Morgunblaðið - 27.09.1961, Qupperneq 12
12
MORGVTS BLAÐIÐ
Miðivkudagur 27. sept. 1961
Cftgeíandi: H.f Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar; Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, simi 33045.
• Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: 'lðalstræti 6.
Auglýsingar og avgreiðsla: A.ðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
HÆTTAN AF HELRYKI RÚSSA
k ÖÐRUM stað í blaðinu í
dag er birt forystugrein
úr bandaríska stórblaðinu
New ~ York Times, þar sem
beflt er á, hve hættulegar
kj arnorkusprengj utilraunir
Rússa eru öllum þjóðum
heims. Blaðið segir m. a.:
„Tvö þýðingarmestu geisla-
virku efnin strontium 90 og
^kolefni 14 safnast saman og
dreifast ekki jafnt um allan
heim. Á svæðum þar sem
mikið rignir getur samdrátt-
ur þessara tveggja efna ver-
ið hundraðfaldur á við svæði
þar sem sjaldan rignir“. —
Þessi ábending blaðsins ætti
að vera mjög til athugunar
fyrir okkur Islendinga, þó
staðreyndir þessa máls hafi
ekki enn ýtt við hinni sjálf-
umglöðu „friðarhreyfingu“,
sem hér starfar á vegum
kommúnistaflokksins.
Tilraunir Rússa með kjam
orkusprengjur í gufuhvolf-
inu hafa sætt mikilli gagn-
rýni um heim allan og orðið
Sovétstjórninni til álitshnekk
is víða um lönd. En Rússar
þverskallast við öllum kröf-
um um að hætta þessum til-
raunum. Þegar leiðtogar
Vesturveldanna stungu upp
á því við Krúsjeff fyrir
skömmu að tilraunir með
kjarnorkusprengjur í gufu-
hvolfinu yrðu bannaðar,
spottaði Krúsjeff tillöguna
og kallaði hana áróður. Þann
ig leika Rússar sér að eld-
inum, ef þeir telja það nauð-
synlegt fyrir áform sín um
heimsyfirráð kommúnism-
ans. Jafnvel sú staðreynd,
sem New York Times bendir
á, að margir muni fá bein-
krabba og hvítblæði vegna
þeirra tilrauna, sem Rússar
eru nú að gera, virðist eng-
in áhrif hafa á leiðtoga Sovét
ríkjanna. Markmið þeirra er
eitt, og að því skulu þeir
stefna á hverju sem veltur.
Með þetta í huga eru orð
Kennedys Bandaríkjaforseta
í ræðu þeirri, sem hann flutti
í fyrradag á Allsherjarþing-
inu, hin athyglisverðustu, og
eiga erindi við allar þjóðir.
Forsetinn sagði: „Vopnum
stríðsins verður að eyð«a, áð-
ur en þau eyða okkur.“ —
Hann benti ennfremur á, að
ekki mætti lengur láta
áróðurinn um almenna
og fullkomna afvopnun
hindra það, að fyrsta skrefið
í áttina til afvopnunar verði
stigið. Sem kunnugt er, hef-
ur Krúsjeff hamrað á því í
ræðum sínum að engin á-
stæða sé til að hætta kjarn-
orkusprengjutilraunum, held-
ur þurfi að koma á allsherj-
arafvopnun. Um það eru all-
ir sammála, en slíkt spor
verður ekki stigið í einu vet-
vangi. Það er því rétt, sem
forseti Bandaríkjanna bend-
ir á, að nauðsynlegt sé nú
þegar að stíga fyrsta skrefið
til afvopnunar, þ.e. að banna
kjarnorkuvopn og tilraunir
með þau.
Kennedy Bandaríkjafor-
seti lagði ennfremur fram
tillögur í sex liðum um
bann við kjamorkusprengju-
tilraunum og hvernig ætti
að framkvæma það. Eru til-
lögur þessar hinar merk-
ustu, en þar er m. a. gert
ráð fyrir því að allar þjóðir
undirskrifi samning um
stöðvun tilrauna með kjarn-
orkuvopn og megi gera það
áður en viðræður hefjist um
allsherjarafvopnun. Þá verði
bönnuð framleiðsla kjarna-
kleifra efna til smíði kjarn-
orkuvopna, bann verði sett
við afhendingu kjarnorku-
vopna til þeirra ríkja, sem
ekk# framleiða slík vopn
sjálf, öllum birgðum kjarn-
orkuvopna verði smám sam-
an eytt og þau efni, sem
þannig fást til ráðstöfunar
verði hagnýtt í friðsamleg-
um tilgangi og loks verði
bannað að framleiða eld-
flaugar, sem flytja eiga
kjarnorkusprengjur. — Má
segja, að ekki sé seinna
vænna að tillögur um þessi
atrið>i komi fram og ber að
fagna þeim.
DÝR FRIÐUR
17 o r s e t i Bandaríkjanna
ræddi m. a. um Berlínar-
vandamálið, sem að allra
dómi er friðnum einna hættu
legast um þessar mundir. —
Hann sagð»i m. a.:
„Engin fullkomin lausn er
sjáanleg. Það er ljóst, að
með mannafla og vopnum
má um tíma sundra þjóð,
sem vill sameinast, burt séð
frá því hve hyggileg slík
stefna væri. En við trúum
því að unnt sé að finna frið-
samlega lausn, sem tryggi
frelsi Vestur-Berlínar og ör-
yggi álfunnar".
