Morgunblaðið - 22.09.1961, Side 5
Föstudagur 22. sept. 1961
MORCVNBL4Ð1Ð
5
m
m
4»
•IHiiÍ
Stí!
EINS og skýrt hefur verið frá
í fréttum var 16.allsherjarþing
Sam. þjóðanna sett í New
York sl. þriðjudag. Fulltrúar
frá 99 þjóðum hafa tek-
ið sér sæti í hinum stóra
fundarsal allsherjarþingsins,
fréttamenn frá blöðum og út-
varpi streyma að, auk fjölda
gesta, sem daglega koma í for
vitnisskyni. Nærri hver þjóð
talar sitt tungumál, og grein
þessi segir frá þeim aðferð-
um, sem SÞ notar til þess að
allir geti fylgzt með því, sem
fram fer.
f nýútkomnu hefti af Natio-
nal Geographic Magazine er
löng og skemmtileg grein um
Sameinuðu þjóðirnar og einn
kafli hennar fjallar um þetta
vandamál. Blaðakonan Caro-
lyn Bennet Patterson hitti
einn af 55 túlkum SÞ og seg-
ist henni svo frá.
★ *
Þegar ég var viðstödd fund
stjórnmálanefndar allsherjar-
þingsins, þar sem Castrostjóm
in á Kúbu réðist á Bandarík-
in, hitti ég einn af túlkum
Sameinuðu þjóðanna, Ted Fag
an, í litla glerklefa hans við
einn hliðarvegginn.
Hr. Fagan, sem er kátur ag
ákaflyndur Argentínumaður á
fertugsaldri, sagði hvasst við
mig:
„Þegar forsetinn setur þing
ið, verðið þér að steinþegja.
Sérhvert hljóð úr þessuan
klefa verður útvarpað til fund
armanna, blaðamanna og
áheyrenda, sem hlusta á ensku
þýðinguna á spönskunni“.
Ég lofaði því. „En segið mér
fyrst“, spurði ég, „hvers vegna
túlkið þið samtímis og hvernig
farið þið að því?“
Sameinuðu þjóðirnar nota
fimm opinber tungumál út-
skýrði Fagan, frönsku, ensku,
rússnesku, spönsku og kín-
versku. Hvað sem fulltrúi seg
ir á einu þessara tungumála,
er þýtt svo að segja samstund
ist á fjögur önnur tungumál.
Ég spurði herra Fagan: „En
ef fulltrúinn talar ekkert
nema Swahili eða Urdu?“
„Þá getur hann ekki ávarp-
að þingið beint“, svaraði hann.
„Hann verður annað hvort að
láta þýða ræðuna sína á eitt-
hvert hinna fimm tungumála
eða leggja sjálfur til túlk“.
Áhorfendur og fulltrúar
hafa heyrnartæki og geta
stillt það á það tungumál, sem
þeir óska, á þar til gerðuim
tækjum í stólnum.
Herra Fagan, sem er einn af
hinum 55 geysigáfuðu túlkum,
sem hafa a. m. k. þrjú hinna
viðurkenndu tungumála á
Túlkur þýðir ræðu fulltrúa úr ensku á frönsku á fundi
stjómmálanefndar Allsherjarþingsins, sem haldinn var í
apríl s.l. til að ræða um Kúbu. Túlkurinn heitir Moni-
que de Gravelaine.
valdi sínu, hefur séræft sig
i að snúa spönsku á svipstundu
yfir í ensku.
„Á síðasta haustfundi 15.
allsherjar þingsins", sagði
hann, „hélt Castro þá lengstu
ræðu, sem haldin hefur verið
innan Sameinuðu þjóðanna.
Hún er líka sú lengsta, sem
ég hef túlkað. Hann talaði í
fjóra og hálfa klukkustund, án
þess að stanza, og hið sama
gerði ég“.
„Hvernig gaztu það?“ spurði
ég-
Hann brosti. „Ég er eins og
hin fræga þúsundfætla. Ef ég
stanzaði einhvern tíma til að
hugsa, mundi ég verða
klumsa'*.
Hann hélt áfram: „Við neyð
umst til að beita allri athygli
okkar að starfinu og auk þess
þurfum við að- hafa góða þekk
ingu á því efni, sem fulltrú-
arnir ræða um. Túlkar sem
voru ráðnir á ráðstefnuna um
friðsamlega notkun kjarnork-
unnar í Genf 1955, fóru á sex
mánaða námskeið í kjarneðlis
fræði til að undirbúa sig fyrir
ráðstefnuna.
