Morgunblaðið - 21.03.1961, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðiudagur 21. marz 1961
Verzlun óskast
Matvöru og/eða kjötverzlun á góðum stað í bænum
óskast til leigu. Helzt í fullum gangi.
Tilboð sendist á afgreiðslu blaðsins fyrir fimmtu-
dagskvöld merkt: „1676“.
r
Utborganir
eru alla virka daga, nema laugardaga,
frá kl. 9—12 og 1—3.
ÞÓRÐUR SVEINSSON & CO. HF.
VERKSMBDJAN VÍFILFELL HF.
BAZAR
heldur átthagafélag Sléttuhrepps miðvikudaginn
22. marz kl. 2 e.h. í Góðtemplarahúsinu.
tírval af góðum og ódýrum munum.
NEFNDIN.
Vil kaupa
góðra 4ra—5 herbergja íbúð, sem mest sér og helzt
á hitaveitusvæði. Há útborgun. Upplýsingar í síma
14709 milli kl. 7—9 í kvöld og annað kvöld.
Ford 1957
Til sölu er Ford Fairline 500 Victoria árg. 1957. Bíll-
inn er sjálfskiptur, tveggja dyra, keyrður tæpl. 40
þús. mílur. Hann hefir alltaf verið í einkaeign og er
í I. fl. ásigkomulagi. Góðir greiðsluskilmálar.
V A G N I N N HF.
Laugavegi 103 — Sími 24033.
. • • allir þekkja
BAB-0
BAB-0 ræstiduft
spegilhreinsar
(Jppruni mannlegs máls
eftir dr. Alexander Jdhannesson, ein af
þremur ársbókum ísl. bókmenntafélagsins
RÉTT EFTIR áramótin komu út
ársbækur Hins íslenzka bók-
menntafélags fyrir árið 1960.
Hafa þær nú verið sendar til
félagsmanna í Reykjavík og um
boðsmanna félagsins út um land.
Hið íslenzka bókmenntafélag
var stofnað í Kaupmannahöfn
árið 1816 og var Rasmus Kristjan
Rask einn helzti hvatamaður að
stofnun þess. í félaginu eru nú
um 1500 manns.
Ársbækur félagsins árið 1960
eru 3 og ber fyrst að telja bók-
ina Uppruni mannlegs máls eft
ir prófessor Alexander Jóhannes
son. Hún er 186 bls. í stóru broti
og fjallar um helztu kenningar,
sem fram hafa komið um það
með hverjum hætti tungumál
hafa orðið til. Höfundurinn hefur
varið miklum tíma í rannsóknir
þessa verkefnis s.l. 20 ár og skrif
að um það fjölda rita og ritgerða
bæði á íslenzku og erlendum mál
um. í þessum ritum setur hann
fram nýstárlega kenningu um
uppruna málsins. Og geta menn
fræðst um hana við lestur bókar
hans.
önnur ársbókin er eftir pró-
fessor Ólaf Lárusson og er hún
síðasta bókin, sem hann fullgerði.
Hún ber nafnið Nöfn íslendinga
árið 1703 og er gefin út í flokkn
um, Safn til sögu íslands og ís-
lenzkra bókmenntá. Er hún töl-
fræðilegt yfirlit um mannanöfn
á Islandi 1703 og byggð á mann-
talinu, sem þá var tekið. í bók
inní má sjá tíðni mannanafna á
Islandi 1703 og má sjá að á þeim
tíma hafa nær eingöngu verið
notuð forn íslenzk nöfn ásamt
Biblíunöfnum, sem farið er að
bera talsvert á, en lítið ber á
ónefnum.
Skírnir er þriðja ársbókin, er
heftið 234 bls. auk skýrslna og
reikninga. Halldór Haldórsson er
ritstjóri þess. Er þetta 134. árg.
