Morgunblaðið - 14.03.1961, Blaðsíða 24
íþróttir
Sjá bls. 22
Rœða Ólafs Thors
Sjá bls. 13.
60. tbl. — þriðjudagur 14. marz 1961
Byggö upp sex „feröa-
mannasvæði"
segir franskur ferðamálasérfræðingux
FBANSKI ferðamálasérfræðing-
urinn, Georges LeBrec, sem hér
var á íerð í fyrra til að kynna sér
ferðamálin, hefur nú skilað áliti
sínu og tillögum. Stjórn Ferða
málafélags Keykjavíkur hafði tal
af blaðamönnum í gær og kynnti
þeim niðurstöður hins franska
sérfræðings.
★
LeBrec gerir tillögur um að
megin áhherzla verði lögð á að
„byggja" upp sex svæði á land
inu til móttöku erlendra íerða-
manna. Á öllum stöðunum telur
hann hótelrými mjög ófullnægj
andi svo og annan aðbúnað, m.a.
aðstæður til íþróttaiðkana og
stuttra ferðalaga — og segir
hann óhyggilegt að auglýsa land
ið of mikið sem ferðamannaland
á meðan við getum ekki tekið
við nema mjög takmörkúðum
fjölda útlendinga.
„Ferðamannasvæðin", sem
franski sérfræðingurinn leggur
áherzlu á, eru: Reykjavík og ná-
grenni, Þingvellir og Hveragerði,
Vestmannaeyjar, Búðir á Snæ-
fellsnesi, Mývatn og nágrenni —
og loks miðhálendið, sunnan Hofs
jökuis og milli Vatnajökuls og
Langjökuls.
í Reykjavík eru nú t.d. 320
gistirúm, en LeBrec telur 600
algert lágmark. Á Þingvöllum
vill hann reisa gistihús með 40
rúmum, í Hveragerði annað með
20 rúmum, í Vestmannaeyjum
þriðja með 50 rúmum, við Mý-
vatn það fjórða með 50 rúmum
og á Búðum það fimmta með 30
rúmum. Auk þess ber brýna
nauðsyn til að á öllum stöðunum
verði gerðar ráðstafanir til að
ferðamönnum verði unnt að fá
leigða báta til veiðiferða, á sjó
og á vötnum, aðstaða bætt til
golf-iðkana og annars slíks —
og smáflugvellir verði gerðir að
Búðum, við Mývatn og á hálend
inu. En þetta eiga aðeins að verða
byrjunarframkvæmdir.
★
Gisli Sigurbjörnsson, formað-
ur Ferðamálafélagsins, hafði orð
fyrir stjórnarmönnum og sagði,
að niðurstaða hins franska sér-
fræðings yrði kynnt öllum helztu
áhrifamönnum á þessu sviði og
kvað hann stjórnina mundu beita
sér fyrir því að unnið yrði skipu
lega að því að framkvæma —
helzt sém mest af því, sem
Frakkinn hefur lagt til að gert
yrði. Sagðist Gísli binda vonir
við, að tillagan um ferðamálaráð
næði fram að ganga svo að hægt
yri að vinna skipulega og mark-
visst að uppbyggingu þessa nýja
atvinnuvegs. — Þá sagði Gísli,
að von væri á frægum þýzkum
kvikmyndatökumanni, sem væri
sérfræðingur í töku lanokynning
armynda.
★
Einn stjórnarmanna, Njáll
Símonarson, sagði, að allar helztu
ferðaskrifstofur í Evrópu væri
nú búnar að taka ísland inn í
ferðaáætlanir sínar og árangur
inn væri þegar ljós. Miklu meira
væri um farmiðapantanir með
skipum og flugvélum en nokkru
sinni fyrr, gististaðir við Mý-
vatn væru t.d. nær þegar upppant
aðir fyrir sumarið, mest fyrir er
lenda ferðamenn — og vafalaust
mundum við ekki getað annað
öllum þeim fyrirspurnum, sem
berast mundu fyrir vorið.
70 togarar við landið
BLAÐINU barst i gær þessi frétt
frá íslenzku Landhelgisgæzlunni:
Vegna fyrirspurna um hve
margir togarar muni vera hér við
!and sem stendur, getUr Land-
helgisgæzlan gefið eftirfarandi
upplýsingar.
Fyrir Vesturlandi frá Reykja-
nesi að Horni voru nú um helg-
ina alls 15 brezkir togarar að
veiðum utan 12 sjómílna takmark
anna, 2 á ferð og einn á svæðinu
milli 6 og 12 sjómílna.
Fyrir Norðurlandi, frá Horni
að Langanesi, voru 16 brezkir
og íslenzkir togarar að veiðum,
allir utan 12 sjóm. markanna og
3 á ferð.
