Morgunblaðið - 22.09.1961, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 22. sept. 1961
ÚTGEFANDI:
WTSTJÓRAH: BIRGIR ÍSU GUNNARSSON OG ÓLAFUR EGILSSON
Borgara-
varnir á
Islandi
I>ar sem frásagnir í sambandi við
16. þing S.U.S. hafi setið í algjöru
fyrirrúmi hér á síðunni að undan-
förnu, hefur eftirfarandi grein orð-
ið að bíða birtingar óhæfilega lengi.
Er höf. beðinn velvirðingar á því.
MEÐ ÞÁTTTÖKU í Atlantshafs-
bandalaginu hafa íslendingar
igerst aðilar að þeim viðbúnaði
frjálsra þjóða heims, sem miðar
að því að koma á fót svo sterk-
um hervörnum, að heimsveldis-
sinnarnir í austri freistist ekki
til árásar. Jafnframt er okkur
séð fyrir þeim hervörnum, sem
nauðsynlegar eru, ef hinir
sovézku imiperialistar láta sér
ekki segjast.
Enda þótt öllum megi Ijóst vera
hvílíkar hörmungar ný heims-
styrjöld hefði í för með sér, verð-
ur ekki annað séð, eftir raunhæft
mat á ástandinu í Berlín, að hætt
an á styrjöld sé mjöig mikil,
vegna örvæntingarfullra og brjál
æðislegra aðgerða rússneskra kúg
unarafla í þeirri borg. Krúsjeff
virðist stefna heiminum hraðbyri
í áttina til styrjaldar, þrátt fyrir
allar tilraunir ábyrgra stjóm-
Frh. á bls. 17.
Endurskoða þarf
k]ör opin-
berra starfs-
manna
16. ÞING Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna ályktar, að brýna
nauðsyn beri til, að endurskoðun
fari fram á gildandi ákvæðum
um laun opinberra starfsmanna.
Bendir þingið á, að nú er svo
bomið, að fólk vantar til ýmissa
starfa, sem unnin eru á vegum
hins opinbera, og á það ekki sízt
við um störf, sem sérþekkingar
krefjast. Felst í þessu veruleg
hætta fyrir þjóðfélagið, sem af-
stýra verður með raunhæfum að-
igerðum hið fyrsta.
16. ÞING Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna fagnar hinum
merku áföngum til aukins frelsis
og meira jafnvægis í þjóðarbú-
skap Íslendinga, sem náðst hefur
með viðreisnaraðgerðum þeim,
sem núverandi ríkisstjórn hefur
beitt sér fyrir.
Viðreisnarstefnan boðar upp-
haf nýrri og betri tíma í atvinnu-
lífi landsmanna og mun skapa
styrkan grundvöll fyrir heilbrigð
um atvinnurekstri, ef þjóðin vill
taka á sig þær tímabundnu byrð-
ar, sem óhjákvæmilegar eru, þeg-
ar horfið er frá hinum gamla,
óhéilbrigða rekstrargrundvelli
styrkja og hafta.
Ungir Sjálfstæðismenn álíta, að
hin nýja efnahagsmálastefna sé
raunhæfasta leiðin til að tryggja
efnahagslegt sjálfstæði og vax-
andi almenna velmegun þjóðar-
innar um ókamna tíð, og hvetja
í fiskvinnslustöðvunum vinna margar hendur ótt og títt að framleiðslustörfunum.
Hin nýja efna hagsmálastefna
Raunhæíasta leiöin til aö tryggja einahags-
legt sjálfstæði og aimenna velmegun
*
Alyktun 16. þings 8.U.8. um efnahagsmál
þeir alla unga og þjóðholla fs-
lendinga til að fylkja sér um
þessa stefnu sjálfstæðis og atorku.
Þingið bendir á eftirfarandi at-
riði varðandi frekari uppbygg-
ingu íslenzks atvinnulífs:
1. Efnahagsleg velmegun isl.
þjóðarinnar byggist á aukinni
framleiðni, meiri framleiðslu
og útflutningi á framleiðslu-
vörum atvinnuveganna. Ber
því að leggja áherzlu á, að sér-
hver atvinnustarfsemi, sem
stefnir í þessa átt, sé efld frá
því, sem nú er, — meðal ann-
ars með jákvæðri stefnu í pen
ingamálum og fjármálum þjóð
arinnar. Treysta ber gengi ís-
lenzku krónunnar með því að
stuðla að jafnvægi í efnahags-
lífi landsmanna.
2. Þingið bendir á, að hagur al-
mennings verður því aðeins
tryggður, að hin fullkominustu
atvinnutæki séu notuð við
framleiðslustörfin. Tryggja
ber, að þáttur fjármagnsins í
Hraust handtök koma ser viðast vel
uppbyggingu atvinnuveganna
sé ekki vanmetinn og fyrir
borð borinn, svo sem átt hef-
ur sér stað á undanförnum ára
tugum. Þarf að vinna að því
að finna viðunandi lausn á,
hvert sé eðlilegt hlutfall milli
fjármagns og vinnuafls í verð
mætaskiptingu þjóðarbúsins.
