Morgunblaðið - 25.04.1961, Side 8
MORGUNTtLAÐIÐ
Þriðjudagur 25. aprfl 1961
ð
Opinberir starfsmenn
fara fram á launabætur
BLAÐINU barst í gær svohljóð
andi frétt frá B.S.R.B.
Stjórn Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja hefur hinn 15. febr.
«.L sent ríkisstjórninni kröfur
um launabætur til handa starfs-
mönnum ríkisins, sem byggðar
eru á eftirgreindum rökum:
I. f desember 1943 var á veg
um stjórnskipaðrar launalaga-
nefndar gerður samanburður á
launum nokkurra starfsstétta,
sem notaður var til viðmiðunar
þegar launalög voru samin. En
á árinu 1944 urðu launahækkanir
hjá ýmsum stéttum, sem ekki
var þó miðað við í grundvelli
launalaga 1945.
Samkvæmt útreikningi, sem
bandalagsstjórn hefur látið gera,
hefur vegið meðaltal launahækk
ana 1944 hjá 15 starfsstéttum
numið 12,2%, sem opinberir
starfsmenn hafa aldrei íengið
bætt.
II. Vanreiknaðar launauppbæt
ur í nóvember 1958 miðað við
launahækkanir annarra stétta frá
1. janúar 1956 til þess tíma nema
2,3% (III. til XI. flokkur).
III. I>egar gildandi launalög
voru samin voru dregin frá launa
grundvellinum 3,6% vegna ým-
issa hlunninda, sem talið var, að
opinberir starfsmenn hefðu um
Aðalfundur Félags
ísl. bifreiðavirkja
ABalfundur Félags bifvélavirkja
var haldinn 28. marz s.l.
Fjárhagur félagsins er mjög
góður. Eignaaukning á árinu nam
kr. 225.000.00.
Styrkúthlutun úr Sjúkrasjóði
nam samtals kr. 34.487.00.
Sjóðir félagsins hafa lánað fé-
lagsmönnum fé til húsbygginga
©g íbúðarkaupa.
Félagið er með lausa samninga
og hefur verkstæðiseigendum ver
ið sent uppkast að nýjum samn-
ingum fyrir alllöngu. Tveir samn
ingafundir hafa verið haldnir.
í stjórn félagsins voru kjömir:
Formaður, Sigurgestur Guðjóns-
son, varaformaður, Björn Stein-
dórsson, ritari, Karl Árnason,
gjaldkeri, Guðmundur Óskars-
son, vara gjaldkeri, Eyjólfur Tóm
•sson.
Gjaldkeri Styrktarsjóð^ var
kosinn Ámi Jóhannesson.
4
'KU'áUTGtRB KIKISINS
BALDUR
fer til Rifshafnar, Hvamms-
fjarðar- og Gilsfjarðarhafna á
morgun. — Vörumóttaka í dag.
I.O.G.T.
Stúkan Verðandi nr. 9
Fundvir í kvöld kl. 8,30, stutt-
ur fundur. Að fundi loknum
hefst „Sumarfagnaður“.
Dagskrá:
1. Ávarp?
2. Upplestur (sjálfvalið efni).
3. Spilað „Bingo“, verðlaun. —
Stjómandi Stefán H. Stef-
ánson. * \
Kaffi.
\ -öanda-félagar mætið vel
®g takið með ykkur gesti.
— Æ.t.
fram aðrar stéttir. Síðan hafa
aðrar stéttir fengið aukin hlunn
indi, sem bandalagsstjórn telur
að svari til a.m.k. 2%.
IV. Við samanburð á launum
Opinberra starfsmanna á íslandi
og í Danmörku Og Noregi verður
ljóst, að launakjörin eru mun lak
ari hér en í þessum löndum, eins
og sjá má á hjál. fylgiskjali.
V. Verðlag hefur að undan-
förnu hækkað verulega. Neyzlu
vöruiiðir framfærsluvisitölunnar
hafa frá 1. marz 1960 til 1. jan.
1961 hækkað um 17,3%. Hefur
hin aukna dýrtíð komið hart nið
ur á opinberum starfsmönnum
ekki síður en öðrum. Flest stétt
arfélög hafa nú gert kröfur um
beinar launahækkanir er nema
15—20%. Byggir bandalagið kröf
ur sinar um almenna launahækk
un á framangreindum rökum.