Fyrir Austurlandi, frá Langa-
nesi að Ingólfshöfða, voru 10
brezkir togarar að veiðum utan
12 og 8 milji 6 og 12 sjómílna
markanna. Auk þess var þar einn
á ferð.
Fyrir Suðurlandi, frá Ingólfs-
höfða að Reykjanesi, voru 6 brezk
ir og 1 íslenzkur togari að veið-
um á milli 6 og 12 sjómílna mark-
anna djúpt á Selvogsbanka, 2
þýzkir á ferð og 2 óþekktir lengra
úti. Auk þess voru þar nokkrir
belgiskir togarar innan nýju tak
Rosatíð í Ólafsvík
Ólafsvík, 13. marz
HÉR hefur verið rosatíðarfar að
undanförnu og snarpir stormar
blásið af vestri og suðvestri. Mjög
erfitt hefur verið að vitja um
r.etin, enda liggja þau djúpt úti.
Afli hefur verið lélegur. — H.G.
markanna, en utan þeirra
gömlu. Stöðvaði varðskipið
Þór tvo þeirra og skýrði þeim
frá hinum nýju reglum. Annar
þeirra nam ekki staðar fyrr en
varðskipið gaf stöðvunarnxerki
með skotum.
Samtals voru því nú um helg-
ina um 70 togarar á grunnslóðum
hér við land þar af rúmlega 50
brezkir en hinir íslenzkir, belg-
iskir og þýzkir.
Forseti Islands, herra Ásgeir Ásgeirsson, leggur hornstein
Bændahallarinnar. (Ljósm. vig.)
Árangtóus tilraun
til lífsbjargar
Ellefu ára íslenzk telpa lézt á leið
í sjúkrahús í Amsterdam
Lækningaheimili
fyrir taugaveikluð bösrn
BARNAVERNDARFÉLAG
Reykjavíkur hefur stofnað sjóð
með 100 þús. kr. framlagi til
þess að reisa lækningaheimili
handa taugaveikluðum börnum.
Sjóðurinn heitir Heimilissjóður
taugaveiklaðra barna, og hefur
forseti íslands nýiega staðfest
skipulagsskrá hans.
Á stjórnarfundi Barnaverndar
félags Reykjavíkur sl. laugardag
afhenti gjaldkeri félagsins, frú
Lára Sigurbjörnsdóttir, stjórn
sjóðsins kr. 100 þús. stofnfram-
lag. í skipulagsskrá segir m.a.:
„Markmið sjóðsins er það að
hrinda í framkvæmd byggingu
Dvalarheimilis handa taugaveikl
uðum börnum, sem njóta sér-
fræðilegrar meðferðar og þarfn
ast í því sambandi slíkrar dvalar
um skeið“.
Ennfremur segir, að sjóðinn
skuli efla með fjárframlögum
Barnaverndunarfélags Reykja-
víkur og annarra félaga, sem
kynnu að vilja styrkja hann, og
með gjöfum og áheitum einstakl
inga.
Hinum nýstofnaða sjóði hefur
þegar borizt rausnarleg gjöf
Kristjáns Jóhanns Kristjánsson-
ar, forstj. Sendi hann sjóðnum
kr. 5 þús. jafnskjótt og hann
heyrði getið um stofnun hans.
Stjórn Heimilissjóðs taugaveikl
aðra barna þakkar Kristjáni
þennan drengilega stuðning.
Gjöfum einstaklinga og fyrir-
tækja verður veitt móttaka hjá
biskupsritara, í skrifstofu bisk-
ups, Arnarhvoli.
Stjórn sjóðsins skipa. Jónas B.
Jónsson, fræðslustjóri, Ingólfur
Ástmarsson, biskupsritari, Sigur
jón Björnssonar, forstöðumanns
Geðverndardeildar Heilsuvernd-
arstöðvar Reykjavíkur og dr.
Matthías Jónasson, formaður
Barnaverndarfélags Reykjavíkur.
— Fimmti stjórnarmaðurinn hef
ur ekki enn verið skipaður.
Einkaskeyti til Mbl.
frá Kaupmannahöfn 13. marz
f SÍMSKEYTl frá Amsterdam er
skýrt frá því, að sl. laugardag
hafi harmi þrungin móðir haldið
til Reykjavíkur frá Amsterdam,
eftir árangurslausa tilraun til að
bjarga lífi 11 ára dóttur sinnar,
Jónu Arnórsdóttur.
Telpan var lífshættulega veik
og það eina, sem hefði getað orð-
ið henni til bjargar, var að gang
ast undir heilaskurð, sem ekki
var unnt að gera á íslandi.
