Morgunblaðið - 19.05.1961, Side 23
Föstudagur 19. maí 1961
MORGVNBf AÐ1Ð
23
Krim kominn til Genf
TÚNIS, 18. maí. — (Reuter) —
Viðræðunefnd útlagastjórnar
Serkja í Alsír fór í dag flugleiðis
til Sviss. Hefjast viðræður hennar
við Frakka um frið í Alsír n.k.
laugardag í franska landamæra-
þorpinu Evian, sem stendur við
Genfarvatn í frönsku Ölpunwm.
Formaður viðræðunefndar
Serkja er Belkacem Krim utanrík
isráðherra og aðstoðar forsætis
ráðherra útlagastjórnarinnar. —
Krim sagði við brottförina frá
Túnis að viðræðurnar yrðu að
H erforingj-
\ar farast í
, flugslysi
" LONDON 18. maí (Reuter)
Tass fréttastofan rússneska
skýrði frá því í dag að f jórir
I rússneskir hershöfðingjar og
' einn ofiursti hefðu láitið Iífið í
flugslysi. Ekki er tekið fram í
fréttinni hvenær slysið varð,
aðeins sagt að mennirnir fimm
hafi verið við skyldustörf.
Æðstur herforingja þeirra,
sem fórust í flugslysinu, var
Vladimir Takovlevich Kolpa-
kchi. Hann var 62 ára, og hafði
verið sæmdur nafnbótinni —
Hetja Sovétríkjanna — og
mörgum Leninsorðum. Kopa-
kchi var gamall Bolsjevikki og
barðist í borgarastyrjöldinni
gegn Hvít-rússum árin 1918—
1920. Árið 1945 stjórnaði hann
69. her Rússa í lokasókninni
til Berlínar og árið 1954—56
var hann yfirherstjóri Norður
svæðis Sovétríkjanna.
Aðrir, sem fórust voru her-
foringjarnir Perevertkin,
Goffe og Morozov og Khikhl-
ovsky ofursti.
leiða til friðar í Alsír og sjálf-
stæðis Alsírbúa án nokkurra skil
yrða. Málefni Alsírbúa væri rétt
látt og stefnan skír. Ef Frakkar
eru ákveðnir í að binda endi á
styrjöldina, ættu engar alvarlegar
hindranir að vera á því að sam
komulag náist, sagði Krim.
Varúðarráðstafanir
í frétt frá Genf segir að gripið
hafi verið til öflugra varúðarráð
stafana þar í borg við komu við
ræðunefndarinnar. Fjölmennt lög
reglulið var á flugvellinum, þar á
meðal 50 menn vopnaðir vélbyss
um til að gæta þess að franskir
öfgamenn nái ekki til neíndar-
manna. í Frakklandi hefur einn
ig verið gripið til varúðarráðstaf
ana. Hefur lögreglan slegið hring
um Evian og stöðvar allar bifreið
ir er nálgast þorpið.
Reykjavík vann Akranes
— Laos
Framb. af bls. 1
tillögumar virtust að ýmsu leyti
jákvæðar og einn talsmaður
Bandaríkjanna lofaði mjög „hóf
samlegt orðalag“ Gromykos ut-
anríkisráðherra, sem bar fram
tillögurnar.
BAUNVERULEGT VOPNAHLÉ
Krishna Menon, varnarmála-
ráðherra Indlands, tók til máls
á ráðstefnunni í dag. Sagði
hann meðal annars að ef eftir-
litsnefndin, sem kom á friði í
Indókína 1954 og nú hefur ver-
•ið endurvakin, hefði ekki verið
leyst upp 1958, hefði ef til vill
verið unnt að komast hjá því
vandræðaástandi, sem skapazt
hefur síðan í Laos. Lagði hann
til að nefndin yrði látin starfa
áfram óbreytt og gæti hún leit-
eð ráða hjá fulltrúum Sovét-
ríkjanna og Bretlands ef um
égreining yrði að ræða. Sagði
Menon að vopnahlé væri í raun
inni komið á í Laos. Nokkrar
'kvartanir hafi að vísu komið
íram um brot á vopnahlésskil-
málunum, en eftirlitsnefndin
ekki fengið neinar sannanir fyr-
ir því að um raunveruleg brot
hafi verið að ræða. Lýsti Men-
on þvi yfir að tillögur Sovét-
ríkjanna verðskulduðu nána í-
hugun og kvaðst vona að skip-
aðar yrðu nefndir til að rann-
saka allar tillögur er fram
kæmu.
,r Fulltrúar hægristjórnarinnar
í Vientiane hafa hingað til neit-
að að mæta á ráðstefnunni
vegna þess að þar sitji nefndir
Pathet Lao kommúnista og stuðn
ingsmanna hlutleysisstjórnar Sou
vanna Phouma. En hægrisinnar
halda því fram að stjórn þeirra
sé hin eina löglega stjórn lands
ins, og því eini aðilinn þaðan,
sem rétt hefur tiJ setu á ráð-
stefnunni.
