Morgunblaðið - 12.09.1961, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ
ÞriðJudagUr 12. sepf. 1961
Verðskuldaður yfirburðasigur KR
KR vann Akranes 4-0 og titilinn
„bezta knattspyrnufél. íslands 1961"
KR vann yfirburðasigur yfir Akurnesingum í úrslitaleik
tslandsmótsins. Voru yfirburðir KR-inga svo miklir að
mark KR komst eiginlega aldrei í hættu. En fjórum sinn-
um sendu KR-ingar knöttinn í net Skagamanna. Og svo
mikla yfirburði hafði KR, að markatalan 4:0 lýsir þeim
engan veginn réttlátlega. Sex mörk yfir hefðu betur lýst
þeim tökum sem KR hafði á leiknum.
KR-ingar náðu strax í byrj-
un öllu frumkvæði í leiknum.
í fyrri hálfleik sýndu þeir ein-
hvern þann bezta leik sem
ísl. lið hefur sýnt. Notuðu þeir
mjög útherjana og fundu þar
leiðina að marki Akurnesinga.
Innherjarnir og þó einkum
framverðirnir Garðar Árna-
son og Helgi Jónsson höfðu öll
völd á vallarmiðjunni og möt-
uðu framherjana og útherjana
með hverri sendingunni af ann
arri. Leikurinn fór að mestu
fram á vallarhelmingi Skaga-
manna, sem aðeins fengu rof-
ið þessa vel upp byggðu sókn
KR með einstaka skyndiupp-
hlaupum, sem voru nær und-
antekningarlaust einstaklings-
glettur en ekki vel uppbyggð
sókn. KR skoraði aðeins tvö
mörk í fyrri hálfleik, en hefði
að minnsta kosti 4 marka yfir-
burði.
Skagamenn gerðu góða til-
raun til að hrista af sér slen-
ið í upphafi síðari hálfleiks.
En það vantaði alla festu í
sóknartilraunirnar. Og þegar
KR bætti 3 markinu við var
allri baráttu lokið og leikur-
inn fór í farveg hinnar árang-
urslitlu „miðjuvallar“ knatt-
spyrnu. KR-ingar minnkuðu
hraðann og slökuðu verulega
á og leikurinn endaði í hálf-
gerðri deyfð. En í heild var
hér um mjög góðan úrslitaleik
að ræða og lið KR vann vel
verðskuldaðan sigur. Það er
ekki vafi á að bezta lið lands
Gólu blóm og
sýndu bikurinn
LIÐSMENN KR gleymdu ekki
i gömlum félögum og vinum er
þeir á sunnudaginn unnu sinn
fræga sigur. Átta af liðsmönn-
unum heimsóttu Jóhann Boga
son húsvörð í KR-húsinu og
Svein Þormóðsson ljósmynd-
ara, en þeir liggja báðir í
sjúkrahúsi.
Færðu KR-ingar þeim báð-
um blóm og sýndu þeim hinn
fræga íslandsbikar. — Vakti
heimsókn liðsmannanna mikla
gleði þessara tveggja manna,
sem nú liggja sjúkir.
ins í dag fór með æðstu verð-
laun knattspyrnunnar úr
þessu móti.
• Völdin á vallarmiðju
Verðskuldaður sigur KR fólst
fyrst og fremst í góðum leik út-
herjanna, Gunnars Guðmanns-
sonar og Arnar Steinsen sem nú
lék aftur með KR, frábærri leikni
og uppbyggingu Þórólfs Beck og
yfirburðaleik Garöars Árnasonar
og Helga Jónssonar á vallarmiðj-
unni, aðstoð þeirra og tengingu
varnar Og sóknar. Ellert vann Og
mjög vel og var einn af ásum
liðsins í þessum leik.
• Bjargað á línu
Ingvar átti fyrsta skot á mark
í þessum leik, en það var auð-
varið fyrir Heimi. En þau tök
sem KR náði strax í leiknum fóru
síðan að segja til sín. Á 10. mín.
er fyrsta „dauðafærið". Þórólfur
leikur vel upp, gefur út til Arn-
ar Steinsen sem gefur vel fyrir.
Ellert fær knöttin á markteig —
en spyrnir yfir. Fjórum mín. síð-
ar sendir örn aftur til Ellerts,
en hönum mistekst að afgreiða
í góðu færi.
