Morgunblaðið - 20.05.1961, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ
I-augardagur 20. maí 1961
Mary Howard:
Lygahúsið
(Skáldsaga)
Þegar hann var farinn, sat
Karólína lengi í setustofunni, og
hugsaði og reiknaði út. Það var
orðið bjart af morgni, þegar hún
loksins kallaði á Carter, til þess
að hjálpa sér að afklæðast og
koma sér í rúmið.
Á krókótta veginurrí frá Roque
d’ Or hemlaði Glaude Fauré, til
þess að láta stóran vörubíl kom-
ast fram hjá hvíta Mercedesbiln-
um sínum_ og leit svo um leið
forvitnislega á farþega sinn.
Stephanie var í einföldum hvít
um kjól og hafði rauðan silkiklút
yfir svörtu hárinu. Hún var hlé-
dræg í fasi og mjög lagleg.
Þetta var þá dóttir systur
hennar Karólínu. Hann -mundi
vel Láru Cameron frá því að
hann hafði verið við listnám í
London. Þá hafði hann fyrst hitt
Karólínu, sem var í dansflokki í
leikhúsi nokkru. Lára hafði
skömmu síðar gifzt John Camer-
on og eftir það hættu þær syst-
urnar að hittast. Karólína hafði
sagt honum alla þá sögu. Orsök-
in var John Cameron. Karólína
hafði viljað eiga hann sjálf en
hann ekki viljað líta við henni,
og það hafði verið ónotalegt
kjaftshögg á óseðjandi hégóma-
girnd hennar.
Stúlkan var mjög lík móður
sinni, svona falleg og dökk á
brún og brá, alvarleg og virðu-
leg. Hún leit nú undan er hann
horfði svona mikið á hana, og
hann sagði snöggt: — Þú ert ekki
sérlega hrifin af mér, eða hvað?
— Já, en ég þekki þig bara
ekki neitt, svaraði Stephanie al-
varlega.
Hann réð ekki við hégómaskap
sinn, en flýtti sér að svara:
— Þér finnst ég kannske full-
gamall?
Stephanie brosti. Hún kunni
hálfilla við þessa kunningjalegu
framkomu hans, en ekki var hún
samt neitt hrædd við hann.
— Það mætti eins vel segja, að
yður fyndizt ég mjög ung, svar-
aði hún rólega.
— Ha-ha! Þú ert ekki frænka
hennar Karólínu fyrir ekki neitt!
Já, víst finnst mér þú mjög ung.
Dásamlega og stórkostlega ung!
Þú ert alveg ómótstæðileg og
gerir mig vitlausan.
Stephanie hló.
— Já, þú ert svo falleg þegar
þú hlærð. Jæja, nú færðu að
læra nokkuð nýtt. Listina að
velja vín.
Þau komu fyrir háa klettinn
við höfnina í Nice, síðan fóru
þau niður brekkuna við kastal-
ann og framhjá blómatorginu.
Fauré stanzaði fyrir framan vín-
búð.
— Þetta er búðin hans Lebon.
Nú er um að gera að kunna að
prútta.
Tveim klukkustundum síðar
sátu þau við lítið borð í veitinga-
húsi og dreyptu á glösum. Þau
höfðu pantað svo mikið af víni,
að Stephanie alveg ofbauð_ en
Fauré fullvissaði hana um, að á
mælikvarða Karólínu væri þetta
sérlega hóflegt. Hún var farin að
kunna vel við hann. Hann hafði
verið öruggur og ákveðinn við
vínkaupin, og hún vissi, að hún
hefði aldrei komizt af án hjálpar
hans.
— Hérna .... áður en ég
gleymi því! Hann rétti henni
þykkan seðlavöndul.
— Hvað er þetta?
— Umboðslaunin þín. Ég heimt
aði þau af Lebon.
Stephanie roðnaði. — Ekki vil
ég taka við þessu. Ég ætla að fá
frænku það, þegar hún kemur.
