Morgunblaðið - 20.06.1961, Page 24
ÍÞROTTIR
Sjá bls. 22
nrgsiiitMft
134. tbl. — Þriðjudagur 20. júní 1961
SÁTTASEMJARI haði ekki boð
að fundi í vinnudeilunni, þegar
Mbl. fór í prentun í gærkvöldi.
Á skrið-
drekum í
gullleit
KIRKJUBÆJARKLAUSTRI, 19.
júní. — í kyrrð vorkvöldsins
geistust tveir skriðdrekar austur
sandana fram af Síðubyggðinni.
Hvað var að gerast? Var þetta
hemaðarinnrás? Því fór fjarri.
Friðsemdarmaðurinn Bergur Lár
usson, var þarna á ferð með
menn sína og farangur á leið
austur á Skeiðarársad, tii þess
að leita að gullinu í Indíafarinu,
sem strandaði þarna haustið
1667, en það á að hafa verið með
mikinn gullfarm innanborðs. Var
sagt frá þessari fyrirætlan um
gullleit sl. haust.
Ekki var hægt að hefjast
handa fyrr en nú vegna selveiða
Fljótshverfinga austur á söndun-
um. Hafa þeir farið nokkrar ferð
ir á Selfjöru í vor og veitt vel.
Á láði og legi
I gullleitarleiðangrinum eru 6
menn á tveimur-skriðbílum sem
fara bæði láð og lög og hafa með-
feirðis tæki til að leita að málm-
um í fjöru. Fóru þeir héðan frá
Klaustri kl. 10 í gærkvöldi beint
af augum austur á Brunasand og
síðan eftir söndunum fyrir fram-
an Fljótshverfi. Yfir Hverfis-
vötnin voru þeir tvo tíma, stöð-
ugt í vatni og oft á floti. Sums
staðar voru djúpir álar og pyttir,
annars staðar sökkvandi sand-
bleyta. Mikið vatnsmagn var í
ánum enda var byrjað hlaup í
Súlu, eins og sagt er frá annars
staðar.
Þrátt fyrir þennan mikla vatna
flaum, gekk ferðin hindrunar-
laust. Kl. 3 í nótt talaði Valdem-
ar á Klaustri við einn leiðang-
ursmanna, Pétur Kristjónsson.
Voru þeir þá nýkomnir í sæluhús-
ið á Skeiðarársandi. Þar munu
þeir hafa bækistöð sína a. m. k.
til að byrja með. — S. Br.
Mikil ölvun
LÖGREGLUVARÐSTOFAN
tjáði Mbl. í gærkvöldi, að frem-
ur rólegt hefði verið í bænum
yfir helgina. Hins vegar hefði
ölvun og ólæti verið meiri í Mið
bænum sl. föstudag en dæmi
væru til um langt skeið.
SÍS borgaði
30.000 kr. tU
kommúnista
um helgina
EINS og mönnum er kunn
ugt leggja framsóknar-
menn nú allt kapp á að
kollvarpa efnahagskerfi
landsins, og hafa þeir gert
hemaðarbandalag við
kommúnista í þessu skyni.
Hefur hlutverk kommún-
ista yfirleitt verið það að
stofna til verkfalla víðs
vegar um landið, en síðan
hafa framsóknarmenn látið
StS ganga að kröfum
þeirra. Fyrir viðvikið eiga
svo kommúnistar að fá
sem svarar Yi millj. kr. ár-
lega frá StS einu í áróð-
urssjóð sinn.
En þetta þótti kommún-
Þriðja mark tslands í lands
IeikAum í gær. Gunnar
Felixson skorar í mann-
Iaust markið eftir að Þór-
ólfur Beck og hann höfðu
leikið hollenzku vörnina
sundur og saman. Sjá nán-
ar á íþróttasíðu.
(Ljósm.: Sv. Þormóðss.)
