Morgunblaðið - 10.08.1961, Síða 23
<| Fimmfudagur 10. ágöst 1961
MORCVISBL ÁÐ1Ð
23
Síldin v/ð Langa-
nes stendur djúpt
Reytingsveiði í gœrdag
Norsku sérfræðingamir ráffgast um undirbúning framkvæmdaáættunarinnar (talið frá vinstri):
Olaf Sætersdal, Per Tveite og Rolf Thodesen. (Ljósm.: Kristján Magnússon)
f GÆRDAG var reytingsafli af
síld norðarlega á Gerpisflaki, að
því er síldarleitin á Raufarhöfn
tjáði Mbl. seint í gærkvöldi. —
Allmörg skip fengu síld í fyrri-
nótt, en veiði þar þó minni en
nóttina á undan. Í gærkvöldi
var mikið af flotanum statt 40
milur NA af Langanesi, en sild-
arleitarflugvélin fann þar síld í
gærmorgun. Höfðu skipin engan
afla fengið á þessum slóðum er
Mbl. vissi síðast til í gærkvöldi,
en lóðuðu hinsvegar á allmikla
sílð, sem var of djúpt til að
kasta á. Var síldin heldur á upp
leið seint í gærkvöldi og von-
uðust menn eftir veiði á þessu
svæði í nótt. Veður var ágætt
á miðunum i gærkvöldi.
Síldarleitarflugvélin fann síld
á tveimur stöðum í gærkvöldi,
24 milur austur af Langanesi
Fólk ranglaöi um ölvað
og vegalaust
Skemmtistaöurinn rúmaði ekki fjöldann
f
— Aætlun
Framh. af bls. 24.
érangur starfa sinna að verulegiu
leyti kominn undir því, að glögg-
ar og greinargóðar upplýsingar
yrðu veittar af þeim aðikim, sem
til væri leitað. Það atriði vœri
mjög þýðingarmikið fyrir alla að
ila. Um athuganirnar er annars
(það helzt að segja, að þær eru
ekki takmarkaðar við einstök
Iþröng svið, heldur ná yfirleitt til
allra hliða efnahagslífsins. Um
nokkrar verulegar niðurstöður er
að sjálfsögðu ekki að ræða enn
sem komið er.
Framkvæmdaáætlunin, sem
eins og fyrr segir mun ná yfir
5 ára tímabil, frá 1962—1966,
felur ekki aðeins í sér fram-
kvæmdir hins opinbera held-
ur er þar einnig tekið tillit
til þeirra framkvæmda, sem
unnar verða á vegum ein-
stakra aðila annarra á um-
ræddu tímabili.
Fullgerð í nóvemberlok.
Áætlunin mun í öllum aðalat-
riðum verða fullgerð — einnig af
stjórnvaldanna hálfu — síðla í
nóvembermánuði, þegar ráðgert
er að þeir sérfræðingarnir haldi
af landi brott aftur. Störf að þess
um máluim munu þó halda áfram
eftir að þeir eru farnir, þar eð
sumar ákvarðanir er ekki unnt
að taka fyrr en fram í sækir.
Ánægðir með að starfa hér.
Þess má að lokum geta, að
(Norðmennirnir létu mjög vel af
því að starfa hér og sögðu undir
Ibúninginn miða vel áfram. Ekki
Ihvað sízt kváðu þeir allt sam-
starf við íslenzka aðila hafa verið
hið ákjósanlegasta. Þeir tóku sér
staklega fram, að sá munur, sem
væri á tungumálunum, hefði ekki
orðið þeim til trafala, þó að þar
væri reyndar fremur íslending-
um fyrir að þakka en xnálakunn-
éttu þeirra sjálfra.
Nefnd embættismanna.
í íslenzku embættismanna-
nefndinni, sem hefur með störf
nefndarinnar að gera eru, auk
Jónasar Haralz, þeir dr. Benja-
mín Eiríksson, bankastjóri Fram-
Ikvæmdabankans, Jóhannes Nor-
<lal bankastjóri og Sigtryggur
Klemenzson ráðuneytisstjóri.
L --------------------
— Svæðamótið
Frh. af bls. 1
Friðrik vann Johannesen.
Filip jafntefli Ciric.
Uhlmann vann Szabo.
Niemela vann Perez.
Gitescu biðskák Milic.
Gragger vann Barandregt.
Sliwa biðskák Blom
Bobostov biðsk. Ljungquist.
Friðrik er efstur með 7 vinn-
tnga, Filip 6%, Uhlmann 5% og
biðsk. Johannesen 4Vfe og Gitescu
4 og biðskák.
— ÉG tel enga aðra lausn en
að banna svona samkomur,
því þó fjölgað væri lögreglu-
liði, mundi það ekki nægja
til að hægt væri að segja að
þær færu sómasamlega fram.
