Morgunblaðið - 19.05.1961, Side 20
20
MORGV1SBLAÐ1Ð
FBstudagur 19. maf 1961
Mary Howard:
Lygahúsiö
5 ^
(Skdldsaga)
Karólína lagði höndina á hand
legg hans. — Það er leiðinlegt,
að þér skulið vera að fara á
morgun. Viljið þér ekki koma
upp og fá eitt glas?
Meðan Karólína beið eftir
svarinu, skalf hún af kvíða fyrir
afsvari. Og nú. loksins viður-
kenndi hún sannleikann, sem
hún hafði verið að reyna að
dylja sjálfa sig allt kvöldið. Hin
fagra og eftirsótta Karólína
Courtney, sem hafði aetlað sér
að hafa skemmtun af að töfra
þennan áhugalausa unga mann.
hafði fallið í sína eigin gildru.
Hún var orðin ástfangin af Billy
Powell.
Hún hefði þó átt að geta tekið
sem einskonar aðvörun þennan
spenning, sem greip hana á flug-
vellinum í New York, er hún
komst að því að hann ætlaði
með sömu vél og hún til Eng-
lands. Eða líka þessa ásókn henn
ar sjálfrar, að þau hittust aftur
í Londón.
Að lokum hafði hún komið svo
málum, að hann gat beinlínis
ekki annað en boðið henni út, en
það hafði hún gert með því að
segja honum, að Charles Jerome
hefði lagt fast að henni að hitta
Powell áður en hann legði af
stað í meginlandsför sína. Og ár-
angurinn hafði orðið þetta
skemmtikvöld þeirra, sem hvað
hana snerti hafði orðið undarlegt
sambland af gleði og sársauka.
Gleði yfir aðdáuninni, sem hún
las út úr augum hans. þegar
hann kom að sækja hana um
kvöldið. Gleði við undirtektir
hans undir skemmtilegar sam-
ræður, sem hún hélt uppi. Gleði
af því að snerta hönd hans, þeg-
ar þau dönsuðu saman, gleði af
snertingunni við karlmannlegan
líkama hans gegn um fötin.
En svo sársauki vegna þess,
hve þessi aðdáun hans virtist
r •
eitthvað opersonuleg, og augna-
tillit hans, sem var að vísu glað-
legt, en svo heldur ekki neitt
meira.
En nú þegar Bill þá boð henn-
ar og fór inn í lyftuna með henni,
fann hún sér aukast öryggi aftur.
Ef hann væri alveg áhugalaus,
mundi hann ekki hafa þegið boð-
ið,
Bill lét fallast í þægilega legu-
bekkinn í stóru dagstofunni, og
lygndi snöggvast aftur augunum.
Hann var þægilega þreyttur
með þessari tilfinningu, sem
kemur ef menn hafa drukkið
heldur of mikið af kampavíni.
Hann hafði skemmt sér vel þetta
kvöld. Já, að vissu leyti hafði það
verið einskonar opinberun.
Þegar hann sá Karólínu fyrst
í skrifstofunni hjá Charles Jer-
ome, hafði hún komið honum
fyrir sjónir, sem hvert annað
eftirlætisbarn og eigingjörn sam
kvæmismanneskja. En nú varð
hann að játa, að hún gat verið
skemmtilegur félagi, og hann gat
vel skilið, að Jerome hefði getað
orðið hrifinn af henni.
31
*•
Wl
tiRP&W&ts.
^kæliskópsins
i i . «
-fjvmu ojt ýpipliiöim |
®íli§ |)ér a&kaupti WisJ(ápj|
• • • • þacS tcr a§ varida val Ijans ^
yíeklz
10 . Ancitiirci
Kelvinator kæíískáourinn
— Það er eitt gott við þetta starf: Móðir þín getur
ekki heimsótt okkur!
Hann opnaði aftur augun og sá,
að Karólina ýtti á bjölluhnapp-
inn, áður en hún kom og settist
hjá honum.
— Var mig að dreyma. eða sá
ég yður vera að hringja? sagði
hann letilega.