Auðvitað er nauðsynlegt
að finna lausn á þessu
vandamáli, en ekki má hún
verða á kostnað þeirra hug-
sjóna, sem lýðræðisríkin
berjast fyrir og eru staðráð-
in í , að slá skjaldborg um,
hvort sem kommúnistum
líkar betur eða verr. Það eru
ekki þau sem hafa blásið í
herlúðra í Berlín, heldur
kommúnistar, og því er það
mála sannast, sem forseti
Bandaríkjanna sagði í fyrr-
Gleymdi
unnustunni
var kærustuparið í sumarfrli.
Romy var í sjóunda himni,
þau hjúin syntu í Miðjarðar-
hafinu óg drukku kaffi í veit-
ingahúsum.
1 næturklúbb í Róm söng og
dansaði Katy O’Brian og þar
hitti Alain hana fyrst. Nætur-
klúbburinn heitir franska
nafninu „Chez nous“ og þar
er pilturinn nú fastagestur.
Katy O’Brian er oft kölluð
B.B.B., sem er skammstöfun á
„Black Birgitte Bardot“.
En Romy er kjarkmikil
stúlka Og brast ekki í grát,
þegar trúlofun hennar fór út
um þúfur. Hún sagði aðeins:
„Alain mun koma til mín aft-
ur — eins og alltaf.“
Ulbricht
í Moskvu?
LANGAR trúlofanir kunna
ekki góðri lukku að stýra, það
hefur þýzka kvikmynda-
stjarnan Romy Schneider
sannreynt. f fjögur ár hefur
hún verið trúlofuð Alain
nokkrum Delon, tvö ár leyni-
lega Og tvö ár opinberlega. En
kóttur komst í ból bjarnar,
Langleggjuð, kaffibrún dans-
mær, Katy O’Brian að nafni,
töfraði svo Alain, að hann
gleymdi Romy sinni og trúlof-
unin leystist upp.
Trúlofun þeirra Romy og
Alin hefur af öllum verið tal-
ín til fyrirmyndar; Romy hef-
ur setið og búið sig undir brúð
kaupið og engin hliðarstökk
Itkið, eins og svo títt er um
kvikmyndaleikara. Og Alain
hetur og til þessa næstum því
haldið sér á mottunni.
Pegar ósköpin dundu yfir
Moskva, 25. sept.
(NTB-AFP)
ORÐRÓMUR var á kreiki hér í
Moskvu í dag um að austur-
þýzki kommúnistaleiðtoginn
Walter Ulbricht væri kominn til
borgarinnar og færi fyrir fjöl-
mennri sendinefnd lands síns.
Ekki vildu þó austur-þýzkir að-
iljar hér staðfesta, að svo væri.
Meðal stjórnmálafréttaritara
var álitið, að ef fréttin um komu
Ulbrichts væri rétt, væru líkindi
til, að heimsóknin stæði í sam-
bandi við undirbúning að sovézk-
um friðarsamningi við Austur-
Þýzkaland, sem Krúsjeff hefur
margsinnis lýst yfir, að gerður
verði fyrir áramót, ef samkomu-
lag hafi þá ekki náðst við Vest-
urveldin. -
Romy og Alain a kaffihusi í Rom, þar sem þau voru í frii.
nefndri ræðu: „Ef þeir sem
skapað hafa þetta vandamál
kjósa frið, mun friður ætíð
ríkja í Berlín“, sagði hann.
Ef kommúnistar vilja frið
í Berlín, mun friður hald-
ast. En frið, sem hefur í för
með sér afsal mannréttinda,
frið, sem stuðlar að undir-
okun fleiri þjóða, frið, sem
tryggir ofbeldinu völd á
ekki að kaupa neinu verði.
Sameinuðu þjóðirnar eiga að
standa vörð um frið, sem
tryggir öllum þjóðum frelsi
og lýðræði. í áróðri sínum
hafa kommúnistar krafizt
þess, að sjálfsákvörðunarrétt-
ur þjóða sé í heiðri hafðill’
alls staðar þar, sem þeir
hafa ekki tögl og hagldir,
eins og í Afríkuríkjunum.
Auðvitað er það rétt að
virða ber sjálfsákvörðunar-
rétt þjóða. En mundi ekki
vera ástæða til að virða
einnig þann rétt, sem Rússar
hafa tekið af þjóðum Aust-
uiv-Evrópu? Það er m. a.
hlutverk Sameinuðu þjóð-
anna að afhjúpa þennan
svikaáróður alheimskommún
ismans, sem sum svonefnd
hlutlaus ríki hafa, af ótta við
hótanir kommúnista, látið
viðgangast.
1 i
Vopnaskak
í austri
MOSKVA, 25. sept. — (AP-
NTB-Reuter). — Aðildarríki
Vars j árbandalagsins munu
efna til sameiginlegra heræf-
inga í október og nóvember
næstkomandi, tilkynnti Tass-
fréttastofan hér í dag. Heræf-
ingar þessar, sem taka til bæði
landhers, flughers og flota,
mjunu verða háðar á yfirráða-
svæði bandalagsins. Er tiigang
ur þeirra sagður vera sá, að
leiða í ljós, hver árangur hafi
náðst í æfinguim á þessu ári.
í Varsjárbandalaginu enu auk
Sovétveldisins, eftir talin
fylgiríki þess: Austur-Þýzka-
land, Pólland, Tékkóslóvakía,
Albanía, Búlgaría, Umgverja-
land og Rúmenía.