Banaslys
Hlaup úr Grænalóni
flæðir yfir Skeiðarársand
AKUREYRI, 19. júní. — Á föstu
daginn varð banaslys hér á Akur ■
eyri. Vilhjálmur Sigurðsson, •
stjórnandi sorphreinsunarbílsins, •
varð undir hleranum á sorp- ]
geymslu bílsins með fyrrgreind-
um afleiðingum. Þetta var á ösku
haugunum, Vilhjálmur var að
losa bílinn. Enginn var þarna
nærstaddur, en vegfarandi kall-
aði í sjúkirabíl og lækni, en kom
fyrir ekki. Vilhjálmur var ein-
hleypur. — St. E. Sig.
istum ekki næg laun og e.
t. v. SÍS-herrunum ekki
heldur nægileg greiðsla.
17. júní sl. gaf Þjóðviljinn
út sérstakt aukablað, sem
fyllt var- af auglýsingum
frá kaupfélögum víðs veg-
ar um landið eða öðrum
fyrirtækjum, sem fram-
sóknarmenn ráða. Þennan
eina dag auglýstu í Þjóð-
viljanum 34 framsóknar-
fyrirtæki fyrir a. m. k.
30.000 kr. samtals.
Það væri synd að segja,
að StS-herrarnir ætli að
gera það endasleppt við
samherjana í Kommúnista-
flokknum!
f HAUST stýflaðist afrennsli
Grænalóns, sem er gríðarmikil
kvos sunnan í vestanverðum
Vatnajökli, umlukt jökli á þrjár
hliðar. Sagði Jón Eyþórsson, for-
maður Jöklarannsóknarfélagsins,
blaðinu að Björn Fálsson flug-
maður hefði tilkynnt sér fyrir
þremur dögum áð vatnsborð
Grænalóns, þar sem íseyjar
sigldu á vatninu væri orðið svo
hátt, að nú hlyti það að fara að
hlaupa fram. í gær símaði svo
fréttaritari blaðsins á Kirkju-
bæjarklaustri að hlaup væri kom
ið í Súlu, hefði sennilega byrjað
í fyrrakvöld og vatnsmagnið auk-
izt í gær.
Þegar þeir bræðurnir Eyjólfur
og Filipus Hannessynir á Núps-
stað ætluðu inn á Eystrafjall í
refaleit í gærmorgun varð þessi
ferlega hindrun á leið þeirra,
hlaupið byrjað í Súlu og með
öllu ófært inn á fjallið. Frétta-
ritarinn hafði óljósar fregnir af
þessu, þar sem símasamband var
svo slæmt að ekki var hægt að
tala við Hannes á Núpsstað.
7 þús. teningsmetrar á sek.
Hlaup verða öðru hverju úr
Grænalóni og flæðir þá óhemju
vatnsmagn niður yfir Skeiðarár-
sand. Skömmu fyrir stóra hlaup-
ið 1935 mældist Grænalón 18
ferkm. að flatarmáli og þá áætl-
að úr því hefði hlaupið á skömm-
un tíma 114 teningskm. af vatni
og mesta rennsli áætlað 7 þús.
teningsm. á sek. Síðan hafa verið
nokkur minni hlaup. En Jón Ey-
þórsson segir að nú hafi vatnið
verið orðið svo mikið þarna, að
í þetta sinn hljóti að vera um
stórhlaup að ræða. Vatnsflaumur
inn flæðir þá yfir sandinn og
ber með sér jaka, sem brotna
úr jökulröndinni. En engin byggð
er þarna og engir bæir 1 hættu.
Vatnið í Grænalóni er bræðslu
vatn úr jöklinum, og ekki er leng
ur neitt frárennsli úr þessari
geysimiklu kvos. Áður fyrr rann
úr henni yfir fjallbrún í Núpsá,
en nú hefur jökulstýflan lækkað
svo mikið og vatnsborðið um
leið, að 30 m. vantar til að það
nái að renna yfir. Þegar svo mik-
ið vatn er komið, brýzt það fram
og lyftir sennilega jökulbrúninni
á Skeiðarárjökli, til að komast
undir hana fram á sandinn.
