Morgunblaðið - 20.06.1961, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.06.1961, Blaðsíða 13
prrojuaagur zo. Juni 1961 MORGUNBLAÐIÐ 13 Ævistarf Jdns Sigurössonar órjúfanlega samofið endurheimt íslenzks þjdöfrelsis Afhending handritanna mun innsigfa vináttu Islendinga og Dana um aldur og ævi Ræða Ólafs Thors forsætisráðherra 17. júní Háttvirtu áheyrendur! | Jóns Sigurðssonar^ svo náið sem í DAG eru liðin 17 ár frá endur- saman er ofið ævistarf þessa reisn íslenzka lýðveldisins. Þegar ágæta manns og endurheimt is- mér hefur fallið sá heiður í skaut lenzks þjóðfrelsis. ' að ávarpa þjóðina á'þessum tylli-| Sjónarhóll Jóns Sigurðssonar degi, hefi ég oftast gert það af var svo hár, að hann sá yfir fjöll iglöðum hug — af gleði yfir þeim' og firnindi í allar áttir og langt framförum, sem hófust hér á fram í tímann. Honum skildist landi með öldinni okkar og hafa vaxið því hraðari skrefum sem þjóðin varð einráðari mála sinna og aldrei þó svipað því jafn ört, sem eftir endurreisn lýðveldisins. Mér hefur hætt til að miklast af ágæti íslendinga, ég hefi bent á afrek þessarar fámennu þjóð- ©r, framtak hennar, áræði og dug. Ég skal ekkert af því end- lurtaka, enda myndi margur mæla, að annars væri nú fremur jþörf. Þarf ég engum að segja það, sem allir vita, að frá mínum Ibæjardyrum séð, hafa nú þeir atburðir gerzt í þjóðlífi okkar, sem mikill vandi er að ráða fram úr. Allir vona, að vit og stilling ínegi sem mestu ráða um lausn þeirra vandamála. Geri ég þau ekki að umræðuefni, þótt þau géu mér efst í huga, því að bezt fer á að halda þessum degi utan við allar deilur. í dag eru einnig liðin fimmtiu ár síðan Háskóli íslands var stofnaður, á hundrað ára afmæli Jóns Sigurðssonar. Ég flyt þessari æðstu og veglegustu menntastofn un landsins kveðju og heillaóskir ríkisstjómarinnar og þjóðarinn- ar. Við þökkum í dag öllum, sem áttu frumkvæði og undirbúning að stofnun íslenzks háskóla. Er sérstaklega ástæða til að minnast Ihins mikla þingskörungs, Bene- dikts Sveinssonar eldra, sem fyrst ur manna beitti sér á Alþingi fyr- jx stofnun háskóia, og af þeim eldmóði, sem honum var gefinn. Hann og aðrir, sem hrundu því imáli fram, skildu að hér var um að ræða lífsnauðsyn fyrir íslenzk »r menntir. Við þökkum öllum þeim vís- lndamönnum, sem hafa helgað háskólanum krafta sína, unnið brautry ðj endastarf ið, lagt með kennslu sinni og ritstörfum ís- lenzkan grundvöll að visindum og námi, sem við munum lengi húa að og telja með afrekum Bíðustu kynslóða. íslenzkir stúdentar hálfrar ald *r hafa numið og þroskazt innan vébanda þessarar stofnunar, lagt þar fr.am sína ungu krafta, til þess að verða færir um að vinna þjóð sinni, hver á sínu sviði. Við jþökkum þeim líka í dag. Gildir jafnt um þá og um vísindamenn háskólains, að þeirra sigrar og eæmd hafa verið sigrar og sæmd ellrar þjóðarinnar. Áratug af áratug hefur háskól- lnn vaxið, orðið yfirgripsmeiri, bætt við sig nýjum vísinda- og kennslugreinum, reynt eftir xnætti og íslenzkum aðstæðum, að verða landi sínu að sem mestu gagni og mestum heiðri. Ég flyt háskólanum í nafni íslenzku Þjóð orinnar þá afmælisósk, að hann xnegi halda áfram að eflast og fr,ami hans verða æ meiri. * * * Þá eru og í dag liðin 150 ár frá því að ástmögur íslands var í þennan heim borinn. Enginn má, enginn getur fagnað endurreisn lýðveldisins, án þess að minnast til full-nustu, að frelsisviðurkenn ingin ein nægði ekki fslending- um, svo sem þá var komið hög- um þjóðarinnar. Þess vegna barð ist hann á tvennum vígstöðvum í senn. Út á við fyrir auknu þjóð