
æsingafundum leiðtoganna. Og
m. a. s. eru efalaust margir heil-
skygnir menn í röðum kommún-
irta, sem einnig fagna þessari
lausn málsins, er orðinhr. Marka
ég það á ummælum tveggja há-
stemdra „vinstrimanna“ er ég
átti tal við sl. þriðjudag.
Afstaða manna til þessa mikla
velferðarmáls er ekki í eðli sínu
bundin við stundarhagsmuni
pólitískra flokka.
Þgð er sorgarsaga að leiðtogar
Framsóknarflokksins skuli vera
svo vanþroska sem framkoma
þeirra nú sýnir. Og enn er það
hörmulegra, ef þeim tekst að
þvinga með sér út í svaðið, þá
mörgu ágætu menn um land allt,
sem í flokknum teljast vera.
Þetta verður að harma vegna
þjóðarinnar og einstakiinganna.
Ef Framsóknarmenn hefðu nú
snúizt við lausninni í landhelg-
isdeilunni eins og þroskuðum
mönnum ber að gera, gátu menn
alveg gleymt óverðskulduðum
skömmum þeirra um ríkisstjórn-
ina vegna aðgerða hennar í öðr-
um málum, og ýmsum vanhugs-
uðum aðgerðum þeirra sjálfra.
Undanfarið hafa Framsóknar-
leiðtogarnir sýnt svo mikla þjónk
un við kommúnista, að undrun
vekur og óhug margra fylgis-
manna þeirra. En flestir héldu
að landhelgismálið væri þar und-
antekið.
Það er leitt að þurfa að segja
frá þeirri staðreynd, að með
brambolti sínu út af sættinni í
landhelgisdeilunni, stimpla Fram-
sóknarbroddarnir sig og þá þing-
menn er greiða atkvæði gegn
sættinni, með óafmáanlegu komm
únista merki. Þau upplausnar
efni eru ekki enn fundinn sem
þvegið geta af þeim stimpilinn
þann a. m. k. ekki meðan þeir
eru í flokksgirðingunni. Sam-
staða stjórnarandstöðunnar virð-
ist ótvírætt benda til að hún sé
að renna saman í einn flokk,
og virðist jafnframt einsýnt hver i
Umíer&armsðsZöS Reykjavíkur að
rísa af
ÞESSI nýbygging er nú að rísa
í hinum gömlu „Aldamótagörð-
um“, fyrir neðan Hringbraut á
móts við Dandsspítalann. Þessi
bygging á eftir að gegna miklu
hlutverki á sviði samgöngumála,
því þetta er Umferðarmiðstöð
Reykjavikur. Þar verður aðal
bækistöð allra bíla er annast
fóiksflutninga á hinum lengri
leiðum til og frá Reykjavík.
Þarna verður líka miðstöð sívax-
aiidi vöruflutninga með bílum,
grunm
um byggðir landsins. Öll þessi
þjónusta, farþegaflutningar og
vöruflutningar með bílum, er nú
dreifð í bænum og eru a. m. k.
fjórar stöðvar hér í bænum, sem
eru endastöðvar fyrir langferðar
vagna og vöruflutningabíla. Það
er einkum ríkið sem að byggingu
stöðvarinnar stendur. Fé til stöðv
arinnar er varið úr sérleyfis-
sjóði, þá er sérstök fjárveiting
til hennar á fjárlögum og loks
hefur Reykjavíkurbær lagt til
hennar nokkurt fé i formi láns.
Munu nú vera komnar í bygging-
una talsvert á þriðju milljón
króna. Upphaflega var gert ráð
fyrir að hægt yrði að taka Um-
ferðarmiðstöðina í notkun sumar
ið 1962. Hvort þær áætlapir
standast fer að sjálfsögðu eftir
því hvort nægilegt fé fæst til
byggingarinnar. — Aðal'húsin
verða afgreiðslusalur vegna far-
þegaflutninganna, og svo vöru-
skemma vegna vöruflutningana.
