Morgunblaðið - 20.08.1961, Qupperneq 5
Sunnudagur 20. ágúst 1961
MORGUNBLAÐIÐ
s
r
FYRIR skömmu brá frétta-
maður blaðsins sér upp á Óð-
insgötu, en í húsinu númer
13 b er leidbrennslan Glit h.f.
Blaðið hafði fregnaö að Glit
myndi taka þátt í alþjóðlegri
keramik sýningu í Washing-
ton fyrir íslands hönd og
spurðum við Ragnar Kjartans
son, forstöðumann og einn af
eigendum leirbrennslunnar
nánar um það.
— Þaö var íslenzka vörusýn
ingarnefndin, sem ákvað að
Glit skyldi taka þátt í þessari
sýningu og höfum við unnið
að undirbúningi þátttökunnar
síðan í apríl, sagði Ragnar.
Að undanförnu höfum við
unnið dag og nótt, en munirn-
ir verða sendir út eftir helg-
ina. Sýningin hefst 8. sept.
og stendur í rúman mánuð.
Þetta er í fyrsta sinn, sem ís-
land tekur þátt í þessari sýn-
ingu, en þátttakendur í henni
eru frá mörgum þjóðum og
margt frægra listamanna.
Ragnar sýndi okkur hluta
munanna, sem fara eiga á sýn
inguna og voru það vasar,
skálar og öskubakkar. Sagði
hann að enn væru 30 munir í
brennsluofninum og þar á
meðal stærsti vasinn sem er
65 cm á hæð. Endanleg
ákvörðun um hvaða munir
færu á sýninguna verður ekki
tekin fyrr en þeir, sem í ofn-
inum eru koma út. Á sýning-
unni verða 20—30 munir frá
Gliti.
— Við Ieggjum atfal ánerzlu
á form og glerung, sagði Ragn
ar, en hann, glerungurinn,
sem við notum, er búinn til
af Steinuni Marteinsdóttur og
byrjuðum við að nota hann
snemma á þessu ári. Við
Steinunn höfum gert munina,
sem fara á þessa sýningu.
Við höfum staðið í miklu
sýningastússi á þessu ári, í
vor tókum við þátt í sýningu
arkitektafélagsins upp á
Laugavegi, en það var úr-
tökusýning fyrir sýningu í
Múnchen og þangað sendum
við muni. Einnig tókum við
þátt í vörusýningu í Gauta-
borg í vor og svo eigum við
muni á íslenzkri listiðnaðar-
sýningu, sem nú er á ferðinni
í Bandaríkjunum á vegum
vörusýningarnefndarinnar.
Munir frá okkur eru einnig
til sýnis í hinni nýju skrif-
stofu Loftleiða í New York,
ásamt málverkum eftir Ás-
grím Jónsson.
Við spjölluðum nú nokkr
stund við Steinunni Martein
dóttur en hún hefur unnið hj
Glit í rúmt ár.
Hrafnhildur, Stelnunn og Þórunn (frá vinstri) við vinnu sína.
Ragnar skreytir stóra skál.
— Þú vinnur aðallega við
skreytingar?
— Já, og einnig við rennslu
á vösum.
þú lært leirkera-
Hefur
smíði?
— Já, ég var tvö og hálft ár
við nám í Þýzkalandi, en áð-
ur var ég í Handíðaskólanum.
Hálft ár við teiknináfu í Þýzka
landi og hin tvö við leirkera-
smíði og þá aðallega rennslu
og efnafræði glerunganna.
— Var ekki erfitt að finna
upp þennan glerung, sem þið
notið?
— Eg vann að því allan jan-
úarmánuð. Það er mjög al-
gengt að leirbrennslur hafi
sína sérstöku glerunga.
— Hvað notuðuð þið áður?
— Ragnar bjó til ýmsa gler-
unga og einnig keyptum við
þá frá Þýzkalandi. Við notum
þessa glerunga ennþá ásamt
minum.
Við spyrjum Ragnar hvað
Glit sé búið að starfa lengi?
— Við erum nú búin að
starfa í fjögur ár og á þeim
tíma hafa orðið miklar breyt-
ingar. Hinn nýi glerungur
Steinunnar er alveg nýr
áfangi.