frelsi. Á heimavígstöðvum gegn fátækt, dey.fð, fáfræði og vesal- dómi. Hann skildi vel, að það sem á reið, var að manna þjóð- ina og mennta á öllum sviðum, vekj.a rnetnað hennar og kenna henni að græða óræktaða jörð og berjast við óblíða náttúru, eft- ir nýjum leiðum. í allt þetta réðst hann. Öllu þessu stjórnaði hann einbeittur og ákveðinn, stefnu- fastur, en varúðarfullur og aldrei ofsafenginn. Gg fyrir það var dagsverk hans enn risavaxnara, að þessi mikli persónuleiki lað- aði að sér marga mikilhæfustu menn þjóðarinnar, sem litu á hann sem ókrýndan konung og fylgdu honum oftast fost að mál um. Svo mikill er frægðarljómi stjórnmálamannsins Jóns Sigurðs sonar, að afrek vísindamannsins Jóns Sigurðssonar hafa gleymzt mörgum. En samt er það stað- reynd, að það var vísindamaður- inn, sem sauð sverðin, sem stjórn málaforinginn barðist til sigurs með. Það var í heimildum sögunn ar, sem Jón Sigurðsson fann rök in fyrir ágæti þjóðar sinnar og sannanirnar fyrir því, að Islend- ingar hefðu aldrei játazt undir yfirráð neinnar annarrar þjóðar, og ættu því landsréttindi sín ó- skert. Með þessi gögn í höndum barðist Jón Sigurðsson ævilangri baráttu, sem áður en ævisól hans gekk til viðar, hafði skilað þjóð- inni furðulangt áleiðis og jafn- framt varðað leiðina til frelsis það skýrt, að eftirkomendum hans þurfti ekki að verða villu- gjarnt. Þjóðkunnur íslendingur, sem fæddur er 40 árum síðar en Jón Sigurðsson og kynntist honum á stúdentsárum sínum í Kaup- mannahöfn, lýsti honum oft fyrir mér af mikilli hrifningu. Varð ekki greint á milli hvað hæst gnæfði í huga hans, mannkostir og mannvit eða glæsimennska og tign hins mikla skörungs. Vafalaust hafa allir miklir menn átt sér slíka aðdáendur meðal yngri kynslóðar. Hitt efa ég, að nokkur þjóðforingi, sem á 150 ára afmæli sínu fengi risið upp úr gröf sinni, myndi heyra að íslands ströndum. Allt skóp t þetta skilyrði til þess, að kraftar hans nytu sín sem bezt og afrek hans yrðu einstæð í sögu lands- ins. Margt af þessu hafa án efa margir oft sagt, og þarf engan að undra, svo oft sem þjóðfor- ingjans er getið. Vilji menn heyra sannan dóm þjóðarinnar um Jón Sigurðsson, er hans hvað gleggst að leita í því, að einróma ákváðu forráðamenn þjóðarinnar fyrst að stofna Háskóla íslands, síðan að endurreisa íslenzka lýð- Ólafur Thors, forsætisráðherra, og Gizur Bergsteinsson, for- seti Hæstaréttar, ganga að styttu Jóns Sigurðssonar á Aust- urvelli. — jafn einróma dóm þjóðar sinnar um manngildi sitt og starf, — myndi heyra þjóð sína mæla ein- um rómi, að óvenjuleg völd hans og áhrif í lifandi lífi hafa farið sívaxandi, — myndi heyra af hvers manns vörum, að enda þótt viðfangsefni nútíðar og framtíð- ar séu og verði gerólík þeim, sem hann glímdi við, þá sé hann sjálfur hin mikla fyrirmynd um stórhug og ættjarðarást. Til þess að öðlast þennan dóm, nægja tæplega hinar mestu náð- argjafir, enda þótt þær á löng- um starfsdegi væru allar helgað- ar ættjörðinni. Ýmsar ytri að- stæður bættu starfsskilyrði Jóns Sigurðssonar. Hann var búsettur í Kaupmannahöfn. íslenzk öfund var því síður í seilingarhæð við hann og frelsisöldurnar, sem flæddu yfir Evrópu, náðu honum veldið á fæðingardegi hans. Meiri sóma getur engin þjóð sýnt syni sínum. * * * * Hálfrar aldar afmæli háskólans og hálfrar annarar aldar afmæli Jóns Sigurðssonar varpa ljóma yfir þjóðhátíð okkar í dag. Þó munu önnur tíðindi, sem gerzt hafa fjarri ströndum Islands, ekki síður gera þessa daga eftir- minnilega í sögu landsins. Danska þjóðþingið hefur ákveð- ið með yfirgnæfandi