Þannig fórust Jóni Ólafs-
syni, lögregluþjóni á Eski-
firði, orð, í símtali við blaðið
I gær, en hann sá um lög-
50 ára í dag;
Daniel Svein-
björnsson, Saurbæ
í DAG er stórbóndinn Daníel
Sveinbjörnsson 50 ára. Daníel er
af eyfirzkum ættum kominn. —
Fór hann. ungur í Hvanneyrar-
skóla en þegar eftir að hann
hafði lokið búnaðarnámi kom
hann til starfa í sveit sinni og
hefur búið rausnarbúi á höfuð-
bólinu Saurbæ í Eyjafirði. Daníel
er kvæntur ágætis konu Gunn-
hildi Kristinsdóttur frá Sam-
komugerði í sama hreppi. Þau
hjón hafa eignast 9 mannvænleg
börn. R.
gæzlu með aðstoð 6 annarra
á skemmtuninni frægu í Atla
vík í Hallormsstaðaskógi um
verzlunarmannahelgina.
Honum og Lárusi Salomons-
syni, lögregluþjóni úr Reykjavík,
sem var við gæzlu við fanga-
húsið inni á Egilsstöðum, kom
saman um að það sem Mbl.
hafði eftir mönnum um þessa
skemmtun væri ekki orðum auk-
ið. Ummæli eins og „óskaplegt
ölæði“, aldrei sézt neitt þessu
líkt“, „æpandi ungmenni æddu
um skóginn, þambandi brenni-
vín o. s. frv. ættu við um þessa
skemmtun.
Fleygt flöskum og grjóti
•Jón, sem hefur verið löggæzlu-
maður á flestum stærri samkom-
um austanlands um langt skeið,
sagði að þetta hefði verið verra
en hann hefði séð áður. Staður-
inn rúmaði ekki þann fjölda, sem
þarna safnaðist saman Og aðstæð-
ur því erfiðar til löggæzlu. Húsa-
kostur væri of lítill fyrir fjöld-
ann, og einna erfiðast hefði verið
við kaffisöluna. Ölvaðir menn,
sem ekki komust þar inn, veitt-
ust að húsinu og fleygðu inn
flöskum og grjóti. Ein stúlkan
hefði t. d. fengið grjót á bakk-
anrt hjá sér og væri mildi að
ekki hefði orðið slys af þessum
látum. Á laugardag varð lög-
reglan af þessum sökum að loka
og taka fyrir kaffisölu. Á sunnu-
dagskvöldið bilagi rafmagn og
varð þá að hætta ballinu. Erfitt
var um bílfar niður á firðina,
svo fólk var að rangla í skógin-
um vegalaust fram eftir öllum
mánudegi. Lítill bílakostur kom
í veg fyrir að nema nokkur hluti
sjómanna í landlegu á fjörðunum
kæmist á ballið.
Að auki voru á skemmtun þess-
ari meiri brögð af þófnaði en
Jón kvaðst hafa vitað til áður.
Hefði verið stolið tjöldum og
svefnpokum og munum úr tjöld-
um og jafnvel peningum. Kvaðst
hann hafa grun um að þar hafi
einhverjir atvinnuþjófar verið á
ferð. Umgengnina í skóginum
kvað hann fyrst og fremst slæma.
aJ því leyti að brotin gler eru
um allt, hver flaska brotin um
leið og henni er sleppt, og svo
þessi gamla umgengni íslendinga
um tjaldstæði, dósir og drasl skil-
ið eftir í hverju rjóðri. En ekki
taldi hann að um beinar skemmd
ir hefði verið að ræða.
ömurlegt fyllirí
Lárus Salomonsson vildi lítið
um málið segja, kvaðst hafa gætt
fangahússins á Egilsstöðum, og
þangað hefði verið komið með
fleiri úr Atlavík en hægt var að
taka við. Aftur á móti fór allt
fram með spekt í Ásbíói á Egils-
stöðum, þó þar væri dansað á
laugardag, sunnudag og mánu-
dag.
Sagði Lárus að sér hefði þótt
ákaflega ömurlegt að sjá lætin
og fylliríið á þessum fallega stað,
Hallormsstaðaskógi. Sagði hann,
að sér hefði sýnzt þetta líkjast
mest ólátunum hér áður á Hreða-
vatni. Þarna hefði verið álíka mik
ið fyllirí.
Þar er blaðið hafði fengið þær
upplýsingar í áfengisverzluninni
á Seyðisfirði, að þar hefði ekki
verið nein óvenjuleg sala á föstu-
daginn og búðin verið lokuð á
laugardag, spurðum við Lárus
hvaðan allt þetta vín hefði komið.
Taldi hann að mest hefðu sjó-
menn keypt á Raufarhöfn og átt
í skipum sínum, sumir hefðu feng
ið áfengi sent í pósti frá Akur-
eyri. Og svo eru alltaf bílar, er
stunda fólksflutninga og brenni-
vínssölu.
