Morgunblaðið - 23.04.1961, Qupperneq 24
-4
Fjdrir íslenzkir tog-4
arar landa í Bretiandi
FJÓRIR íslenzkir togarar eru
nú á leið til Bretlands með
afla sinn. Eru það togararnir
Júpiter, sem landar í Grims-
by á mánudag, Hallveig
Fróðadóttir, sem landar í
Hull sama dag, Pétur Hall-
dórsson, sem landar í Grims-
by á þriðjudag, og Marz,
sem landar í Hull sama dag.
Skip þessi eru nær eingöngu
með ýsu og flatfisk og munu
ekki landa öðrum fiski í Bret-
landi að þessu sinni, nema Júpí-
ter, sem mun landa nokkru þorsk
magni u{>p í eftirstöðvar af þorsk
Skemmtileg
kvikmynd
HAFNARFIRÐI — Bæjarbíó hef
ir nú í nokkra daga sýnt mynd,
sem er að mörgu leyti allt annars
eðlis en þær myndir, sem við
eigum að venjast. í henni eru
ekki neinar aðal eða aukapersón-
ur, heldur byggist hún á heims-
þekktum skemmtikröftum, sem
maður tekur þátt í að hlusta á og
fylgjast með, þar sem þeir
Ekemmta á mörgum frægustu
skemmtistöðum Evrópu. Er hér
á ferðinni mynd, sem er með því
allra bezta, sem hér hefir sézt af
þessu tagi, og er þá mikið sagt.
Öll skemmtiatriðin fara fram á
þekktum næturklúbbum í París,
Lundúnum, Madríd og víðar. —
Meðal þeirra, sem skemmta,
eru hinir þekktu bandarísku
negrar The Platters, sjónhverf-
ingamenn, franskur búktalari,
sem er sérstakur í sinni röð og
eitt skemmtilegasta atriðið,
spánskir dansarar, dansmeyjar,
loftfimleikamenn, grínleikarar,
Rock-„band“ og ýmislegt fleira,
sem of langt yrði hér upp að
telja. — Hér er mynd á ferðinni,
sem óhætt er að mæla með. —
G. E.
kvóta þessa mánaðar. Knnfremur
er togarinn Sólborg á leið til
Þýzkalands með blandaðan farm,
ýsu og þorsk, sem landað verður
í Bremerhaven á þriðjudag.
Óvenjulegt ýsumagn
Undanfarið hafa íslenzkir tog-
arar fengið mikið ýsumagn suður
af Reykjanesi, og munu allir
þessir fjórir togarar landa í
Bretlandi mikið á annað hundrað
tonnum af ýsu hver, og nokkuð
af flatfiski, t. d. má geta þess að
Júpíter mun vera með um 185
tonn af ýsu og 15 tonn af kola.
Er hér um óvenjulega mikinn
ýsuafla að ræða. Bendir þetta
til þess, að ýsugegnd aukist mik-
Tvœr œr
AKRANESI, 22. april. — Tvær
ær eru bornar hér, báðar tví-
lembar. önnur bar 14 þ. m. á
Skagabraut 19, hinn 18. þ. m. á
Bjarkargrund 9. — Oddur.
ið á vissum svæðum og má ef
til vill rekja að nokkru leyti til
þess, að línuveiðar eru nú miklu
minna stundaðar en áður en
þess í stað þorskanetaveiðar, en
ýsa veiðist ekki sem kunnugt er
í þorskanet. En að sjálfsögðu
mun þetta mest vera að þakka
friðunaraðgerðunum á miðunum
allt frá 1952 og þar til nú.
Sigurjón lögreglustjóri afhendir Tryggva Krlstvinssyni nám-
skeiðsskirteini, en Tryggvi hlaut hæstu meðaleinkun á nám-
skeiðinu, 8,70. Hann er í lögregluliði Keflavíkurflugvallar.
Lögreglumenn á námskei
í GÆRMORGUN um klukkan
11 var í réttarsalnum á lögreglu
stöðinni slitið námskeiði fyrir
lögregluþjóna sem hófst 8. febrú
ar síðast liðinn. Á þessu nám-
skeiði voru alls 21 lögregluþjónn
frá Reykjavík, Akureyri, Kefla-
víkurflugvelli og norðan af Ólafs
firði og Ólafsvík. Við stutta at-
,höfn sem fram fór við þetta tæki
færi, flutti Sigurjón Sigurðsson
stutta ræðu, þar sem hann ræddi
um námskeiðið og árangur.
Kennarar námskeiðsins voru
viðstaddir, en Erlingur Pálsson
yfirlögregluþjónn veitti nám-
skeiðinu forstöðu. í ræðu sinni
ávarpaði lögreglustjóri utanbæj-
ar-lögregluþjóna og kvaðst tetja
það mjög mikilvægt fyrir lög-
regluþjóna utan af landi, að þeir
fengju tækifæri til þess að sækja
slíkt námskeið, sem til þess væru
haldin að gera lögregluþjóna hæf
ari í daglegum störfum. Lög-
reglustjóri færði kennurum nám
skeiðsins þakkir. Að lokum á-
varpaði hann lögregluþjóna og
árnaði þeim heilla í starfi.
