Morgunblaðið - 19.09.1961, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.09.1961, Blaðsíða 10
10 MORGVNBLAÐIÐ Þriðjudagur 19. sept 1961 Þýzku kosnmgarnar siðastlibinn sunnudag: Verður dr. Adenauer kanzlari áfram? Sósialdemókratar og frjálsir demókratar unnu á — Kristilegir demókratar Jbó enn öflugastir tJ R S L I T vestur-þýzku kosninganna á sunnudag- inn urðu þau, að flokkur dr. Adenauers, kanzlara, Kristilegi demókrataflokk urinn, tapaði 40 þingsæt- um og þar með hreinum meirihluta sínum á sam- bandsþinginu. Sósíaldemó- kratar juku þingsæta- fjölda sinn um 22 sæti og flokkur frjálsra demó- krata nær tvöfaldaði fylgi sitt frá síðustu kosningum 1957 — fékk nú 66 þing- menn kjörna. Aðeins þess- ir þrír stjórnmálaflokkar uppskáru ávöxt hinnar hörðu kosningabaráttu síð ustu vikna — því að aðr- ir flokkar þurrkuðust út af hinu 499 manna vestur- þýzka þingi. Úrslitin hafa það í för með sér, að al- gjör óvissa ríkir nú um myndun nýrrar stjórnar, Sósíaldemókratar 190 (168) Frjálsir demókratar 66 (43) Kristilegir demókratar enn öflugastir Kosningaúrslitin eru ótví- ræður sigur fyrir tvo síðar- nefndu flokkana. Þrátt fyrir það er Kristilegi demókrata- flokkurinn áfram langstærsti flokkur á þingi og stjórnar- myndun án hans hlutdeildar talin óhugsandi. Sjálfur hefur dr. Adenauer látið hafa eftir sér um þessar niðurstöður kosninganna, að flokkur sinn sé enn jafnöflugur og hann var eftir kosningarnar 1949 og 1953. Verði það að teljast mjög góður árangur. Atkvæða fylgi sósíaldemókrata, sem Flokksleiðtogarnir þrír nema hvað sýnt þykir, að hún verði ekki án aðildar Kristilega demókrata- flokksins. Þátttaka í kosningunum var góð og neyttu kosningaréttax síns 87,5% þeirra 37,4 millj. sem á kjörskrá voru. — Sam- kvæmt framansögðu verður þingsætafjöldi flokkanna sem hér segir (eldri tölurnar í svig um): Kristil. demókratar 243 Willy Brandt — vann sigur, sem (281) hrekkur þó skammt Slómin eru yndisauki Afskorin blóm í úrvali. Mjög fallegar hengiplöntur og fl. pottablóm. Ennfremur potta- grindur og statív og margt fl. Reynið viðskiptin. JífRÍSLAþf BIFREIÐASALAM Borgartúni 1 Símar 18085 og 19615. Gjörið svo vel og notfærið ykkur hið stóra sýningar- pláss. Það tryggir yður ör- örugga sölu að bílarnir séu Selt á staðnum. BIFREIÐASALAIEI Borgartúni 1 Símar 1808Sogl9615 Bjórgúlfur Sigurðsson Hann selur bilana Dr. KONRAD ADENAUER — 1 kosningabaráttunni stóð hinn 86 ára gamli kanzlari 47 ára keppinaut sínum fyllilega á sporði og að sumra dómi jafnvel meira en það, fór fljúgandi um gjörvallt landið en kom þó ætíð heim til Bonn á kvöldin til að sinna stjórnarstörfum. Verður hann nú að víkja? % sinn teldi eðlilegast og æski- legast að mynduð yrði sam- steypustjórn á breiðum grund velli, þ. e. allna þinc'1okkanna þriggja. Á blaðam„.i..afu’-idi í gær vísaði dr. Adenauer al- gjörlega á bug hugmyndinni um slíka samstjórn, sem hann kvað ekki fá samrýmzt lýðræð iskröfum nútímans. Hann kvaðst ekki í svipinn vera reiðubúinn til að láta uppi, hvort flokkur sinn mundi mynda minnihlutastjórn eða ganga að