Morgunblaðið - 27.08.1961, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.08.1961, Blaðsíða 2
2 MORCVNBLAÐIÐ Sunnudagur 27. agust 1961' ? S::ÍÖI; | Partur af vegg í neðra gangi Melaskólans. Þrjú verk Jóns Stefánssonar, „Árni Pálsson prófess- r“, „Skúrar við höfnina“ og „Við höfnina". Yzt tii haegri er mynd Eiríks Smiths, „Klettamenn". Listsýningin á Reykiavíkurkynningu í>AÐ sem vakið hefur einna mesta athygli margra þeirra, sem sótt hafa Keykjavíkur- kynninguna í Melaskólanum, er listsýningin sem þar hefur verið komið upp af mikilli smekkvísi. Hefur greinilega verið vandað mjög til hennar, enda gefur hún Ijósa yfirlits- mynd yfir íslenzka málaralist samtímans. Málverkin hafa verið hengd upp í göngum Melaskólans, og hafa veggirn- ir verið sérstaklega klæddir til að mynda réttan bakgrunn við listaverkin. Á sýninguni eru alls 81 mál verk eftir 48 listmálara og 13 höggmyndir eftir 10 mynd- höggvara. Hver listamaður á frá einu upp í þrjú verk á sýn ingunni, Og fer fjöldinn sýni- lega að nokkru leyti eftir stærð myndanna. T. d. eiga meistararnir Jóhannes Kjarval og Gunnlaugur Scheving hvor eitt stórt málverk á sýning- unni, en Kjarval á auk þess tvær teikningar. Ásgrímur Jónsson Og Jón Stefánsson eiga hvor þrjár myndir sem allar eru frá eldri skeiðum í list þeirra. Svavar Guðnason, Þorvaldur Skúlason og Jón Engilberts eiga eina mynd hver, Gunnlaugur Blöndal þrjár, Kristín Jónsdóttir, Júlí- ana Sveinsdóttir, Karen Agn- ete Þórarinsson, Lovísa Matt- híasdóttir, Nína Tryggvadóttir og Gréta Björnsson tvær hver, Barbara Árnason og Guðmunda Andrésdóttir eina hvor, Muggur, Jóhann Briem, Snorri Arinbjarnar, Finnur Jónsson, Þórarinn B. Þorláks- son, Sveinn ÞórarinssOn og Eggert Guðmundsson tvær hver, Ásgeir Bjarnþórsson, Eyjólfur Eyfells, Freymóður Jóhannsson, Guðmundur Ein- arsson, Jón Þorleifsson, Magn- ús Á. Árnason eina hver. Af yngri málurum á Kristj- án Davíðsson þrjár myndir á sýningunni, Bragi Ásgeirsson, Hafsteinn Austmann, Hjörleif ur Sigurðsson, Hrólfur Sigurðs son, Jóhannes Geir Jónsson, Pétur Friðrik Sigurðsson, Sig- urður Sigurðsson, Sverrir Haraldsson, Valtýr Pétursson Og Örlygur Sigurðsson tvær myndir hver, og Benedikt Gunnarsson, Bjarni Jónsson, Einar G. Baldvinssön, Eiríkur Smith, Halldór Pétursson, Jó- h^nnes Jóhannessson, Kjartan Guðjónsson og Veturliði Gunn arsson eina mynd hver, en Veturliði sótti sitt málverk einn daginn í vikunni og fór með það heim. Af þessum lista er Ijóst að nær allir íslenzkir málárar ald arinnar eiga verk á sýning- unni, raunar nokkrir sem kunnari eru fyrir annað en listmálun, enda löngu hættir að mála. Á höggmyndasýningunni eiga Ásmundur Sveinsson, Sig ! urjón Ólafsson og Ríkharður Jónsson tvær myndir hver, en eitt verk eiga þar eftirtaldir myndhöggvarar: Guðmundur Benediktsson, Guðmundur Einarsson, Gunnfríður Jóns- dóttir, Jón Benediktssón, Magnús Á. Árnason, Nína Sæ- mundsson og Ólöf Pálsdóttir. « Frá höggmyndasýningunni í Melaskóla. Fremst á myndinni er „Skúltúr“, trémynd eftir Jón Benediktsson, en í baksýn er hið merka verk Ásmundar