Morgunblaðið - 19.05.1961, Side 24

Morgunblaðið - 19.05.1961, Side 24
Síldin dþekk SÍLDIN hefur verið óþekk í dag, sagði Jón Einarsson skip stjóri á Fanneyju í símtali við blaðið í gærkvöldi. Hún er á svipuðum slóðum og áð- ur, en torfurnar dreifðar. Hún fannst allt inn undir Engey og Gróttu, en ekki til að veiða hana. Fanney var stödd í Kollafirði, var að leita iniri á sundunum, en fann lítið af 1 síld. Jóni var kunnugt um að l þessir hátar voru búnir að fá síld í gærkvöldi, Auðunn 500 tunnur, Arnfirðingur II 350, Höfrungur II 300, Harald ur 450, Reykjanes 200 og Eld- borgin einrhverja veiði. Frá fréttaritaranum á Akra nesi bárust eftirfarandi síldar fréttir í gær. — Nú eru síld- arbátarnir aðallega út af sex- baujunni, norðvestur af Grót-iu töngum. í nótt lönduðu sam- tals 2340 tunnum þessir bátar: Haraldur 940, Höfrungur n 880, Höfrungur fyrsti 260, Sveinn Guðmundsson 200 og Heimaskagi 150. Óhemju rauð áta er komin í sildina. Bátarn ir fóru aftur út til veiða um 10 Ieytið' í morgun. ( Piltur varð undir dráttarvél UM HÁDEGISBILIÐ í gær varð 17 ára gamall piltur úr Reykja vík undir dráttarvél í Gufunesi Og marðist mikið. Pilturinn, sem heitir Stefán Hilmar Stefánsson var að vinna skammt frá Gufunesbænum með Massey-Fergusson dráttarvél með tætara. Vildi það óhapp til að dráttarvélin fór út í skurð. Enginn var nærstaddur til að veita hjálp svo Stefán varð sjálfur að krafsa sig undan henni, en mun hafa legið þarna alllengi. Fólk heima á Gufunesbænum sá hvar drengurinn lá fyrir, en veðrið var gott og taldi það í fyrstu að hann væri að hvíla sig. En þegar sást að haann gerði ítrekaðar tilraunir til að rísa upp, var farið til hans og honum kom ið til hjálpar. Var hann fluttur á Landakotsspítala og reyndist vera mikið marinn, en ekki hrotinn. Sumarblíða AKUREYRI, 18. maí. — Enn er sama sumarblíðan hér og grænk ar nú óðum og gróður allur fær ist í sumarbúning. Hitinn er þetta 15—18 gráður. Víða getur að líta fólk, vinnandi í lóðum sínum og í görðum, hlúandi að blómum og ýmsum gróðri eða setja niður nýjar plöntur. r Arekstur I AKUREYRI. 18. maí — Snemma | í gærmorgun varð allharður á- rekstur hér í bæ milli jeppa og fólksbifreiðar. Skeði þetta á mót um Norðurgötu og Tryggvagötu. Við áreksturinn valt fólksbifreið in og skemmdist allmikið. Jepp- inn slapp með „skrámur“. Ekki i urðu meiðsli á mönnum. Gengur vel að ryðja Siglufjarðarskarð SIGLUFIRÐI, 18. maí — Snjó- ruðningur af veginum yfir Siglu fjarðarskarð hefur gengið að ósk um, þrátt fyrir smábilanir annarr ar ýtunnar, sem að verkinu vinn ur, enda aðeins um nýjan og við ráðanlegan snjó að ræða. Gert er ráð fyrir að snjóruðningi Verði lokið á morgun, ef ýturnar ekki bila og að vegurinn verði fær bifreiðum um hvítasunnuhelgina, en þá er áformað Skarðsmót í svigi og stórsvigi karla og kvenna svo sem verið hefur undanfarin ár. — Stefán. «\ STRÁKARNIR þarna uppi á þakinu eru ,,a svindla sig inn á völlinn“. Þeir hafa sem sagt klifrað upp eftir vin- upöllunum og alla leið upp á Búnaðarfélagshúsið nýja, til að horfa á knatt- spymuleikinn, sem fram fer á vellinum. Kunnugir segja að stundum sé fólk þarna á pöllunum eins og fuglar í bjargi, þegar leik- ir fara fram. Á leiknum í gærkveldi voru mikil brögð að því að unglingar klifruðu upp á vinnupalla Bændahallarinn ar. Skarst lögreglan þá í leikinn, en strákarnir hlupu bara undan eftir pöllunum. Þetta er ekki hættulaus Ieik ur og þarf að stöðva hann. Þakbrún á margra hæða húsi er enginn leikvöllur fyrir glannafengna stráka. (Ljósm. Sv. Þorm.) 1 sænsk kr. hvert kg. VESTMANNAEYJUM, 18. maí — Bátarnir Stígandi og Marz, sem nýlega fóru með farma af löngu til sölu í Svíþjóð, hafa selt löng una í Lysikil fyrir 1 kr. sænska pr. kg. Fiskurinn líkaði vel í Svíþjóð og þótti góð verkun á honum. Eins og áður hefur verið frá skýrt, er þetta ný tilraun til sölu á löngu og gefur vissa möguleika til að selja hana út á vorin. Þar eð bátarnir eru hættir að róa er ekki um meiri sölu að ræða að þessu sinni. í Svíþjóð er langan eftirsótt og BíH ók á barnakerru UM sex leytið í gær ók bifreið á barnakerru utan við Melaturn- inn í Reykjavík og var lítill