Morgunblaðið - 14.10.1961, Síða 2

Morgunblaðið - 14.10.1961, Síða 2
2 MORGUNBLAÐlb Laugardagur 14. okt. 1961 Ríkishandbók Islands komin út NytsÖm handbök um margvísleg efni ÚT ER komin „Ríkishand- bók íslands“ — og hefur hún að geyma urmul af alls kyns upplýsingum, sem eins og nafnið bendir til snerta einkum ríkið og hinar ýmsu stofnanir þess. Ritstjórar og útgefendur bók- arinnar eru þeir Birgir Thorla- cius ráðuneytisstjóri og Hendrik Sv. Bjömsson sendiherra, en auk þeirra hafa stjórnarráðsfulltrúar Arni Gunnarsson og Sigurður J. Briem unnið mikið starf við bók- ina, að því er í formála segir. Þar er einnig drepið á, að hlið- stæðar bækur en þó um margt ólíkar hafi verið gefnar út tví- vegis áður hér á landi, af Hag- stofu Islands árið 1917; tók dr. Þorsteinn Þorsteinsson þá bók saman; og þeim Agnari Kl. Jóns syni, ráðuneytisstjóra, og dr. Gunnlaugi Þórðarsyni, stjómar- ráðsfultrúa, fyrir rúmum ára- tug. Fróðleg bók. Meginefni bókarinnar er ann- flrs sem hér segir: Stjórnarskrá- in, Forseti Islands, Ríkisráð, Al- þingi, Hæstiréttur, Alþjóða- stofnanir sem ísland er aðili að, Fulltrúar erlendra ríkja hér, Fulltrúar Islands erlendis; Skrá um ráðherra og ráðuneyti frá Með ýsu og kola til Bretlands Akranesi, 13. okt. TOGARINN Víkingur kom hing- að af heimamiðum eftir 2ja vikna útivist með 130 tonna afla, sem nær eingöngu er ýsa. Svo vel vildi tU, að dragnótabátarnir hér hafa aflað 2—3 síðustu daga sam tals 5 tonn af skarkola (rauð- sprettu). Var því skipað um borð í togarann í 30 punda kössum, prýðilega vel ísuðu og frágengnu að öllu leyti. Togarinn sigldi svo til Bretlands, og er búizt við að hann selji í Hull á miðvikudag. Hringnótabátarnir Haraldur og Skírnir fóru út í dag að leita síld ar. í gær sköruðu tveir fram úr um aflamagn, Böðvar fékk rúm 8 tonn og Reynir rúm 7 tonn. Mikill hluti afla þeirra var háf- ur. Hann er flakaður og hrað- frystur. — Engir línubátar voru á sjó í dag, en tvær trillur, sem fiskuðu 400—500 kíló hvor. — 1904, Auglýsing um skipun og skipting starfa ráðherra. Stjórn- arráðið, Kirkjumál, Menntamál, Heilbrigðismál, Héraðsdómarar, löggæzla, tollgæzla o. fl. Bank- ar, Ymsar ríkisstofnanir, Opin- berar nefndir, Fálkaorðan og önn ur heiðursmerki, Lög um þjóð- fánann, Forsetaúrskurðir um fánadaga, skjaldarmerkið, fána og merki forseta, Félagaskrá o. fl. Loks eru í bókinni litmyndir af þjóðfánanum, ríkisskjaldar- merkinu, fána og merki forseta Islands og hinum ýmsu stigum Fálkaorðunnar. Eins og upptalning þessi ber með sér er í bókinni að finna ógrynni af fróðleik, sem tafsamt er að safna saman og því ómet- anlegt að haíp við hendina skipulega flokkaðan innan tveggja spjalda. Meðal þess, sem útgefendur hafa lagt mikla á- herzlu á, er að fá með í bókina nöfn sem flestra starfsmanna ríkisins og hefur sú upptalning því ekki verið takmörkuð við tiltekna launaflokka eins og áð- ur. Lítið upplag — 400 kr. eintakið. Bókaútgáfa Menningarsjóðs hefur aðalútsölu bókarinnar og var framkvæmdastjórinn, Gils Guðmundsson, meðal viðstaddra á blaðamannafundi, sem aðstand endur Ríkishandbókarinnar héldu síðdegis í gær. Skýrði hann frá því, að þar sem upplag bók- arinnar væri aðeins 500 eintök, yrði ekki unnt að senda bók- sölum hana i umboðssölu — heldur aðeins gegn staðgreiðslu. I útsölu mun bókin kosta kr. 400 eintakið. Áformað er að gefa bókina út aftur endurnýjaða sem allra fyrst — og helzt ár- lega framvegis. Þetta er fyrsti íslenzki kalkúnrinn, sem framreiddur hefur ver- ið í íslenzku veitingahúsi, Hann var 15 kg að þyngd og hafn- firzkur að ætt. IMý söngkona í Klúbbnum Á FUNDI með fréttamönnum í gær kynnti Klúbburinn nýja söngkonu, Margrétu Calva, sem syngja mun þar næsta hálfan annan mánuð. Hún er Þjóðverji og hefur m. a. sungið í Berlínar- útvarpið. Aðallega