Morgunblaðið - 20.08.1961, Side 12

Morgunblaðið - 20.08.1961, Side 12
12 MORGVWBLAÐIÐ Sunnudagur 20. ágúst 1961 Útgefandi: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Lesbók: Árni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjóm: úðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Áskriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. ÞAÐ SEM GERÐIST í SUMAR k rangurinn af viðreisnar-1 ráðstöfunum, sem gerð- ar voru í fyrravor, var sem alkunnugt er orðinn mjög góður rúmlega ári síðar. — Efnahagslegt jafnvægi hafði náðst, sparifjársöfnun aukizt, greiðsluj öfnuður við útlönd var hagstæður o. s. frv. — Stjórnarandstæðingar höfðu spáð því allt viðreisnarárið, að efnahagsráðstafanimar mundu hrynja um sjálfar sig. En þegar kom fram á vormánuðina, varð þeim ljóst, að allar áætlanir hefðu staðizt, þrátt fyrir aflabrest og verðfall á útflutningsaf- urðum. í stað þess að játa, að þeim hefði skjátlazt, gripu bandalagsflokkarnir, komm- únistar og Framsóknarmenn, til þess ráðs að gera leynd- aráætlun um samræmda skemmdarstarfsemi í þjóðfé- laginu. Inntak þeirrar áætl- unar var á þá leið, að komm- únistar skyldu efna til víð- tækra verkfalla í þeim fé- lögum, sem þeir réðu. Þeir skyldu ekki semja um nein- ar kjarabætur, heldur krefj- ast svo mikilla launahækk- ana, að útilokað væri að efnahagslífið gæti undir þeim staðið. Gegn þessu hét Fram- sóknarflokkurinn því, að láta SÍS bregðast skyldu sinni sem heilbrigður atvinnurek- andi í lýð-fæðisþjóðfélagi og gera pólitíska kaupgjalds- samninga. Öllum er ljóst, hverjar urðu afleiðingar þessara skemmdarstarfa. 1 verkföll- unum var gengi íslenzku krónunnar fellt, kippt var stoðum undan því jafnvægi, sem náðst hafði og var orðið grundvöllur að stórstígum framförum og bættum lífs- kjörum. ATTI AÐ BINDA KAUP Ý^msir hafa hreyft því, að ríkisstjórnin hefði átt að lögfesta miðlunartillögu sátta semjara, þegar báðir aðilar í vinnudeilunum höfðu fellt hana. Tvenn rök hefðu mælt með því að fara þá leið. í fyrsta lagi var ljóst af hinni litlu þátttöku í at- kvæðagreiðslunni, og at- kvæðatölum, að ekki var a. m. k. mikil andstaða gegn lausn á þann veg, sem tillag- an gerði ráð fyrir. í öðru lagi fór það svo ekki á milli mála, að þegar SlS tók upp sérsamninga við Dagsbrún, var ekki lengur um venju- lega vinnudeilu að ræða, heldur pólitíska svikastarf- semi. Viðreisnarstjórnin hafði lýst því yfic, að það væri mál vinnuveitenda og laun- þega að semja um kjörin og hún mundi ekki hafa af- skipti af slíkum samningum. En þegar vinnudeilurnar voru orðnar pólitískar, mátti segja að málin horfðu öðru- vísi við. Þess vegna hefði stjórnin getað lögfest miðl- unartillöguna. En hins er þá að gæta, að heilbrigt lýðræði þróast ekki, ef stjórnarvöld þurfa sýknt og heilagt að grípa inn í hags munaárekstra. í vinnudeil- um ætlast lýðræðið til ákveð ins þroska beggja deiluaðila. Því miður hefur hann ekki verið fyrir hendi hérlendis, þar sem verkfallsvopninú hefur verið beitt óhæfilega og meira að segja oft and- stætt hagsmunum launþega. Mjög mikilvægt er hins- vegar, að slíkur þroski og ábyrgðartilfinning nái að festa rætur. En hæpið er að sú yrði raunin, ef stöðugt væri gripið í