Morgunblaðið - 24.05.1961, Blaðsíða 24
Samtal við Goldu Meir
Sjá bls 13.
112. tbl. — Miðvikudagur 24. maí 1961
IÞRÓTTIR
Sjá bls. 22.
]
Ofsalegt norðanáhlau
um landið norðanvert
Bátar brotna — óttazt um fé
- færð teppist vegna snjókomu
S N E M M A í morgun
gerði stórkostlegt norð-
anáhlaup um norðanvert
landið. Kom það mjög
skyndilega og harkalega
á og minnir okkur á, hve
skammt er norður í vetr-
arríkið í Grænlandi, en
þaðan kom élhrina.
Fréttir bárust þó ekki
um verulegt tjón af völd-
um veðursins nema frá
Bolungarvík, en þar ónýtt
ust tveir bátar. — Hér a a
fara á eftir fréttaklausur
frá fregnriturum víðs
vegar úti á landi. Fyrst
skyldu menn lesa það,
sem stendur undir veður-
kortinu á bls. 3.
Hvasst á Skipaskaga
Akranesi, 23. maí.
Hann er hvass á norðvestan,
mikið skýjafar og vottar fyrir
fjúki annað slagið. Engir litu við
sjó í dag. — Oddur.
Trilla slitnaði upp á
Patreksfirði
Patreksfirði, 23. maí
Ágætt veður var í gær, en þó
fremur kalt, 7—8 stig. Um tíu-
leytið í morgun fór að fenna 1
fjöii, og þegar líða tók á dag-
inn, jók hann hríðina. Um átta-
leytið í kvöld var 3—500 metra
sk.yggni. Veðurhæð er um 7—8
vindstig og norðanrok á.
Hér hafa legið tveir enskir
togarar í dag, og færeysk Og
norsk fiskiskip hafa látið reka
úti í firðinum. Ein trilla slitnaði
upp á legunni, en henni tókst að
bjarga, áður en skaði varð af.
Að sjálfsögðu er veður þetta af-
ar bagalegt fyrir bændur og búa
lið, þar eð sauðburður stendur
hæst. Sérstök blíðuveður
verið undanfarna daga. —
Trausti.
Alhvítt á Flateyri
Flateyri, 23. maí.
Undanfarna daga hefur verið
hér sannkölluð sumarblíða. Fjall
Tómas Helgason
ekipaður prófessor
I LÖGBIRTINGABLAÐI, sem út
kom á laugardag er þess getið,
að 12. þessa mánaðar hafi for-
seti íslands skipað Tómas Helga-
son, lækni, prófessor í geðlæknis
fræði við læknadeild Háskóla ís-
lands frá 1. ágúst 1061 að telja.
Lá við stórslysi
Ártúnsbrekkunni
LITLU munaði, að stórslys yrði
í Ártúnsbrekkurmi um kl. þrjú
á hvítasunnudag. Má það eigin-
lega heita óskiljanleg tilviljun og
mildi, að alvarlegt slys varð ekki
þama.
Margir bflar voru á ferð um
brekkuna, þegar mannlaus fólks-
bíll, sem skilinn hafði verið eftir
af einhverjum ástæðum í brekk-
unni ofarlega, tók að renna aftur
á bak ofan hallann. Bíllinn mun
hafa verið í handbremsu en ekki
í gír. Rann bíllinn sífellt hraðar
niður brekkuna og framhjá
nokkrum bifreiðum, sem tókst
með snarræði að víkja til hliðar
á seinustu stundu.
Að lokum virtist sem hjá slysi
yrði ekki komizt. Stefndi bíl-
draugurinn þá með miklum
hraða á station-bifreið, þar sem
fimm manna fjölskylda var á
ferð. Þegar ekki voru nema 3%
til 4 metrar á milli bifreiðanna,
var eins og einhver æðri máttur
„Þorsleinn Ing-
ólfsson44
AÐALFUNDUR Sjálfstæðis-
félags'ins Þorsteijis Ingólfs-
sonar í Kjósarsýslu verður
haldinn föstudaginn 26. maí
kl. 8,30 e .lu að Klébergi. —
Venjuleg aðalfundarstörf og
kosning fulltrúa á Landsíund.