— Þá værirðu vitlaus. Þetta
er nú siður hérna. Heldurðu
kannske, að Betram og Francine
gætu lifað á þessari hungurslús,
sem þau hafa í kaup hjá henni
Karólínu, ef þau hefðu ekki þessi
umboðslaun af því, sem keypt er
inn. Hún tók eftir því, hve kæru-
leysislega og með hvílíkri fyrir-
litningu hann bar fram nafn
frænku hennar. — Karólína á
ekki nema eina ástríðu í þessum
heimi: Peninga. Hennar lífsstarf
hefur verið að láta aðra borga
fyrir sig og hingað til hefur það
gengið prýðilega, að undantekn-
um smá-mistökum þegar hún
var ung. Ég var sjálfur eitt af
þessum mistökum, þegar ég var
sjálfur ungur. En nú sækist hún
ekki eftir nema því, sem er
stærra og Öruggara — eins og
hinum mikla Charles Jerome.
Stephanie fann, að hann hit-
aði í kinnarnar. — Ég veit um
hr. Jerome.
— Og ertu ekk.i hneyksluð?
— Nei. Það er mér algjörlega
óviðkomandi. Og mér væri þökk
á þvi, að þú talaðir ekki svona
um hana frænku mína. Ég veit
að vísu vel, hvað sagt er um
hana, en ég þekki hana ekki að
öðru en gæðum og örlæti.
Það kom glettnissvipur í dökku
augun. — Það er dásamlegt að
heyra. Ég trúði líka einu sinni á
hana. En þú skalt nú samt hlusta
á aðvörun mína. Karólína mun
nota þig eins lengi og hún telur
þörf á því, en svo er það ....
spark!
— Ég hélt þú værir vinur
hennar, sagði Stephanie kulda-
lega.
— Það er ég líka. Og líklega
eini sanni vinurinn hennar.
Hann lækkaði röddina. — Af því
að ég þekki hana eins og hún er
raunverulega. og ef hún þarf á
mér að halda, mun ég hlaupa á
heimsenda til að hjálpa henni.
Allt í einu fann Stephanie til
aukinnar samúðar með honum.
Hann var ólíkt meir aðlaðandi
þegar hann talaði svona í alvöru
og án allra uppgerðarláta.
Hann leit á úrið sitt. — Jæja,
það er víst tími kominn til að
fara að hreyfa sig úr stað Mad-
emoiselle. Éða má ég kannske
kalla þig Stephanie?
— Vinir mínir kalla mig
Stevie.
Fauré leit snöggt upp. — Þú
heldur þá, að við gætum orðið
vinir?
— Það vona ég, svaraði hún
brosandi.
Þegar þau voru komin rétt
heim að húsinu, sagði hann bæði
í gamni og alvöru: — Viltu koma
með mér upp í fjöll, einhvern
daginn? Ég á þar smákofa og
fer þangað oft að veiða.
Augun í Stephanie ljómuðu af
glettni. — Nei! Það þori ég ekki
með svona útförnu kvennagulli,
eins og þú ert. En þá rak hún
upp gleðióp og stökk út tfr bíln-
um. Sally Rowland kom gang-
andi áleiðis til þeirra, brún af
sólbruna.
3|lltvarpiö
Laugardagur 20. maí
8:00 Morgunútvarp (Bæn. — 8:05
Morgunleikfimi. — 8:15 Tónleik
ar. — 8:30 Fréttir. — 8:35 Tónleik
ar. — 10:10 Veðurfregnir).
12:00 Hádegisútvarp: (Tónleikar. —
12:25 Fréttir og tilkynningar).
12:55 Oskalög sjúklinga (Bryndís Sig-
urjónsdóttir).
14:30 Laugardagslögin. (15:00 Fréttir).
15:20 Skákþáttur (Baldur Möller).
16:00 Fréttir og tilkynningar. (Fram-
hald laugardagslaganna).
16:30 Veðurfregnir.
18:30 Tómstundaþáttur barna og ung-
linga (Jón Pálsson).
18:55 Tilkyftningar.