Og sókn KR þyngist stöðugt.
Helgi Dan bjargar með út-
hlaupi á 18. mín. og mín. síðar
veður hann móti Þóróifi og
nær knettinum af tám hans
og slær frá. Upp úr þeirri
pressu berst boltinn að Akra-
nesmarkinu en Björn Finsen
bjargar á marklínu. Það var
eins og KR ætlaði ekki að
takast að nýta yfirburði sína.
• Tvö mörk á 16 mínútum
En þetta breyttist. Á 23.
mín. byggir Þórólfur upp.
Hann sendir fallega fram til
Gunnars Fel. en hann er of
seinn að nota tækifærið og
knötturinn berst út til Arnar.
örn miðjar vel og Þórólfur
tekur á móti og skorar örugg-
lega og fallega af 8—10 m færi.
Sókn KR linnti aldrei í hálf-
leiknum. Þeim fækkaði hinum
opnu færum, en KR-ingar voru
stöðugt ágengir. Ellert átti gott
skot — en hitti Örn Steinsen og
Þórólfur átti skalla yfir.
En á 39. mín kemur annað
markið. Aukaspyrna var tekin
af um 35 m. færi og gefið fyr-
ir markið. Gunnar Felixson
sendir út á kant til Arnar, sem
„Bezta knattspymufélag íslands 1961“ — lið KR.
miðjar vel og Ellert kemst í
gott færi og skorar örugglega.
• Fjörkippur
Þórður Jónsson og Ingvar Elís-
son voru einustu bitvopn fram-
línu Akraness. En þeir nutu lítill-
ar aðstoðar og unnu lítt saman.
Þeir áttu báðir gegnumbrot á
fyrstu mín. síðari hálfleiks en
mistókst er að marki dró. Og
smám saman nær KR aftur öllum
völdum í leiknum. Gunnar Felix-
son kemst tvívegis í færi, en
misnotar illa í bæði skiptin.
• Fallegasta markið
En á 13. mín. skorar Þór-
Enska lands
liðið valið
BRETAR hafa nú valið Iands-
lið það, sem keppa á við ís-
Lendinga í Lundúnum n.k. laug
ardag. Er það eins og fyrr
segir skipað áhugamönnum, en
sá þekktasti þeirra er Bobby
Brown (hægri útherji), sem
leikið hefir undanfarið með 1.
deildarliðinu Fulham. Leik-
urinn fer fram á High Wycom-
be leikvanginum.
Lið Bretanna verður skipað
þessum mönnum: M. J. Pinner
(Hendon), J. Martin (Wimble-
don), J. Harris (Hendon), A.
Mendrum (West Auckland),
A. Law (Wimbledon), sem
verður fyrirliði, C. Townsend
(Wealdstone), R. Brown (Ful-
ham), W. Broomfield (West
Auckland), R. Jackson (Ox-
ford Un), H. Lindsay (King-
stonian), T. Howard (Hend-
on).
Þórólfur Beck skorar þriðja mark KR.
ólfur fallegasta markið. Hann
átti það einn að öllu leyti.
Hann lék á eina þrjá varnar-
menn og plataði síðast Helga
markvörð og skoraði af öryggi.
Þarna var sigur KR innsiglað-
ur. Meistaralega gert hjá Þór-
ólfi.
• Fjórða markið
Leikurinn dofnaði við þetta
„úrslitamark". Þórður Jónsson og
Ðonni komust báðir í gegn og
kom til kasta Bjarna Felixsonar
að bjarga á línu í upphlaupi Þórð
ar. En þetta voru síðustu fjör-
kippir Skagamanna. Tök KR á
leiknum urðu aftur allsráðandi.
Ellert átti gott skot og Helgi
Dan bjargar með úthlaupi frá
Gunnari Felixsyni. Stuttu síðar
á Gunnar skot í þverslána eftir
mikla pressu að Akranesmarkinu.
Og 10 mín. fyrir leikslok
leikur Ellert fallega gegnum
vörn Akraness, rennir til Þór-
ólfs, sem er í góðu færi og
skorar af öryggi af stuttu færi.
5 mín. fyrir leikslok var Skúla
Hákonarsyni innherja vísað af
velli fyrir gróft bröt gegn Bjarna
Felixsyni. Brottvísunin olli nokkr
um deilum eftirá, en Haukur
Óskarsson dómari sagði að eng-
inn vafi hafi verið á brottrekstr-
arsökinni. Skúli hefði lagt hend-
ur á Bjarna og boltinn víðs fjarri.
