Morgunblaðið - 05.09.1961, Page 20
20
MORCVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 5. sept. 1961
Þegar ég kom heim fm I'rolly-
wood, var ég dálítið tízkulegri í
klæðaburði, en þagar ég fór Ég
Ihafði lært nokkur snyrtibrögð
af kvensunum en að öðru leyti
kom ég nákvæmlega eins heim
og alltaf áður, með áætlunarbíl,
jafníátæk og þegar ég fæddist.
11
Ég kemst ekkert áfram
Ég hef verið klædd upp til
axla í hvítt satín, með gardeníur
í hárinu, og engan sykurreyr í
augsýn, en þó* verið plantekru-
þræll.
Til dænús skal ég nefna 52.
götu á árunum fyrir og eftir
1S40. Það var álitið gott, að kom
ast þar að. Gatan var kölluð
„Swing Street“, á hverjum veit-
ingastað voru prýðismúsíkinenn.
Allstaðar var hin „nýja músík.
Þeim hélzt uppi að kalla hana
nýja, vegna þess, að milljónir
__ Gamli veiðimaðurinn vildi
einnig selja mér geit á 100 dali,
en ég hafði ekki áhuga á kaupun
um. Svo frétti ég að hann hefði
tjálfa höfðu aldrei komið í 133.
götu. Þar hefðu þeir getað hlust-
að á swing í tuttugu ár.
Þegar fína fólkið var farið að
stæla svingið var ný tónlist far-
in að breiðast út um Harlem.
Tíu árum seinna varð hún það
nýjasta, þegar strákarnir niður-
frá komust i pp á lag með að
apa hana eftir.
Hvað, sem öðru leið voru hvít-
ir menn að spila swing á ger-
vallri 52. götu, en þar sáust að-
eins 2 svört andlit, mitt og Teddy
Wilsons. Teddy lék í píanó í
hléunum á Famous Door, en ég
söng. Það var engin bómull til
að tína í allri New York, en samt
var þetta svo sannarlega plant-
ekra, hvernig, sem á það var lit-
ið. Og við þurftum ekki aðeins
að líta á það, við bjuggum við
það. Okkur var ekki leyft að um
gangast fólk á neinn hátt. Um
leið og við vorum búin, urðum
selt dýragarðinum hjá Ranger
gistihúsinu við þjóðveg 27 geit
ina.
— Þakka þér kærlega fyrir .. .
við að hypja okkur út í bakgarð-
ir.xi, eða sitja á götunni.
Teddy átti gamlan Ford-ræfil,
sem hann ók í til vinnunnar.
Stundum fórum við út í hann,
■biðum í honum, unz röðin kom
aftur að.okkur.
Það var einn ótaminn strákur,
sem var vanur að koma á stað-
•inn, akandi, einhverjum furðu-
'legum útlendum bíl. í hvert
skipti, sem hann ók af stað, voru
■drunurnar eins og 1 fljúgandi
virki í flugtaki, og stjórn Faous
Door var ekki sérlega hrifin af
því. Við vinguðumst einhvern-
veginn við hann, og það kostaði
okkur Teddy bæði vúnnuna. Vin-
áttan rak okkur úr götunni.
H„nn var ungur milljónamær-
ingur að njóta lífsins, og tók
ekki við skipunum frá neinum.
Hann lét ekki segja sér með
hverjum hann mætti drekka og
hverjum ekki. Hann kom þarna
inn til að hlusta á okkur Teddy
og vildi alltaf gefa okkur sjúss.
Hann heimtaði, að við skemmt-
um okkur með sér, en hvorki
yfirþjónninn né forstjórinn vildu
leyfa það, hversu mjög, sem þeir
a.inars vildu gera góða.i við-
skiptavin ánægðan.
Við sögðum honum, að okkur
'hefði verið skipað að umgangast
ekki viðskiptavinina, en hann
staðhæfði aftur á móti, að eng-
inn skyldi skipa sér fyrir verk-
um. Eitt sinn er hann hafði þrá-
beðið mig allt kvöldið, og mér
fannst ég vera hálfgerður ruddi
að setjast ekki niður hjá honum
og drekka eitt glas lét ég til-
leiðast.
Ég settist niður hjá honum
um stund, og hún varð mín síð-
asta þarna inni í bili. Þegar ég
stóð upp, tilkynnti forstjórinn
mér, að ég gæti tekið allt mitt
'hafurtask, mín væri ekki lengur
þörí. Hann var nógu illkvittinn
til að reka Teddy líka, enda þótt
hann hefði ekkert af sér gert.
Hann sagðist ekki vilja hafa
neina negra hjá sér eftir þetta
'hneyksli, sem gæti eyðilagt alla
framtíð staðarins.
Ég var öskuvond. Mér fannst
’hart, að þurfa að fara heim og
segj a ömmu, að mér hefði verið
sparkað út einu sinni enn, og
það af jafn lítilfjörlegu tilefni.
Vinur okkar, milljónamæringur-
inn reyndi að hressa okkur upp.
Við fórum burt í þessum kapp-
aksturs'bíl hans, og hann var
Eg ætla að koma við í gistihúsinu
og athuga með geitina.
