Morgunblaðið - 24.05.1961, Page 3
Miðvikudagur 24. maí 1961
MORKVNBLAÐIÐ
3
☆
•MMM
MIMMMhi
KAPPREXÐAR Fáks á skeið-
vellinum við Reykjavík á ann
an hvítasunnudag þóttu tak-
ast mjög vel. Veður var gott
Og ekki mikið ryk, enda hafði
verið sprautað saltvatni með
stuttu millibili á völlinn all-
an daginn fram að þeim tíma
sem kappreiðárnár hófust, og
þar var samankomið margt að
komumanna, sem bæði komu
riðandi og í farartæKjum T.
d. var komið með kappreiða-
hesta austan frá L.augarvatns,
úr Gaulverjabæ í Fióa og frá
Eyrarbakka. Og hópur af á-
horfendum kom ríðandi úr
Ölfusinu, frá Hveragerði og
Þorlákshöfn. Kom réiðfólkið
að austan að kvöldi hvíta-
sunnudags, geymdi héstana í
hesthúsum Fáks og reið af
stað austur eftir kappreiðarn-
ar á 2. hvítasunnudag. Mun
þar hafa riðið um hérað 12—
14 manna hópur með um 40
hesfa.
* * *
Á kappreiðunum var í þetta
sinn tekin upp nýbreytni, sem
vakti mikla athygli, ekki sízt
unglinganna. Ung stúlka,
Rosemarie Þorleifsdóttir,
hafði þjálfað 5 krakka á aldr-
inum 10—13 ára, í æfingum
á hlaupandi hesti, og sýndu
þaú listir sínar, stelpurnar
Rosemarie Þorleifsdóttir með krökkunum, sem sýndu æfingar á hlaupandi hesti. Þau heita Ásta
Guðmundsdóttir, Ylfa Bryjijólfsdóttir, Herdís Hermannsdóttir, ívar Björnsson og Kristján Á-
gústsson. (Ljósm. vig.)
hesta, hefi aðeins 5, sem félags
krakkar verið þar á mánaðar-
námskeiði einu sinni í viku. —
menn í Fáki hafa lánað og
það takmarkar að sjálfsögðu
hvað hægt er að taka marga,
segir Rosemarié. Um dagmn
komu til mín krakkar, sem
sögðust ekki vilja fara í sveit,
því þar fengju þau aldrei að
koma á hestbak, heldur vera
í brenum í sumar og fara í reið
hælana til. Stóru hestarnir
finna þetta á síðunni. Svo
brokka þeir gróft og valhoppa
og reiðmaðurinn þarf að lyfta
sér í hnakknum.
— Geturðu haft gagn af bví
sem þú lærðir á þessum stóru
hestum í reiðskólanum’
— Ekki beint að sitja hest-
inn. Annars má sjalfsagt
kenna islenzka hestinum ýrn-
Leika listir á hestbaki -
kunna aö detta af baki
klæddar rauðum pilsum og
hvítum blússum og strákarnir
hvítklæddir. Hesturinn brokk
aði í hringi og krakkarnir
stóðu á höndum á bakinu á
honum, héngu utan í og gerðu
alls kyns æfingar! Rosemarie
sjálf sýndi hindrunarhlaup
ásamt einum stráknum og
krakkarnir fóru hópreið eftir
músik.
Rosemarie lærði þessar list
ir úti í Þýzkalandi, þar sem
þeim er aðallega beitt með til-
liti til þess að auðvelda krökk ,
um frá 10 ára aldri að komast
í samband við þessa stóru og
hrikalegu hesta, sem þar eru,
að því er hún segir. Krakk-
arnir hafa þá gjörð til að
halda sér í og fá öryggi á
bestbaki. Einnig læra þau um
ieið að detta af baki, og koma
rétt niður og það getur verið
gagniegt. — Ég hefi aðeins
þjálfað einn hest í þessu enn-
þá, segir hún. Hann brokkar,
en seinna þarf að kenna hon-
um að valhoppa.
Rosemarie er dóttir Þorleifs
Þórðarsonar framkvæmda-
stjóra Ferðaskrifstofunnar.
