Morgunblaðið - 04.05.1961, Síða 1
24 siður
48. árgangur
98. tbl. — Fimmtudagur 4. maí 1961
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Vopnahlé
VIENTIANE, Eaos, 3. mai —
("Reuter) — Hongo Lea, höf-
uösmaður hermanna þeirra
sem hollir eru Souvanna Ph-o
uma, las í morgun í útvarpi
skipun til hermanna sinni og
hermanna Pathet Lao, sem
hafa barizt meö þeim, að þeir
hættu hvarvetna bardögum.
Jafnframt tilkynnti hann aö
síöar í da.g yröi aftur haldinn
fundur fulltrúa deiluaöila um
vopnahlé.
Rólegt hefur veriö á öllum
vígstöðvum i dag. Og vænta
menn þess, að vopnahlés-
nefndin, sem bíður í Nýju
Delhi, fari innan skamms til
Laos.
Fyrirlið-
inn hand-
tekinn
Frá handritafundinum sem Studenterforeningen efndi til. Áhheyrendur hlusta á framsöguræöu Bjarna M. Gíslasonar.
Söguiegur fundur um handrita
málið í Studenterforeningen
Stúdentar við Hafnarháskóia
sendu út dreifibréf með niði
um Jórgensen menntamálaráðh.
söfnun þeirra Brynjólfs biskups
Sveinssonar og Árna Magnússon-
ar. Síðan sagði hann frá erfða-
skrá Árna og skipulagsskrá Árna
stofunar.
Þau rök, sem Bjarni færði eink-
um fyrir afhendingu handritanna
voru: -----
• — 1. Lifandi samband bióð-
Framh. á bls. 13.
HAVANA, Kúbu, 3. maí. (Beut-
er). — I dag var gefin út til-
kynning frá kúbanska hernum,
þar sem sagt var, að fjórir hátt-
settir menn úr liðinu, sem gerði
innrásina á Kúbu á dögunum,
hefðu verið teknir höndum.
Væri þeirra á meðal Manuel
Artime, höfuðsmaður, sem var
fyrirliði innrásarhersins. Segir í
tilkynningunni, að hann og fleiri
innrásarmenn hafi leitað hælis
í mýrledi inn af svonefndum
Pig Bay (Svínaflóa), skammt
þar frá er innrásarliðið gekk á
land.
☆
Artime var áður stuðningsmað
ur Castros og vann með stjórn
hans í fyrstu, en flúði til Banda
ríkjanna fyrir rúmu ári síðan.
Á ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ var haldinn umræðufundur
um handritamálið í Studenterforeningen í Kaupmanna-
höfn. Fundurinn var fjölsóttur og tóku margir til máls
og var um tíma nokkur háreysti á fundinum.
Fréttaritari Morgunblaðsins sat fundinn og hér fer á
eftir úrdráttur hans úr ræðum frummælenda, þeirra Bjarna
M. Gíslasonar rifhöf. og Bröndum-Nielsens, prófessors
auk þess sem drepið er á ýmis atriði í ræðum annarra
ræðumanna.
Lýsing fréttaritara er svohljóðandi:
Einkaskeyti til Mbl.
frá Sigurði Líndal,
Kaupmannahöfn, 3. maí.
í GÆRKVELDI var haldinn
fjölmennur fundur í Studenter-
foreningen. Fundurinn var settur
kl. 19.45 og geröi þaö formaöur
félagsins E. Clan, hæstaréttar-
lögmaður.
Meðal viðstaddra má nefna
þingmennina Ib Thyregod úr
Vinstri-hokknum, Edvard Jen-
sen úr íhaldsflokknum, Rime-
stad frá Óháðum, og Aksel Lar-
sen formann Socialísk Folke-
parti.
Ennfremur Sören Holm
Anna Borg, Poul Hjermind for-
maður félagsins Norden, Aksel
Christensen, prófssor og Agnete
Wöhlitz, deildarstjóri í mennta-
málaráðuneytinu.