Kórea
Framh. af bls. 1
OF SEINT
í gær var frá því skýrt að
Han Lim Lee herforingi, yfir-
maður fyrsta hérs Suður-Kóreu,
hafi lýst yfir stuðningi við bylt-
ingarstjórnina. En harin hafði
áður skorað á hermenn sína að
láta byltinguna afskiptalausa.
Óstaðfestar fréttir herma að
Lee hafi verið handtekinn og
fluttur til Seoul frá aðalbæki-
stöðvum sínum við norðurlanda
mærin. Ástæðan er sögð sú að
hann hikaði við að styðja bylt-
inguna.
Chang hershöfðingi gaf í dag
út stefnuyfirlýsingu, þar sem
óskað er eftir nánara samstarfi
við Bandaríkin. Segir í yfirlýs-
ingunni að stefna stjórnarinnar
sé:
1. Sókn gegn kommúnisma.
2. Samþykkt stofnskrár Sam-
einuðu þjóðanna og allra
alþjóðasamninga.
3. Útrýming spillingar.
4. Endursameining landsins
með sameiginlegu átaki
allra andstæðinga kommún-
ista í Suður-Kóreu.
5. Skipun nýrrar ríkisstjórnar
eins fljótt og auðið er, sem
verði skipuð dugmiklum og
samvizkusömum stjórnmála
mönnum.
6. Bætt lífskjör í landinu.
í frétt frá Washington er það
haft eftir Chester Bowles að-
stoðarutanríkisráðherra að hann
telji að Bandaríkjastjórn beri að
viðurkenna herforingjastjórnina
í Suður-Kóreu. Sagði ráðherr-
ann á blaðamannafundi að vart
væri við því að búast að Banda
ríkin fögnuðu því er löglega
kosinni ríkisstjórn væri velt úr
sessi. En hann bætti því við
að nýja stjórnin væri andvíg
kommúnisma og fylgjandi
Bandarikjunum að málum.
BÆJAKEPPNI milli Reykjavík-
ur og Akraness fór fram á Mela-
vellinum í gærkvöldi í hinu feg
ursta veðri. Lið Reykjavíkur sigr
aði með miklum yfirburðum 5:0.
í hálfleik var staðan 2:0. Áhorf-
endur voru margir eða þrjú til
fjögur þúsund. Urðu þeir fyrir
fyxir miklum vonbrigðum með
Akurnesinga, sem áttu lélegan
leik. Lið Reykjavíkur hafði yfir
burði allan tímann. Liðið náði á
köflum vel saman en þar sem mót
spyrna var lítil, unnu Reykvík-
ingar auðveldan sigur.
Reykjavíkurliðið var mun
meica í sókn allan tímann, Akur
nesingar áttu þó einstaka upp-
hlaup og voru nokkur þeirra
hættuleg, eins og t.d. á 14. mín.
þegar Ingvar og Jóhannes léku
vel saman og sköpuðu gott tæki
færi, sem Ingvar misnotaði illa.
Fyrsta markið kom eftir gróf mis
tök í vörn Akurnesinga. Náði
Guðjón knettinum Og skaut lausu
Skoti, sem lenti í netinu. Síðar
í fyrri hálfleik átti Gunnar Guð-
mannsson gott skot utan af hægri
kanti, og þar sem mikill snúning
ur var á knettinum, misreiknaði
Helgi sig á honum og kastaði sér
of seint og knötturinn lenti í
netinu.
Síðari hálfleikur var svipaður
þeim fyrri. Reykvíkingar voru
mun meira í sókn, og fáar sóknar
tilraunir Akurnesinga náðu
lengra en að vítateig Reykvík-
inga. Snemma í hálfleiknum skor
aði Þórólfur eftir mikil mistök
'hjá vinstra bakverði Akurnesinga,
sem hugðist spyrna frá en hætti
síðan óvænt við það og knöttur-
inn lemti í netinu án þess að
Helgi fengi að gert. Stuttu seinna
skoraði Þórólfur bezta mark leiks
ins eftir mjög gott upphlaup, sem
flestir framherjar tóku þátt í.
Fimmta markið skoraði Gunnar
Guðmannsson úr vítaspyrnu eftir
að Jón Leósson hafði gripið
knöttinn, sem var á leið inn í
markið.
Liðin
Reykjavíkurliðið náði nokkuð
vel saman. Heimir maikvörður
átti góðan leik. Bakverðirnir.
