Morgunblaðið - 21.03.1961, Page 1
24 siður
>
Fullkomin ratsjá gerði
staðsetningu mögulega
Fyrsti brezki togarinn tekinn eftir
viöurkenningu á 12 milunum
FYRSTI brezk! togarinn, sem
tekinn er eftir að Bretar við-
urkenndu 12 míiia fiskveiðí-
takmörk við landið, var tek-
inn síðdegis á sunnudaginn
suður við Eldey. Það var Þór
undir skipstjórn Þórarins
Björnssonar skipherra, sem
tók togarann. Þegar hann sá
fyrst til skipsins í radar varð
skipsins, var hann inn á lok-
uðu svæði á Eldeyjarbanka,
en var kominn á opið svæði
er Þór stöðvaði togarann.
Hann heitir Othello og er frá
Hull. (Á bls. 3 er nánar sagt
frá töku skipsins). Hér á
eftir er það rakið, sem fram
kom við réttarhöldin í gær-
dag, í sakadómi Reykjavíkur,
en Valdimar Stefánssson
akadómari, fjallaði um mál
hins unga skipstjóra brezka
togarans.
• Réttarhöldin
Klukkan rúmlega tvö var rétt-
ur settur. Meðdómendur Valdi-
mars sakadómara voru þeir Pét-
ur Björnsson skipstjóri og Jónas
Jónasson skipstjóri. Meðal ann-
arra, er mættir voru í réttinum
voru þeir Brian Holt brezkur
ræðismaður, Geir Zoega fulltrúi
eigenda togarans, Hellyers-
bræðra, sem margir eldri Hafn-
firðingar og fleiri kannast við.
Talsmaður skipstjórans var Gísli
ísleifsson hdl. Túlkur dó'mara
var Snæbjörn Jónsson dó'mtúlk-
ur.
Var tilkynning um það gefin
út frá landhelgisgæslunni í gær:
VARÐSKIPIÐ sá togarann fyrst
í radar kl. 16,42 í gær, og var
hann þá á veiðum um 7,5 sjómíl-
ur innan fiskveiðitakmarkanna.
Var honum gefið merki um að
stöðva, fyrst með flaggi, síðan
með tveim lausum skotum, og
loks var kallað á hann í talstöð.
Kl. 17,10 var komið að togaranum
þar sem hann var að hífa inn
vörpuna rúmar 6 sjóm. innan tak
markanna. Voru þar sett út tvö
dufl og nokkru síðar fór II. stýri-
maður varðskipsins, ásamt tveim
ur hásetum, yfir í togarann á
gúmmíbát. Var veður þá orðið
mjög slæmt og þótti ekki ráðlegt
að skipstjóri togarans kæmi til
viðræðna yfir í varðskipið. Var
gúmmíbáturinn þá tekinn um
borð í togarann og voru hinir 3
skipverjar ÞÓRS þar um borð
þangað til komið var til Reykja-
víkur.
Síðar barzt beiðni frá brezka
herskipinu PUMA um að skipin
biðu á staðnum þar til það kæmi
og gæti kynnt sér málavexti.
Varð varðskipið við þeirri beiðni,
en þegar leð á kvöldið og veður
fór versnandi, fyrsta duflið týnt
(það hvarf strax) og annað dufl-
ið komið á rek, þá var herskip-
inu tilkynnt að tiigangslaust
myndi að bíða lengur og því
haldið til Reykjavíkur. Var kl. þá
23,27. Kl. 0440 komu skipin svo á
ytri höfnina í Reykjavík.
Að vanda kom Þórarinn skip-
herra vel og virðulega fyrir í
dómnum. Það var ekki hægt að
sjá, að hann væri búinn að
vaka samfleytt í nær 40 klufcku-
stundir. Nokkrum spurning-
um var beint til skipherrans,
sem hann svaraði greiðlega t. d.
varðandi ratsjá* Þórs. Hún er af
Spetrry-gerð upplýsti skipherra
Framh. á bls. 23.
Þriðji maður
í Peugeot-
múlinu
BANDARÍSKA vikuritið
Time skýrir frá því, að óvænt-
ir atburðir eigi eftir að gerast
í sambandi við mál barnaræn-
ingjanna frönsku. Það greinir
frá því að undarlegt þyki, að
Peugeot-fjölskyldan hafi dval-
izt í sama fjallabænum og
barnaræningjarnir.
Síðan bætir hlaðið þeim upp
lýsingum við, að fulltrúi
frönsku lögreglunnar hafi lýst
því yfir að „þriðji maðurinn"
muni bráðlega verða afhjúpað
ur í þessu máli. Sagði lögreglu
foringinn, að þegar þriðji mað
urinn kæmi fram myndi verða
litið á það, sem alþjóðar
hneyksli.
