Morgunblaðið - 27.09.1961, Side 21

Morgunblaðið - 27.09.1961, Side 21
Miðivkudagur 27. sept. 1961 MORGZJNBLAÐIÐ 21 — Afmæli Framh. af bls. 17. búrekstri og hefur stundað hann síðan síðustu árin aðallega hænsnarækt og sauðfjárrækt með. Ennþá heldur hann búrekstr inum í fullum gangí og starfar einn að honum. Hann hefur alla tíð verið mikill starfsmaður og ennþá virðist starfsþrekið vera óbilað og hann ótrúlega lítið far- inn að þreytast. Ólafur ræktaði 5 ha tún á Hvaleyrarholti við erfiðar aðstæð ur. Þar hefur hann aflað hey- skapar síðustu áratugina, en nú er tekið af því árlega undir hús og götur í nýju bæjarhverfi sem þar er að rísa. Vegna erfiðra aðstæðna til hey öflunar fyrr á árum meðan rækt- unarframkvæmdirnar á Hvaleyr- arhoiti stóðu yfir sótti hann hey- feng sinn austur í sveitir allt aust ur í Rangárvallasýslu og má nærri geta að til þess hefur þurft xnikið þrek og dugnað. Eins og sjá má á því, sem sagt heíur verið hér að framan um störf og umsvif Ólafs, hefur hann íyrst og fremst einbeitt sér að þeim störfum sem hann hefur byggt lífsafkomu sína á, enda giöggur á fjármál og alltaf komizt vel af. Hann hefur fast mótaðar skoðanir á þjóðmálum öllum, en ilikar þeim ekki nema við vini sma. Hann telur að starf bónd- ans sé það erfitt og útheimti svo mikla ástundun, að bændur hafi iítinn tíma til að geta sig að öðr- um málum ef búreksturinn á að vera rekinn á öruggum grund- veili. Ólafur ‘er maður greindur Og glöggur á menn og málefni, fastur fyrir og lætur ógjarnan hlut sinn hver, sem í hlut á. Hann er hlé- drægur maður og lítið fyrir að láta á sér bera, telur bezt fara á því að hver búi sem mest að sínu. Þrátt fyrir hlédrægni sína og vjnnusemi hefur hann alltaf látið iandbúnaðarmál og skipulagsmál bændastéttarinnar til sín taka og ekki komizt hjá því að gegna írúnaðarstörfum fyrir þau sam- tök. Hann var einn af frumkvöðl- um að stofnun mjólkurbús Hafn- arfjarðar 1936 og stjórnarformað- ur þar til það hætti störfum, hef- ur setið í stjórn Búnaðarfélags Hafnarfjarðar Og verið fulltrúi á þingum Búnaðarsambands Kjalar nessþings um 30 ára skeið. Full- trúi Hafnarfjarðar í Mjólkurfé- lagi Reykjavíkur frá stofnun Hafnarfjarðardeildar félagsins, og í stjórn Fjáreigendafélags Hafn- arfjarðar í mörg ár. Ólafur er prúður maður í um- gengni, óáleitinn og fordæmalaus, vel látinn af þeim, sem hann þekkja og traustur vinur vina sinna. Margir munu verða til þess að þrýsta hendi þessa yfirlætislausa alþýðu manns, og senda honum kveðju á þessum merkisdegi í lífi hans. Ég þakka honum öll okkar kynni og óska honum allra heilla með von um að hann megi sem lengst ganga heill til starfa af sama eldmóði og atorku og hann gerir nú. — Jón Bj. Uænsnakjötsúpa með miklu af grænmeti! Það eru aðeins bragðgóðir kjúkl- ingar í Blá Bánd Hænsnakjöt- súpu, og hið dásamlega sumar- grænmeti gefur súpunni þetta hátíðlega og ljúffenga bragð, sem tilheyrir góðri heimatilbúinni súpu. Kaupið hana í dag. Þér megið trúa, að f jölskyldan mun njóta hennar! Reynið einnig: Blá Bánd Tómat- súpu, Júlíönnusúpu, Kaliforn- íska ávaxtasúpu, Aspargussúpu og Blómkálssúpu. Allar Blá Bánd súpur geymast næstum því ótak- markað, meðan pokinn er óupp- tekinn. Þetta er yndislegur mat- ur til að eiga á heimilinu. Blá Bánd er góður matur. bla b anö HVÍ LDARSTOLLI N N er bezti hvíldarstóllínn á heimsmqrkadnum. Þad má stillá hann í þá stöðu, sem hverjum héntar bezt, en auk þess nota hann sem venjulegan ruggu- stól. SKÚIASON &. JÓNSSON Laugaveg 62 Sími 36 503 Dugleg stúlka óskast nú þegar í eldhúsið. Upplýsingar gefur ráðskonan. Elli- og húkrunarheimilið Grund. Suðubeygjur nýkomnar í stærðum %” til 6”. VATNSVIRKINN H. F. Skipholti 1 — Sími 19562. Atvinna Nokkrir laghentir verkamenn geta fengið fasta atvinnu. H/F sími 24406. IAND- -ROVER LAND-ROVER áieselbifreið verður til sýnis í dag að Hverfisgötu 103 — Heildverzlunin HEKLA LANDj* «-ROVER

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.