— Ég var bara að hringja á
þjónustustúlkuna mína, sagði
hún. — Nú, hún kemur þarna.
Dyrnar opnuðust og Carter
kom inn með glös á bakka, sem
hún setti á borðið fyrir framan
þau. Andlit hennar var stirðnað
og reiðilegt.
Þegar hún var farin út aftur,
tók Bill konjaksglasið, sem hon-
um var boðið, og sagði: — Þér
hefðuð átt að láta mig sækja
glösin. Stúlkan yðar hefur vist
ekki verið neitt hrifin af að láta
halda sér á fótum til klukkan tvö
að nóttu, til þess að snúast kring
um fullfrískan mann.
Karólína horfði á hann og furð
aði sig á beiskjunni, sem mátti
greina í rödd hans. Síðan hló
hún. — Nú, ég skil. Yður finnst
það eigingirni af mér að halda
henni á fótum. Góðurinn minn.
hún yrði á fótum hvort sem væri.
Það er hennar líf og yndi að snú-
ast kring um mig, og hefur verið
síðan ég var smástelpa. Hún kýs
sér ekki annað betra hlutskipti.
— Þá hlýtur hún líka að elska
yður, sagði Bill og hallaði sér
aftur í mjúkan legubekkinn.
En snögglega gat Karólína
ekki stillt sig og lagði arminn
um axlir hans. — Já, það gerir
hún. Fólk gerir það sama. Gerið
þér það ekki líka? hvíslaði hún.
Varir hennar voru rétt komnar
að hans vörum, og ofurlítið opn-
ar og Bill var það snögglega
ljóst, að hún var að bjóða hoji-
um eitthvað meira en varirnar
tómar.
— Hugsaðu ekki um Carter,
sagði Karólína í hálfum hljóðum.
— Það er engin hætta á, að hún
fari að segja Charles neitt....
En orðin voru ekki fyrr kom-
in yfir varirnar en hún sá, að nú
hafði hún hlaupið á sig. Hún gat
ekki annað en orðið vör við, að
hann dró sig í hlé með viðbjóði
og kulda. Hann setti nú frá sér
glasið og stóð upp.
— Ég var nú alveg búinn að
gleyma Charles. Hann leit glott-
andi á hana. en það var engin
gleði í augnatillitinu. — Hvað
sem Carter kann að líða í þessu
sambandi, þá vil ég ekki, að
neitt sé til að segja honum frá.
Karólína gaf frá sér ofurlítið
óp og sneri andlitinu niður í
hægindið, en Bill gekk út að
glugganum og horfði út á göt-
una. Hann fann til skömmustu
og viðbjóðs. Ekki að hann, áfelld-
ist Karólínu neitt, heldur sjálfan
sig.
Hann þráði það heitast að vera
kominn af stað í ferð sína um
meginlandið. Ferð, sem í þetta
sinn átti sínar vonir og ákveðið
markmið, og nýtt tilhlökkunar-
efni.
Honum var litið við, er hann
heyrði skrjáfið í kjól Karólínu.
Andlit hennar var rólegt og bros-
ið, sem hún sendi honum, var
aðeins vingjarnlegt.
— Ég held ég verði að fá mér
eitt glas og einn vindling til
sagði hún. — Vilt þú ekki líka?
Þegar hann kom og settist and-
spænis henni. fann hún aftur til
sigurgleði. Hún hafði hlaupið
illilega á sig, en hver vissi nema
hún gæti unnið það upp aftur.
—! Hvert ætlarðu í þessari meg
inlandsferð þinni? spurði hún.
— Ja, ég ætla bæði til Frakk-
lands, Þýzkalands og Ítalíu.
— Þú ert eitthvað leyndar-
dómsfullur um þetta, stríddi hún
honum. — Ég fer að halda, að
það sé einhver stúlka með í spil-
inu.
Hann breytti alls ekki svip, er
hann svaraði kæruleysislega:
— Hver veit nema svo sé.
