Morgunblaðið - 24.09.1961, Page 10

Morgunblaðið - 24.09.1961, Page 10
10 MORGVNBLAÐIÐ Sunnudagur 24. sept. 1061 m Sa Kvöld stund Á LEIÐ norður á Akureyri í haiust höfðum við stutta við- dvöl á Blönduósi. Þar voru auglýsingaspjöld á húsum og í verzlunargluggum xneð svo- felldri áletrun: „Lára Agústs- dóttir heldur skyggnilýsingar á Blönduósi í kvöld . . Hún er þá enn lifandi, hún Lára miðill, hugsaði ég, og fór strax að grennslast fyrir um, hvar hún byggi. Á Akureyri, sögðu þeir sem bezt þóttust vita. Málið virtist einfalt viður- eignar, því förinni var heitið til Akureyrar og var ég ákveð- inn í að hitta þar að máli þessa nafntoguðu konu. Þegar við ók um Kræklingahlíðina og sáium ljósin á Akureyri bliika fram- undan, móaði hvergi fyrir Vaðlaheiðinni, og ég fór að velta því fyrir mér, hvernig stæði á því að heiðin væri ekki á sínum stað. Hún var ekki þessleg síðast þegar við ókum hér um að hún mundi hverfa fyrirvaralaust. Við nánari at- hugun kom í ljós að heiðin var á sínum stað, hulin skýja- þykkni og þokuslæðingi og ég hugsaði með mér, að líklega ' hefði mér ekki dottið í hug að hún væri þarna, ef ég hefði ekki vitað af henni. Eins er um lífið eftir dauðann. Á Vaðlaheiði þeirrar eilífðar sem bíður okikar liggur hvít- ur þokumökkur, sem engir sjá í gegnum nema þeir sem ann- aðhvort eru kallaðir skyggn- ir eða hálfvitlausir. „Eg var oft kölluð stelpu- asninn í sveitinni fyrir aust- an, þar sem ég ólst upp“, sagði Lára Ágústsdóttir, þegar ég loks náði tali af henni viku síðar í Reykjavík. „Fyrir austan?" spurði ég. „Eg er fædd austur í Flóa og alin upp á Eystri-Hellum hjá móðurforeldrum mínum, Ingibjörgu Árnadóttur og Áma Símonarsyni, frá Halls túni í Holtum. Þau fluttust að Amarhóli í sömu sveit þegar ég var fimm eða sex ára. Eg skrapp austur fyrir skemmstu og mikil lifandis skelfing var gaman að sjá gömlu sporin. Mér þykir ákaflega vænt um sveitina mína, en fólkið þekki óg ekki lengur". „Munið þér eftir því þegar þér fluttust að Arnarhóli?" „Hvort ég man. Afi reiddi mig fyrir framan sig á hest- inum og það þótti ekkert smá- ræði í þá daga. Annars man ég lítið af því seon gerðist í lífi mínu fyrir flutningana, en svo fer að rofa til. Á Arnarhóli er mjög stór hellir, þar sem geymt var hey og var innangengt úr honum í fjósið. Annar lítill hellir var þar skammt frá, grafinn djúpt í jörðu. Á gaimlárskvöld þetta ár var ég ein heima hjá ömmu. Annað heimilisfólk hafði farið til aftansöngs í Gaulverjabæj- arkirkju. Eg var orðin allæs og amma lét mig lesa húslest- ur fyrir sig. Mér þótti það heldur leiðinlegt, en það var raunabót að ég átti von á dá- litlu sætabrauði að lestri lokn- um. „Haldið þér, að það verði stríð á næstu árum?“ „Eg held ekki að það verði styrjöld sem snertir ísland en samt er gott að gæta sín“. „Haldið þér, að þeir séu dá- litið pólitískir hinumegin?“ „Þeir eru það margir. Flest erum við lengi að losna við efnið og veraldleg áhrif eftir að við deyjum, en það er mis- jafnt. Lengi sagði ég, en það er ekki alveg rétt til orða tekið, því tíminn er óþekkt fyrirbrigði hinumegin. En svo eru þó nokkrir sem þroskast furðu fljótt og komast á æðri stig með lítilli fyrirhöfn. En það eru ekki allir heilagir sem kornnir eru yfnim, þó hitt sé víst: að algóður guð kastar engum á glæ. Hann sendir engan til vítis. Eina helvítið, sem til er getum við fimdið í okfcar eigin brjósti, það er hatrið, illskan. Og nóg af henni. Þess vegna þykir mér vænna um dýrin en mennina. Þó óg geti séð feigð á fólki og áruir þess, get ég ekki alltaf séð þess innra mann. Árumar eru margvíslega litar og þeg- ar þær eru í kringum fólk er það oftast góðir miðlar. Stundum eru þessar árur eins og slitur kringum líkamann og þá vantar eitthvað í karakter- inn. Það er algengara nú en áður, enda fer góðum miðlum fækkandi“. ,,Þér segist hafa verið skyggn sem barn, hvernig leið yður þá?