Morgunblaðið - 04.05.1961, Page 15
Fimmtuaagur 4. maí 1961
MORGVNBLAÐIÐ
15
Kristínn Brynjólfsson
skipstjóri — Kveðja
ÖRT falla nú stór skörð í raðir
áslenzkra sjómanna, þeirra, sem
fóru ungir að árum að sækja
ejóinn nokkru fyrir síðustu
aldamót og þá á litlum árabát-
upm. Einn meðal þeirra var
Kristinn Brynjólfsson frá Eng-
ey. Mikil er sú breyting, sem
orðið hefur á íslenzkum far-
kosti, frá því að Kristinn hóf
sitt sjómannsstarf, 14 ára gam-
all, og til þessa dags. Mun það
flestum kunnugt, sem komnir
eru til vits og ára, og fylgzt
hafa með hinum öru breyting-
um, sem gerzt hafa í sambandi
við íslenzkan sjávarútveg.
Kristinn var fæddur í Engey
15. október 1879. Foreldrar hans
voru hin alkunnu sæmdarhjón,
Þórunn Jónsdóttir og Brynjólf-
ur Bjarnason. Kristinn ólst þar
upp þar til hann stofnaði sitt
eigið heimili.
Þegar Kristinn var að alast
upp í Engey var þar mikill
myndarbragur á öllu. Var þar
mikið unnið, bæði til sjós og
lands. Þá var farið í land á
hverjum degi, þegar fært var.
Vandist Kristinn því snemma
Bjónum eftir að hann fór að vera
með í slíkum ferðum, og mun
hann ekki hafa verið hár í loft-
inu þegar hann fór að fara slík-
ar ferðir. Voru því þessar ferðir
hans fyrsti sjómannaskóli þó að
•hann síðar gengi undir próf í
hinum rétta Sjómannaskóla.
Frá Engey var sjórinn sóttur
fast, en þó með forsjá. Einnig
var mikið unnið í landi, eins og
áður getur. En þar bar mest á
skipasmíðinni, eins og alkunn-
ugt er. ÞaÞr mátti sjá margt
frítt fley hlaupa af stokkunum,
enda víðfrægt bátalag Engeyjar-
manna, Þeim, sem vildu kynn-
ast lífinu í Engey á þessum ár-
um, vildi ég benda á ritgerð
eftir Vilhjálm S. Vilhjálmsson:
„Við, sem byggðum þessa borg“.
Lengi var tvíbýli í Engey og
var þar mannval mikið. Það
var því hollur skóli, sem Krist-
inn ólst upp í, enda ávaxtaði
hann þá fræðslu með ágætum.
Kristinn fór ungur að árum í
Sjómannaskólann og lauk þaðan
prófi. Hann gerðist brátt skip-
stjóri á fiskikútter og síðar á
togara, þegar þeir komu til sög-
unnar. Farnaðist honum það vel
og var hann aflasæll í bezta
lagi. Menn hændust að Kristni,
enda var hann ágætur yfirmað-
ur, skemmtilegur í viðmóti og
alúðlegur við undirmenn sína og
vildi þeim vel. Voru sumir há-
setar hans með honum í mörg
ár. —.
Ég var svo lánsamur að vera
með Kristni um nokkurn tíma
á sjó, sem háseti. Ég get ekki
hugsað mér betri yfirmann. Síð-
an á ég margar ánægjustundir
og upp frá því skapaðist gagn-
kvæm vinátta, sem aldrei hefur
borið neinn skugga á.
„Mínir vinir fara fjöld, feigð-
in þeirra heimtar köld“. Og nú
að leiðarlokum, sendi ég látnum
vini mínum, einlægar þakkir fyr
ir órofa tryggð — allt til síðustu
stundar. Fyrst þegar ég var
með Kristni, var hann skipstjóri
á íslendingnum, minnsta togar-
anum, sem þá var í flotanum.
Og vel hélt hann hlut sínum þó
á litlu skipi væri, móti sumum
hinna stærri, sem burðarmeiri
sýndust. Sýndi þetta dugnað
hans og þrautseigju. Og aldrei
varð hann fyrir stóráföllum.
Sannarlega hefði Kristinn sómt
sér vel sem skipstjóri á hinum
fríðu farkostum, sem nú sigla
daglega kringum landið og víð-
ar út um heimsins höf.
Þó Kristinn kæmist hjá stór-
áföllum á sjónum, urðu þau
þeim mun meiri á landi, í sam-
bandi við mikinn ástvinamissi.
Fyrst urðu þau hjón fyrir þeirri
sáru sorg, að sjá á bak uppkom-
inni og efnilegri dóttur, Krist-
ínu, sérstaklega geðþekkri
stúlku. Nokkru síðar missti
Kristinn konu sína, Önnu Guð-
mundsdóttur frá Nesi, einstaka
gæðakonu og vel gerða, bæði til
huga og handa. Var hún mikill
sómi sinnar stéttar. Þau hjón
eignuðust tvær dætur, Guðríði
og Kristínu. Hefur Guðríður bú-
ið með föður sínum og verið
honum svo góð og nærgætin
sem frekast er hugsanlegt. Var
sambúð þeirra öll hin ástúðleg-
asta.
Hjá þessu fólki hafa alizt upp
þrír piltar, sem allir eru upp-
komnir menn. Hafa þeir allir
gerzt sjómenn.
Öllum nánustu ættingjum og
vinum Kristins í Ráðagerði
sendi ég mína beztu samúðar-
kveðju.
Ég hugsa mér burtför Krist-
ins þannig, að hann hafi siglt
blíðan byr með þöndum seglum
við hún inn í hina eilífu friðar-
höfn, þar sem elskandi ástvinir
bíða hans með útrétta arma og
bjóða hann velkominn.
„Við strendur báran syngur
seiðblítt lag,
um sólarlagsins roðagullinn
bjarma.
Hún kveður blítt hinn bjarta
haustsins dag,
sem bleikur hneig í nætur
svalans arma“.
Steini Guðmundsson,
Volkswagen '60
ekinn 24 þús. km. í fullkomnu lagi til sölu. Uppl.
í síma 13766 eftir kl. 6 e.h.
Stúlka óskast
Upplýsingar gefur brytinn í síma 35133
og 50528 eftir kl. 7-
Hrafnista D.A.S.
Husquarna
Handsláttuvélar
fieaZúnaenf
IfdiMll
Verzlunarstörf
Stúlka og karlmaður
óskast til afgreiðslustarfa
Síld & Fiskur
Bergstaðastræti 37
Unglinga
vantar til að bera út blabid v/ð
Skeqgjagotu
Hringbraut II
Grenimel
JttovgiisttMafrifr
X
HOLLANDIA
Nýkomnir hollenskir
BARNASKÓR
SKÓSALAN
LAUGAVEGI 1
PÓSTSENDUIH
UIH ALLT LAIMD
niHimn
Hýbýladeild-
Hafnarstræti 5 — Sími 10422
Ibúúir til sölu
til sölu 4ra herb. íbúð í Sogamýri..
íbúðin er á 1. hæð með sér inng.
Útborgun aðeins 200 þúsund.
3ja herb. íbúð tilbúin undir tréverk
verk í Háaleitishverfi.
Útborgun 130 þúsund.