Morgunblaðið - 14.03.1961, Síða 17
Þriðjudagur 14. marz 1961
MORGV'TSBLAÐIÐ
17
Viðskipti
og efnahagsmá/j
Gengisskráning
8. marz 1961 Kaup Sala
1 Sterlingspund 106,36 106,64
| 1 Bandaríkjadollar .... 38,00 38,10
* 1 Kanadadollar 38,65 38,75
100 Danskar kr 549,15 551,60
100 Norskar kr 531,60 533,00
100 Sænskar kr. 734,90 736,80
100 Finnsk mörk 11,85 11,88
100 Franskir fr 774,55 776,60
100 Belgískir fr 76,33 76,53
100 Svissneskir fr. .. 880,65 882,95
100 Gyllini 1055,60 1060,35
100 Tékkneskar krónur 527,05 528,45
100 V-þýzk mörk 957,20 959,70
1000 Lírur 61,18 61,34
100 Austurrískir sch. .... 145,95 146,35
100 Pesetar 63,33 63,50
Vaxtakjör
Einn liður í efnahagsráðstöfun-
unum, sem ríkisstjórnin beitti sér
fyrir snemma árs 1960 var al-
menn hækkun vaxta um 4%, sem
kom til framkvæmda 22. febr.
það ár. Tilgangur vaxtahækkun-
arinnar var að stuðla að því að
ná jafnvægi í peningamálum með
því að draga úr eftirspurn eftir
iánsfé og hvetja til aukins sparn-
aðar. Var gert ráð fyrir því, að
vextir lækkuðu aftur, þegar jafn
vægi væri náð og útlit fyrir, að
jafnvægi héldist.
í desember sl. fóru fram við-
ræður milli Seðlabankans og rík-
isstjórnarinnar um möguleika til
vaxtalækkunar, sem leiddu til
jþess, að stjórn Seðlabankans á-
kvað að lækka almenna innláns-
og'útlánsvexti um 2% frá og með
29. des. 1960. Þessi ákvörðun
byggðist á því, að jafnvægi hefði
náðst milli framboðs og eftir-
spurnar á erlendum gjaldeyri og
innlánsaukning viðskiptabanka
og sparisjóða á árinu 1960 myndi
nægja til þess að standa undir
þeirri útlánaukningu, sem orðið
hefði.
Nú eru innlánsvextir af al-
mennum sparisjóðsbókum 7%,
eins og kunrtugt er, af spari-
sjóðsbókum með 6 mánaða upp-
sagnarfresti 8% og af sparisjóðs-
bókum með 12 mánaða uppsagn-
arfresti 9% (en það er nýtt inn-
lánsform). Almennir forvextir
(útlánsvextir) eru hinsvegar 9%.
U lánsvextir
banka er/endis
Þær upplýsingar, sem hér á
landi hafa helzt verið birtar um
vaxtakjör erlendis, byggjast að
mestu leyti á tilkynningum um
forvexti erlendra þjóðbanka. Þess
misskilnings gætir því oft í um-
jræðum manna um samanburð á
vaxtakjörum hér og erlendis, að
bornir séu saman almennir út-
lánsvextir íslenzkra banka og
forvextir erlendra þjóðbanka. En
forvextir þjóðbanka gilda aðeins
um viðskipti þeirra gagnvart öðr-
um bönkum og um fáein önnur
sérstök viðskipti. Með tilliti til
ÓNNUR LÖND
þessa hafa hér verið teknar sam-
an upplýsingar um útlánsvexti
viðskiptabanka í ýmsum löndum
og eru þeir sambærilegir við hina
almennu útlánsvexti banka og
sparisjóða hér.
Meðfylgjandi tafla sýnir út-
lánsvexti viðskiptabanka í ýms-
um löndum, eins og þeir voru í
júlí 1960. Þetta eru lægstu vext-
ir, sem traustustu fyrirtæki
greiða af bankalánum án sérstakr
ar tryggingar. Mikill meinhluti
lántakenda greiðir hins vcg'ar
hærri vexti. í mörgum þessara
landa bætist auk þess ýmiss kon-
ar lántökukostnaður ofan á vext-
ina.
Helztu peningamarkaðir:
Japan .... 9% Svíþjóð 6—6 Vi
Þýzkal. 8—8V2 Kanada 5íi
Frakkl 7>/« Belgía .... 5',i—6?i
ítalía .... 6/2—7*2 Bandar. 5
Bretland 6',4 Holland 4', 4—5*4
Sviss .... 4 »/2—5
Önnur Evrópulönd
Grikkl 9—10 Spánn .... 6',4—7
Austurr. 814 írland .... 6 '/2
Danmörk 7 Vz Finnl 6—7
Tyrkland 7 Noregur 5',4
Portúgal 4
Brezk samveldislönd
Bah.eyj. 6'/2 Malaja .... 6
Jamaíka «'/a H. Kong 6
N-Sjál 6 S-Afríka 6
Pakistan 6 Ceylon . 6
Singap.... 6 Indland 5',4
Ástralía 5',4
Suður-Ameríka:
Chile .... 15 Costa R. 8
Perú 13—13»/a Honduras 7
Brasilía 12 Venezúel. 7
Paraguay 12 Kúba .... 6—8
Argent. 10 E1 Salvad 6—7
Ekvador 10 Guatemal 6
Úrugauy S',4 Nicarag 6
Mexíkó... 10 Panama 6
Columbía 8 Púerto R 5V2
Önnur lönd:
íran 12—15 Sýrl 7
israel .... 10 Víetnam 6—7
Thaíland 9—12 Líbería.... 6
Filippse. 7',4 Jórdan ... 6
iraq 7—8 Egyptal 5t4
Líbanon 4 »/2—5
Eins og sjá má á töflunni, eru
vextir milli 6% og 10% algeng-
astir. í nokkrum löndum eru
vextir lægri en þetta, og eru
Bandaríkin helzt þeirra, en hærri
vextir en 10% eu í nokkrum
vanþróuðum löndum í Suður-
Ameríku og Asíu. Athyglisvert
er, að vextir í Þýzkalandi og Jap
an eru 8—9%, en í báðum þessum
löndum eru háþróaðir peninga-
markaðir. í fsrael eru vextir 10%
en efnahagsvandamál þar eru að
mörgu leyti svipuð, því sem hér
er. •
Millirikjaviðskipti
með landbúnaðar-
afurðir
Margvíslegar hömlur eru á við
skiptum með landbúnaðarafurð-
ir milli landa, en þó eru þær
verulegur hluti af heimsviðskipt
unum. Mörg lönd Vestur-Evrópu
hafa ekki nægjanlegt landrými
til að geta fullnægt þörfum sín-
IN 0 L A N D1%
KANADA 3%-^i
6EL&ÍA-,
LÚXE.MBURG-^4
flOULAND4%
JAPAN
BRETLAND
BANDARIKIN
’. ÞY2KALAND
FRAKKLAND
Hundraðshluti heildarinnflutnings —
af heimsmarkaðnum með landbúnaðarafurðir 1960.