19:20 Veðurfregnir.
19:30 Fréttir.
20:00 Leikrit Þjóðleikhússins: „Pjónar
Drottins" eftir Axel Kielland. —
Þýðandi: Séra Sveinn Víkingur.
— Leikstjóri: Gunnar Eyjólfsson.
Leikendur: Valur Gíslason. Anna
Guðmundsdóttir, Helga Löve,
Erlingur Gíslason, Rúrik Haralds
son, Herdís Þorvaldsdóttir, Ævar
R. Kvaran, Róbert Arnfinnsson,
Haraldur Björnsson, Lárus Páls-
son, Klemenz Jónsson, Gestur
Pálsson, Jón Aðils og Jonanna
Norðfjörð.
22:05 Léttir þættir úr vinsælum tón-
verkum.
23:30 Dagskrárlok.
Sunnudagur 21. maí
(Hvítasunnudagur)
9:15 Morguntónleikar:
a) Konsert nr. 1 í F-dúr fyrir
orgel og hljómsveit eftir
Frantísek Brixi (Miroslav
Kampelsheimer og Sinfóníu-
hljómsveit Pragar; Ladislav
Síp stjórnar).
b) Ensk svíta nr. 5 í c-moll eftir
Bach (Fiodorova leikur á
píanó).
9:55 Vikan framundan.
10:10 Veðurfregnir.
10:20 Morguntónleikar: — framh.
c) Fjórir andlegir kórþættir eftir
Verdi (Dómkórinn og borgar-
hljómsveitin í Aachen flytja;
Theodor Rehmann stjórnar).
11:00 Messa í Hallgrímskirkju (Prest-
ur: Séra Jakob Jónsson. Organ-
leikari: Páll Halldórsson).
12:15 Hádegisútvarp.
14:00 Messa £ Fríkirkjunni (Prestur:
Séra Þorsteinn Björnsson. Org-
anleikari: Sigurður ísólfsson).
15:15 Miðdegistónleikar:
a) Strengjakvartett £ A-dúr (K-
464) eftir Mozart (Michailow-
kvartettinn leikur).
b) ,,Glockenlieder“ op. 22 eftir
Max von Schillings Paderew-
ski (Felicja Blumenthal og
Sinfóniuhljómsveit Lundúna
leika; Anatole Fictoulari stj).
16:30 Veðurfregnir. — Endurtekið efni.
a) Halldór Daviðssori segir frá
skipsstrandi á Meðallands-
sandi (Áður útv. 10. þ.m.)
b) Pólýfónkórinn syngur „Dauða
dans“ eftir Hugo Distler. Söng
stjóri er Ingólfur Guðbrands-
son, sem einnig les texta
ásamt Lárusi Pálssyni (Áður
útvarpað 26. f.m.).
17:30 Barnat£mi (Anna Snorradóttir).
a) Bernskuminning eftir Sigur-
björn Sveinsson.
b) Fimm minútur með Chopin.
c) Framhaldsleikritið „Leyni
garðurinn“ eftir Frances Burn
et: IV. kafli. — Leikstjóri:
Hildur Kalman.
d) Sagan „Stúart litli“; fimrnti
lestur.
18:30 Miðaftantónleikar:
a) Sir Thomas Beecham stjórnar
vinsælum hljómsveitarverk-
um.
b) Ruggiero Ricci leikur fiðlulög
eftir* Saraste.
19:20 Veðurfregnir. — 19:30 Fréttir.
20:00 Erindi: Barnafoss i Hvitá (Guð
mundur Böðvarsson skáld).
20:20 Einsöngur: Franski ljóðasöngvar
inn Gérard Souzay syngur. Und
irleikari: Dalton Baldwin (Hljóð
ritað á söngskemmtun i Austur-
bæjarbiói 4. þ.m.).
a) Ich will den Herren loben alle
zeit'* eftir Schutz.
b) „Jesus in Gethsemane" eftir
Emanuel Bach.
c) „Die Ehre Gottes aus der
Natur" eftir Beethoven.
d) Fjögur lög eftir Schubert: —
„Der Schiffer", Wehmut",
„Nacht und Tráume" og
„Meein".
e) Lagaflokkurinn ,,An die ferna
Geliebte" op. 98 eftir Beet-
hoven.