• Liðin
Skagamenn voru heillum horfn
ir í þessum leik. Vörn liðsins var
mun sterkari sókninni og áttu
varnarmennirnir Gunnar mið-
vörður og Helgi bakvörður ágæt-
an leik. Helgi í markinu verður
ekki sakaður um mörkin. Þvert
á móti bjargaði hann oft mjög vel
og með öruggum úthlaupum
stöðvaði hann margoft sókn KR.
Kristinn átti og góðan leik í
stöðu framvarðar, sem aðstoðar-
maður í vörn, en uppbyggingu
framvarðanna vantaði alveg. —
Sveinn Teitsson hefur sjaldan
eða aldrei átt jafn slakan leik og
cpnaðist oft leið að Akranes-
markinu þar sem hann átti að
vera til varnar.
Framlínan var í molum. Ein-
staklingsafrek Þórðar og Ingvars
dugðu ekkert. Hinir aðstoðuðu
lítt, en ekki reyndi ýkja mikið
á hana. Heimir fékk fátt að sýna
Og aldrei reyndi verulega á hann
til varnar. Bjarni átti mjög góð-
an leik sem bakvórður. En það
voru framverðimir, Garðar og
Helgi, sem báru hita Og þunga
varnarleiksins og skiluðu þeir
því með prýði. Aðstoð þeirra við
sóknina var og lykillinn að vel-
gengni liðsins. Þórólfur átti af-
bragðsgóðan leik og yfirburða-
sigur KR byggist ekki sízt á
leikni hans og uppbyggingu. Þrjú
mörk í slíkum leik tala líka sínu
máli um hæfni hans. Ellert vann
og mjög vel, þó illa tækist hon-
um til við markskotin í byrjun.
Gunnar Felixson var veikasti
hlekkur framlínunnar. Útherjarn
ir Gunnar Guðmannsson og Örn
Steinsen moluðu Akranesvörn-
ina og léku mjög vel. Komu þeir
báðir á óvart með getu sinni og
einkum þó Örn, sem er mun betri
nú en þegar hann yfirgaf liðið i
sumar er hann hvarf af landi
brott.
Þetta var verðskuldaður sigur
fyrir samstillt lið og einn bezti
leikur, sem íslenzkt knattspyrnu-
lið hefur sýnt. — A.St.
Bikarinn
kostaði
8 7 kr. ísl.
ÍSLANDSBIKARINN var af-
hentur KR-ingu«i í leikslok
á sunnudaginn. En síðan verð-
ur þessi bikar tekinn úr um-
ferð og kemur nýr í staðinn
— veglegur og glæsilegur.
Bikarinn gamli sem KR
vann á fyrsta íslandsmótinu
1912 og aftur nú 49 árum síð-
ar ber nokkur merki hálfrar
aldar tilveru. Hann hefur
skemmzt og hnjaskazt í með-
förum og gengist undir við-
gerð sem gerði hann þó eng-
an veginn lýtalausan. Á fót-
stalli hans eru nú 50 skildir
með nöfnum þeirra félaga er
hafa unnið hann. Það eru 17
skildir með nafni KR, 13 með
nafni Fram, 12 með nafni Vals,
6 með nafni Akraness og 2
með nafni Víkings.
KSÍ bauð til kaffisamsætis
að leikslokum. Meðal gesta
var menntamálaráðherra og
frú og auk þess ,5 af þeim
mönnum er léku í úrslitaleik
fyrsta mótsins 1912. Björgvin
Schram minntist ýmissa atriða
úr sögu mótsins, sæmdi hina
\ gömlu garpa merki KSÍ Og
voru þeir hylltir. Var hóf
þetta hið ánægjulegasta og
tengdi saman gamla og nýja
sögu.
Þar kom m.a. fram að Fram-
arar sem gáfu bikarinn 1912
áttu í erfiðleikum með að
safna fé fyrir honum. Bikar-
inn kostaði 87 kr. ísl. og tókst
að fá það fé eftir ítrekaðar til-
raunir. En mikil barátta hef-
ur staðið um þennan bikar —
margir svitadropar 'fallið í bar
áttunni um hann, en þeir
verða nú ekki fleiri.