- íþrótfir
Framhald af bls 22.
daglega munu fara fram íþrótt-
ir, leikir, föndur og sund.
Ferðum verður hagað þannig,
að sem flestum í Kópavogi og
Reykjavík sé gert kleift að taka
sama bíl. Á hverjum morgni
hefst ferðin við biðskýlið á
Kópavogshálsi kl. 9 stundvís-
lega; þá er stanzað á Mikla-
torgi, í Lækjargötu við Búnað-
arfélagshúsið, við Rauðarárstíg
og loks á Suðurlandsbraut við
Langholtsveg.
í Reykjadal fær hver þátt-
takandi tvær máltíðir: graut,
smurt brauð og mjólk um há-
degi og kakó með brauði um
hálffjögurleytið, en komið er
heim í kvöldmatinn um 6,30—7
eftir hádegi.
Allar nánari upplýsingar gef-
ur Æskulýðsráð Reykjavíkur —
sími 15937.
og einnig 28 mílur austur af
nesinu. Einn bátur hafði farið
á fyrrnefnda staðinn í gær-
kvöldi, en ekkert fundið.
Skipin, sem fengu afla í gær
og í fyrrinótt, héldu flest með
aflann til Austfjarðahafna. —
Nokkur skip komu þó til Rauf-
arhafnar í gær.
Síðdegis í gærdag biðu 11 skip
löndunar hjá síldarbræðslunni á
Seyðisfirði, og í gærkvöldi komu
tvö skip til Haföldunnar með
samtals 750 tunnur í salt. Síldar-
bræðslan hefur nú tekið við um
60 þúsund málum af síld, og salt-
að hefur verið í 30,214 tunnur á
Seyðisfirði. Er það mesta söltun
þar síðan 1880, en þá var saltað
þar í 40 þúsund tunnur.
Til Drífu á Neskaupstað kom
í gær Hafrún með 450 tunnur í
salt og til Sæsilfurs kom Arn-
firðingur H með 200 tunnur í
salt. Er það í þriðja sinn á sama
sólarhringnum sem Arnfirðingur
kemur þangað með síld til söltun
ar. Þá kom Björg með 600 mál í
bræðslu til Neskaupstaðar, og
eitthvað fór í bræðslu úr skipinu.
Síldarbræðslan á Neskaupstað
hefur nú tekið við 90 þúsund
málum af bræðslusíld.
Til Vopnafjarðar komu f gær
tvö skip, með samtals 1150 mál
í bræðslu.
Útilegumaður
Frh. af bls. 24
skömmu fyrir eitt í nótt voru
þeir sýslumaður og dr. Finnur
ókomnir til Akureyrar. Má vænta
nánari fregna af máli þessu er
þeir koma, og þá væntanlega með
„útilegumanninn" með sér.
— St. E. Sig.
— Faðmlög
Frh. af bls. 1
þeim á leiðinni og gífurlegtir
mannfjöldi var samankominn á
Rauðatorginu er þangað kom. Þar
héldu Titov og Krúsjeff ræðtir
á grafhýsi Lenins. Fánar blöktu
og myndir af Titov og Lenin voru
hvarvetna.
í ræðu sinni skýrði Tihy frá
gangi ferðarinnar og því með, að
geimfarið hefði verið þannig
tækjum búið, að það hefði get-
að lent hvar á jörðu sem var.
Hann lagðj áherzlu á mikilvægi
afreks þessa fyrir kalda stríðið
og sagði, að Sovétríkin væru bú-
in nægilega öflugum vopnum til
þess að ganga milli bols og höf-
uðs á sérhverjum óvini. Sem
herflugmaður væri hann reiðu-
búinn til þess að inna af hendi
hverja þá skyldu, sem flokkur-
inn og ríkisstjórnin legðf honum
á herðar.
Á eftir Titov talaði Krúsjeff
og tilkynnti að Titov hefði verið
sæmdur nafnbótinni Hetja Sovét
ríkjanna. Kvaðst Krúsjeff þeirr-
ar trúar, að ekki liði langur tími
þar til maðurinn héldi innreið
sína á tunglið og pláneturnar.
Að svo búnu vék hann að
BerlínardeiLunni og geimskotum
bandaríkjamanna (frá því er sagt
á öðrum stað í blaðinu).
Hann vék síðan að geimferð-
um Bandaríkjamanna. Þær voru
í rauninni engar geimferðir. —
Þeir hoppa upp í loftið og d.tta
í sjóinn, sagði Krúsjeff og bætti
við og glotti. — Okkur þótti
væntum að heyra að Grissom
hinn bandaríski skyldi ekki
drukkna.
Að ræðum lokum fór fram
mikil skrúðganga. Var gangan
þrjár klukkustundir að fara fram
hjá þeim Krúsjeff og Titov og
allan þann tíman veifaði Krú-
sjeff til mannfjöldans.
f kvöld skyldi Titov haldin
mikil veizla.