— Aftur á móti var Jörgen
Jörgensen ekki mættur á fund-
inum.
• Harðar umræöur
Umræður urðu harðar og virt-
ust áheyrendur flestir andvígir
afhendingunni. Títt var, að menn
gripu hver fram í fyrir öðrum
og varð fundarstjóri hvað eftir
annað að gefa áheyrendum
áminningar. Einkum urðu þeir
fyrir aðkasti, sem meðmæltir
voru afhendingu.
• Framsöguræöa
Bjarna Gíslasonar
Bjarni Gíslason hóf mál sitt
með því að gera grein fyrir
hversu miklu máli fornbókmennt
ir skiptu og hefðu skipt síðustu
aldir. Hann gerði grein fyrir
því, hvernig handritin hefðu
horfið úr landi og ástæðum fyrir
því. Sérstaklega skýrði hann frá
Allar herdeildir í Korigó
undir stiórn Kasavubus
London og Coquilhatvilie,
3. maí — (Reuter — MTB)
TILKYNNT var í dag, að stjórn
Sameinuðu Þjóðanna í Kongó
heföi fallizt á, aö allar herdeildir
hinna ýmsu ríkisstjórna í Kongó
veröi alameinaðar undir stjóm
Kasavubus forseta og stjómar
hans í Leopoldville.
ýt Thsombe ekki sleppt
Það var Justin Bomboko,
utanríkisráðherra, sem tilkynnti
þetta fréttamönnum í Coquil-
hatville í dag. Hann sagði, að
Hammarskjöld frkv.stj. Samein
uðu Þjóðanna hefði fallizt á þetta
fyrirkomulag svo og, að ljóst
væri nú, að samtökin myndu
ekki hlutast til um að Thsombe,
forsætisráðherra Katangafylkis
yrði látinn laus. Hann hefur nú
verið í haldi í sjö daga — eða
síðan hann fór í fússi af ráð-
stefnu stjórnmálaleiðtoga Kongó
lýðveldisins, þar sem átti að á-
kveða framtíðarskipan landsins.
Bomboko sagði að samkomu-
lag hefði orðið milli stjórnarinn
ar í Leopoldville og stjórnar liðs
SÞ um samstarf á ýmsum svið-
um og að reyna að forðast mis-
skilning í samskiptum þessara
Bourguiba
í Wushington
WASHINGTON, 3. maí (Reut-
er) — Habib Bourguiba, for-
seti Túnis, kom í dag til Was-
hington, en þar mun hann
dvelja í þrjá daga í boði
Kennedys forseta.
Bourguiba, sem dvaldist síð
ustu þrjá daga í Kanada, var
fagnaö hjartanlega á flugvell-
inum. Hann og Kennedy óku
síðan í opinni bifreið til Hvíta
hússins.
aðila — sem svo oft hefur spillt
samstarfi þeirra. Bamboko sagði
að úr þessu yrði litið á alla her-
menn sem óhlýðnuðust boðum
Leopoldvillistjórnar sem upp-
reisnarmenn.
★
Fulltrúar S> og stjórnarinnar
i Leopoldville hafa undanfarnar
vikur setið að samningaviðræð-
um, sem hafa gefið góðan árang-
ur, — meðal annars þann, að
SÞ hafa aftur fengið afnot af
hafnarbænum Matadi, þar sem
var aðal birgðahöfn liðs samtak
anna. Vegna þessa samkomulags
varð Tshombe kinn reiðasti og fór
sem fyrr segir í fússi af ráðstefn-
unni í Coquilhatville og ætlaði
að halda heim til Katanga.
Brugðu þá hermenn Leopoldville
stjórnar hratt við og heftu för
Tshombes og alls fylgdarliðs
hans. Þeir sögðust ekki sleppa
honum fyrr en hann hefði aftur
hafið viðræður við aðra stjórn-
Framhald á bls. 23.
i