Seinna:
— Eg kom við í Ferðadýragarð
inum og reyndar, þar voru hún
ekki nema þrjár mínútur á leið-
inni upp gegnum Central Park.
Hann bað okkur að hafa ekki
neinar áhyggjur, hann ætti nóga
■peninga, og ekki skorti stöðurn-
ar. Þar að auki væri hann tón-
listarmaður og myndi brátt
stofna sína eigin hljómsveit, og
ekki skyldi líða á löngu áður en
allt væri í lagi.
„Það er svosem ágætt,“ sagði
ég. „Þú átt skítnóga peninga, en
hinsvegar ertu búinn að eyði-
leggja allt fyrir mér. Ég þori
ekki einu sinni að fara heim.
Hvað á að verða um okkur
Teddy?“
„Förum ekki heim, heldur út
á lífið,“ svaraði hann. Við lent-
um svo á endanum á gamla
Uptown House. Allir heimtuðu,
að ég færi upp á sviðið og syngi.
Ég varð við þeirri beiðni, og var
boðin regluleg vinna á m -.um
gamla stað.
Vinur okkar milljónamæring-
urinn tóð við orð sín. í fyrsta
lagi útvegaði hann Teddy vinnu
í útvarpshljómsveit, og í öðru
lagi stofnaði hann sína eigin
hljómsveit, og hún var góð. Þessi
maður var Charlie Barnet.
★
En 52. gata gat ekki til lengd-
ar lokað negrana úti. Einihver
varð að láta undan, og það varð
hlutskipti plantekrueigendanna.
Þeir komust að raun um, að þeir
gátu grætt á negrunum, og þá
höfðu þeir ekki lengur efni á að
ganga með sínar gömlu kredd-
i Múrinn hrundi, og þá f engu
margir tónlistarmenn atvinnu.
Ég fór til Stables, sem var í
eigu Ralph Watkins Kelly. Þar
var ég aðalskemmtikraftur, nú
þurfti ég ekki að syngja í hlé-
um. Það yrði ekki ódýrt að halda
slíkri skemmtiskrá gangandi nú
á dögum. Eitt sinn unnu þarna
Coleman Hawkins og hljóm veit
hans, ég og Stuff Smith. í hlé-
unum lék Nat King Cole og tríó.
Ekkert okkar fékk níu þúsund
á viku. Ég var þar í tvö ár, og
fékk aldrei meira en átta þús-
und, og ég var stjarnan. Þarna
var líka einu sinni Roy Eldridge
með hljómsveit, Una Maý Carl-
isle, Lips Page og snillingurinn
Art Tatum á píanó í hléunum.
Það var eins og að koma heim
til sín á hverju kvöldi að vinna
við þessa götu. Manneskjur, sem
ég hafði hitt í Harlem, Holly-
wood og á Café Society komu
þarna, og á hverju kvöldi voru
einhverjir endurfundir. Ég var
þá auglýst dálítið, svo að gamlir
vinir og kunningjar vissu, hvar
mætti finna mig.
★
í fyrstu ferð minni til Holly-
wood hafði veitingahúsið farið
yfirum undir mér og hljómsveit-
inni, og svo hafði komið jarð-
skjálfti í ofanálag. önnur ferð
mín þangað, tveim árum seinna,
var talsvert betri, en ég var ekki
fyrr komin þangað . en jarð-
skjálfti dundi yfir.
Svo var ég heldur ekki ein á
ferð í þetta skipti. Lester hafði
þá slitið félagsskap við Basie, og
hann fór með mér til að vinna
hjá Billy Berg.
Þetta veitingahús var öðruvísi,
það var tæplega nægilega fínt
til að teljast í fyrsta flokki, en
ekki nógu ófínt til að kallast
búla. Það va- úti í dalnum, en
ekki of langt í burtu frá borg-
inni, eins og staður Red’s hafði
verið. Hinn síðarnefndi r afði
ekki getað lifað án kvikmynda-
arnir okkar . . . Svo kom ég við
í Ranger gistihúsinu og þeir
höfðu keypt geitina . . . Gamall
veiðimaður hafði selt öll dýrin!
leikaranna. Sum kvöldin kom
Gable, næst kannski Garland,
en aldrei meira en einn í einu,
og hundrað og fimmtíu manns
þurfti í salinn, ef hann átti ekki
að vera skrclttómur. Erfiðleik-
arnir með kvikmyndaleikarana
eru þeir, að þeir hafa allt heima
hjá sér, og þessvegna þarf eitt-
hvað óvenjulegt, eða snjallt, til
að draga þá út, einkum þó þau
kvöldin, þegar þeir eiga að koma
á stefnumót við snyrtarann
klukkan sex næsta morgunn. Og
á þessum árum var góðæri j
’Hollywood.
Það var hin ótrúlegasta hljóm-
sveit, sem Lester hóaði saman
hjá Billy. Ég get ennþá heyrt í
henni í huganum, enda þótt ég
muni ekki nöfn þeirra allra. Við
höfðum smávaxinn trompetieik-
ara, sem líkti eftir Buck Clayt-
on. söng bara meira, Bumps
Mayers, Kaliforníumann, tvo
tenórsaxófóna og trompet. Lee,
bróðir Dester var á slagverkinu,
gæðalegur hvítur strákur við
píanóið og Red Kallen á bass-
ann.
