Morgunblaðið - 20.06.1961, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 20. iúní 1961
Gunnar Felixson skorar fyrsta mark leiksins. Hann brunar að marki með glæsilega sendingu Þórólfs Beck og Zanten mark-
vörður fær ekki að gert.
Fjögur glæsileg mörk færðu
íslandi verðskuldaðan sigur
4:3
Þórólfur bezti ma5ur vallarins
*
er Island vann Holland 4—3
ÞRÍTUGASTI landsleikur Islands varð sigurleikur. Og
það var verðskuldaður sigur sem íslenzka liðið vann. Á að
gizka 8 þúsund manns komu á völlinn og tóku á köflum
virkan þátt í leiknum með því að hvetja landana. Þetta er
á réttri braut hjá áhorfendum — og landsliðinu.
Fjórum sinnum sendu íslenzku framherjarnir knöttinn
í hollenzka markið. Öll voru þau skoruð úr fallegum upp-
hlaupum, stundum glæsilegum upphlaupum og sendingum.
Þrívegis varð Heimir að sækja knöttinn í mark íslands.
Sigur okkar gat orðið stærri ef vörn okkar hefði ekki verið
opnari en allar vonir stóðu til.
Þrír menn bera nokkuð af
í leiknum af íslendingum. Þór
ólfur Beck stendur þar lang-
fremstur og sýndi beztan leik
allra á vellinum. Hann átti
þátt í öllum mörkunum að
verulegu leyti og skoraði eitt
sjálfur. Þá er það Heimir í
markinu, sem hann varði af
öryggi og festu. Gunnar Felixs
son átti og mjög góðan leik.
Yfirferð hens er feikileg og
lenkur hans mðe Þórólfi var
á köflum glæsilegur enda
nýtti hann tvö tækifæranna
eins og bezt verður á kosið, —
með tveim fallegum mörkum.
Hollendingarnir tóku völdin
fyrstu mínúturnar. Það var eins
Og ísl. liðið áttaði sig ekki á
að leikurinn var byrjaður. Á
fyrstu mín. kom hornspyrna á
ísland og henni lauk með tveim
öðrum. Garðar bar ábyrgðina
á tveimur þeirra — en þær urðu
ekki hættulegar. Stuttu síðar
grípur Heimir fallega inn í leik-
inn. Það fór fagnaðaralda um
áhorfendaþúsundirnar — Og
Heimir komst í essið sitt.
Eftir 7. mín. kemur fyrsta upp
hlaup íslendinga — komst upp
undir mark en án hættu. Þarna
fyrst losnaði um þá pressu sem
hófst á ísl. markið í byrjun leiks-
ins.
Og ísl. sóknartilraunirnar
verða strax virkari en þær holl-
enzku. Það er spilað dreifðara og
hættan er meiri í upphlaupunum.
Gunnar kemst í gott færi en
spyrnir fast í stað þess að lyfta
yfir hollenzka markv. Og þá
byrja mörkin.
7mr\ Eftir 10 mín. leik nær
•yJ ísl. liðið slíku upp-
hlaupi og það allt inn í marknet
2:1
Hollands. Upphafið byrjaði á vall
armiðju. Þórólfur fær knöttin,
leikur fram Og Gunnar sér tæki-
færið brunar fram og Þórólfur
gefur í eyðuna á réttu augna-
bliki. Gunnar skorar með góðu
og öruggu skoti.
2mr\ Sex mín. síðar kemur
• •r næstum endurtekning
á fyrra markinu. Þórólfur leikur
fram miðjuna. Verður að bíða
eftir samherjunum. Steingrímur
eygir tækifærið og fær knöttinn
á réttu augnabliki. Steingrímur
skorar annað mark íslands af
stuttu færi.
Það leið aðeins rúm
mínúta þar til Hollend
ingar svöruðu. Upphlaupið kem-
ur upp hægri kant og sndi er
langsending að marki. Hún virð-
ist hættulaus. Árni hættir og bíð-
ur. — Heimir líka. En Weber
v. útherji lét ekki hugfallast.
Hann hleypur að Og fær skallað
undir þverslá og inn. Þetta mark
verður að skrifast á reikning
Árna og Heimis.
3 1 Á 40. mín. eykst bilið
• • aftur Þórólfur og
Gunnar leika upp miðjuna
eftir langa uppbyggingu aftar.
Gunnar hefur sendinguna — leik
ur framhjá markverði og skorar
í mannlaust markið Vörn Hol-
lendinga var þarna grátt leikinn,
og kom engum vörnum við.
3m n Tveim mín. síðar svara
Hollendingar. Weber
útherji sem var laus í stöðu sinni
og fór víða um völl leikur fram
miðjuna. Rúnar sleppir af mið-
herjanum Kerans. En honum
tekst ekki að „dekka“ eyðuna.