21:00 Um skírn og fermingu, — dag-
skrá Kristilegs stúdentafélags.
Til máls taka Frank M. Halldórs
son cand theol. formaður félags
ins, séra Sigurður Pálsíon, herra
Sigurbjörn Einarsson biskup, As
geir B. Ellertsson cand. med. og
Ingólfur Guðmundsson stud.
theol. Blandaður kór K.F.U.M.
og K. syngur. Kynnir dagskrár-
innar verður Auður Eir Vil-
hjálmsdóttir stud. theol.
22:00 Veðurfregnir. — Kvöldtónleikar.
a) Frá tónlistarhátíðinni í Chim-
ay í Belgíu 1960: I Musici leika
Consertino nr. 2 í G-dúr fyrir
— Alex, hefur þú nokkurn
tíma heyrt þessa Markúsar get-
ið?
— Vissulega, hann skrifar
ferðasögur og tekur myndir fyr-
ir náttúrufræðiritið.
— Jæja, hann er að ganga í
gildru okkar .... Ég vil að allir
sem rita um þessi efni ráðist á
okkur. Það verður til þess að
Goody-goo verður bezt þekkta
sælgæti landsins!
strengjasveit eftir Pergolesi
og Konsert fyfir fiðlu,
strengjasveit og clavecin eftir
Vidaldi. Einleikari á fiðlu:
Felix Ayo.
b) Frá tónleikum í Austurbæjar
bíói 15. febr. s.l.: Hans Jand
er leikur píanósónötu op. 2 nr.
3 í C-dúr eftir Beethoven.
c) Missa Brevis eftir Kolály (Ein
söngvarar og Búdapestkórinn
syngja með ungversku ríkis-
hhljómsveitinni; höf. stj.).
23:30 Dagskrárlok.
Mánudagur 22. maí.
(Annar hvítasunnudagur)
8:30 Fjörleg músík að morgni dags.
9:00 Fréttir. — 9:10 Morguntónleikar:
a) Hornkonsert nr. 2 í D-dúr eft
ir Haydn (Alfred Brain og
Janssen sinfóníuhljómsveitin
leika; Werner Jansen stj.).
b) Nicanor Zabaleta leikur á
hörpu.
c) Frá Casals-tónlistarhátíðinni
í Porto Rico 1959: Carol
Smith og Jan Peerce syngja
aríur úr kantötum eftir Bach:
Bach Aria Group leikur með:
Stjórn.: William Scheide.
d) Fiðlukonsert í a-moll op. 99
eftir Stostakovitsj (David Oi-
strakh og Ríkishljómsveitin í
Leningrad leika; Evgenij
Mravinskij stjórnar).
11:00 Messa í Hallgrímskirkju (Prestur
Séra Sigurjón Þ. Árnason. Organ
leikari: Páll Halldórsson).
12:15 Hádegisútvarp.
14:00 Miðdegistónleikar:
a) „Andstæður" (Constasts) fyrir
fiðlu, klarínettu og píanó eftir
Béla Bartók (Melvin Ritter,
Reginald Kell og Joel Rosen
leika).
b) Atriði úr óperunni ,,I Pagli-
acci" eftir Leoncavallo (Carlo
Tagliabue, Carlo Gavazzi.
Carlo Bergonzi o.fl. syngja.
með kór og hljómsveit ítalska
útvarpsins. Stj.: Alfredo Sim
onetto).
c) Sinfónía nr. 5 í e-moll op. 64
eftir Tjaikovsky (Hljómsveit
Scala-óperunnar í Mílanó leik
ur; Guido Cantelli stj.).
15:30 Kaffitíminn:
a) Josef Felzmann Rúdólfsson og
félagar hans leika.
b) Hljómsveit Norries Paramour
leikur.