meirihluta að flytja skuli hið mikla hand- ritasafn feðra vorra aftur heim til fslands, og innsigla þar með vináttu Danmerkur og íslands um aldur og ævi. Við getum ekki ætlað, að þessari ákvörðun verði framar breytt, og þá skiptir minna máli, þó að afhendingin dragist um örfá ár — sumpart óbrotnar og fyrr en þær bárust eftir óskum þingmanna, sem eru því eindregið fylgjandi, að hand- ritunum beri að skila aftur til fslands. íslendingar gera sér grein fyrir mikilleik þessa atburðar. Þeir vita, að samþykkt danska þjóð- þingsins á sér ekkert fordæmi i skiptum vinveittra menningar- þjóða. Englan skal undra, að ágrein- ingi hafi valdið, hvort svo stór- mannlega skyldi fram komið. Andstæðingar málsins eru margir og sjónarmið þeirra ólík. Þetta ber okkur að skilja og engan að áfellast, heldur láta þessa and- stöðu verða til þess eins, að auka aðdáun okkar og þakkir til þeirra, sem fyrir því hafa barizt, að orðið yrði að óskum íslend- inga í þessu máli. íslenzka þjóðin mun geyma i þakklátum hug nöfn hinna mörgu, sem vakið hafa skilning á því í Danmörku, að þessi gömlu handrit eru helgasta þjóðareign fslendinga — og veitt okkur lið til þess að fá óskum okkar um heimflutning framgengt. Að lokum tók núverandi ríkis- stjóm Danmerkur málið í sínar hendur, studd af öflugum meiri- hluta þingmanna, þar á meðal sumum fremstu stjórnarandstæð ingum, og mörgum af áhrifamestu blöðum landsins. Við sendum dö'nsku þjóðinni kveðju okkar yfir hafið, þökkum skilning hennar á heitustu óskum okkar og göfuglega og bróður- lega framkomu í okkar garð. Háttvirtu áheyrendur! Fyrir fimmtiu árum var á þessum degi flutt minningarræða af þessum svölum, þar sem ég stend nú, og á eftir henni sungið í fyrsta sinn hið fallega kvæði Hannesar Hafstein, sem hann kallar Vorvísur á hundrað ára afmæli Jóns Sigurðssonar. Ég vil enda orð mín með því að hafa yfir síðasta erindið úr því kvæði: Sjá! óskmögur íslands var borinn á íslands vorgróðurstund, hans von er í blænum á vorin, hans vilji og starf er í gróandi lund. Hann kom, er þrautin þunga stóð þjóðlífs fyrir vori, hann varð þess vorið unga með vöxt í hverju spori. Hundrað ára vor hans vekur vonir nú um íslands byggð, nepjusúld og sundrung Hrekur, safnar lýð í dáð og tryggð. Megi minning Jóns Sigurðsson- or öld af öld sameina hugi þjóð- arinnar í dáð og tryggð, hvenær sem mest á ríður. Megi minning hans ævinlega efla vorhug með fslendingum þann hug, sem er í ætt við hækk- .andi sól og vaxandi gróður og þá árstíð, þegar bjartast er og fegurst á landi okkar. ísland lifi. eiri iíkur fyrir síld en Segír Jakob Jakobsson Eeiðangurss&jóri á Ægi SEYÐISFIRÐI, 19. júní. Líklegt er, að rauðátan haldist fyrir norð an og því meiri horfur, en í fyrra ða síldin gangi á hin eiginlegu síldarmið fyrir Norðurlandi. Eins og áður hefur verið skýrt frá hófst rannsóknarleiðangur á Ægi hinn 6. júní, ásamt norska hafrannsóknarskipinu G. O. Sars. Leiðangursstjóri á Ægi var Jakob Jakobsson. Leiðangri þessum lauk með sameiginlegum fundi beggja leiðangursstjóranna á Seýðisfirði 18. júní og fer hér á eftir úrdráttur úr skýrslu Jakobs Jakobssonar. Þessi sameiginlegi rannsóknar leiðangur er að því leyti frá- brugðinn leiðöngrum síðustu ara. [ að hvorki Danir né Rússar tóku þátt í honum, auk þess var nú framkvæmd rannsókn á hitastigi, plöntu- og dýrasvifi á hafsvæðun um vestan-, norðan- og austan- lends. Lögð var áherzla á að fylgj ast með göngu síldarinnar á Norð urlandsmið. Hitastig sjávarins á Framh. á bls. 15.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.