Morgunblaðið - 19.05.1961, Síða 2
2
MORGVNBLAÐIE
Föstudagur 19. maí 1961
Hannes Pétursson hlýtur
,, Bdkmennta ver ðlaun
Gunnars Gunnarssonar"
Gefur þau til útgáfu bókar urn Fjalikirkjuna
í GÆR voru veitt í fyrsta
skipti „Bókmenntaverð laun
Gunnars Gunnarssonar“. sem
Ragnar Jónsson,eigandi Helga
fellsútgáfunar, stofnaði til á
sjötugsafmæli skáldsins, 18.
maí 1959. Við úthlutun verð-
launa, sem nema 50 þús.
króna, koma einkum til greina
skáldverk ungra höfunda.
Dómnefnd skipa Jóhannes
Nordal, Kristján Karlsson,
Ragnar Jónsson og Xómas
Guðmundsson.
Við athöfn, sem fram fór
á Hótel Borg í gærdag, skýrði
Tómas Guðmundsson frá því
f. h. dómnefndar, að Hannes
Pétursson, skáld, hefði orðið
fyrir valinu við þessa fyrstu
verðlaunaveitingu, og afhenti
honum síðan verðlaunin.
1 greinargerð dómnefndar
segir, að Hannesi séu veitt
verðlaunin „fyrir mikilsvert
framlag til íslenzkrar ljóðlist-
ar“, Og að hann hafi „auðgað
hefðbundin, íslenzk listform
að nýjum tilbrigðum og gætt
söguleg yrkisefni nýjum hug-
blæ. Hannes Pétursson er
menntað skáld og hefir á far-
sælan hátt samlagað erlend
áhrif íslenzkri, menningar-
erfð“.
Gunnar Gunnarsson rithöf-
undur mælti síðan nokkur orð
og kvað stofnun þessara verð-
launa á sjötugsafmæli sínu
, / NA /5 hnúiar * S V 50hnúiar ¥: Snjókomo t úii&m \7 Skúrir IC Þrumur wx KuUaskH ^ Hitaski/ H Hai I L Laui 1
Ilannes Pétursson
hafa verið beztu gjöf, sem
hann hefði getað þegið.
Hannes Pétursson tók til
máls og þakkaði heiðurinn,
sem sér væri sýndur með því
að vera veitt verðlaun er
kennd væru við Gunnar Gunn
arsson, en hann væri í hópi
þeirra rithöfunda sem hann
mæti mest. Hins vegar kvað
hann nú borið í bakkafullan
Jækinn að veita sér verðlaun,
því að ekki væri lengra síðan
Vill verzla með fanga
Havana, Kubu, 18. maí.
— (Reuter) —
í RÆÐU, sem Fidel Castro,
forsætisráðherra, hélt á fundi
smábænda í gærkvöldi,
bauðst hann til að láta fanga
þá, er teknir voru í innrás-
inni í apríl, í skiptum fyrir
jarðýtur og dráttarvélar frá
Bandaríkjunum. Kvaðst for-
sætisráðherrann vilja Iáta
alla fangana lausa fyrir 500
jarðýtur eða óákveðinn
fjölda af dráttarvélum.
Castro sagði að auðkýfingar
í Bandaríkjunum vildu áreiðan-
lega kaupa fangana lausa fyrir
nokkrar dráttarvélar. En ekki
ísraelskur blaða-
maður á Islandi
Einn ísraelskur blaðamaður kom
með frú Goldu Meir utanríkis-
ráðherra í heimsókn hennar til
íslands. Hann heitir Dan Pahter
og er fréttaritari stærsta blaðs
Gyðingalands, ,Davar“ sem er gef
ið út í Tel Aviv.
Pahter er fastur Lundúnafrétta
ritari blaðs síns, en þegar utanrík
isráðherrann hóf ferð sína um
Norðurlönd, slóst hann í fylgd
með henni og mun fylgja henni
eftir og skrifa greinar í blað sitt
um ferð hennar og löndin sem
hún heimsækir. Hann mun m.a.
skrifa greinar um ísland. _
yrðu fangarnir seldir einn og
einn, heldur allir í einu. Á það
er bent í þessu sambandi að
árið 1944 bauðzt nazistastjómin
í Þýzkalandi til að selja Banda-
mönnum eina milljón Gyðinga
fyrir 10 þús. flutningabifreiðir.