Salurinn lék alltaf á reiði-
skjálfi í kringum okkur. Eitt
kvöldið kom Bette Davis, og
dansaði frá sér allt vit. Lana
Turner kom venjulega hvern
þriðjudag og fimmtudag. Hún
'kann að dansa, stúlkan sú, og
sparaði sig ekki hjá Billy. Hún
•bað mig alltaf um „Stranga
Fruit“ og „Gloomy Sunday“,
'Hún vildi helzt dansa við Mell
Tormé, sem þá var ungur strák-
ur, og hann vann allar dans-
keppnir hjá Billy. Hann var að
vísu ekki eins snjall og strák-
arnir á Savoy í Harlem, en hann
var samt enginn klaufi.
Hann var eins og ég var £
æsku, langaði til að verða dans-
ari, en hugsaði ekki um söng.
SHlItvarpiö
Þriðjudagur 5. september.
8:00 Forgunútvarp (Bæn. — 8:05 Tón-
leikar. — 8:30 Fréttir. — 8:35
Tónleikar. — 10:10 Veðurfregn-
ir).
12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar. —•
12:25 Fréttir og tilk.).
12:55 „Við vinnuna": Tónleikar.
15:00 Miðdegisútvarp (Fréttir. — 15:05
Tónleikar. — 16:00 Fréttir og til-
kynningar. — 16:05 Tónleikar. —
16:30 Veðurfregnir).
18:30 Tónleikar: Harmonikulög.
18:55 Tilkynningar. — 19:20 VeðurfP.
19:30Fréttir.
10:00 Samleikur á fiðlu og píanó (Nat-
an Milstein og Carlo Busotti
leika):
a) Sónata nr. 12 eftir Pergolesi.
b) Nigun úr „Baal Shem“ eftir
Bloch.
c) „Paganiniana", syrpa eftir
Paganini-Milstein.
20:20 Erindi: Hlutverk prestsins í þjó5
félagi okkar (Séra Arelíus Ní-
elsson).
20:45 Tónleikar: „Astir galdramanns-
ins“ eftir Manuel de Falla
(Maria de Gabarain syngur með
La Suisse Romande hljómsveit-
inni; Ernest Ansermet stjórnar).
21:10 Ur ýmsum áttum (Ævar R.
Kvaran leikari).
21:30 Kórsöngur: Söngflokkurinn f
Schaumburg syngur þjóðlög og
fleira.
21:45 Iþróttir (Sigurður Sigurðsson),
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Lög unga fólksins (Guðrún
Svafarsdóttir og Kristrún Ey-
mundsdóttir).
23:00 Dagskrárlok.
Miðvikudagur 6. september
8:00 Morgunútvarp (Bæn. — 8:05 Tón
leikar. — 8:30 Fréttir. — 8:35
Tónleikar. — 10:10 Veðurfr.).
12:00 Hádegisútvarp (Tónl. — 12:25
Fréttir og tilkynningar).
12:55 „Við vinnuna**: Tónleikar.
15:00 Miðdegisútvarp. (Fréttir. — 15:05
Tónleikar. — 16:00 Fréttir og tilk.
16:05 Tónleikar — 16:30 Veðurfr.)
18:30 Tónleikar: Operettulög.
18:55 Tilkynningar.
19:20 Veðurfregnir.
19:30 Fréttir.
20:00 Tónleikar: Fiðlukonsert nr. 8 f
a-moll op. 47 eftir Ludwig Spohr
(Rudolf Köckert g Sinfóníuhljóm
sveit útvarpsins í Munchen leika
Fritz Lehmann stjórnar).
20:20 Frásöguþáttur: Farið í fjárréttir;
fyrri hluti (JÞormóður Sveinsson
á Akureyri).
20:50 Einsöngur: Richard Tauber syng
ur. —-
21:15 Tækni og vísindi; VII. þátturt
Klukkur (Páll Theódórsson eðlis*
fræðingur).
21:35 Islenzk tónlist: Tónverk eftir
Kristin Ingvarsson og Árna
Björnsson.
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Kvöldsagan: „Smyglarinn'* eftir
Arthur Omre; IV. (Ingólfur Krist
jánsson rithöfundur).
22:30 I léttum tón: Larry Adler leik>
ur á munnhörpu og Franco
Molinari á harmoniku.
23:00 Dagskrárlok.
ysr/.
m
m
• sími nwi
wo°
*.*.*.**.
* - .-•^^»vV-*vV-*v*:*v*vV*:*v>v.«:*v*vV-*vV-
— Tannpínan er i þessari tönn!
a
r
i
r
u
ó
I WENT TO TME TOURISTS^
ROADSIDE ZOO AND( SURE
ENOUGM, TWERE WERE OUR BEAR CUBS
.THEN I CHECKED TME RANGER MOTEL
AND TMEV MAD BOUGHT TWE BlGHORN
LAMÐ...TMEV WERE ALL SOLD BV