Fór stjórn B.S.R.B. þess jafn
fram á leit, að ríkisstjórnin skip
aði nefnd til viðræðna við nefnd
frá stjórn bandalagsins um kröf
urnar.
Starfsmannafélögum bæjanna
var sent afrit af kröfunum, til
afnota í sambandi við kröfur
félaganna um launabætur til
bæ j arstarf smanna.
Félagsheimili Ólafsfjarffar, sem verffur
væntanlega fullgert í sumar.
1960 eitt mesta athafna-
ár í sðgu Úlafsfjarðar
segir Asgrímur Hartmannsson, bæjarstjóri
(Frétt frá B.S.R.B.).
BLAÐIÐ átti fyrir skömmu tal
við Ásgrím Hartmannsson, bæj-
arstjóra á Ólafsfirði, er þá var
staddur hér í bænum.
m. a.:
Sagði bæjarstjórinn
— Síðastliðið ár er eitt það
<S>bezta, er komið hefur yfir Óiafs
Ungmennastúkan Hrönn
Fundur í kvöld kl. 8:30 að
Frikirkjuvegi 11. Dansað eftir
íund, — Æ.t.
Sæþór hinn nýi 150 tn. bátur Ólafsfirffinga.
Veturinn kvaddur
GRUNDARHÓLI, síðasta vetrar I að, farið í leiki, dansað og sungið.
dag: — Þessum vetri er nú lok- Þorrablót var haldið í byrjun
ið og má segja að við Fjallabúar þorra, og var sýnt leikritið
höfum komizt sæmilega af við „Káti ekkjumaðurinn" við mikla
hann. Að vísu hefur hann verið | hrifningu. Einnig var lesið upp.
fjörð. Atvinna var með eindæm-
um og stórhugur einstatklinga i
aldrei meiri til ýmissa fram-
kvæmda. Skipastóll byggðarlags
iins var mjög endurnýjiaður á
árinu, keyptir voru 3 stórir fiski-
bátar 100—150 tn, og 5 minni
dekkbátar. Samtals voru skip
keypt fyrir 20 millj. kr.
Nú eiga Ólafsfirðingar 8 báta
65—150 tn., 6 10—28 tn. báta og
marga 2—8 tn. tryllubáta og má
segja að það sé nægilegur skipa-
stóll og stærð skippanna mjög
æskileg. Á s. 1. ári var þorsk-
afli jafnbetri, en lengi hefur
verið. Hins vegar brást síldveið-
in hjá okkur, sem fleirum.
Atvinna var næg allt árið og
yfirleitt unnið 10—11 stundir á
sólarhring.
Á árinu var hafin smíði fjög-
urra allstórra fiskiðjuvera, tvö
fullgerð á árinu, fiskiðjuver
Sigvalda Þorleifssonar og fisk-
iðjuver Guðmundar Guðmunds-
sonar og fl. Á árinu var byggt
fyrir 5,5 millj. kr.
Unnið var að hafnargerð á
vegum hins opinbera fyrir 1,5
millj. kr. og haldið var áfram
byggingu félagsheimilis, sem
væntanlega verður fullgert í
sumar.
Á þessu ári (1961) hefur þegar
verið sótt um 10 íbúðarhúslóðir,
byggingu eins stórs verzlunar-
húss, bilaverkstæðis, vélaverk-
stæðis og tveggja — 3ja hæða
trésmíðaverkstæðis. Afli hefur
verið ágætur undanfarið og ]
fyrsta sinn hefur netaveiði gefiíí
góða raun og stærri bátar hafa
þar af leiðandi hætt við að fara
suður og gera út að heiman.
Nýlega var tekið í notkun
póst- og símahús, sem unnið hef
ur verið að byggingu á undan-
farin ár. Varðandi símamálin
vildi ég geta þess, að Ólafsfjörð-
ur mun vera fyrsta byggðarlag
landsins, sem beitti sér fyrir
lagningu síma. Árið 1907, þann
19. des. samþykkti hreppsnefnd-
in, að beita sér fyrir því, að
simi yrði lagður til Dalvikur og
var sú símalögn framkvæmd
1908 og kostuð af bændum þar.
Nú sem fyrr er haínarmáiið
aðalhagsmunamál okkar á Ólafa
firði en næst því kemur lagning
Múlavegar, sem við teljum aS
muni gjörbreyta til hins betra
afstöðu staðarins til nálægra
byggðarlaga. Því miður hafa
ekki allir, sem hlut eiga að máli
öðlast skilning á nauðsyn þess-
arar samgöngubótar enn sem
komið er.