mun söngkon an syngja Þýzk lög en einnig nokkur ensk og frönsk; síðar mun ætlunin að hún syngi á ís- lenzku. Jafnframt hefur harmon ikkuleikarinn Grettir Björnsson tekið við hljómsveitarstjórn uppi, en hann er nýkominn frá Bandaríkjunum; niðri leikur NEO-tríóið sem fyrr. Þá er það og nýlunda, að í Klúbbnum var fyrir skömmu framreiddur fyrsti íslenzki kalk- úninn, og munu gestir hér eftir geta fengið kalkúnasteik ef þeir óska. Þá létu forráðamenn Klúbbsins þess getið, að ítalski salurinn, sé leigður félagssam- tökum og öðrum eftir vild til fundarhalda og annars, en hann er mjög hentugur til slíkra hluta og hægt að skilja hann frá eftir vild. Þá létu þeir þess getið, að ekkert vandamál væri af ungling Gjöld fyrir þjónustu ákveðin í reglugerð FRUMVARP um breyting á lög- aða þjónustu. sem nánar er til- greind í frumv. og nú eru ákveð in í lögum um aukatekjur ríkis- sjóðs, skuli framvegis ákveðin með reglugerð er ráðherra setur. Er það sami háttur og nú tíðk- um nr. 17/1948 um skráningu skipa, og lögum nr. 40/1954 um aukatekjur ríkissjóðs var til 1. umræðu á fundi Efri deildar Al- þingis í gær. Gerði fjármálaráð- herra, Gunnar Thoroddsen, grein fyrir áformuðum breytingum. Snýst frumvarpið um það, að gjöld fyrir afrit af skrásetning- arskírteinum skipa og aðra svíp- Fyrirspurn til Asgeirs Hjaitarsonar, leikgagn- rýnanda Þjóðviljans 1 LEIKDÓMI Asg. Hjartarsonar um ,Strompleik“ Halldórs Lax-, ness stendur eftirfarandi: „Skáld ið skeytir engu um arfgengar venjur í leikritun og gengur hik- laust eigin slóðir og má telja til lofs eða lasts að vild“ Það væri fróðlegt að vita hvað gagnrýnandanum sjálf- um finnst, eða er hann kannski að velta spurningunni fyrir sér? Væri t. d. hægt að telja það til lofs, ef höfund- ur færi ekki sínar eigin slóðir? Ennfremur stendur: Hansen gamli var ætlaður Lárusi Páls- syni og þarf ekki að efa að fín- leg og sannmannleg kímni hans hefði notið sín ágæta vel í hlut- verki þessa olnbogabarns.. “ Nú spyr undirritaður: Hvernig er hægt að segja fyrir um, hvern ig leikari hefði skilað hlutverki, sem hann hefur ekki tekið að sér? Á fundi um leikgagnrýni sem haldinn var í listamannaklúbbn- um fyrir nokkrum árum stóð Ásgeir Hjartarson upp og lýsti því yfir í heyranda hljóði, að hann og gagnrýnendur yfirleitt hefðu sáralitið vit á leiklist. Per- sónulega sagðist hann hafa tekið að sér leikgagnrýni, af því skort- ur væri á hæfum mönnum í starf ið. Vonandi færi þetta að breyt- ast og þá væri eðlilegt að nýir menn tækju við. Ég er Ásgeiri Hjartarsyni alveg sammála. Og þá er spurningin: Hvenær má vænta þessarar breytingar? Með fyrirfram þökk fyrir birtinguna. ✓ Guðmundur Steinsson. P.S. Fyrirspurn þessa neitaði Magnús Kjartansson, ritstjóri að birta í Þjóðviljanum á þeim forsendum, að Ásgeir Hjartarson stæði jafnfætis fremstu leik- gagnrýnendum á Norðurlöndum, og ofangreind fyrirspurn byggð- ist á misskilningi undirritaðs! G. S. ast um gjöld, sem greiða ber fyr- ir skoðun skipa. Olafur Jóhannesson kvaddi sér hljóðs að máli ráðherra loknu og kvaðst álíta það skakka stefnu, sem í frumvarpinu fælist, að taka ákvörðun gjalda úr lögum og fela hana framkvæmdavaldshafa, enda þótt slíks væru mýmörg dæmi. Einnig sagði hann, að taka þyrfti til ítarlegrar endurskoð- unar lög nr. 40/1954 um auka- tekjur ríkissjóðs, þar sem þau væru úrelt orðin. Gunnar Thoroddsen, fjármála ráðherra, tók til máls aftur. Kvaðst hann telja athugasemd Ol. J. rétta. að því er snertir skatta og tolla, sem í samræmi við stjórnarskrána bæri að ákveða með lögum. Hér væri hins vegar um að ræða gjöld fyrir þjónustu. Um þau gegndi öðru máli — og væri það skoð- un sín, að athugasemdin ætti þar ekki við. Fleiri kvöddu sér ekki hljóðs og var frumvarpinu að svo búnu vísað til 2. urnræðu og