. Auk Ragnars og Steinunn-
ar vinna Hrafnhildur Kjarval,
Þórunn Einarsdóttir og Her-
mann Guðjónsson við leirkera
gerðina.
Hrafnhildur vinnur aðal-
lega við rennslu, en hún stund
ar nám í leirkeragerð í Kaup-
mannahöfn og er búin að
vera þar eitt ár, en á eftir
þrjú.
Þórunn er í Gagnfræðaskóla
og vinnur þarna á sumrin.
Hermann blandar Ieirinn,
setur litina á og hugsar um
ofninn. Leirkeragerðin fær
nær allan sinn leir hérlend-
is t. d. við Elliðaár og Laugar
vatn, einnig er fluttur inn
leir frá Danmörku til blönd-
unar.
Auk renndra vasa og skála
framleiðir Glit h.f. ýmsa
minnjagripi úr Ieir og eru
þeir steyptir eða gerðir í mót-
um. Einnig eru framleiddir
steyptir vasar og nýlega var
fengin 15 tonna pressa, en
með henni er hægt að móta
aflanga diska o. fl.
Hluti munanna sem send-
ur verður á sýninguna í Was-
hington verður til sýnis í sýn-
ingarglugga Morgunblaðsins
um helgina.
Ráðskona eða
matsveinn
Óskum eftir að ráða ráðskonu eða matsvein að Sam-
vinnuskólanum í Bifröst Borgarfirði. — Upplýsingar
verða gefnar í síma 17973 mánudaginn 21. ágúst.
Símastúlka
óskast til 1. október eða lengur. — Upplýsingar kl.
4—6 á morgun.
GUNNAR ÁSGEIRSSON H.F.
Suðurlandsbraut 16
Akronnes
Til leigu er íbúðarhæð í nýju steinhúsi, 5 herb., eld-
hús og bað. — Upplýsingar veitir
VALGARÐUR KRISTJÁNSSON lögfræðingur
Akranesi — Sími 398.
Eignurlönd
Eignarlönd til sölu við bæinn. Seljast í hekturum
eða minni spildum. — Tilboð sendist afgr. Mbl.
merkt: „Landspildur — 5313“.
Bazar Blindrafélagsms
verður haldinn 3. september n.k. Allir velunnarar
Blindrafélagsins eru vinsamlegast beðnir að koma
munum sínum til Dvalarheimilis Blindrafélagsins,
Hamrahlíð 19, Margrétar Jónsdóttur, Stórholti 22,
Fríðu Elíasdóttur, Sogavegi 168, Fanneyjar Guð-
mundsdóttur, Bústaðabletti 23 og Helgu Jónsdóttur,
Hólmgarði 35.
SCANBRIT
útvegar fólki skóla og úrvalsheimili í Englandi. Á
heimilunum er yfirleitt ungt fólk, sem gerir nem-
endum kleift að æfa talmálið við beztu skilyrði ut-
an skólatímanna. Fyrir þá, sem taka vilja námið
alvarlega, eru haust- og vetrarmánuðirnir ákjósan-
legastir. Hagstætt verð. Upplýsingar gefur Sölvi
Eysteinsson, sími 14029.
Ver" rbœr — Melar
6 herbergja íbúð, neðri hæð og kjallari, sem verið
hefur í einbýli, er tilsölu á Melunum. Auðvelt er
að breyta eignarhlutanum í 2 íbúðir. Fallegur og sér-
staklega vel hirtur blómagarður fylgir eigninni.
oemja ber við
ÓLAF ÞORGRlMSSON, HRL.
Austurstræti 14.
Höfum opnað
verzlun að Njálsgötu 86, á horni Snorrabrautar og
Njálsgötu (Áður Búslóð). — Höfum á boðstólum
á boðstólum allan sængurfatnað, h^ítan og mislitan
einnig okkar velþekktu vöggusett, mörg ný mynstur.
Saumum sængurfatnað eftir pöntun og merkjum.
VERIÐ H.F.
Njálsgötu 86 — Sími 37568