Morgunblaðið - 19.05.1961, Síða 21

Morgunblaðið - 19.05.1961, Síða 21
Fostudagur 19. maí 1961 1lORGVNBLAÐIÐ *------------- 21 Nýlegur Þykktarhefill og afréttari til sölu. — Upplýsingar í síma 13243 Bústaðaskipti Við viljum vekja athygli viðskiptamanna okkar á því, að nauðsynlegt er að tilkynna bústaðaskipti strax. Brunatrygging innbús og annars lausafjár er eigi í fullkomnu lagi nema það sé gert. Samvinnutryggingar Sími 17940 IHunið Smurbrau ^ssöauna að Skipholti 21 Þar eru á boðstólum allt algengt brauð, •einnig snitt- ur og veizlubrauð til heimsendingar. Sælacafé Sími 23935 og 19521 NfTT - Blett hreinsiefni margar tegundir til hreinsunar á; Blóðblettum Fitu- og olíublettum Blek- og kúlupenna- strikum Ávaxtablettum Vínblettum Súkkulaðiblettum Ryðblettum o. m. fl. — Leiðarvísir á íslenzku - ^pnnnioio Bankastræti 7. Fólagslíf ÁRMENNINGAR Handknattleiksdeild Lagt verður af stað í Akur- eyrarferðina laugardaginn 20. maí kl. 2 stundvíslega. Farið verður frá Félagsheimili Ár- manns við Sigtún. — Mætum stundvíslega. Stjórnin. Dragtir mikið úrval Skólavörðustíg 17 — Sími 12990 Atvinna Maður vanur sveitarstörfum getur fengið atvinnu á góðu sveitaheimili á Kjalarnesi. — Nánari upp- lýsingar veittar í Laugavegs Apóteki, m. hæð. Tilkynning til kaupenda Morgunblaðsins utan Reykjavíkur Póstkröfur voru nýverið sendar til kaupenda blaðsins úti um land, sem fá blaðið beint frá afgreiðslu þess í Reykjavík. Athugið að innleysa kröfurnar, sem allra fyrst svo komizt verði hjá að stöðva út- sendingu blaðsins. 4 LESBÓK BARNANNA GRETTISSACA 165. Fóstru átti Þorbjörn bngull, er Þuríður hét. Hún var mjög gömul og til lítils fær, að því er mönnum þótti. Hún hafði verið fjölkunnug injög, þá er hún var ung og menn voru heiðnir. Og svo sem Þorbjörn öngull var þrotinn að ráðagerðum, leitar hann þangað trausts, sem flestum þótti ólíklegast, en það var til fóstru sinnar. Hún svarar: „Nú þykir mér koma að því, sem sagt er, að margur fer í geitarhús ullar að biðja. En ef þú vilt mín ráð hafa, þá vil ég ráða, hversu með er farið. Hann játaði því, og hvað hana sér lengi heilráða verið hafa. 166. Það var einn veðurdag góðan, að kerling mælti við Öngul: „Nú er kyrrt veður og bjart. Vii ég nú, að þú farir til Drangeyjar og troðir illsakir við Gretti. Mun eg hafa eitthvað fyrir satt, ef eg sé þá, hversu heilladrjúgir þeir munu verða, og mun eg þá mæla yfir þeim slíkum orðum, sem mér líkar“. Öngull var ófús fararinnar, en lét þó setja fram tein- æring og sté þar á við tólfta mann. Kerling var í ferð með þeim. 167. Og er þeir hræður sáu skipskomuna, gengu þ^ir fram að stiganum, og tóku þeir enn að tala um mál sín, og sagði Þorbjörn, að hann var þangað kominn að vitja þeirra mála, hvort Grettir vildi á brott fara úr eyjunni. i Grettir kvað þess enga von. Kerling lá aftur í skut og voru borin að henni klæði. Hún hrærðist þá og mælti: „Nú mæli eg það um við þig, Grettir, að þú sért heill- um horfinn, allri giftu og gæfu og allri vörn og vizku, æ því meir, sem þú lifir lengur". 168. Og er Grettir heyrði þetta, brá honum mjög við, og mælti hann: „Hvað fjanda er á skipinu með þeim?“ Illugi svarar: „Það hygg ég, að það sé kerlingi uf,óstra Þorbjarnar“. „Fussum þeirri gerninga- vætt“, segir Grettir. „Skal hún og eitthvað til minja hafa, er hún hefur okkur heimsótt“, — og þreif upp stein stundar mikinn og kast- aði ofan á skipið, og kom á fatahrúguna. Við það kom app skrækur mikill. Hafði iteinninn komið á þjólegg kerl ingar, svo að í sundur gekk. Þorbjörn fór nú heim og varð ekki af kveðjum. 20 bamutuifi 5. árg. t Ritstjóri: Kristján J. Gnnnarsson 19. maí 1961 Úr sögu sfotrósins Pappír og prentlist. Kínverjar stöðnuSu í þróun leturgerðar sinnar á stigi samstöfu og mynd letursins, en hins vegar gerðu þeir aðra merka uppgötvun, sem átti eftir að hafa mest áhrif á vöxt og viðgang ritlistarinnar næst stafrófinu sjálfu. — Kínverjar urðu fyrstir að búa til pappír um árið 100 e. Kr. Kínverskar s a g n i r herma, að háttsettur em- bættismaður, lærður og vitur, Ts’sai Lun að nafni hafi af hreinni tilviljun uppgötvað, hvernig hægt var að búa til pappír. Dag nokkurn sat hann á árbakkanum og horfði á þvottakonurnar, þar sem þær voru að „klappa“ þvottinn. Þær lögðu blautt línið á flata steina og börðu það með priki. Þá tók Ts’sai Lun eftir því, að svolítil hvítleit ló losnaði út úr efninu, þeg- ar það var barið, og flaut ofan á vatninu. Annars hugar greip hann dálítið, af þessari ló, um leið og hún flaut fram hjá. Hann lagaði lana til milli fingra sér, unz hún var orðin eins og dálitið lauf- blað. Svo lagði hann „blaðið“ á stein, þar sem vatnið hripaði fljótt úr því og sólin þurrkaði það. Þegar það var orðið þurrt, tók hann það upp og hafði þá fyrsta pappírsblaðið Jóhann Gutenberg, faðir prentlistarinnar milli handanna. Því að þetta blað var líkast gróf- um pappír og á þessari uppgötvun Ts’sai Luns byggðu Kínverjar papp- írsframleiðslu sína. Þeir unnu pappír úr línklútum eins og víða er gert enn þann dag í dag, þótt mest af pappírnum sé nú unn- ið úr trjáviði. Arabar lærðu listina af Kínverjum og fluttu hana til Suður-Evrópu, þegar þeir réðu ríkjum á Spáni (711—1492 e .Kr.) Þessi kunnátta barst smán sam an út um Evrópu. Allt til ársins 1800 var allur pappír handunninn og mjög dýr og fágætur, en eftir það kemur véltækn in til sögunnar og pappírs verksmiðjur rísa upp. Um það leyti, sem ís- lendingasögurnar flestar eru skrifaðar (1200), var ekki hægt að fá pappir, þess vegna voru þær skrif aðar á skinn. (sjá grein í Lesbók barnanna um ísl. handritin). Flest handrit frá þeim tímum eru skinn bækur. Eftir að pappírinn var orðinn algengur, var op- in leið að hefja fjölda- framleiðslu á bókum, með því að prenta þær í vél- um í stað þess að hand- skrifa hvert eintak, eins og alltaf hafði verið gert fram að þessu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.