Komið verði á í sem rík-ust-
um mæli ákvæðisvinnu og hlut
deildarfyrirkomulagi.
3. Breyta verður íslenzkri skatta
og útsvarslöggjöf á þann hátt,
að eðlileg og heilbrigð fjár-
magnsmyndun geti átt sér stað
hjá atvinnuvegunum á grund-
velli fullkomins jafnréttis
milli félagsforsia og atvinnu-
greina.
4. Brýn nauðsyn er, að hraðað
verði endurskoðun og samræm
ingu á íslenzkri tollalöggjöf og
tollar lækkaðir, m.a. með lækk
un vöruverðs fyrir augum.
5. Með tilliti til þýðingar er-
lends fjármagns í nútímaþjóð-
félagi, er aðkallandi, að íslend
ingar setji sér löggjöf um
stöðu og athafnasvið erlends
fjármagns í íslenzku atvinnu-
lífi, er geri þjóðinni kleift að
hagnýta möguleika á erlendu
einkafjármagni til nýrra átaka
í iðnvæðingu landsins.
6. Brýna nauðsyn ber til að af-
nema hið fyrsta aknenn verð-
lagsákvæði og verðlagseftirlit,
svo að hagkvæmni frjálsrar
samkeppni fái notið sín.
Sett verði löggjöf, er tryggi
frjálsa samkeppni og komi í
veg fyrir, að einstakir aðilar
eða hagsmunahópar geti náð
einokunarstöðu í viðskipta- og
atvinnulífi einstakra héraða
eða á ákveðnum viðskipta-
sviðum, eins og dæmi eru til.
Þingið fordæmir hina póli-
tísku misnotkun á Sambandi
íslenzkra samvinnufélaga í
verkföllunum á sl. vori, er
leiddi til óhjákvæmilegrar
gengislækkunar og verðhækk-
ana. Sú misnotkun er gjörsam
lega andstæð því hlutverki,
sem samvinnuhreyfingin hef-
ur að gegna í íslenzku þjóð-
félagi.
7. Draga verður verulega úr
rekstri og f járfestingu hins op-
inbera. Óeðlilega anikil ríkisaf-
skipti hafa lamað fram-
kvæmdaþrek þegnanna, og
ber brýna nauðsyn til að þau
verði takmörkuð, svo sem
unnt er, og dregið úr ofstjórn
í þjóðfélaginu. Framkvæmd
mála, sem nú eru á vegum rík-
isins, er oft betur borgið í
höndum einstaklinga eða
frjálsra samtaka þeirra, svo
sem á sviði markaðs- og rann-
sóknarmála í þágu atvinnu-
veganna. Sjálfsagt er að efla
undirstöðurannsóknir á vegum
hins opinbera, en hins vegar
ekki álitamál, að hagnýt rann-
sóknarstarfsemi í eigin rann-
sóknarstofnunum atvinnuveg-
anna hlýtur að verða árangurs
ríkari.
8. Tryggja ber, að launakjör sér-
menntaðra manna verði slík,
að það borgi sig fjárhagslega
að afla sér sérmenntunar, og
að háskólamenntaðir menn
neyðist ekki til þess að leita
sér atvinnu erlendis.
9. Þingið fagnar því, að rekstur
einkasala ríkisins hefur verið
bættur, og telur að stefna beri
að því, að starfsemi þessi
hverfi úr umsjón hins opin-
bera á þeim sviðuim, þar sera
ætla má, að einstaklingar og
fyrirtæki þeirra muni geta
annazt þennan rekstur á hag-
kvæman hátt.
10. Til þess að heilbrigt athafna-
líf geti þróazt, verða fyrir-
tæki ög framkvæmdamenn að
taka á sig fulla áhættu af starf
semi sinni. Því álítur þingið
að takmarka beri veitingu rík-
isábyrgða til muna.
16. þing S.U.S. leggur áherzlu
á þýðingu þess, að stefna Sjálf-
stæðisflokksins í efnahagsmálum
á hverjum tíma sé byggð á raun-
hæfu mati á þörfum og gildi fram
leiðslustarfseminnar í landinu.
Þá vill þingið leggja sérstaka
áherzlu á," að heilbrigð von um
arð og sköpun varanlegra verð-
mæta hvetur einstaklinga og fé-
lagsheildir til framkvæmda í rik-
ara mæli en allt annað.
Öryggi landsins bezt borgiÖ
með
aðild að NATO
16. þing SUS telur, að öryggi landsins i'é bezt borglð
með aðild okkar að varnarsamtökum vestrj, una þjóða í
Atlantshafsbandalaginu. — Inn á við er navðsynlegt að
styrkja framkvæmdavaldið svo, að það sé ætíð megnugt
þess að framfylgja ákvörðunum löggjafans. Minnir þingið
á, að þjóðin glataði sjálfstæði sínu til forna fyrir skort á
framkvæmdavaldi innanlands. Sjá verður til þess, að lög-
gæzlan á sjó og landi sé hverju sinni svo styrk, að hún
megi halda uppi lögum og rétti.