drengur, Óskar Guðmundsson í kerrunni. Fékk barnið skurð á einni og var flutt á Slysavarð- stofuna. Þar var tekið spor í ennið á bví og fór það síðan heim. verkuð sem lútfiskur, en þannig er hún borðuð á jólunum. Einnig verka Sviar annan fisk þannig, þegar lönguna þrýtur, en hún þyk ir bezt í jólamatinn. — Bj.Guðm Afbragðssala Eyjabergið hefur einnig selt í Aberdeen í Skotlandi. Skipið fór með 18 lestir af ísuðum fiski í kössum Og seldi fiskinn fyrir 2300 pund, sem er afbragðs sala. ÞESSA dagana er verið að aka vélunum í hina nýju dælustöð Hitaveitunnar við Sundlaugarnar og í fyrradag komu aðalpípurnar til lands- ins. Helgi Sigurðsson, hita- veitutjóri, tjáði blaðinu í gær að gizkað væri á að það mundi taka þrjá mánuði að koma vélunum í gang í dælu stöðinni og úr því yrði farið að tengja smám saman í hús in sunnan við Sundlaugaveg- inn, en þar er búið að leggja í allt hverfið. Dælustöðin við Sundlaugam- ar er ætluð fyrir allt Sund- laugarhverfið og upp á Laugar- ásinn og verður lögð þarna hita veita í þremur áföngum. Fyrsti áfanginn er sunnan Sundlauga- vegar, eins og áður er sagt, en nokkur hluti þess hverfis hefur haft heitt vatn frá borholunni við Sigtún síðan haustið 1959. Hún verður nú tekin inn í Sundlaugastöðvarkerfið. Næsti áfangi er norðanmegin Sund- laugavegar frá Kleppsholti að Dalbraut og verður það verk boðið út á næstunni. Þriðji á- fanginn verður loks lagning f vesturhlutann af ásnum. j, Nýr áfangi hafinn í Hlíffunum Af hitaveituframkvæmdunum í Hlíðunum er það að segja, að verið er að ljúka einum áfanga, í Stigahlíð og Bogahlíð, og vinna í öðru hverfi, milli Miklubraut- ar og Háteigsvegar, er nýbyrj- uð, búið að grafa eina götu og steypa stokk. Var verkið boðið út og er gert ráð fyrir að það taki eitt ár. Hitavatnshola hjá Defensor 1 Einnig er haldið áfram að bora. Núna er stærsti bor hita- véitunnar að bora hjá Defensor og kominn 320 m. niður. Er ný- lega komið vatn í þá holu, sem er 6% 1. á sek. Það var meira, eða 7,8, en hefur minnkað. -— Þetta er heldur ekki hrein við- bót, því aðeins hefur minnkað í nærliggjandi holum. Verður haldið áfram boruninni. í sumar fær Hitaveitan stóra gufuborinn, og á að bora fleiri holur með honum, t. d. í Höfða- hverfinu, þar sem búið er að undirbúa eina holu. Og senni« lega einnig við Grensásveginn, þar sem nú er verið að kanna jarðveginn með litlu borunum. Borflokkur við Búrfell til rcmnsókna a Þjórsárvirkjun BORFLOKKUR frá Raforkumála skrifstofunni er kominn upp að Búrfelli og farinn að bora þar með tveimur borum, til að kanna jarðveginn með tilliti til hugsan legrar virkjunar í framtíðinni, en í námunda við Tröllkonu hlaup er einn af þeim 6 stöðum í Þjórsá, sem til greina koma til virkjunar. Áður hefur verið kort lagt þarna og staðurinn athugað ur, en nú á að fá þar meiri upp lýsingar, m.a. að bora til að at- huga jarðveginn vegna hugsan legrar stíflu. Þarna við Búrfell yrði, ef til kæmi, stæsta virkjunin í Þjórsá, en hugsanlegir staðir eru 6, eins og áður segir, auk 4ra staða í Tungnaá, áður en hún kemur í Þjórsá. Á sumrin fara jafnan fram rannsóknir á vegum Raforku- málaskrifstofunnar á hugsanleg- um virkjunarstöðum. í sumar verða að líkindum rannsóknir við Hestfjall, Hvítárvatn, við Rang. árnar, eystri og ytri og við Búará Árlega hefur lögreglan upp boff á fundnium munum sem ekki hefur veriff hægt aff koma til skila. Kl. 1 e.h. í gær hófst slíkt uppboff í bakgarffinum viff skrifstofur Sakadómara á Fríkirkjuvegi 11. Þar var sam an komin dálítill hópur af fólki, sem hugffist gera góff kaup. Þórhallur Pálsson, full- trúi borgarfógeta bauff upp. Eins og jafnan voni boffin upp þó nokkur reiffhjól, sem eigendur hafa ekki hirt um aff spyrja eftir og fórn þan á 200—2000 kr. Auk þess var þarna fatnaffur, veski buddur, þennar og fleira og allt fór þaff fyrir eitthvaff. Uppboffiff stóff til kl. 3,30, gekk fljótar en venjulega og heldur færra var af uppboffsmumim, aff því er Ingólfur Þorsteinsson, yfirvarff stjóri tjá'ffi blaffinu. Eiga að cjæla hei*u vatni allt upp í Laugardsinn Vélarnar í Sundlauga- dælustöðina komnar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.