.Hreiðar og Árni, eru ákveðnir
og fljótir og grípa oft skemmti-
lega inn í. Rúnar var traustur
og sarnia er að segja um fram-
verðina Helga og Ragnar Jóns
son. Ragnari hættir þó til að
spyrna ónákvæmt og veldur það
oft erfiðleikum fyrir þann, er
taka á við knettinum. Framlín-
an féll nokkuð vel saman. Voru
þeir Guðmundur, Gunnar Felix-
son og Guðjón mjög virkir. Þór-
ólfi hættir um of að leika með
knöttinn í stað þess að gefa hann
frá sér. Gunnar Guðmannsson
gerði margt laglegt, en virtist
ekki kunná vel við sig á hægra
kanti.
Lið Afcumesinga var mjö'g sund
urlaust. Vörnin var mjög götótt
og voru litlar skiptingar hjá
henni. Sveinn Teitsson vann vel
að vanda og reyndi að byggja
upp, en þar sem framherjarnir
voru iila samstilltir, varð lítið
úr því. Ingvar var sá eini af
framherjunum sem vann vel og
skapaði oft hættu.
Dómari var Hauikur ÓSkarsson.
Strauniarinn er á Snæiellsnes
LÖNGU fríhelgarnar, páskahelg-
ina, hvítasunnuhelgina og verzl-
unarmannahelgina notar fólk
mikið til ferðalaga á íslandi.
Um síðustu páska'helgi, lá straum
urinn eins og lundanfarin ár
mest í Öræfin. Um hvítasunnu-
hel'gina virðist mestur straumur
ferðafóliks liggja á Snæfellsnas,
þó auðvitað fari margir annað.
Blaðinu er kunnugt um að
þrjár ferðaskrifstofur a. m. k.
skipuleg.gja ferðir á Snæfellsnes
um þessa hvítasunnu. Ferðafélag
íslands og Guðmundur Jónsson,
öræfabílstjóri, fara með ferða-
hópa yzt á nesið, umhverfis
Arnarstapa og ætlunin að ferða-
fólkið gangi á Snæfellsjökul, ef
veður leyfir. Það gistir á Arnar-
stapa. Ferðaskrfstofa Úifars
Jatoobsens gistir aftur á móti
í Stykkishólmi og fer út í
Breiðafjarðareyjar, en jökullinn
er ekki á áætluninni.
Snæfellsnes er einn sérkenni-
legasti og fjölbreyttasiti hluti
landsins og verður vafalaust
margt um mianninn bar þessa
hvítasunnu, eins og jafnan á
undanförnum árum.
Afli 2 þusund
lestum itiinni
ÓLAFSVÍK, 18. mai — Heildar-
afli Ólafsvíkurbáta til 15. maí
1961 var 8954 lestir í 1121 róðri.
Hæsti bátur var Valafell SH 834
lestir í 93 róðrum, þá Steininn
með 789,5 lestir í 92 róðrum,
Bjarni Ólafsson hafði 787 lestir í
95 róðrum og Jón Jónsson 785
lestir í 92 róðrum.
Aflinn er 2000 lestum minni
en á sama tíma í fyrra. Allir bát-
arnir eru hættir, þeir síðustu
taka upp á morgun. ___ — HG
Öllum vinum mínum og frændfólki, nær og fjær, sem
glöddu mig, á 80 ára afmæli mínu, með heimsóknum og
gjöfum og gjörðu mér daginn ógleymcmlegan, þakka ég
hjartanlega. — Guð blessi vkkur öll.
Ólöf Varðadóttir frá Siglufirði.
Skrifstofur vorar og vörugeymslur, verða
lokaðar
eftir hádegi vegna jarðarfarar
Guðbjarts Ólafssonar
Kristján Ó. Skagfjorð h.f.
Skrifstofur vorar og vörugeymslur, verða
lokaÖar
eftir hádegi vegna jarðarfarar
Guðbjarts Ólafssonar
Sfeinavör h.f.
LokaÖ
milli kl. 1—3 í dag.
vegna jarðarfarar
Nýja blikksmiðjan
Höfðatúni 6
Maðurinn minn og faðir okkar,
HANNES ÓLAFSSON
fyrrverandi kaupmaður
lézt fimmtudaginn 18. þessa mánaðar.
Kristrún Einarsdóttir og börn
Móðir okkar
SIGUBBORG MAGNtJSDÓTTIR
er andaðist 15. maí verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju þriðjudaginn 23. maí kl. 13,30.
Fyrir hönd systkina okkar.
Bagnheiður Björnsdóttir, Sigurður Bjömsson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu
við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu
GUÐRtJNAR ÁSGEIRSDÓTTUR
Börn, tengdabörn og barnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinsemd
við andlát og jarðarför tengdaföður míns og afa
GUÐJÓNS JÓNSSONAR
frá Stærri-Bæ
Ásta Guðmundsdóttir,
. Jóhanna Guðmunda Hafliðadóttir