Sveinssonar, „Trú“, úr tré og málmi. Kiljanskvöld í lönó Á FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ sýndi leikflokkur Lárusar Pálssonar þætti úr nokkrum verkum Kilj- ans á leiksviðinu í Iðnó. Leikar- arnir Helga Valtýsdóttir, Lárus Pálsson, Haraldur Björnsson og Rúrik Haraldsson brugðu upp svipmyndum af ýmsum frægum athurðum úr Paradísarheimt og Islandsklukkunni, og auk þess komu þrjár persónur úr öðrum skáldverkum Kiljans fram á leik- sviðinu: Pétur þríhross, kaupmað ur Guðmundsen og Todda trunta. Vöktu þau mikinn fögnuð áhorf- enda öll þrjú. Atriðin úr Paradísarheimt voru átta talsins og komu þar fram helztu persónur sögunnar: Stein- ar bóndi og dóttir hans, Þjóðrek- ur biskup, Björn á Leirum og sýslumaður. Atriðin úr íslands- klukkunni voru fjögur auk for- mála og komu þar fram Snæfríð- ur íslandssól, Arnas Arnæus, Jón Gerreksson, Jón Marteinsson og Maddaman. Sýningunni var mjög vel tekið og leikararnir hvað eftir annað Flugsýning í dag FLUGSÝNING Flugmálafélags íslands hefst kl. 2 í dag á Reykja- víkurflugvelli ef veður leyfir. — Verður þetta mjög fjölbreytt sýning, og ekki er að efa að Reykvíkingar fjölmenni á flug- vöilinn. Slysavarna- kynning í DAG heldur Slysavarnafélag fs- lands sýningu á ýmsum björgun- artækjum á sjó og landi í húsi félagsins á Grandagarði. Sýning þessi er j sambandi við Reykja- víkurkynninguna og verður opin frá kl. 14 til 22. Kaffiveitingar verða á staðnum. Sýning þessi er mjög fróðleg, m. a. gefst gestum færi á því að skoða björgunarbátinn Gísla Johnsen í naustinu í húsinu. Þarna er einnig sýning á kennslutækjum í umferðarregl- Hafnarfjörður - Akranes í dag kl. 4 f DAG kl. fjögur fer fram í Hafnarfirði kappleikur í knatt- spyrnu milli Hafnfirðinga og A- liðs Akurnesinga. Er þetta liður í bikarkeppni milli Akranes — Keflavíkur og Hafnarfjarðar. Oþurrkur um allt land ÞANNIG hljóðaði fréttapistill í Morgunblaðinu 26. þ.m. Og sams- konar fréttir hafa borizt um líkt leyti, næstum því árlega. í dag er vílað fyrir nórðan, í gær var það fyrir sunnan. Það er ávallt einhver að vola, eins Og danskt máltæki segir. En þessu voli hefði átt að vera hætt, eða úr því dregið, fyrir meir en ári síðan. í Morgunblaðinu, 5. nóv. 1959 stendur: „Merkar tilraunir í hey- verkun. Einfaldir votheysturn- ar“, og er mynd jafnframt birt af þeim undir grasi á Keldum við Reykjavik. Erindi um þessar votheys- geymslur var sent Bjargráðasjóði og inn á Búnaðarþing kom það. í desember í fyrra var geymsl unum lýst fyrir búnaðarráðu- nautunum, á ráðstefnu þeirra. í tímariti Verkfræðingafélags íslands er ítarleg lýsing á þeim. í búnaðarritinu Frey, hefur aftur á móti ekki verið á þær minnzt. Kaupfélög bænda og aðr- ar sveitaverzlanir eða sambönd, hafa ekki látið málið neitt til sín taka. Um þetta leyti, eða nokkru fyrr í fyrra, kom að máli við mig bóndi úr Dölum, Og falaðist eft- ir hjálp til að bjarga heyjum. Það vildi svo til, að rannsóknaráð ríkisins átti efni í tvær geymslur, og það fékk bóndinn. Fyrir nokkrum dögum kom sendimaður frá þessum sama bónda, og falaðist