— Hafið þér verið að vinna
að málefnum Ólafsf jiarðar hér
fyrir sunnan.
— Já, við höfum nokkrir
dvalizt hér vikutíma. Hefur okk
ur yfirleitt verið vel tekið og
væntum góðs af.
nokkuð gjafafrekur, og er það
einkum vegna svellalaga, sem
hafa verið með mesta móti. Ein-
mánuður hefur einnig verið
mjög slæmur, frostharður og
stórhríðar miklar, en nú er hlák-
an komin, og vona menn að tek-
ið sé fram úr.
Spara fóffurbæti meff heygjöf
Hey voru hér með mesta móti
í haust, og hugðust menn spara
fóðurbæti með meiri heygjöf.
Hefur því einnig verið gefið
meira af þeim sökum. Ekki
reyndist sú fóðrunaraðferð svo
sem menn væntu, því að hey
voru yfirleitt slæm eftir sumar-
ið í fyrra, gras úr sér sprottið
og sumt hey hrakið. Sem betur
fór treystu menn þó ekki ein-
göngu á heygjöf og áttu allir
nokkuð af síldarmjöli. Farið var
að píra því, þegar sýnt var að
heyið nægði ekki til þess að fé
héldi holdum. Hey er þó alls
staðar nægilegt eftir.
Mikiff skemmtanalíf
Bílfærð hefur verið hér með
mesta móti í vetur, og því all-
mikið skemmtanalíf. Fólk hefur
komið saman til fundahalda, spil
og dvergur sagði skrýtlur og tal-
aði við börnin, og að lokum var
dansað. Um jólin var hér skóla-
drengur frá Akureyri, og er það
sjaldgæft. Eftir að hann var kom
inn heim, var talað við föður
hans, og sagði hann, að drengur-
inn hefði ekkj haft sinnu á að
opna jólapakkana sína, sem biðu
hans heima. Sýnir þetta, að ekki
þarf að vera .leiðinlegt í sveit-
inni á vetrum, þótt fámennt sé,
geta menn skemmt sér, ef allir
keppa að því að vera skemmti-
legir.
Óbrúaffur lækur eini
farartálmiran
Samgöngutálmanir standa og
hafa alltaf staðið í vegi fyrir
skemmtanalífi dreifbýlisins, en
þetta er óðum að lagast.
Hér í Fjallahreppi má segja,
að einn lækur óbrúaður sé okkar
mesta böl á þessu sviði. Vegir
eru yfirleitt orðnir eða að verða
upphlaðnir og oftast fært innan
sveitar. Bílfært hefur verið í vet
ur milli sveita héðan alltaf af
og til, og póstur oftast farið í
bíl. Heilsufar hefur verið gott á
fólki og 'fénaðarhöld ágæt.
— Víkingur.
Aðalvirmingurinn
milljón kr. virði
NÝTT happdrættisár er hafið hjá
happdrætti D.A.S. Vinningum
hefur verið fjölgað í 55 á mánuði,
en verð og tala útgefinna miða
helzt óbreytt. 26 íbúðir verða
dregnar út á árnu, 2 mánaðar-
lega, nema í maí og janúar, þá
verða 3 íbúðir útdregnar. Aðal-
vinningur ársins verður Topp-
íbúð (Penthouse-íbúð) að Há-
túni 4, að söluverðmæti um
1 milljón króna, sem útdregin
verður 1 12. fl. íbúð þessi verður
til sýnis, búin húsgögnum, fyrsta
sinn sunnudaginn 16. apríl.
Vegna fjölda íbúðanna og sí-
aukins byggingakostnaðar getur
happdrættið ekki haft jafnmarg
ar fullgerðar íbúðir eins og áður,
aðeins 2 að þessu sinni. Hinar
4 verða afhentar tilbúnar undir
tréverk ásamt öllu sameiginlegu
utanhúss og innan, nema lyftu
og málun á stigahúsi, en með þv|
teljast þær búnar að 71—72%
leyti. Hver íbúð verður afhent
múrhúðuð með tvöföldu gleri J
gluggum og hurð inn í hverja
íbúð. Fimm ibúðir verða á hverri
hæð, 3 2ja herbergja, 1 3jaher«
bergja og 1 4ra herbergja. íbúðir
þessar verða að Ljósheimum 20,
Framh. á bls. 15.