Verwoerd fagnað
sem sigurvegara
Þórarinn Björnsson, skip-
herra á Þór, tók á sunnudag
fyrsta brezka togarann að ó-
löglegum veiðum eftir að Bret
ar viðurkenndu 12 mílna mörk
in. Myndina tók Ól. K. M. af
Þórarni um borð í Þór, en
hann kom til Reykjavíkur
með togarann í gær. Togarinn,
Othello frá Hull, liggur ut-
an á Þór í Reykjavíkurhöfn,
sést í baksýn.
Þórarinn Bjömsson skipherra
é Þór lagði fram skýrsiu, þar
sem hann gerði grein fyrir að-
draganda þess að togarinn var
tekinn, og sjálfri handtökunni.
Mesti afli
á einum
degi
Bolungarvík, 20. marz.
f KVoLI) kom mb. Einar
Hálfdánsson, skipstjóri Hálf-
dán Einarsson, sem stundar
netaveiðar, hingað til Bolung-
arvíkur með 40 tonn af góðum
fiski. í fyrradag var hann með
24 tonn. Það er einsdæmi að
einn bátur landi svo miklum
afla á Vestfjörðum á einum og
sama degi. — Togarinn Pétur
Halldórsson landaði einnig í
dag 40 tonnum.
Þó er ólga í Suður-Afriku
með handtókum og óeirðum
Johannesburg, 20. marz.
JRenter). —
„ÉG GERÐI það sem guð
bauð mér“, sagði dr. Ver-
woerd forsætisráðherra við
heimkomuna til Suður-Af-
ríku í dag.
Yfir 50 þúsund manns söfn
uðust saman úti á flugvelli
Jóhannesarborgar til að
fagna Verwoerd og þakka
honum skelegga framgöngu á
ráðstefnu Samveldislandanna
í London.
Snemma um morguninn,
aðeins nokkrum klukkustund
um fyrir komu Verwoerds
fór lögregla heim til nokk-
urra helztu leiðtoga svert-
ingja í landinu. Voru þeir
handteknir og færðir í fang-
elsi sakaðir um að vilja koma
af stað óeirðum í landinu.
Og rétt í sama mund og
flugvél Verwoerds snerti
flugbrautina, brutust all al-
varlegar óeirðir út í miðhluta
Jóhannesarborgar. Börðust
hvítir og svartir. Urmul lög-
reglumanna bar að og bældu
þeir rósturnar niður með
kylfubarsmíð, og handtóku
allmarga óeirðamenn.
Spenna og óværð er í allri
Suður-Afríku og eykur það
ekki sízt á ólguna, að í nótt
er eitt ár liðið frá hinni
ægilegu skothríð lögreglunn-
ar á svertingja í Sharpeville,
en þá féllu 69 svertingjar.
Hátíðleg móttaka
Fylgismenn Verwoerds fögn-
uðu honum ákaflega við mót-
tökuna á flugvellinum. Þeir
æptu fagnaðaróp, klöppuðu sam
an lófum, sungu þjóðsöng Suður
Afríku og sálma. Var móttöku-
athöfnin hátíðleg með trúarleg-
Poriugaiar
LISSABON, 20. marz. (Reuter).
— Portugalska stjórnin hefur
ákveðið að hefja í skyndi her-
flutninga með flugvélum til hý-
lendunnar Angólu í suðurhluta
Afríku. Hlutverk herliðsins er
að bæla niður skæruliðahernað
sem brotizt hefur út í norður-
hluta nýlendunnar meðfram
landamærum Kongó.
Portúgalska fréttastofan Lusi-
um blæ og hafði hátölurum ver
ið komið fyrir til þess að mót-
tökuræður heyrðust.
Einn af flokksfélögum Ver-
woerds sagði m.a.: — Verwoerd
er ekki aðeins leiðtogi hvítra
manna í Suður-Afríku, heldur
hvitra manna um gervallan
heim. Á stórt leturband sem
Framh. á bls. 23.
ilytja her
tania, segir að skæruliðahernað-
urinn sé mjög alvarlegur. Hafi
skæruliðar farið rænandi og
brennandi um héruð og hafi flótta
fólk komið til höfuðborgar
nýlendunnar Lúanda. Hermdar-
verk skæruliðanna beinast að
hvítum mönnum og segir frétta
stofan að hvítir íbúar þorpa í
norðurhluta Angóla hafi verið
stráfelldir.
Framh. á bls. 23.
»