Hún var í fyrra í reiðskóla í
Þýzkalandi. Einnig starfaði
hún á búgarði í Þýzkalandi,
þar sem unnið var með ís-
lenzkum hestum og á hóteli,
þar sem hestar voru leigðir
hótelgestum. í vetur hefur
hún svo haft reiðskóla á veg-
um Fáks og kennt krökkum
taumhald og ásetu. Hafa 35
hefi orðið að neita fjölmörg-
Það hefur verið svo mikil að-
sókn að námskeiðunum að ég
um krökkum. En mig vantar
skóla. Nú er hlé hjá okkur,
en í júní hefst eitt námskeið,
sem þegar er orðið fullsetið.
Ég vona svo að hægt verði að
halda áfram með þetta, því
eftir þessar undirtektir væru
það hálfgerð svik að hætta við
svo búið.
— Svo hefurðu verið að
temja? Mér er sagt að þú haf-
ir verið inn við hesthús alla
daga í vetur?
-— Já, ég hefi tekið nokkra
hesta fyrir fólk í tamningu.
Annars er ekki ætlunin að
gera það, því ég er tæplega
fær til þess. Ég get vel tamið
hest eins og ég vil hafa hann
sjálf, en það er ekki víst að
öðrum líki það.
— Hvernig stóð á því að þú
iagðir þetta fyrir þig?
— Ég hefi alltaf haft gaman
að hestum frá því ég var lítil
og var í sveit, fyrst á Skriðu-
felli í Þjórsárdal og síðan á
Steindórsstöðum í Reykholts-
dal. Svo hefur pabbi alltaf
haft hesta.
— Eru stóru þýzku hestarn-
ir ekki ólíkir okkar hestum
og reiðlagið annað?
— Jú, hestarnir eru svo
stórir að ég sé ekki yfir lend-
ina á þeim, þegar ég stend
hjá þeim og reiðmennskan
byggist á allt öðru. Reiðmað-
urinn stjórnar hestinum með
fótunum, taumhaldið er að-
ems til að hafa hemil á hrað-
anum. Fæturnir eru klemmd-
;r að síðum hestsins og hon-
um stjórnað með þrýstingi frá
kálfunum og með því að færa
islegt sem þeir stóru gera, og
ég hefði gaman af að reyna
það. En ég hefi ekki fundið
rétta hestinn, þetta verður að
vera séistök gerð. Annars var
námið á reiðskólanum bæði
verk’.egt og bóklegt. Við höfð-
um alveg okkar hesta, hirt-
um þá algerlega og önnuð-
urnst þá á allan hátt, Og í
bókiegu lærðum, við um hesta
kyn, hestasjúkdóma, og
þekkja aldur hesta og ýmis-
legt fleira sem hestum við-
kemur.
— En hvernig gengur þá
Þjóðverjunum að sitja ís-
lenzku hestana?
— Þeir verða eiginlega að
iæra það sérstaklega, tii að
njóta þess sem hestarnir hafa
upp á að bjóða. Phony-klúbb-
urinn þýzki hefur ráðagerðir
um að hafa á sínum vegum
farkennara, sem kennir fólki
að ná tölti Og skeiði út úr ís-
lenzku hestunum Og læra að
meta það, en ekki veit ég
hvað af því verður.
— Hvernig voru íslenzkir
hestar notaðir á búgarðinum,
þar sem þú varst?
— Þeir voru notaðir í alls
konar vinnu með vélum, þóttu
liðlegri við ýmis störf en stór-
ar vinnuvélar. Og á sunnu-
dögum ókum við stundum í
léttikerrum, sem þeir drógu.
Það er ákaflega skemmtilegt
og það hefði ég gaman af að
reyna hér. Léttikerra er bara
svo dýr. Eldra fólk Og aðrir,
sem ekki þorðu að fara á hest-
bak, kynntust íslenzku hest-
unum gjarnan með því að
spenna þá fyrir listikerru.
— Þegar íslenzku hestarn-
ir iilaupa sjálfir úti í haga,
þá sér maður hvað hægt væri
að kenna þeim margt án þess
að þvinga þá, sagði Rosemarie
að lokum. Og ég hefi ákaf-
iega gaman af að reyna það.
* * *
Er menn riðu heim af kapp-
reiðunum á sunnudag, reið a.
m. k. einn nýjum fáki. Það
var Kristján Guðmundsson í
Garðahreppi, sem hafði hlotið
bezta vinninginn í happdrætt-
inu.