Líður vel
DRENGNUM, sem Bjöm Pálsson
flugmaður flutti til Reykjavíkur
í fyrradag frá Króksfjarðarnesi,
líður vel. Mbl. hafði í gser sam-
band við lækni á Landspítalan-
um, þar sem drengurinn var
lagður inn, og sagði hann, að
drengurinn hefði þurft aðgerð og
mundi sennilega liggja nokkrar
vikur á spítalanum, en hann er
nú hitalaus og líður vel.
^ Á lögregluþjónanámskeiðinu I
voru sex menn úr lögreglu
liði Keflavíkur, tveir frá Ak-
ureyri, sem báðir eru varð-
stjórar í Akureyrarlögregl-
unni og einn lögregluþjónn
frá Ólafsfirði, en úr lögreglu
Reykjavíkur voru 12 menn,
þar á meðal hinn þjóðkunni
sundgarpur Eyjólfur Jónsson.
Myndir tók Sveinn Þormóðs-
son.
Sakadómaraem- BæiakePPni
í smidi í Kef lavík
bœftinu skipt
FORSETI íslands skipaði á föstu
dag Valdimar Stefánsson, saka-
dómara til þess að vera yfir-
sakadómari í Reykjavík sbr. lög
nr. 57 29. marz 1961 um breyting
á lögum nr. 57 1951, lim meðferð
opinberra mála, en samkvæmt
fyrrnefndum lögum er gert ráð
fyrir breyttri skipan á sakadóm-
araembættinu í Reykjavík. Jafn-
framt hafa fulltrúamir Þórður
Björnsson. Halldór Þorbjörns-
son, Gunnlaugur Briem og Ár-
mann Kristinsson verið settir
sakadómarar í Reykjavík og
verða þau embætti auglýst til
umsóknar.
í DAG fer fram í Sundhöll Kefla
víkur bæjákeppni í sundi milli
Keflvíkinga og Hafnfirðinga.
Hefst keppnin kl. 2 Og taka þátt
í henni margir af efnilegustu og
beztu sundmönnum landsins. —
Hafnfirðingar unnu í keppni
milli þessara bæja árið 1959 og
Keflvíkingar í fyrra.
Keppt er um bikar, sem Olíu-
samlag Keflavíkur hefur gefið.
Þing LÍV
DAGANA 5.-7. maí nk. heldur
Landssamband íslenzkra verzl-
unarmanna 3. þing sitt í Reykja-
vík. Þingið sitja um 70 fulltrúar
frá 20 félögum. Fyrir þingimi
liggja mörg mikilvæg mál, sen»
snerta hagsmuni verzlunarfólks
og starfsemi samtakanna. Þingið
verður sett f östudaginn 5. maí kl.
8.30 í Tjarnarcafé.
Bannað að
skjóta
VEGNA auglýsinga í blöðum urr
veiðileyfi til að skjó'ta gæsir, skal
athygli manna vakin á því, að
stranglega er bannað samkvæml
lögum, að skjóta gæsir á vorin.
Helsjúkur togara-
maður í land
UM NÓNBIL í gær varpaði
brezka herskipið HMS Cross-
bow, sem er stórt skip, fest-
um hér á utanverðri ytri
höfninni. Er þetta fyrsta
brezka herskipið sem hingað
kemur síðan á árinu 1958.
Skipið flutti helsjúkan brezk
an sjómann af Aberdeen tog
aranum Red Crusader. Var
sjúklingurinn fluttur í hrað-
báti frá herskipinu inn að
Loftsbryggju.
Með skipsbátnum kom og
læknir frá herskipinu. Á bryggj-
unni tóku á móti bátnum Brian
Holt ræðismaður og Geir Zoega
umboðsmaður brezkra togareig-
enda hér. Skipslæknirinn, mynd
arlegur maður með svart al-
skegg skýrði ræðismanninum
stuttiega frá hvað væri að tog-
aramanninum, sem var með
hægri hendi í fatla. Læknirinn
skýrði frá því að maðurinn.hefði
fengið blóðeitrim í hendina.
Hefði ígerðin stöðugt farið vax
andi og þeir á herskipinu ekki
ráðið við hana. Væri handleggur
mannsins í veði. Var togaramað-
urinn sem virtist vera maður
um fimmtugt, sýnilega illa hald-
inn: öskugrár í framan og með
þjáningarsvip í augum. Var
hann fluttur beint í Landakots-
spítala og fór skipslæknirinn
með honum þangað í bíl Geirs
Zoega