Herra Fagan tók upp hrúgu
af blaðaúrklippum.
„Ég leitaði mér fræðslu um
Kúbu fyrir þetta þing. Fyrsti
ræðumaður í dag verður Dr.
Victor Andrés Belaúnde frá
Perú, sem var forseti 14. alls-
herjarþingsins. Hann er líkleg
ur að vitna í allt frá Biblíunni
til Spinoza eða Kerouac**.
Ég heyrði. högg forsetans,
og stuttu eftir heyrðist rödd
Dr. Belaúnde í gegnum heyrn
artæki mitt, þar sem hann
hélt ræðu á spönsku um
ástandið á Kúbu. Samstundis
byrjaði herra Fagan að tala
ensku, með hlýjum, drama
tískum raddblæ leikarans. Tal
hans virtist ósjálfrátt.
Dr. Belaúnda vottaði kú-
bönsku þjóðinni samúð sína.
Augu hans glömpuðu, þeg-
ar hann hrópaði „Con un cora
zón lleno de emoción**, og Fag
an þýddi á sama andartaki;
„Með hrærðu hjarta . . .*
Augu túlksins glömpuðu
eins og augu Belaúnde. Þegar
ræðumaður reiddi krepptan
hnefann, skók hinn hrað-
mælski Fagan hnefann einnig.
Hann tók þátt í hverri geðs-
hræringu ræðumannsins.
Hann var spegill ræðunnar á
öðru tungumáli.
Einu sinni vitnaði Dr. Bel-
únde til stofnskrár Samein-
ðuðu þjóðann. Herra Fagan
leitaði eftir skjalinu með ann
ari hendinni, án þess að hika
í túlkun sinni, kveikti sér í
sígarettu með hinni, og þegar
hann tók eftir að dautt var
í minni, kveikti hann á eld-
spýtu fyrir mig — allt á sama
andartakinu.
Þegar^ ég fór, skrifaði ég á
blað: „Ég er orðlaus af að-
dáun, en auðvitað verð ég að
vera orðlaus . . .“
Hann brosti og veifaði í
kveðjuskyni í miðri setningu.
— Við getum ekki ómakað okk-
nr út af svona smáræði — komið
með logandi sófann hingað og við
skulum slökkva í honum hér.
'| Skipadeild S.Í.S.: — Hvassafeli kem-
ur til Akureyrar á hád. í dag. — Arn-
arfell er á leið til Ostend. — Jökulfell
er á leið til Hvíkur. — Dísarfell er í
Higa. — Litlafell fer frá Rvík í dag
til Austfjarða. — Helgafell er í Len-
ingrad. — Hamrafell kemur til Rvíkur
á morgun.
Loftleiðir h.f.: — Föstudaginn 22.
sept. er Eiríkur rauði væntanlegur frá
N.Y. kl. 06:30. Fer til Luxemborgar kl.
08:00 og kemur til baka kl. 24:00.
Heldur áfram til N.Y. kl. 01:30. — I>or-
finnur karlsefni er væntanlegur frá
N.Y. kl. 09:00. Fer til Ösló, Kaupmh.
og Hamborgar kl. 10:00. — Leifur Ei-
ríksson er væntanlegur frá Stafangri
og Ösló kl. 23:00. Fer til N.Y. kl. 00:30.
H.f. Jöklar: — Langjökull er á leið
til Islands. — Vatnajökull fer frá Kefla
vík í dag áleiðis til* Vestmannaeyja.
Hafskip h.f.: — Laxá er á leið til
íslands.
Eimskipafélag íslands h.f.: — Brúar-
foss er á leið til N.Y. — Dettifoss er
á leið til Rvíkur. — Fjallfoss er á
leið til Ventspils. — Goðafoss er á
leið til N.Y. — Gullfoss er í Kaupmh.
— Lagarfoss fer frá Siglufirði í dag til
Austfjarða. — Reykjafoss fór frá Ölafs-
firði í gær til Eskifjarðar. — Selfoss
er á leið til Reykjavíkur. — Tröllafoss
er á leið til Belfast. — Tungufoss kom
til Reykjavíkur í morgun.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla er á leið til Stettin. — Askja
lestar á Norðurlandshöfnum.