Karólína fann strax til afbrýis-
semi gagnvart þessari ónefndu
og óþekktu stúlku. Hún brosti
með talsverðum erfiðismunum.
— Ef þú verður á ferð í Suður-
Frakklandi á þessu flakki, sagði
hún, verðurðu að heimsækja mig
í húsinu mínu þar. Systurdóttir
mín er að gera það í stand, en
hvorugt okkar Charles kemur
þangað strax. Það væri skömm
að láta það standa ónotað.
Bill hristi höfuðið. — Þetta er
vel boðið. en ég fer annars á
mótorhjóli og tjalda þar sem mér
dettur í hug.
— Þú gætir fengið að tjalda
þar, ef þú vildir. Húsið er í
Roque d’Or.milli Monte Carlo og
Nice. Það er hér um bil hálf míla
af ólífulundum, fram rneð strönd
inni, og nóg tjaldstæði. Þá gæt-
irðu tjaldað þar í næði og samt
verið í húsinu eftir því, sem þú
vilt. Hún léit á hann bænaraug-
um. — Segðu, að þú ætlir að
þiggja það. Þá finnst mér... .við
vera raunverulegir vinir aftur
.... og allt það liðna vera
gleymt.
— Er nokkur sími í húsinu?
spurði hann.
— Já, það er það.... svo að
dularfulla stúlkan getur vel náð
sambandi við þig þar.
— Já. sagði hann, eins og hon-
um væri skemmt, — það getur
alltaf verið þægilegt að geta gef-
ið upp símanúmer. Þakka þér
fyrir, ég væri vel til með að nota
mér þetta tilboð um ólífulundina.
— Ágætt. Ég ætla að skrifa
orðsendingu til frænku minnar.
Hún gekk yfir að litlu skrifborði
m
JESSIE WOOPALL
1S IN EUROPE, MARK, SO
YOU'LL HAVE TO TALK
TO THE AD PEOPLE, J
TRIPWELL AND COLTER/ Yf I
a
k
u
r — Jessie Woodall er í Evrópu
Markús, svo þú verður að tala
við auglýsingafélagið Tripwell og
Colter.
og tók að krota eitthvað á blaS.
Henni þótti hafa rætzt allvel úr
þessu. Hún skyldj gæta þess að
verða komin þarna sjálf samtím-
is honum.
Meðan Karólína sat þarna við
borðið í skininu frá borðlampan-
um, tók Bill í fyrsta sinn eftir
ofurlitlum fíngerðum hrukkum
við munn hennar og augu. Hon-
um var hálf hverft við, er hann
sá, að hún var orðin gömul — í
raun og veru var hún næstum
heilli kynslóð eldri en hann sjálf
ur.
— Gerðu svo vel! Hún rétti
honum lokað bréfið. — Ég segi
Stephanie að sýna þér alla gest-
risni.
— Ég þakka. Frænka þín hlýt-
ur að vera dugleg stúlka að geta
stjórnað húsinu fyrir þig, sagði
Bill um leið og hann stakk bréf-
inu á sig og tók frakkann sinn.
— Er hún nokkuð lík þér?
Karólína gerði sér hroll. Hún
er ung og feimin... . og fremur
klaufaleg í framkomu.
Bill hló. — Hún er þá ekki mik
ið lík þér. Jæja, nú verð ég að
hypja mig. Ég hef nóg að hugsa
þangað til ég fer.
Karólína rétti honum höndina.
— Vertu sæll. Bill. Og.góða ferð
og gangi þér vel.
Nú brosti hann ekki. — Mér
veitir víst efcki af góðum óskum,
sagði hann, alvarlega. — Vertu
sæl og þakka þér fyrir þetta á-
nægjulega kvöld.
— Jæja . . . Ef til vill hlusta
þeir á mig og fjarlægja spjöldin
frá stöðum ein° oe Sólskinsfoss
um!
Á meðan, hjá forstjórum aug-
lýsingafélagsins.