Frá einu hlaupinu á skeiðvellinum á sunnudaginn. — Einn
knapinn hefur dottið af baki og hesturinn hleypur einn.
ifiMÍÍ
Sýnishorn af
Framsóknarmálflutningi
Alkunna er, að í stjórnarand-
stöðunni hefur hnífurinn ekki
gcngið á milli Framsóknarmanna
og kommúnista. Upp á síðkastið
hefur Tíminn þó tekið til við að
bera af sér kommúnistasamvinnu
og stundum jafnvel hnýtt í banda
menn sína. En ekki tekur betra
við þegar lýsa á kommúnista-
hættunni. Þannig segir t. d. í rit-
stjórnargrein:
„Konnnúnisminn þrífst bezt í
löndum, þar sem almenn fátækt
er mikil og stjórnarfarið er meira
og minna spillt. Fátækt og spill-
ing skapar kommúnismanum
bezían jarðveg . . . Hættan er
fólginn í stjórnarstefnunni, sem
nú er fylgt, og miðar að því að
skapa jarðveg fyrir öfgar og ein-
ræði Þess vegna verður að hverfa
af þeirri afturhaldssömu og
spilltu auðvaldsstefnu, sem nú-
verandi rikisstjórn fylgir og taka
aftur upp frjálslynda framfara-
stefnu.“
Daníel máttugur
1 þessari sömu ritstjórnargrein,
þar sem látið er að því liggja,
að íslendingar séu senn komnir á
vonarvöl, er það rökstutt frekar
hvernig á þessu standi og segir
blaðið:
„Stöðugt er verið að fjölga
bitlingum handa gæðingum
stjórnarinnar og menn eru rekn-
ir úr störfum vegna stjórnmála-
skoðana einna saman, samanber
brottvikninguna á Daníel Ágúst-
ínussyni.“
Það er þannig ekki ofsögum
sagt, að áhrifamætti Daníels
Ágústínussonar. Vegna þess að
Akurnesingar kærðu sig ekki um
hann lengur sem bæjarstjóra, á
nú ísland allt að vera kommún-
ismanum að bráð.
Hatursskrif kommúnista
Fyrir skömmu skrifaði Einar
Olgeirsson einhverja mestu geggj
unargrein, sem hér hefur sézt á
prenti. Boðaði hann þar, að
helzt þyrfti að setja hér upp al-
þýðulögreglu. Þótt heróp Einars
Olgeirssonar sé broslegt í aðra
röndina, þá er það þó alvarlegt,
hve kommúnistar ganga um
þessar mundir langt í því að
reyna að ala á hatri og ofbeldis-
tillineigingum. Vonandi skjátlast
Morgunblaðinu í þvi að þessi á-
róðursherferð sé tengd verkfalls-
boðun kommúnista, því að vissu-
lega væri það hryggilegt, ef hér
ætti í sambandi við verkfall það,
sem kommúnistar vilja fyrir alla
muni koma á, að efna til óspekta
og uþpþota.
Tíminn tekur undir
Verra er samt hitt, að blað
flokks, sem vili telja sig lýðræðis
flokk, Tíminn, skuli daglega taka
undir þann hatursáróður komm-
únista að Sjálfstæðismenn og þá
sérstaklega félagar í Heimdalli,
hafi staðið fyrir óspektunum,
sem hér urðu við lok Keflavíkur-
göngunnar svonefndu. Þessi of-
stopi Framsóknarmanna er þess
eðlis, að varla er lengur hægt að
tala um Framsóknarflokkinn,
sem ábyrgan lýðræðislegan
flokk. Sérhver flokkur, sem vill
telja sig þroskaðan lýðræðislega,
verður að vera reiðubúin að
vera í stjórnarandstöðu án þess
að ærast gjörsamlega. Hann á að
veita ríkisstjórn aðhald, gagn-
rýna það sem illa fer og benda
á aðrar leiðir. Hlutverk stjórn-
arandstöðuflokksins er í raun-
inni alls ekki þýðingarminna en
stjórnarflokfkanna. Þessu hlut-
verki hefur Framsóknarflokkur-
inn algjörlega brugðizt og þess
vegna dæmt sig úr leik í heil-
brigðri og heiðarlegri stjórn-
málabaráttu.