“ „Ekki alltaf vel. Mér var talin trú um að ég væri veiklaður kjáni og var farin að trúa því. Þó gat ég lært Lúru miðli Skömmu eftir að ég hafði lokið við lesturinn, sendi amma mig út í fjós að sinna nýfæddum kálfi, sem þar var. Hann lá í bás í stóra hellin- um og þangað fór ég. Þegar ég var búin að gefa honum mjólkurskammtinn og var á leiðinni inn í húsið aftur, heyrði ég kallað hvellum rómi: „Æ, mamma, ætlarðu ekki að gefa mér að borða?“ Eg leit við en sá ekkert. Þá heyrði ég að hurð var opnuð, og enn var sagt: „Eg er svang- ur“. Þá var líkast því sem kona gengi til piltsins, sem kallaði og ég heyri hún segir við hann: „Vertu róleg-ur, væni minn“. Eg hljóp inn til ömmu, en það var lengi að veðrast fyrir mér, hvort ég ætti að segja henni frá þessu. Eg hafði séð ýmislegt er mér sagt og hegð- að mér undarlega, ekki sízt í boltaleik við ósýnilegar krakkaverur og heimilisfólk- ið farið að þúa miaijn eins og hund fyrir „kjaftæðið í stelp- unni“. Eg var víst hálfsmeyk, en samt ákvað ég að segja ömmu allt af létta. Þá sagði hún: „Farðu niður í fjósið aft- ur og kallaðu inn í hellinn, að öllum sem þar eru sé guð- velkomið að fá það sem þá langi helzt í úr búrinu mínu“. Það fengu fleiri sætabrauð þetta kvöld en ég. Þetta var í fyrsta skipti, sem ég sagði ömmu hug minn all- an af barnslegri einlægni og það gladdi mig, hversu vel hún tók mér. Eg átti góða ömmu en veit ekki um afa minn, hann skildi mig ekki eins vel“. „En þér haldið þetta hafi ekki verið misheyrn?“ „Nei, hví skyldi það hafa verið misheyrn? Eg hef aldrei þjáðst af misheyrn. Eg hef alla tíð heyrt og séð meira en ann- að fólk“. „Hvenær „sáuð“ þér fyrst?“ „Rúmu ári síðar eða svo. Eg var vön að leysa út kýrnar og gefa þeim að drekka úr dælu eða tjörn sem var kölluð Fjósadæla og var á túninu skammt frá bænum. Eitt sinn lagðist ég á hnén meðan kým- ar drukku og horfði á hornsil- in synda í vatninu. Þá sá ég allt í einu tvo fingur í vatn- inu, síðan fjóra Og loks fimm, svo birtist hönd, handlegg- ur og hvít kyrtilermi og kom upp á yfirborðið. Eg hafði ekki augun af henni, því gláp er mér í blóð borið, en fór svo heim, því mér skildist ég ætti ekki að vera lengur við tjöm- ina. Þetta var hönd ungs pilts, sem ég hef aldrei fengið að vita hver er, en hún er ekki langt undan núna, því ég sé hana hér á milli okkar. Nei, ég var hvorki hrædd né hissa, það hef ég sjaldan orðið. Eg reyndi að tala við fólkið um þessar sýnir en það vildi ekki hlusta". „En höndin?“ „Eg sé hana alltaf þegar ég byrja skyggnilýsingar. Þá er hún beint fyrir framan mig og bendir upp. Og hún slítur allt- af fundunum". „Svo hefur þetta samband við annan heim aukizt ár frá ári?“ „Já. Þó líkamnast ekki eins vel hjá mér og áður, því ég er orðin gömul kona, gömul Og slitin og þrotin að kröftum. Nú er mér líka meira sama um það en áður, hvernig allt velt- ist og hef ekki eins mikla löng- un til að sannfæra fólk og áður var. En sumt af því sem ég hef sagt fyrir á íundum verður kannski minnisstætt, þegar í nauðirnar rekur, það kemur að eins Og hver annar. En ég var heimóttarleg. Þegar gest bar að garði, fór ég jafnan í felur. Amma var alltaf góð við mig en heiimilisfólkið .sagði: „Stelpan er hálfvitlaus, það er ekki normalt hvernig hún lætur. Það verður að fara mcð hana út á Eyrarbakka." En ég hypjaði mig samt til þroska, og þegar ég var fjórt- án ára fór ég alfarin að heim- an með tíu krónur í vasanum fy/ir lambið sem afi gaf mér í íermingargjöf. En ég fór ekki til Eyrarbakka, heldur í kaupavinnu að Kílhrauni á Skeiðum. Þar leið mér vel og var farin að taka lífinu svo- lítið létt, þegar ég kom til Reykjavíkur 1915, sextán ára gömul. Þar sá ég í blaði, að auglýst var eftir „eftirmið- dagsstúlku". Ég sótti um starf- ið og svo einkennilega vildi til, að það voru engin önnur en frú Gíslína Og Einar H. Kvaran, sem höfðu auglýst eftir stúlkunni. Ég réði mig til þeirra og var hjá þeim um vet- urinn. Þar sótti ég fyrsta skipti miðilsfund, sem ísleifur Jóns- son stjórnaði. Ég komst í ástand eða hvað á ég að segja, féll í trans á fundinum. Ég sat í myrkrinu milli frú Gísl- ínu og Einars. Þá stendur ís- leifur allt í einu upp, gengur beint til mín með framrétt- ar hendur og það síðasta sem hann sagði áður en ég sofnaði var þetta: „Hér er góður mið- ill!