taumana af æðstu stjórnarvöldum. Þvert á móti mætti þá gera ráð fyrir eilífum uppþotum á- byrgðarlausra manna, sem eftir á gætu skellt skuldinni á stjórnarvöldin, sem hefðu tekið lokaákvörðun í málinu. Hitt er svo annað mál, að svo langt geta skemmdar- verkamenn gengið, að taka verði í taumana, enda munu flestir þeir, sem andvígir voru lögbindingu í sumar, krefjast hennar, ef niðurrifs- öflin gera nýja tilraun til að eyðileggja efnahag landsins og girða fyrir þær kjarabæt- ur, sem við getum aflað okkur. LAGT AÐ JÖFNU Allt þar til í gær hefur Tíminn hlífzt við að taka afstöðu í Berlínarmálinu í ritstjórnargrein. Lengur hef- ur þó ritstjórinn ekki treyst sér til að þegja þunnu hljóði, og í gær segist hann for- dæma atferli vina sinna í Austur-Berlín. En hvers eðlis er þá fordæmingin? Hún birtist í þessum niðurlagsorð- um ritstjórnargreinar Tím- ans: a „Vissulega fordæma þeir (íslendingar) ofbeldið í Berlín, en þeir munu ekki láta það verða til þess yð IITAN UR HEIMI tP .. *&&&$&&£ — n ? SAU FRANCISCO £XAMINER “"*** lOlfi CENTURY W COLOKIIAtlSM f vFy Nýlendustefna 19. og 20. aldar. Má ekki bjóða ykkur áhrifameiri vopn, herrar mínir? SMt/ .b f yen TAIWAN í fútspor föðurins SÍÐASTLIÐINN þriðjudag kom fram í Tívolí í Kaup- mannahöfn nýr sænskur ten- gleyma ofbeldinu, sem hefur verið framið hér heima, held ur einmitt láta Berlínarof- beldið minna sig á það. Það er jafnmikil nauðsyn að vera á verði gegn brúnu og rauðu ofbeldi“. Inntak greinarinnar er sem sagt það, að hér sé við líði nazismi, í Austur-Berlín kommúnismi, og stjórnarfar hér og þar sé ámóta. Þá vita menn það, að Tímamenn leggja stjórnskipulag á ís- landi og í kommúnistaríkjun- um að jöfnu. Þeim mun auð- veldara verður fyrir þá að hoppa yfir í náðarfaðm kommúnismans, ef þeir næðu meirihlutavaldi hérlendis með kommúnistum og mynd- uðu stjórn með þeim, eins og áætlanir hafa verið gerðar um. — órsöngvari, og var honum af- ar vel tekið af áheyrendum. En söngvari þessi heitir Rolf Björling og er sonur Jussi Björling. Það má segja að söngurinn sé hönum í blóð borinn. En hann var þó ekki hvattur til söngnáms af föðoir sínum, sem helzt vildi að sonurinn helgaði sig viðskipta lífinu. En röddin var fyrir hendi og Rolf hóf söngnám í Stokk- hólmi á tónlistarháskólanum ár- ið 1953. Þar kynntist hann konu sinni, sem er bandarísk, og tveim árum síðar fiuttu þau til Bandaríkjanna. í New York hélt Rolf Björling áfram sönginámi hjá ýmsurn þekktum kennurum, meðal annars hjá Kurt Adler, sem er stjórnandi við Metro- politanóperuna þar í borg. Rolf Björling var algjörlega óþekktur í Danmörku og ríkti þar mi'kil eftirvænting að heyra son Jussi Björlings syngja. Og í viðtali við eitt Kaupmanna- hafnarblað sagði Rolf að hamn teldi konsertinn í Tivolí afar þýðingarmikinn. Þetta væri eig- inlega fyrsti stóri konsert hans, en auk þess vissu Svíar bezt hvers virði það væri að vinna hylli danskra áheyrenda. Rolf Björling Aðspurður um álit föður síns á söng hans sagði Rolf: Ja, það vill nú svo til að þegar hann var í New York hittist alltaf þannig 4 að hann söng sömu kvöld Og ég. Ef satt skal segja, hefur hann aldrei heyrt mig symgja.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.