endurnýjuðum til- boðum frjálsra demókrata um samsteypustjórn með þeim. Kanzlarinn sagði, að Kristi- legi demókrataflokkurinn kæmi saman í dag, þriðjudag, til þess að fjalla um viðhorfin eftir kosningarnar. Dr. Adenauer, sem nú er 86 ára gamall — og mun því standa á níræðu í lok hins ný- byrjaða kjörtímabils — hló að eins, þegar það bar á góma á blaðamannafundinum, hvort hann mundi draga sig í hlé. Sagði hann, að úr því mundi þingið skera. Utanríkisstefnan mikilvægust Kanzlarinn lýsti því yfir, að hann teldi mestu máli skipta, að áfram yrði fylgt þeirri utan ríkisstefnu, sem kristilegir demókratar hefðu haldið uppi á undanförnum 12 árum — Og hvergi yrði frá henni hvikað. Ástandið í alþjóðamálum væri slíkt, að vestrænu ríkin yrðu að standa sameinuð og sýna festu í gerðum sínum. Þess er vænzt meðal sam- herja Vestur-Þjóðverja, að myndun nýrrar ríkisstjórnar dragist ekki á langinn. Eins og nú háttar heimsmálum þykir mjög brýnt, að þýzka „stjórn- arkreppan" leysist hið bráð- asta, svo að hún verði örugg- lega ekki þrándur í götu þeirra viðræðna, sem framund an eru um lausn Berlínar- og Þýzkalands-vandamálanna. Heldur Adenauer áfram? Þeir munu vera fleiri á Vest urlöndum, sem kjósa að dr. Dr. Ludwig Erhard — verður hann þjóðarleiðtogi? höfðu Willy Brandt að kanzl araefni, jókst úr 31,9% í kosn- ingunum 1957 í 36,3% nú. Er þetta mesta fylgi sem flokkur- inn hefur notið fram að þessu. Hefur aðstaða hans því styrkzt nokkuð, þó að ekki endist það honum til stjórnar- myndunar eða þátttöku í ríkisstjórn. Frjálsir demókrat ar, sem einir héldu velli af minni flokkunum, efldu þing styrk sinn mjög svipað og sósíaldemókratar. Þar með hefur þeim tekizt að skapa sér oddaaðstöðu í stjórnmál- um landsins. — En þá er ósvarað spurningunni um stjórnarmyndun? Horfur um stjórnarmyndun Fyrir kosningarnar lýsti dr. Adenauer yfir þvi, að hann teldi samsteypustjórn ekki koma til greina. Á hinn bóg- inn var því marglýst yfir af hálfu Frjálsa demókrata- flokksins og formanns hans, Erich Mende, að þeir væru fúsir til að taka upp stjórnar- samstarf við kristilega demó- krata að kosningunum lokn- um, en kysi þó fremur, að dr. Erhard tæki við kanzlaraem- bættinu af dr. Adenauer. Jafn skjótt og kosningaúrslitin voru ljós orðin, lýsti svo Willy Brandt yfir því, að flokkur Irich Mende — vill Erhard í kanzlarastólinn Adenauer haldi áfram stjórn- arforystu. Að baki þeirri af- stöðu liggur fyrst og fremst sú sköðun, að reynsla hafi sýnt, að vestrænu samstarfi sé farsællega borgið í hans hönd- um. Engu að síður verður ekki annað séð, en dr. Adenauer sé nú í tvísýnni aðstöðu hvað kanzlaraembættinu viðvíkur. Sjálfum sér líkir Vestur-býzku kosningarnar og úrslit þeirra hafa verið eitt aðalumræðuefnið víða um lönd og er þess nú beðið með mikilli eftirvæntingu, hvert framhaldið verður. Málgagn so vézku stjórnarinnar „Pravda“ komst svo að orði 1 gær, að í Austur-Þýzkalandi væru kosningarnar sigurhátíð lýð- ræðisins — en í Vestur-Þýzka landi atkvæðagreiðsla án kosn inga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.