Flugfélag íslands h.f.: — Hrímfaxi
fer til Glasg. og Kaupmh. kl. 08:00 í
dag. Væntanlegur aftur kl. 22:30 í
kvöld. Flugvélin fer til sömu staða kl.
08:00 í fyrramálið. — Gullfaxi fer til
Lundúna kl. 10:00 í dag. Væntanlegur
aftur kl. 23:30 í kvöld. Flugvélin fer
til Oslóar, Kaupmh. og Hamborgar kl.
10:00 í fyrramálið. — Innanlandsflug í
dag: Til Akureyrar (3), Fagurhólsmýr-
ar, Hornafjarðar, ísafjarðar, Kirkju-
bæjarklausturs og Vestmannaeyja (2).
— A morgun: Til Akureyrar (2), Egils
staða, Húsavíkur, isafjarðar, Sauðár-
króks, Skógasands og Vestmannaeyja
(2 ferðir).
Skipaútgerð ríkisins: — Hekla fer
frá Stavanger í kvöld áleiðis til Fær-
eyja og Reykjavíkur. — Esja fer frá
Reykjavík á morgun austur um land
í hringferð. — Herjólfur fer frá Rvík
kl. 21.00 í kvöld til Vestmannaeyja. —
Þyrill er á Norðurlandshöfnum. —
Skjaldbreið fer frá Rvík í kvöld til
Vestfjarða og Breiðafjarðarhafna. —
Herðubreið er á Austfjörðum á suð-
urleið.
Hugsa skalt, að harla valt er hjólið
allt.
Fögur er sjóhröktum fold.
Hér syndum við fiskarnir, sagði horn
sílið.
Hljóður er barnlaus bær.
Færri mundu illt •( faBwi
vildu á hlýða.
3ja herb. íbúð óskast Til leigu
til leigu nú þegar. Uppl. í sima 14965. upphitað húsnæði í jarð- hæð. — Sími 14528.
2ja—3ja herbergja íbúð Rennismiður
óskast til leigu í Keflavík eða Ytri-Njarðvík. Vin- samlegast hringið í sima 1360. sem getur tekið að sér verkstjórn á vélaverk- stæði óskast nú þegar. — Uppl í síma 14965.
Gott herbergi Ungur bóndi
með húsgögnum og síma til leigu að Miklubraut 1. Uppl. frá 8—9 í kvöld. óskar eftir ráðskonu. Má hafa með sér barn. Uppl. í síma 14392 eftir kl. 6.30.
Sem nýti Ráðskona óskast
Wilton gólfteppi. Stærð 3,65x4,50, til sölu. — Sími 15091. á gott sveitaheimili við Eyjafjörð. Upplýsingar í síma 35160 kl. 1—4.
Herbergi óskast í Laugarneshverfi. Uppl. í síma 22150. A T H U G I Ð að borið saman ð útbreiðslu er langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaðin u, en öðrum blöðum. —
Mý hljómsveit
Breytt husakynni
★ 7 manna hliómsveit Svavars Gests
Söngvarar:
'á' Helena Eyjólfsdóttir og
★ Ragnar Bjarnason
Kvöldverður framreiddur frá kl. 7
Fjölbreyttur matseðill
Borðið í Lido — Skemmtið ykkur í Lido
„AUSTIN SJÖ“
f jölskyldubifreiðin er langódýrasta bifreið-
in í dag, miðað við sína mörgu óvenjulegu
eiginleika.
Kraftmikil vél, 34 hestöfl, gerir bifreiðina
viðbragðsfljóta og mjög auðvelda í akstri.
Benzíneyðsla er sérstaklega lítil og hefur
komizt niður í 5V2 ltr. á 100 km.
Hvert hjól er sérstaklega fjaðrað með
gúmmíútbúnaði ásamt dempara er gerir
bifreiðina stöðuga í beygjum.
Verksmiðjuverð AUSTIN SJÖ er
kr. 34.115.— og útsöluverð áætlað
kr. 102.000,—
Sýnishornabifreið væntanleg til landsins
snemma í næsta mánuði.
Allar nánari upplýsingar hjá
Garðar Gíslason hf.
Bifreiðaverzlun — Sími 11506