Morgunblaðið - 22.03.1961, Síða 11
Miðvikudagur 22. raarz 1961
MORCVNbLAÐIÐ
n
Ásgrímur
f. 1. maí 1877 — d. 6. marz 1961
í DAG er borinn til grafar á
Sauðárkróki, einn af elstu borg-
urum Sauðárkróksbæjar Ásgrím-
ur Einarsson fyrrverandi bóndi
og skipstjóri. Ásgrímur var fædd-
ur á Illugastöðum í Flókadal 1.
maí 1877, voru foreldrar hans
Einar bóndi á Illugastöðum o. v.
Ásgrímssonar bónda Mannskaða-
ihóli; Hallssonar bónda í Geld-
ingaholti Ásgrímssonar, Hólaráðs-
manns d. 1795, er þetta Skag-
firsk bændaætt, mann fram af
manni. Föðurbróðir Einars var
meðal annara Jón prófastur
Hallsson í Glaumbæ. Móðir Ás-
gríms og fyrri kona Einars var
Kristbjörg Jónsdóttir systir hins
kunna bónda og útgerðarmanns,
Jónasar Jónssonar á Látrum við
Eyjafjörð. Kristbjörg andaðist
frá mörgum ungum börnum 13.
febrúar 1879 var Ásgrímur þá
aðeins tveggja ára. Eftir lát
Kristbjargar brá Einar faðir hans
'búi. Fóru eldri börnin til ætt-
manna hans og vina, en yngstu
börnin fylgdu föður sínum sem
fór í húsmennsku í Málmey. Þá
bjuggu í Málmey Sölvi Sigurðs-
son og kona hans Herdís Bjama-
dóttir, sem síðar bjuggu lengi á
Yztáhóli í Sléttuhlíð og síðast í
Lónkoti í sömu sveit, sem þá var
talsverð útgerðarstöð. Þessi hjón
tóku Ásgrim til fósturs og ólu
hann upp. Herdís andaðist 1916,
en Sölvi varð gamall maður, tók
Ásgrímur hann til sín og var
hann hjá honum til æfiloka. Ás-
grímur ólst því upp jöfnum
höndum við landbúnað og sjó-
sókn eins og þá tíðkaðist í út-
sveitum Skagafjarðar. Rúmlega
•tvífugur að aldri fór hann í
IStýrimannaskólann í Reykjavík
og útskrifaðist þaðán vorið 1903.
— Eftir að Ásgrimur hafði lokið
námi við Stýrimannaskólann fór
hann í siglingar, og sigldi með
enskum skipum um hrið, en hvarf
bvo heim til æskustöðvanna.
Þegar heim kom tók hann við
skipstjóm á hákarlaskipum og
stundaði hákarla- og þorskveið-
ar. Var hann lengi á skipum
Helga Hafliðasonar á Siglufirði
o. fl.
Árið 1909 kvæntist Ásgrímur
frænd'konu sinni, ágætri konu
Stefaníu dóttir Guðmundar
oddvita í Ási í Hegranesi Ólafs-
sonar alþm. í Ási Sigurðssonar
og konu hans Jóhönnu Einars-
dóttur. Reistu þau bú vorið eftir
ó Ystahóli í Sléttuhlíð og bjuggu
þar til 1913, svo á hálfum Ási
1913—1924 og á Reykjum á
Reykjaströnd 1924—1931, er þau
fluttu til Sauðárkróks og bjuggu
þar til æfiloka.
Þó Ásgrímur gerðist bóndi og
hefði, er á leið all gott bú,
breytti hann lítið háttum sínum,
var skipstjóri eða stýrimaður
yfir vertíðir, og sigldi milli landa
ef svo bar undir. Síðast sigldi
hann milli landa sem stýrimaður
í síðari heiimsstyrjöldinni. Sjór-
inn var Ásgrími oft gjöfull, en
harin heimti líka skatt af honum
og konu haa.s eins og fleirum,
er þau mistu Þórhall, ungan son
sinn árið 1925 í fiskiróðri frá
Reykjum, er bátnum hvolfdi þar
í brimlendingu.
Rétt er að geta þess að vafa
Einarsson
lítið hefði þessi fjarver(á Ás-
gríms frá heimilinu valdið því
að búreksturinn hefði orðið út-
undan, ef hann og kona hans
hefðu ekki verið svo lánsöm að
hafa sem heimilismann mikinn
hluta búskapartíma síns, ágætan
mann Pétur Jónasson, síðar
hreppstjóra á Sauðárkróki, sem
var þeirra önnur hönd við stjórn
búsins.