um hvað landbúnaðarafurðir
snertir, en hitt ræður þó meiru,
að ræktunin fer mjög eftir loft-
slaginu og öðrum náttúrulegum
aðstæðum. Þannig verða til dæm-
is margar jurtir aðeins ræktaðar
í hitabeltinu, þar sem nægilega
hátt hitastig og nægur raki er
fyrir þær. Mið-Ameríkuríkin eru
yfirleitt mjög vel fallin til ban-
anaræktar. Ástralía og Nýja Sjá-
land til sauðfjárræktar og þann-
ig mætti lengi telja.
Mörg lönd setja ýmiss konar
hömlur við innflutning landbún-
aðarafurða til stuðnings bænda-
stéttinni á hverjum stað. Hefur
þetta bæði verið gert af öryggis-
sjónarmiði, með tilliti til styrj-
aldartíma, og eins hafa bændur
víða tiltölulega mikil pólitísk á-
hrif.
Bretar hafa löngum flutt inn
meira af landbúnaðarafurðum en
nokkur önnur þjóð. Þeir halda
þessari forystu enn á árinu i960,
eins og sést á meðfylgjandi teikn
ingu, þar sem þeir fluttu inn
meir en fimfntung af verðmæti
allra landbúnaðarafurða á heims-
markaðnum það ár. í öðru og
þriðja sæti eru Bandaríkjamenn
og V-Þjóðverjar, en þessar þrjár
þjóðir eru með samtals helming
innflutningsins árið 1960.
Sjötug í dag
Guðrún Magnúsdótrtr
FRK. Guðrún Magnúsdóttir á 70
ára afmæli í dag. Hún er fædd
14. marz 1891. Foreldrar hennar
voru Magnús Jónsson, útvegs-
bóndi frá Frankastöðum og kona
hans Vilborg Magnúsdóttir. Ung j
fór hún í fóstur til hjónanna
séra Jens Pálssonar síðar pró-
fasts í Görðum og konu hans frú
Guðrúnar að Útskálum og ólst
Peningalán
Get látið í té 100—150 þús. krónur til nokkurra mán-
aða gegn öruggu fasteignaveði. — Tilboð merkt:
,,Fasteignaveð — 1806“ sendist afgreiðslu blaðsins
fyrir 16. þ.m.
þar upp.
Guðrún hefur alltaf starfað við
skrifstofustörf, og í mörg ár og
ennþá hjá Sjúkrasamlagi Reykja-
víkur. Hún hefur ferðast víða
bæði utanlands og innan, og
kann frá mörgu að segja úr
þessum ferðalögum sínum.
Þessar línur eiga ekki að vera
til þess að rifja upp æfiferil
Guðrúnar, en Kvennadeild Slysa-
varnafél. í Reykjavík langar til
að þakka henni fyrir hið mikla
og óeigingjarna starf hennar í
þágu deildarinnar. Frá 1936 var
hún annar endurskoðandi fyrir
deildina, þar til hún 1943 var kos
in í stjórn deildarinnar, fyrst sem
vara- og síðar sem aðalritari, en
síðustu 10 árin- sem aðalgjald-
keri. Það er töluvert starf og
ábyrgðarmikið. Hún er alltaf boð
in og búin til að starfa, því það
er mikið starf og tímafrekt sem
deildin vinnur að og hefur Guð-
rún ekki legið á liði sínu í henn
ar þágu.
Ekki er hægt að sjá eða heyra
árafjöldann á Guðrúnu, því hún
er síkát og starfsgleði hennar
mikil. Kvennadeildin þakkar
henni fyrir hennar mikla og ötula
starf og óskar henni farsældar
og langra lífsdaga, og vonar að
íá að njóta starfsemi hennar
sem lengst.
í dag verður hún stödd í húsi
Slysavarnafélagsins á Granda.
garði og tekur þar á móti vinum
sínum og vandamönnum.
Stjórn Kvennadeildar
Slysavarnafél. í Rvík.
O R I O l\l
LNIVERSAL
er ein fullkomnasta 2ja
nálaborða prjónavélin sem
á markað hefur komið.
Handhæg, lipur og sterk.
Hún fæst einnig með
fallegri tösku.
Prjónar jafnt ur sverasta
ullargarni og hárfínum
nælonþræði.
O R I O IM
umboðið
Bolholti 6 — Sími 37320.