tæki að sér stjórn mannlausa bíls
ins. Beygði hann snögglega, eins
og maður sseti við stýrið. til hlið-
ar og út á afleggjara. Rann hann
síðan út af honum, sveigði upp í
brekkuna og nam staðar í smá-
lægð. Bíllinn var læstur og eng-
inn sjáanlegur sem gerði tilkaU
til hans. Áhorfendum ber saman
um, að þarna hafi mannslíf bjarg
ast á ótrúlegasta hátt.
vegir hafa verið að opnast, gróð-
ur í góðri framför og túnin tek-
in að grænka. í þessari blíðskap-
artíð hafa nokkrir bændur sleppt
fé sínu. í morgun, er menn risu
úr rekkju, höfðu snögg umskipti
orðið: Úti var norðanhríð, alhvítt
í sjó fram og vetur genginn í
garð. Menn tóku fram skjólfötin,
er þeir gengu til vinnu sinnar.
Hiti er um frostmark, en hætt er
við að frost sé til fjalla, og að
sjá er þar uppi mikil snjókoma.
Ef áframhald verður á þessu
norðanáhlaupi Og snjókomu
munu vegir um heiðar fljótlega
teppast.
Tveir bátar brotna í
óveðri í Bolungarvík
Bolungarvík, 23. maí
Um hvítasunnuna skall hér á
páskahretið Og munu veðurguð-
irnir hafa ruglazt eitthvað í rím-
inu. I gær og í fyrradag var fólk
hér í sólbaði, því veður var stillt
og sérlega hlýtt. En kl. 1,30 í
nótt byrjaði allt í einu að snjóa
ferlega og í morgun var komið
mikið hvassviðri með fannkomu,
svo að alhvítt er niðri í bæ eins
Og á vetrardegi.
Eftir hádegi í dag gerði svo
ofsalegt rok á norðan. Tveir
bátar, tveggja tonna og fjög-
urra tonna, voru hér í vörun-
um og tók rokið þá og feykti
þeim svo utan í að þeir eru
nærri eyðilagðir. Báturinn
Frímann kastaðist í varar-
vegginn og brotnaði allur, svo
nærri jafnmikið grjót var inni
í lionum og utan við. Og bát
urinn Valur, sem er með
Framhald á bls. 23.
ÞORKELL Steinsson varðstjóri
virðir fyrir sér sprengjuhylki
austur á Seyðisfirði.
— Ljósm. Ólafur Björnsson
Sprengi-
efnið gert
óvirkt
EINS og sagt var frá í laugar-
dagsblaðinu fannst sprengiefni
austur á Seyðisfirði í fyrri viku
samkv. tilvísun manns, sem hafði
séð það grafið í æsku sinni, fyrst
eftir að Bretar komu þangað
1940. Maður þessi, Hans Benja-
mínsson, er nú búsettur í Reykja
vík. Bretar nuunu hafa óttazt inn-
rás Þjóðverja um þetta leyti og
falið sprengiefni á ákveðnum
stöðum. Síðari hluta árs 1941
voru sprengjurnar flestar fjar-
lægðar, en þessar skildar eftir
af óþekktum ástæðum.
Framh. á bls. 23.
Telpa stórslasast
AKRANESI, 23. maí. — Laust
eftir hádegi á annan í hvíta-
sunnu varð það hörmulega slys
á Vesturgötunni, rétt neðan við
Þórðarbúð, að tíu ára telpa varð
fyrir vörubíl og stórslasaðist. Var
hún gestkomandi hér, dóttir
Kjartans Bergmanns Guðjóns-
sonar í Reykjavík og heitir Sol-
veig.
Nánari atvik að slysinu voru
þau, að Solveig litla og önnur
telpa á líku reki voru saman á
vestari gangstéttinni er Solveig
missti gleraugu af sér út á göt-
una. Skauzt telpan eftir þeim, en
í því kom vörubíll upp götuna,
svo að hún varð undir hjólunum.
Sjúkrabíllinn var ekki viðlát-
inn, en lögreglubíllinn kom eftlr
skamma stund, svo og Bragi Ní-
elsson lækir. Könnuð voru sár
Solveigar litlu á sjúkrahúsinu og
gert að þeim eftir föngum. Kom
í ljós, að hún hefur höfuðkúpu-
brotnað, annað lungað skemmzt
mikið innýfli marizt og hand-
leggs- og fótbrotnað. — Oddur.