Konu sína misti Ásgrímur 8.
júlí 1944, var það mikið áfall
fyrir hann. Eftir það bjó hann
með tveim börnum sínum til
æfiloka.
Sökum fjarveru frá heimili
sínu oft um lengri tíma komst
Ásgrímur hjá ýmsum trúnaðar-
störfum, þó sat hann um hríð í
hreppsnefnd, Skarðshrepps, var
hafnsögumaður á Sauðárkróki
nokkur ár og átti lengi sæti í sjó-
dómi.
Ásgrímur var all stór vexti
og hinn vaskasti maður í hverri
raun. Hann var ágætur sund-
maður, bjargaði það að minsta
kosti tvívegis lífi hans, við Vest-
mannaeyjar og síðar hjá Reykj-
um, er sonur hans drukknaði,
synti þá með hann að landi, en
brimið sleit hann úr höndum hans.
Hann var drengur góður, hóf-
samur gleðimaður og prúðmenni
sem ekki mátti vamm sitt vita.
Hann var öllum þeim kær sem
þékktu hann bezt. — Ásgrímur
og Stefanía áttu 5 börn, þessi
náðu fullorðins aldri: Einar
lögrrfgluþjónn í Reykjavík
kvæntur Sigríði Gísladóttur,
Bjöm, sjómaður, Sauðárkróki
og Jóhanna, bæði ógift, héldu
heimili með föður sínum.
J. Sig.
Sjálfstæbiskvennafélagið
Hvöt
heldur fund annað kvöld (fimmtudag)
kl. 8,30 í Sjálfstæðishúsinu.
D a g s k r á :
1. Frú Auður Auðuns alþingismaður
segir þingfréttir
2. Skemmtiatriði
3. Kaffidrykkja
Allar Sjálfstæðiskonur velkomnar meðan
húsrúm leyfir.
Stjórnin
Stúlka óskast
Stúlku vantar strax í verksmiðju okkar ekki yngri
en 20 ára. — Upplýsingar hjá verkstjóranum
Laugavegi 16, 1. hæð, — Upplýsingar ekki veittar
í síma.
Efnagerð Reykjavíkur
Veitingahús
Óskum eftir að taka á leigu eða veita forstöðu
veitingahúsi eða félagsheimili. — Margt annað kem-
ur til greina. — Höfum verið við veitingahússrekst-
ur í mörg ár. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 1. apríl
merkt: „Veitingar — 1686“.
Eignarlóð
á mjög góðum stað á Seltjarnarnesi til sölu. Skipti
á góðum bíl koma til greina. Tilboð leggist inn á
afgr. Mbl. fyrir laugardag merkt:
„Eignarlóð — 1827“.
TIL SÖLU
fokhelt hús við Safamýri. 2 hæðir og kjallari. 5 herb.
á hæð, 150 ferm. 3 herb. í kjallara. Selst I heilu lagi
Náuari upplýsingar gefa
malflutningsskrifstofa
Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar,
Guðmundar Péturssonar,
Aðalstræti 6 símar 1-2002, 1-3202, 1-3602.
TEAK útihurðir
útbúnar fyrir tvöfalt gler
Stærð 90x200 cm.
Verð kr. 6.900.00
Hjálmar Þorsteinsson & Co. h.f.
Klapparstíg 28 — Sími 11956
Atvinna
tvær stúlkur óskast strax í kjöt- og nýlenduvöru-
verzlun. — Gott kaup. — Góður vinnutími.
Upplýsingar í síma 22947.
Fiat station 1100
Óska eftir að kaupa Fiat station 1100, árgang 1958
eða yngri. Útborgun kr. 50 þúsund. Öruggar cifborg-
anir. — Upplýsingar í síma 15123 í dag.
íbúð
íslenzk fjölskylda búsett í New York óskar eftir
4ra til 5 herb. íbúð með húsgögnum til leigu máin-
uðina júlí og ágúst n.k. — Nánari upplýsingar í
síma 24655.
Skrifsfofustúlka
óskast. — Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri
störf, óskast send afgr. Mbl. merkt:
„Vélritun — 1682“.
Atvinna
Vanar saumastúlkur óskast.
Einnig stúlkur í frágang
Fatagerðin BURKNI
Laugavegi 178 — Sími 37880
Hessian
Höfum fyrirliggjandi fiskumbúðarstriga,
bindigarn og saumgarn
Ólafur Gíslason & Co. h.f.
Hafnarstræti 10—12 — Sími 18370
Létt rennur
GfteSoó