Hlaupið stendur venjulega stutt,
kemur kröfug hlaupgusa, en
stendur stutt.
Albert
bjargaði
Helga Helgasyni
AKUREYRI 19. júní — Varff-
skipið Albert bjargaði Hciga
Helgasyni frá Vestmannaeyjum
við Sauðanes á sunnudagiun, á
síðustu stundu. Litlu mátti muna,
að ekki færi verr.
Helgi Helgason VE 343 kalTaði
á hjálp kl. 18:10 á sunnudag. Var
skipið þá 1,5 sjómílur undan
Sauðanesi, rak að landi í norð-
austan kalda og allmiklum sjó.
Var einhver bilun í skrúfunni,
nóg til þess að skrúfan snerist
alls ekki.
Varðskipið Albert kom á vett
vang kl. 21:33 og var Helgi þá
0,7 sjómílu frá landi, á 11 m dýpi.
Var hann farinn að nálgast brim
garðinn ískyggilega mikið. Greið
lega gekk að koma taug milli
skipanna og var Helgi Helgason
dreginn inn til Siglufjarðar. Kom
í ljós, að bilun hafði orðið í legu
á skrúfuöxlinum og reyndist nauð
synlegt að taka skipið upp 1 siipp.
Það var ekki hægt á Siglufirði og
kom Albert með Helga inn til Ak
ureyrar í dag. — St. E. Sig.
Háfíðahöld
in felld
niður
Þjóðhátíðarveðrið var held
ur hryssingslegt norðan- og
vestanlands. Fólk vakuaði
víða við það fyrir norðan á
laugardaginn, að tekið var að
fenna 1 fjöll — og síður en
svo vænlegt til hátíðahalda,
undir berum himni. Mikil
rigning var samfara sumstað '
ar slydda. Kaldast var á
Möðrudal, aðfaranótt sunnu-
dags, eins stigs frost. Á Raufar
höfn var hitinn í 0 sömu nótt.
— Hátíðahöldum var víða
frestað til sunnudags, sums
staðar felld niður með öllu.
Veðrið hafði þannig truflandi
áhrif á þjóðhátíðarhöldin á
Húsavík, Ólafsfirði, Siglu-
firði, Akureyri, ísafirði og víð
ar. — Á sunnudaginn hitnaði
Ísnögglega Og í gær var 14
stiga hiti á Akureyri.
Bruni
gær
1 GÆR sekemmdist bílaverk-
stæði Árna Gíslasonar vi3
Kleppsveg mikið af eldi. Þetta
er braggi og þegar slökkviliðið
kom á vettvang skömmu eftir
hádegið stóðu eldtungumar út
um dyrnar. Nokkrir bílar voru
inni í verkstæðinu. Skemmdust
tveir mest, hinum tókst að forða
úr eldinum. Slökkviliðið réði
niðurlögum eldsins fljótlega, en
tjón varð mikið. Eldsupptök
I eru ókunn.
Sömduum11%hækkun
f GÆRKVELDI gerðu vinnu-
veitendur og verkamenn í
Keflavík samkomulag á þá
lund, að kaup har/kkar um
11% og greiðist hækkunin
beint til verkamanna. Samn-
inganefndir Verkalýðs. og
sjómannafélags Keflavíkur
annars vegar og Útvegsbænda
félags Keflavíkur og Vinnu-
veitendafélags Suðumesja
hins vegar — undirrituðu
samkomulagið með þeim fyrir
vara, að félagsfundir sam-
þykktu einnig. Önnur helztu
atriði eru, að eftirvinnta greið-
ist með 60% álagi og orlof af
öllu kaupi. — Verkalýðs og
sjómannafélagið heldur fund
um málið í kvöld.