Samn-
inga-
fundir
í GÆR var haldinn fund-
ur með fulltrúum Vinnu-
veitendasambands íslands
og fulltrúum hinnar svo-
kölluðu „byggingagrúppu“
í verkalýðssamtökunum,
en að henni standa Tré-
smiðafélag Reykjavíkur,'
Múrarafélag Reykjavíkur,1
Sveinafélag pípulagninga-1 ,
manna og Málarasveinafé-
lag Reykjavíkur.
Ofangreind félög hafa til-
kynnt, að þau muni hafa sam-
stöðu um samningamál. Annan
hóp mynda járnsmiðir, blikk-
smiðir, skipasmiðir og bifvéla-
virkjar (,,járngrúppan“), en
rafvirkjar eru út af fyrir sig.
Fulltrúar meistarafélaga við-
jkomandi iðngreina voru einnig
aðilar að fundinum. Ekki tók-
ust neinir samningar á fund-
inum, og var málinu að lokum
vísað til sáttasemjara.
IÐJA OG FÍI
Undanfarið hafa farið
fram samningsviðræður
milli Iðju, félags verk-
smiðjufólks í Reykjavík og
Félags íslenzkra iðnrek-
enda, sem stendur utan
Vinnuveitendasambands ís
lands. Samningar hafa enn
ekki tekizt og viðræðum
haldið áfram. Næsti fundur
' verður væntanlega eftir1
hádegi í dag,-
VERKAMENN
, í gærkvöldi hófst fund-
ur með fulltrúum Dags-
brúnar, Hlífar, Vinnuveit-
endasambands íslands,
Vinnumálasambands sam-
vinnufélaganna og áheyrn
arfulltrúa Reykjavíkur-
bæjar ásamt sáttasemjara
m ríkisins. Þegar blaðið afl-
aði sér fregna af fundin-
um um kl. 11 í gærkvöldi,
hafði engu þokað í sam-
komulagsátt.
Athafnamaður á Fríkirk juvegi:
Ók á kirkju, flúði lög-
regluna út um glugga
AÐFARANÓTT þriðjudags,
þegar klukkan var 20 mín.
gengin í tvö, kom maður inn á
lögreglustöðina í Reykjavík og
kvaðst hafa séð bifreið með G-
númeri aka utan í umferðar-
meyki á gatnamótum Skálholts
stígs og Fríkirkjuvegar, við
Fríkirkjuna. Þaðan hefði bíll-
inn ekið utan í kirkjuna sjálfa,
en staðnæmzt að lokum úti á
veginum. Út úr bílnum skutust
tveir m,enn, sem hlupu út í
bláan buskann.
Lögreglan fór á staðinn og
tók bifreiðina, sem var mikið
skemmd, í sína vörzlu. Vitnið
að atburðinum er Hafnfirðing-
ur, og bar sá maður kennsl
á flóttamennina, sem báðir
voru úr Firðinum.
Á þriðjudagsmorgun kom
maður á lögreglustöðina og
vildi fá að hirða bílhræið.
Sagði hann bílinn eign sína, en
hann hefði ekki verið í sínum
höndum nóttina áður. Gaf
hann helzt í skyn, að honum
hefði verið stolið. Lögreglu-
þjónunum þótti frásögn manns
ins grunsamleg og sendu hann
suður til rannsóknarlögregl-
unnar við Fríkirkjuveg. Sagt
er, að þeir, sem brjóti eitthvað
af sér, leiti gjarnan á staðinn
aftur, þar sem þeir frömdu
verknaðinn, en ekki mun þessi
seinni för á Fríkirkjuveginn
hafa verið farin af fúsum
vilja. Við yfirheyrslu hjá rann
sóknarlögreglunni kom maður
inn með sömu loðnu skýring-
arnar.
Sá, sem yfirheyrði, brá sér
þá út úr herberginu, til þess að
láta senda eftir vitninu. Mað-
urinn gerði sér þá lítið fyrir,
stökk út um glugga og var
horfinn, þegar hugað var að
honum. Herbergið er á fyrstu
hæð og stökkið um mannhæð,
— Það mun einu sinni hafa
komið fyrir áður, að maður
hafi stungið sér út um glugga
í þessu húsi.
Síðar um daginn gaf mgð-
urinn sig fram hjá skrifstofu
bæjarfógeta í Hafnarfirði.
Munu yfirheyrslur yfir honum
hafa gengið greiðlega í það
sinnið og játning legið á lausu-