Skírnis, en hann er elzta tímarit
á Norðurlöndum, sem gefið hefur
verið út óslitið síðan það hóf
göngu sína. Skírnir er með líku
sniði og verið hefur um alllangt
skeið. Eru í heftinu margar grein
ar um fróðleg efni eftir ýmsa höf
unda t.d.: Að gjalda torfalögin,
eftir Magnús Má Lárusson, Á
aldarafmæli Frödings, eftir Svein
Einarsson, 5 ljóð, eftir Einar Ás-
mundsson, Lækningagyðjan Eir,
eftir Jón Steffensen, Menningar-
samband Þjóðverja og íslend-
inga, eftir Alexander Jóhannes
son, Hugleiðing um íslenzk
mannanöfn að gefnu tilefni, eftir
Halldór Halldórsson, Séra Ólafur
á Söndum ,eftir Sigurjón Einars-
gon, Aldarminning Zamenhoffs,
eftir Árna Böðvarsson, Samfell-
an í Guðmundar sögu dýra, eftir
Simpson í þýð. Sölva Eysteinsson
ar, Samtíningur eftir Einar Ól.
Sveinsson.
Með ársbókunum er borið út
eitt hefti af annálum frá 1400—
1800, en það tilheyrir bókunum
1961. Þórhallur Vilmundarson
annast um útgáfuna. Aðrar árs-
bækur 1961 verða bók um Bald-
vin Einarsson eftir Nönnu Ólafs-
dóttur magister og Skírnir. Þær
verða sendar út síðar á árinu.
Milljónasii
gesturinn
í dag
í DAG verður seldur milljón-
asti aðgöngumiðinn í Þjóðleik-
húsinu. Aðgöngumiðasalan verð
ur opnuð eins og venjulega kl.
1,15. Aðgöngumiðar verða seld-
ir á leikritið Tvö á saltinu, sem
verður sýnt nk. fimmtudag og
er það 10. sýningin á því leik-
riti. Sá, sem hlýtur miða nr.
1.000.000 fær í verðlaun 2 að-
göngumiða, er gilda einu sinni
á hvert leikrit, sem sýnt verð-
ur í Þjóðleikhúsinu á árinu
1961 og kr. 1.000 í peningum.
Auk þess verða veitt tvenn
aukaverðlaun. Þeir, sem hljóta
næsta miða fyrir neðan, eða
nr. 999,999 og næsta nr. fyrir
ofan, eða nr. 1.000.001, hljóta
aukaverðlaun og eru það 2 að.
göngumiðar á tvær sýningar í
Þjóðleikhúsinu á þessu ári.
Myndin er af Guðmundi Stef-
ánssyni, fulltrúa, en hann ser
um aðgöngumiðasölu í Þjóðleik-
húsinu ásamt tveimur stúlkum,
Fanneyju Pétursdóttur og Þóru
Böðvarsdójttur.
Ót'æftir á
Siglufirði
SIGLUFIRÐI, 18. marz. — Her
er nokkuð mikill snjór. Allar "öt.
ur eru mokaðar, til að halda þeim
bílfærum, því stöðugt vill skafa
í bílförin. í morgun hefur þó ekki
verið nein hríð.
Stöðugar ógæftir eru til sjáv-
arins alltaf vindax og hálfkalt,
Línubátar og færabátar hafa
lengi lítið komizt á sjó. Loðnan
er svo mikil að fiskur hefur ekki
tekið línu.
Togarinn Hafliði losaði 180
lestir af heimamiðum í frystihús,
og nokkuð fór í skreið. Togbátur-
inn Hafþór losaði hér 30 lestir og
Þráinn 25 lestir. — Guðjón.
_________I
Skolprör
greinar, eygjur og 4“
H. Benediktsson hf.
Sími 38-300
Speglar
Úrval af speglum í mörgum stærðum er nýkomið
í verzlunina.
GT.F.RSLlPUN & SPEGLAGERP HF.
Laugavegi 15.
NauBungaruppboB
á bifreiðinni G-840 Y.F.A. Horch diesel vörubifreið
3.7 tonn fer fram við lögreglustöðina í Hafnarfirði
miðvikudaginn 29. marz n.k. kl. 2 e.h.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Sjómenn — FiskaBgerðarmenn
Háseta vantar á netabát frá Vestmannaeyjum.
Einnig menn vana fiskaðgerðum.
Upplýsingar í síma 50348.
Miðhær
Fjölmenn félagasamtök óska eftir að
kaupa hús eða hluta úr húsi, í eða
við Miðbæinn. Þeir, sem áhuga hafa
%
á að selja slíka eign sendi til boð í
pósthólf 1167 fyrir 25. marz n.k.
I