— Komdu inn Alex . . . Það
var einhver náungi, sem heitir
Markús Trail að hringja . . . Seg-
ist skrifa í náttúrufræðiritið og
vill ræða við mig um Guody goo
auglýsingarnar!
ailltvarpiö
röstudagur 19. maf
8:00 Morgunútvarp (Bæn: Séra Qarð
ar Svavarsson. — 8:05 Morgun**
leikfimi: Valdimar Örnólfsson
leikfimikennari og Magnús Pét»
ursson píanóleikari. 8:15 Tónleik
ar — 8:30 Fréttir. — 8:35 Tón-
leikar. — 10:10 Veðurfregnir).
12:00 Hádegisútvarp: — Tónleikar •—
12:25 Fréttir. — 12:35 Tilkynning
ar. — 12:55 Tónleikar).
13:15 Lesin dagskrá næstu viku.
13:25 ,,Við vinnuna": Tónleikar.
15:00 Miðdegisútvarp (Fréttir. —
15:05 Tónleikar. — 16:00 Fréttir
og tilk. — 16:05 Tónleikar. —
16:30 Veðurfregnir).
18:30 Tónlikar: Harmonikulög.
18:50 Tilkynningar. — 19:20 Veðurfr.
19:30 Fréttir.
20:00 Efst á baugi (Tómas Karlsson og
Björgvin Guðmundsson).
20:30 Tónverk eftir Arthur Honegger,
leikin af hljómsveit franska út-
varpsins undir stjórn Georges
Tzipine:
a) Concertino fyrir píanó og
hljómsveit (Einleikari: Moni-
que Bérard).
b) Kammerkonsert fyrir flautu
enskt horn og hljómsveit —
(Einleikarar: Fernand Duf-
réne og Paul Taillefer).
21:00 Upplestur: Kvæði eftir Sigurð
Símonarson (Séra Jón Guðjóns-
son).
21:10 Islenzkir planóleikarar kynna
sónötur Mozarts; IX: Jórunn
Viðar leikur sónötu í a-moll
(K310).
21:30 Utvarpssagan: „Vítahringur" eft
ir Sigurd Hoel; IV. (Arnheiður
Sigurðardóttir).
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Garðyrkjuþáttur: Ingimar Ösk-
arssop náttúrufræðingur talar
um íslnzkar jurtir í skrúðgörð-
um.
22:30 I léttum tón: „The Four Lads'*
syngja.
23:00 Dagskrárlok.
Laugardagur 20. maí
8:00 Morgunútvarp (Bæn. — 8:05
Morgunleikfimi. — 8:15 Tónleik
x ar. — 8:30 Fréttir. — 8:35 Tónleik
ar. — 10:10 Veðurfregnir).
12:00 Hádegisútvarp: (Tónleikar. —
12:25 Fréttir og tilkynningar).
12:55 Öskalög sjúklinga (Bryndís Sig-
urjónsdóttir).
14:30 Laugardagslögin. (15:00 Fréttir).
15:20 Skákþáttur (Baldur Möller).
16:00 Fréttir og tilkynningar. (Fram-
hald laugardagslaganna).
16:30 Veðurfregnir.
18:30 Tómstundaþáttur barna og ung-
linga (Jón Pálsson).
18:55 Tilkynningar.
19:20 Veðurfregnir.
19:30 Fréttir.
20:00 Leikrit Þjóðleikhússins: „Þjónar
Drottins“ eftir Axel Kielland. —
Þýðandi: Séra S . einn Víkingur,
•— Leikstjóri: Gunnar Eyjólfsson.
Leikendur: Valur Gíslason, Anna
Guðmundsdóttir, Helga Löve,
Erlingur Gíslason, Rúrik Haralds
son, Herdís Þorvaldsdóttir, Ævar
R. Kvaran, Róbert Arnfinnsson,
Haraldur Björnsson, Lárus Páls-
son, Klemenz Jónsson, Gestur
Pálsson, Jón Aðils og Jónanna
Norðfjörð.
22:05 Léttir þættir úr vinsælum tón-
verkum.
23:30 DagskrárlnV-