Kerans fær knöttinn leikur nær
og skorar af 14 metra færi örugg
Beztu menn liðanna. Þórólfur
í baráttu við fyrirliða Hollend
inga, Molenaar. Þórólfur bar
sigurorð af honum í leiknum.
(Myndir: Sveinn Þormóðsson)
lega. Þarna var ísl. vörnin mjög
sundurlaus.
3:3
Á 15. mín. síð. hálf-
leiks jafna Hollend-
ingar. Hainje innherji fær send-
ingu frá Libregts, Rúnar hafði
staðið mjög illa í stykkinu áður
en Librigts sigrar í návígi og
fær sent Hainje. Hainje leikur
nær og skorar rétt innan við víta-
teigslinu, með föstu og góðu
skoti.
Það leit illa út. En ísl.
liðið beið ekki boð-
anna að svara. Steingrímur lék
upp kantinn alveg upp undir
endalínu, gaf þar háan bogabolta
fyrir markið og Þórólfur skallar
í netið. Þetta reyndist sgiurmark-
ið í ieiknum.
Tvívegis eftir þetta komst
mark Hollendinga í verulega
hættu. Molenaar miðverði tókst
að bjarga á marklínu eftir lag-
legt upphlaup og fallega skipt-
ingu á hægri væng. Ingvar skorti
herzlumun á að skora þarna —
hafði ágætt færi en slæma að-
stöðu. Steingrímur komst í færi
síðar — og sendi í netið, en dóm-
arinn dæmdi rangstöðu og undir-
ritaður telur þann dóm hárrétt-
an, þó línuvörður hafi verið á
öðru máli.
í heild var leikur ísl. liffs-
ins ákveffnari en hins hol-
enska. Sigurinn var því fylli-
lega verðskuldaður. Fram-
herjunum — og markverffi
ber fyrst og fremst aff þakka
6. landsliðssigur okkar.
Undir lokin sóttu Hollend-
ingar mjög fast og má segja
að þeir hafi gerst nokkuff
ágengir. Þó komst ísl. markiff
ekki í verulega hættu utan
einu sinni í horni. Þá brást
Hollendingum bogalistin, en
Heimir var þá úr jafnvægi til
aff verja.
Framh. á bls. 23
Sagt eftir leikinn
— ÞETTA var góffur leikur,
sagði dómarinn er hann kom
kófsveittur svo perlaffi á enni
hans til búningsklefanna eft-
ir leikinn. — Hann var vel
leikinn og drengilega.
— Hvaff um rangstöffu-
markiff ? •
— Ég hafffi horft á v. út-
herjann allan tímann og er
ekki í vafa um aff hann var
rangstæður. Hins vegar viff-
urkenni ég aff h. framvörður
snerti knöttinn með hendinni
áður en þriðja mark Hollend
inga kom. Ég stöðvaði ekki
leikinn, en framverffinum
tókst aff spyrna til h. inn-
herja og hann skoraði
íslenzka liffiff átti góffan
leik og liff sem á miffherja
eins og þiff tslendingar eigiff
er ekki á flæðiskeri statt. Og
þiff sem eigiif þennan líka
dásamlega völl aff auki.
— Og vann þá betra liffiff?
— Tvímælaulaust, svaraði
hinn gófflegi tri.
— ★ —
Molenaar miffvörffur, fyrir-
liði Hollendinga, skildi illa
ensku, en h. framvörffur
hljóp undir bagga meff okk-
ur og túlkaði.
— Var þetta góður leikur
aff ykkar dómi?
— Bæði og . . . svaraði
Molenaar. Jafntefli hefði ver
ið bezta Iausnin. Við áttum
mun meira í síðari hálfleik.
— Beztur tslendinga?
— Miðherjinn. Hann er
erfiffur viffureignar og Iang-
hættulesgastur. Án hans hefffi
fsland ekki unniff.
Og síðan sag'ði Libregts
framvörffur okkur sína skoff-
un um þaff, aff þetta væri
ekki bezti leikur Hollend-
inga, en samt væru þeir
mjög ánægðir meff hann.
— ★ —
Sveinn Teitsson var aff
vefja sárabindi af fótum sér.
— Já, hvort ég er ánægff-
ur. Það datt aff vísu dálítiff
niður í síðari hálfleik, en þaff
var ekki um annaff að ræða
en styrkja vörnina og halda
í forskotiff.
Spiliff hjá strákunum var
gott á köflum, en kannski
vorum viff framVerffimlr of
framarlega framan af leikn-
um.
— Bezti maffurlnn?
— Ég mundi segja Gunnar
Felixson. Hann er nýliðinn
og stóff sig meff stakri prýffi.
— A. St.
Steingrimur Bjömsson skorar annað mark tslands. Hann fékk sendingu frá Þórólfi — komst
í dauðafæri og skoraffi örugglega.