Ákveðið var að senda hana
flugleiðis til Kaupmannahafnar,
en svartaþoka olli því, að flug-
vélin varð að halda beint til
Amsterdam. Líðan Jónu litlu
versnaði á leiðinni, enda þótt
íslenzkur læknir, sem var með í
förinni, gerði með aðstoð flug-
íreyjunnar, allt sem unnt var til
að bjargar. Jóna lézt í sjúkra-
bifreið á leið frá flugvellinum í
Amsterdam til sjúkrahúss.
f tilefni þessa fréttaskeytis átti
Mbl. tal af Sigurði Magnússyni
fulltrúa hjá Loftleiðum. Upplýsti
hann að mæðgurnar hefðu flogið
roeð Loftleiðavél — Leifi Eiríks-
syni, en vísaði síðan til flugfreyj-
unnar Stefaníu Guðmundsdótt-
ur, er var með í ferðinni.
Stefanía tjáði Mbl. að telpan
hefði verið mjög veik og læknir-
inn, Björn Júlíusson, sem með
var, ekki fengið rönd við reist.
Leifur Eiríksson var á áætlunar-
ferð til Glasgow og London og
var ákveðið að þær mæðgurnar
færu þangað beint til Kaup-
mannahafnar. En svartaþoka
varnaði lendingu í London. Þá
var ákveðið að halda beint til
Kaupmannahafnar, en þar var
einnig þoka og ógerlegt að lenda.
Varð því ekki annað úrkosta en
halda til Amsterdam.
Foreldrar Jónu litlu eru Mál-
fríður Halldórsdóttir og Arnór
Stígsson, ísafirði.
Áfram streym-
ir endalaust
á ísafirði
ÍSAFIRÐl, 13. marz. — Ekk-
ert hefur enn upplýstst um
það, hvar auðlind sú er stað-
sett, sem fleytir peningaseðl-
um um skolpræsi og í sjó fram.
Hefur rannsókn málsins ekki
leitt neitt í Ijós, sem veitt gæti
visbendingu um auðsupp-
sprettu þessa. Eitthvað virðist
vera farið að ganga á sjóðinn,
en þó voru seðlar enn að skol-
ast fram í gærdag og í morgun.
Lögreglan mun nú taka mest
af seðlunum í sína vörzlu.
— Guðjón.
Sjúkraflug
AKRANESI, 13. marz. 1 gær
lenti sjúkraflugvél Bjöms Páls-
sonar hér inni á Langasandi.
Flutti hún Guðmund Stefánsson,
roskinn mann, norðan frá
Hvammstanga, og var hann
lagður inn 1 sjúkrahúsið hér.
Flugvélin staldraði við í 15 mín,
Það var nærri háflæði, og þótti
vel af sér vikið hjá flu-gmannin
um, er hann hóf sig á loft á 20
metra tilhlaupi og sveif út í heið
loftin blá. — Oddur.
Allir vegir fætir í gær nema um
Hoitavörðuheiði og Bröttubrekku
„HOLTAVÖRÐUHEIÐI er nú að-
alhöfuðverkur okkar“, sagði Snæ
björn Jónasson, verkfræðingur
hjá vegamálastjóra, þegar Mbl.
spurði hann og Kristján Guð-
mundsson um ástand vega úti
um land. Sagði hann heiðina vera
ákaflega ógreiðfæra og færi hún
heldur versnandi. Hún var lokuð
í gær en ætlunin er að reyna að
opna hana í dag. Það getur þó
brugðið til beggja vona, eftir því
hvernig tíðin verður.
Aðrir farartálmar eru ekki á
leiðinni norður í land. Á Hval-
fjarðarveginum er dálítið krap,
en hann ætti að vera fær öllum
bifreiðum. Sæmileg færð er upp
um Borgarfjörð. Sama er að segja
um vegi norðanlands, t. d. myndi
Öxnadalsheiði vera sæmilega auð
veld yfirferðar.
Hins vegar var Brattabrekka á
leiðinni vestur í Dali ófær, en í
dag stendur til að ryðja hana.
Hellisheiði er alveg sæmilega
fær og vegir austur um sveitir
og upp um Árnessýslu færir. Veg-
ir í nágrenni Reykjavíkur eru
allir færir. Þó er vegurinn austur,
Þingvallaheiði dálítið varasamur,
sérstaklega nálægt vegamótununu
við gamla Þingvallaveginn og á
háheiðinni. Hafa myndazt þar
geilar í brautina, en umferð á
að vera öllum fær. Sama er una
Krýsuvíkurveginn, að hann er
nokkuð varhugaverður á köílum
vegna geilamyndunar.