Castro sagði að í byrjun síð-
ustu aldar hafi Spánn selt Napó
leon franska stríðsfanga fyrir
svín. „Við ætlum að vera kurt-
eisari", sagði hann, „þótt Kenn-
edy sé enginn Napoleon.1*
Hann sagði að þetta yrði að
vera góðar dráttarvélar og ekki
á gúmmíhjólbörðum.
Jose Miro Torres, sonur Car-
dona, leiðtoga kúbanskra flótta-
manna í Florida, er meðal fanga
Castros. Blaðamenn áttu í dag
tal af honum í sjúkrahúsi nokkru
árið 1959, að hann hlaut bók-
menntaverðlaun A.B. Sagðist
hann verða að segja það hrein
skilningslega, að sér væri óger
legt að stinga þeim í eigin
vasa. Fjallkirkja Gunnars
Gunnarssonar væri ein hinna
miklu bóka fslendinga, sem
hann persónulega mæti einna
mest allra bóka. Hann hefði
því ákveðið að verja verð-
launaupphæðinni til útgáfu
safns ritgerða um Fjallkirkj-
una. Myndi hann sjálfur velja
menn til að rita um hina ein-
stöku þætti og persónur skáld-
verksins o. s. frv. og að öðru
jöfnu láta unga menn ganga
íyrxr. Myndi hann greiða höf-
undunum ritlaun. Ætlun sín
væri sú, að hér yrði rituð
glögg heildargreining Fjall-
kirkjunnar.
Að lokum mælti Ragnar
Jónsson nokkur orð. Sagði
hann þetta stórkostlega hug-
mynd, Hannesi líka og hon-
um til sóma. Þá skýrði hann
frá því til fróðleiks, að upp-
haflega hugmyndin um stofn-
un „Bókmenntaverðlauna
Gunnars Gunnarsson" hefði
komið frá Halldóri Kiljan
Laxness.
um fimm mílur frá Havana, þar
sem 1194 fangar eru geymdir, og
kvaðst hann vona að gengið yrði
að tilboði Castros.
Torres sagðist í fyrstu hafa tal
ið að tilboð Castros væri lagt
fram í spaugi. En, b; ítti hann
við, það er eðlilegt fyrir fanga
að óska eftir frelsi. Castro hefur
not fyrir jarðvinnsluvélar, ekki
fyrir fangn.
Gjöfin sýnd á ísaf.
ÍSAFIRÐI, 18. maí — Leikfélag
ísafjarðar frumsýndi í gærkvöldi
Gjöfina eftir Mary Lumsden. —
Leikstjóri var Eyvindur Erlends
son, ungur maður sem nam leik-
list í leikskóla Þjóðleikhússins.
Efni leiksins er áhrifamikið og
leikendur gerðu hlutverkum sín
um góð skil. Var leikendum og
leikstjóra ákaft fagnað í leikslok.
— GK.
18Kai I9U K111
|MHj í*>
:0l0'
1
\ •
&£*■ |V \
...
H
$[?
Enn er mikið háþrýstisvæði
yfir norðanverðu Atlantshafi,
Bretlandi og íslandi. Er veður
stillt á þessu svæði, en dumb-
ungslegt og sums staðar þoka.
Vestan við Grænland er grunn
lægð á mjög hægri hreyfingu
austur eftir. Munu breytingar
á veðurlagi verða hægfara
fyrst um sinn.
Veðurspáin kl. 10 í gær-
kvöldi:
SV-land til Vestfjarða, SV-
mið til Breiðafj.miða: Vestan
gola, þokuloft og víða súld,
einkum að næturlagi.
Vestfjarðamið: Vestan kaldi,
þokusúld.
Norðurland Og NA-land:
Hægviðri, léttskýjað með köfl
um.
Norðurmið og NA-mið:
Vestan kaldi eða stinnings-
kaldi, sums staðar þoka.
Austfirðir og SA-land og
miðin: NV kaldi, léttskýjað
með köflum.