16:30 Veðurfregnir.
Endurtekið leikrit: „Hugsanaleik
urinn" eftir Helge Krog. Þýð-
andi: Sigríður Thorlacius. Leikstjóri:
Þorsteinn Ö. Stephensen. (Áður útv.
í marz 1957).
17:30 Barnatími (Baldur Pálmason).
a) Frá nemendatónleikum Barna
músíkskólans: Fjórtán börn
flytja barnasinfóníu eftir
Joseph Haydn.
b) Leikrit: „Palli pikkoló á vakt'*
eftir Jakob Skarstein. Þýð-
andi: Elín Pálmadóttir. Leik-
stjóri Ævar R. Kvaran (Áður
flutt fyrir fjórum árum).
c) Börn úr barnaskólanum ó
Kársnesi syngja og leika .
d) Lesin írsk saga: „Þrílemban'*
18:55 Tilkynningar. — 19:20 Veðurfr.
19:30 Fréttir.
20:00 „Sígaunabaróninn". Óperetta
Johanns Strauss á uppsiglingu í
Þjóðleikhúsinu. Magnús Bjarn-
freðsson rekur efnisþráðinn, og
sungin verða og leikin, fáein lög.
20:30 Kórsöngur: Karlakór Reykjavík
ur syngur. Sönstjóri: Sigurður
Þórðarson. Einsöngvari: Guð-
mundur Jónsson og Guðmundur
Guðjónsson. Píanóleikari: Fritz
Weisshapell. Af tilefni 35 ára af-
mælis kórsins syngur 100 manna
kór eldri og yngri félaga nokkur
lög.
21:15 „Stebbi í Seli": Þættir úr ævi
Klettafjallaskáldsins, teknir sam
an og tengdir af Gils Guðmunds-
syni rithöfundi. Aðrir flytjendur:
Dr. Broddi Jóhannesson, dr.
Kristján Eldjárn og Óskar Hall
dórsson cand. mag. — Fyrri hluti.
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:05 Danslög, þ.á.m. leikur hljómsveit
Arna ísleifssonar. — Söngfólk:
Ragnheiður Jónsdóttir og Jóhann
Gestsson.
02:00 Dagskrárlok.
08:00
12:00
12:55
15:00
18:30
18:55
19:30
20:00
20:05
21:05
21:50
22:00
22:10
23:00
Þriðjudagur 23. maí
Morgunútvarp. (Bæn: Séra Jón
Þorvarðarsson. — 8:05 Morgun-
leikfimi. — 8:15 Tónleikar. — 8:30
Fréttir. — 8:35 Tónleikar. — 10:10
Veðurf regnir).
Hádegisútvarp (Tónleikar. »
12:25 Fréttir og tilkynningar).
„Við vinnuna"; Tónleikar.
Miðdegisútvarp (Fréttir. — 15:05
Tónleikar. 16:00 Fréttir og tilk.
— 16:05 Tónleikar. — 16:30 Veð-
urfregnir).
Tónleikar: Þjóðlög frá ýmsum
löndum.
Tilkynningar. — 19:20 Veðurfr.
Fréttir.
Erindi: Frakkland og Alsír (Ei-
ríkur Sigurbergsson viðskiptafr.),
Frá tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands í Þjóðleikhúsinu
16. þ.m., síðari hluti. Stjómandi:
Bohdan Wodiczko. Einleikari á
píanó: Tadeusz Zmudzinski.
a) „Nætur í görðum Spánar'*,
eftir Manuel de Falla.
b) Tilbrigði eftir Boris Blacher
um stef eftir Paganini.
Raddir skálda: Úr verkum Axels
Thorsteinssonar. — Flytjendur:
Guðbjörg Þorbjamardóttir, Krist
ín Anna Þórarinsdóttir, Ævar
Kvaran og höf. sjálfur.
Fjallasöngvar: Calderelli systkin
in syngja.
Fréttir og veðurfregnir.
Lög unga fólksins (Jakob Möller)
Dagskrárlok.