“ Ég vaknaði ekki fyrr en þau höfðu borið mig inn í skrifstofu skáldsins. Eftir það hélt ég nokkra fundi á heim- ilinu án þess nokkrum dytti í hug svik af minni hálfu. Þarna var þó merkara fólk og lífsspakara en margir þeirra, sem ég hef kynnzt síðar í líf- inu. því“. Eitt sinn fékk Einar Kvar- an bréf frá Kanada. Áður en hann opnaði það, kom hann til mín og sagði: „Hvað heldur þú nú, Lára mín, að sé í þessu bréfi?“ Ég hló og sagði: „Hvað ætli ég viti um það?“ „Taktu á því,“ sagði hann. Það gerði ég og las fyrir hann efni bréfs- ins og lýsti fyrir honum tveim- ur myndum, sem í því voru. Þá sagði hann: „Nú er bezt ég opni bréfið Og athugi hvað í því er.“ Svo kallaði hann á konu sína, opnaði bréfið í hennar viðurvist og þá kom í ljós, að ég hafði rétt fyrir mér í öllum aðalatriðum. Það kom mér á óvart og varð ég hálf- hissa, því ég vissi ekki hvað- an mér kom þessi kraftur. Og nú spyr ég yður: hvað er þetta?“ „En þér hafið samt verið með annan fótinn í þessum heimi, er það ekki?“ „Ætli ég hafi ekki oftast verið með báða fætur hér.“ „Og voruð byrjaðar að líta í kringum yður?“ „Já-já, ég hef alltaf haft lag á að líta vel í kringum mig. En ekkert sá ég eins fallegt og blómin og sólina og öll fallegu listaverkin, sem voru sköpuð fyrir hans kraft, sem við köllum guð almáttugan. En það er eins og þessi kraft- ur fari dvínandi upp á síð- kastið og ég held að listinni sé líka að fara aftur. Menn upp- skera eins og þeir sá.“ „Þér hafið kunnað vel við yður í Reykjavík?“ „Sæmilega. En samt réði ég mig í kaupavinnu að Stóru- Seyluí Skagafirði og fórþang að með vinkonu minni, Borg- hildi Sigurðardóttur, sem nú er ‘ dáin. Eg hafði hug á að skoða heiminn. Og allir sögðu að Skagafjörðurinn væri svo fallegur. Þar var ég hálftann- að ár. Það var ekki út af nein- um strák, mér leið bara vel þar og gat farið á böllin og . hlustað á falleg lög. Það var munur eða vera kölluð hálf- vitlaus sýknt og heilagt, eins og fyrir austan. Ég hef alltaf verið talsvert glysgjörn og glöð í góðum hópi, en ekki útsláttarsöm. Stundum hef ég verið í söngkórum og meira að segja tekið undir hjá Páli ísólfssyni. Ég er eftirsótt og fólk býður mér heim upp úr þurru en oftast hef ég orðið fyrir vonbrigðum af slíkum heimboðum, því ég er ekki fyrr komin inn úr dyrunum en sagt er: „Jæja, hvað sérðu hjá mér?“ Stundum var sagt í gamla daga að ég stæði fyr- ir drykkjuskap vegna þess e.ns að fólkið söng á fund- um hjá mér. „Guð almáttugur hvað það er mikið fyllirí hjá henni Láru!“ sagði það. En Reykjavík var eins og segull og þangað fór ég aftur til þess eins að kynnast manni og verða óhamingjusöm. En bezt að fara ekki að fáta í því máli núna. Þar settu þeir líka á svið nokkrum árum síð- ar sjónarspil sem miðaði að því að gera mig svikara. 111 rök knúðu mig til að leika að- alhlutverkið í þeim harmleik án þess ég hefði til þess unnið. örvita og yfirgefin eins og ég var hefði ég getað játað á mig mannsmorð. Það er eins og sumt fólk geti ekki hugs- að sér framhaldslíf án þess að blanda því saman við tusk- ur, en látum það vera. Eitt sinn þegar fullyrt var í eyru Jakobs Smára að líkamning- arnir væru ekki annað en slæð ur heyrði ég hann segja: „Ég ætla að láta yður vita að það fólk sem ég hef séð líkamn- ast hér eru engar tuskur.“ En nú er þetta allt liðið og ég er gift góðum manni sem vill mér vel. Framhald á bls. 23 1 I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.