Nýtt blindraheimili
vígt í gær
NYTT BLINDRAHEIMILI var
vígt í Hamrahlíð 19 í gær. Það er
Blindrafélagið í Reykjavík sem
staðið hefur fyrir byggingu þess,
en félagið hefur hingað til liaft
vistheimili og vinnustofu að
Grundarstíg 11, sem nú verður
lögð niður. Forráðamönnum
félagsins hefur ætíð frá stofnun
þess verið mikið kappsmál að
reisa hús sem rúmað gæti alla
starfsemi félagsins. Fyrsta hús-
næðið sem félagið fékk til um
ráða var vinnustofa í kjallara að
Laugavegi 97. Hún starfaði til
ársins 1944, þegar félagið flutti að
Grundarstíg 11. f því húsi hefur
vísir að blindraheimili verið rek
inn síðan. Frá því að það hús var
keypt hefur starfsemi félagsins
aukizt jafnt og þétt Og var því
gerð viðbygging við húsið á
Grundarstíg árið 1947, en fljót-
lega kom í ljós að sú viðbót var
hvergi nærri fullnægjandi.
Félaginu var því nauðsynlegt
að afla sér húsnæðis á öðrum
stað. Málið var ítarlega rætt og
undirbúið, og á aðalfundi fé-
lagsins 1956 var kjörin 5 manna
nefnd til að hafa með höndum
fyrirhugaðar framkvæmdir við
Hamrahlíð 19, eftir að bæjar-
yfirvöldin höfðu veitt félaginu
ágæta lóð þar undir blindra-
heimili. Vegna fjárhagsörðug-
leika varð félagið að reisa hús-
ið í tveimur áföngum og var
það fyrri álma hússins, sem tek
in var í notkun í dag. Ráðgert
er að hin álman sem eftir á að
byggja verði miklu stærri en
sú sem nú er risin. Verður því
Hið glæsilega blindraheimili, sem vígt var í HamrahlíS 19 í gær. —
mögulegt að hafa meiri fjöl-
breytni til þæginda fyrir fólk-
ið og starfsemi þess. Er jafn-
vel hugsanlegt að þar verði út-
búin lítil sundlaug til afnota
fyrir hina blindu.
Framkvæmdir við hina nýju
byggingu hófust 22. okt. 1957,
er þáverandi formaður félags-
ins, Benedikt K. Benónýsson,
sem nú er látinn, tók fyrstu
skóflustunguna úr grunni. Hef-
ur síðan verið unnið að bygg-
ingunni af kappi og áhuga og
hafa margir utanaðkomandi lagt
þar hönd á plóginn með ýms-
um gjöfum og vinnu. Teikning-
ar að húsinu voru gerðar I
teiknistofu húsameistara ríkis-
Húsið er um 300 ferm., kjall-
ari og þrjár hæðir. 1 kjallara
er vinnustofa og geymslur, á
fyrstu hæð vinnustofa, sölubúð,
skrifstofa og bókasafn, en á
tveimur efri hæðunum eru sam
tals fjórar tveggja herb. íbúðir
og átta rúmgóð herbergi fyrir
einstaklinga, svo og borðstofa
og eldhús fyrir mötuneyti og
annað eldhús til afnota fyrir
einstaklinga.
Kostnaður við bygginguna er
nú 3.3 millj. kr., og er þá ótal-
in vinna, sem unnin hefur verið
endur gj aldslaust.
Margt manna var saman komið
við vígsluathöfnina í gær, en þar
rakti Björn Andrésson formaður
byggingarnefndarinnar, sögu fé-
lagsins og lýsti húsinu. Kvað
hann byggingarnefndina hafa frá
upphafi haft eindreginn áhuga
á að hús þetta yrði svo vistlegt,
sem tök væru og kæmi að íyilst-
um notum fyrir þá, sem þar ættu
að búa, og sömuleiðis að ytra
útJit þess mætti fremur fegra
umhverfi sitt en spilla. Þakkaði
hann öllum þeim sem að bygg-
ingunni hafa staðið fyrir gott
starf. Guðmundur Guðmundsson,
tryggingafræðingur, færði iram,
þakkir félagsins til alþingis, rík-
is og bæjar, sem hefðu á margart
hátt sýnt velvilja sinn í verki.-
Var gestum boðið að skoða hið
glæsilega hús og að lokum var
sameiginleg kaffidrykkja. For-
maður Blindrafélagsins er Mar-
grét Andrésdóttir.
♦
Ákveðið er að hið nýja 'oiindra
heimili verði almenningi til sýn-
is næstkomandi föstudag kl.
5—10 síðdegis.