nú eftir papp- ír í geymslurnar. Enn var heppn- in með honum. — Hvernig reyndust ykkur geymslurnar í fyrra? — Jú, þær björguðu frá hall- æri, en nú var komið í óefni á Iný. Hvenær hættir „gamla sagan" á íslandi að verða alltaf ný? Munu menn á næsta vetri horfa reiðir um öxl til óþurrkanna, eða hefur verið dregin sæng yfir höf- uð, og sofnað svefninum árlanga? Málið er fyrir löngu komið í hendur bænda sjálfra, og þeirra trúnaðarvina. Geymslurnar eru ekki bezta varanlega lausnin, það vita allir, en ef þær eru hafðar í fórum verzlana tiltækar, þegar hrokkið er upp úr svefni, þá má bjargast frá hinu árlega hallæri vegna ó- þurrka. Ásgeir Þorsteinsson klappaðir fram í sýningarlok. —• meðal áhorfenda voru Halldór Laxness, kona hans og tvær dæt- ur. Sýningin var endurtekin í Iðnó í gærkvöldi, en í kvöld sýnir flokkurinn fyrir austan fjall, aff Flúðum. Reykfavíkur* kynningin Sunnudagur 27. ágúst Kl. 11.00 Guðsþjónusta í Neskirkju. Séra Jón Thorarensen prédikar. 14.00 Sýningarsvæðið opnað. 16.00 Glímusýning á vegum íþróttabandalags Reykja- víkur á palli við Melaskóla. 17.00 Á Melavelli: Handknatt- leikur körfuknattleikur og knattspyrna karla, Austur- bær — Vesturbær. —- Frjálsar íþróttir. 20.30 Við Melaskóla: Fimleikar: Úrvalsflokkur karla úr KR sýnir undir stjórn Bene- dikts Jakobssonar. Lúðrasveit leikur. 21.30 Dans á tveim svæðum við Melaskóla. Gömlu og dýju dansarnir. 24.00 Hátíðaslit. Volksvagenbif- reið með sendistöð f GREIN um vegaþjónustu FÍB féll niður að Volkswagenumboð- ið hafi lánað FÍB bifreið með sendistöð. Biður FÍB um að þetta komi fram og harmar að það skyldi niður falla í yfirlitinu. Þess skal Og getið að greinin um vegaþjónustuna var frétta- tilkynning frá FÍB. — Þvottalaugar Frh. af bls. 24 um þær framkvæmdir. Það var síðan frú Auður Auðuns, sem í sinni borgarstjóratíð tók af skarið um að hefjast skyldi handa við þá endur- nýjun, sem nú er lokið. Hefur Lárus Sigurbjörnsson haft yf- irumsjón verksins, ásamt þeim Helga Sigurðssyni hita- veitustjóra, og Hafliða Jóns- syni, garðyrkj ustjóra, en Ein- ar Sveinsson, múrarameistari lagði á ráðin um hleðslur. Verkstjóri var Kristján Ein- arsson, starfsmaður Árbæjar- safns. Listaverk Ásmundar Lárus Sigurbj örnsson ósk- aði bænum til hamingju með að Þvottalaugarnar skyldu nú vera komnar þarna upp f sinni gömlu mynd og einnig flutti hann sérstakar þakkir Ásmudi Sveinssyni, mynd- höggvara, sem þarna var staddur, fyrir listaverk hans, sem væri verðugt minnis- merki um þvottakonur f Reykjavík — en það væru allar húsmæður i Reykjavík á öllum öldum. Reglugerðin gamla Að síðustu kvaðst minja- vörður óska þess, að um- gengni um þessar minjar yrði slík, að ekki þyrfti að grípai til reglugerðar, sem sett var í tíð Zimsens borgarstjóra ár- iö 1917 og ekki hefur verið numin úr gildi, þar sem m. a. segir, að í Þvottalaugunum megi „ekki fljúgast á, æpa, kalla, syngja hátt, eða hafa annan hávaða, eða ofsalegt og móðgandi háttalag'* og fleira slíkt, sem ekk| verður upp talið að sinnL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.