Það er farþegaafgreiðslan sem
er á þessari mynd. — Ljósm. Mbl.
Ól. K. M
húshóndinn verður á heimilinu.
Rauði fáninn verður dreginn að
hún á ráðhústorgi þeirra samein-
uðu. Svo ólíklegt, er að margir
bændur verði við fánahyllinguna.
Víst ber að þakka vaxandi
skilning brezku ríkisstjórnarinn-
ar á réttindum og sérstöðu okk-
ar Islendinga í landhelgismál-
unum, og drengilegann samnings
vilja. Og ekki virðist brezka
stjórnin öfundsverð af viðbrögð-
um brezku útgerðarmannánna.
Útfærsla landhelginnar heldur
áfram stig af stigi þar til land-
grunnið allt verður innan henn-
ar. Með samningunum við Breta
nú er tryggt, að næsta áfanga
verður náð á friðsamlegan hátt.
Enda nálgast sá tími, að alþjóða-
samþykkt viðurkenni rétt strand-
ríkis til alls landgrunnsins.
Vonandi berum við gæfu til að
eiga um alla framtíð í forystu
þjóðfélagsins, þá menn, sem
vinna jafn skynsamlega að þess-
um málum sem nú hefur verið
gert. „Með lögum skal land
byggja".
Steingrímur Davíðsson
Samkomur
Æskulýðsvika K.F.U.M. og K.
í Baugarneskirkju
í kvöld tala Bjarni Eyj. Guð-
leifsson, menntaskólanemi og Jó-
hann Hannesson, prófessor. —
Mikill söngur. Allir velkomnir.
K.F.U.K. ad.
Aðalfundi frestað til 21. marz
vegna æskulýðsviku í Laugar-
neskirkju í kvöld. — Fjölsækið
þangað.
Samkoma verður í Betaníu
Laufásveg 13 í kvöld kl. 8%.
Allir velkomnir.
Stefán Runólfsson.
I.O.G.T.
Ungmennast. Hrönn
Fundur í kvöld kl. 8.30 að
Fríkirkjuvegi 11. Dansað eftir
fund. — Æ.T.
St. Verðandi nr. 9.
Fundur í kvöld kl. 8.30. —
Kosning fulltrúa til þingstúku.
Fræðslu og skemmtiatriði ann-
ast Þorsteinn J. Sigurðsson o. fl.
Félagar mætið vel og stundvís-
lega.
Æðstitemplar.
Hjúkrunarkona
Hjúkrunarkona óskar eftir vinnu frá fyrsta næsta
mánaðar að telja. Vinnutími frá kl. 9—17. Margs
konar störf önnur en hjúkrunarstörf koma til greina.
Tilboð sendist Morgunblaðinu merkt: „Áreiðanleg
— 1800“.
Framtíðaratvinna
Duglegan afgreiðslumann vantar að stóru fyrirtæki
hér í Reykjavík.
Umsóknir er greini aldur og fyrri störf sendist
blaðinu fyrir 18. þ.m. merkt: „Afgreiðslumaður
— 1802“.
Sjáið hina marg umdeildu
35 ára afmœSissýning
LJÓSMYNDARAFÉLAGS ÍSLANDS
í Listamannaskálanum lýkur á fimmtudag.
Góð bújörð til úbúttar
Reyðarvatn á Rangárvöllum er laus til ábúðar frá
næstu fardögum. Kaup á bústofni og vélum koma
til greina.
Nánari upplýsingar gefur
PÁLL SVEINSSON, Gunnarsholti.
5 herb. íbúðarhœð
efri hæð, mjög glæsileg og vönduð, með harðviðar-
innréttingu, við Sigtún, til sölu. Upphitaður bílskúr.
Hitaveita. Góður garður.
Einnig 4ra herbergja rishæð í sama húsi. Selst
saman eða sér.
STEINN JÖNSSON.HDL.,
lögfræðistofa — fasteignasala
Kirkjuhvoli — Símar 19090 — 14951