fjárhags- nefndar. Flugvél rakst á Seúl, Suður-Kóreu, 13. okt. (NTB-Reuter) FIMM manns biðu bana og átta særðust er flugvél rakst á eim- vagn í dag. í flugvélinni, sem var flutningavél frá hemum, voru fimmtán manns og vom hinir látnu og særðu allir úr þeim hópi. Farþega lestarinnar sakaði ekki. um í Klúbbnum vegna þess, 5ð unglingar sæktu ekki þann stað. Keppni meðal skátaflokka ANNAN nóvember næstkomandi verða liðin 49 ár, frá því að skátahreyfingin kom til Islands. Þann dag mim hefjast keppni milli skáta á Islandi um titilinn: „Bezti skátaflokkur á Islandi skátaárið 1962“. Þátttökutilkynn ingar fyrir keppni þessa eiga að póstleggjast í síðasta lagi n. k. laugardag. Takmarkið er, að helzt allir skátaflokkar á land- inu verði með í keppni þessari. Um leið og keppnin hefst, eða 2. nóv. n. k., hefst „skátaárið". sem stendur síðan til 2. nóv. 1962. A þeim tíma verður reynt á allan hátt að auka og bæta skátastarfið á landinu og skapa fleiri unglingum möguleika til meira og betra skátastarfs Stærstu viðburðir „skátaárs- ins“ verða Landsmót á Þing- völlum um mánaðamótin júlí- ágúst næsta sumar og hátíða- höld í hverju byggðarlagi 2. nóv. 1962. A Landsmótinu má gera ráð fyrir mikilli þátttöku, bæði inn- lendra og erlendra skáta. Ástæðulaus ótti í GÆR tóku menn á Patreksfirði að óttast um opinn vélbát, Klukkutind, sem farið hafði í róður á fimmtudagskvöldið. Á bátnum er einn maður. Síðdegis í gær bárust svo fregnir um, að Skjaldbreið hefði siglt fram hjá bátnum um 3 leytið í gær skammt undan ■ Dritvíkurtanga og virtist þá ekkert vera að’hjá Klukkutindi. Sjálfstæðisfélag Miðneshrepps A SUNNUDAGINN kl. 2 e. h. verður aðalfundur Sjálfstæðis- félags Miðneshrepps haldinn i samkomuhúsinu í SandgerðL Þar fara fram venjuleg aðalfund- arstörf. Auk þess verða kosnir fultrúar á Landsfund Sjálfstæð- isflokksins. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmeima. Sjálfstæðisfélag Sauðárkróhs SJALFSTÆÐISFÉLAG Sauðár- króks heldur aðalfund sinn mánu daginn 16. okt. í bæjarþingssaln- um á Sauðárkróki kl. 20:30. Dagskrá: 1) Inntaka nýrra fé- laga. 2) Venjuleg aðalfundar- störf. 3) Kosning fulltrúa á lands fund Sjállfstæðisflokksins. 4) Er- indi um bæjarmál, Rögnvaldur Finnbogason bæjarstjóri. 5) Er- indi um atvinnumál, Halldór Jóns son framkvæmdastjóri. 6) Önn- ur mál. Séra Gunnar Gíslason, alþingis maður, mætir á fundinum. Allt stuðningsfólk Sjálfstæðisflokks- ins velkomið á fundinn. — Stjómin. NAIShnihr / SVSOhnútar ¥: Snjókoma f ÚSi V Skúrir K Þrumur W'%, KuUoakH Hitaski! Rússar kaupa 2,500 tonn RÚSSAR hafa gert samning um kaup á 2500 lestum af hraðfryst- um fiski. Fyrr á árinu höfðu þeir keypt 5000 lestir. Megnið af þeim fiski, sem nú verður seldur, er karfi og mun verðið vera £ 140 pr. tonn. Takmarkað magn verð- ur selt af upsa — á £130 pr. tonn. — Gefa gervihnettii Framh. af bls. 1 rúmkílómetrum af vatnsskýjum vóir á þennan hátt breytt í ís, sem síðan féll skaðlaus í Atlants- hafið. Stormurinn fór með strönd inni og sveigði síðan aftur til hafs. Reichelderfer sagði, að verið væri að rannsaka möguleikana á því, að eyða fellibyljum með ein- hverju móti og væri í því sam- bandi íhugað hver áhrif kemísk efni, eldur eða kjarnorkusprengj- ur kynnu að hafa, ef þeim væri beitt í þessu skyni. Allar þessar aðferðir virðast hafa nokkra slæma vankanta. Þó upplýsti veð urfræðingurinn að átta 20 kíló- tonna sprengjur jafngiltu aðeina tíunda hluta af einu prósenti þeirrar orku sem fellibylur los- aði á 40 mínútum. H Hml | UM hádegið í gær var hæg SA og rignlng í nótt en SV S-átt með 10—12 st. hita um kaldi og skúrir á morgun. allt land. Skúrir sunnanlands, Breiðafjörður, Vestfirðir og en þurrt fyrir norðan. Há- miðin. SA og sunnan kaldi,; þrýStisvæði mjög stöðugt er rigning með köflum. um Norðursjó að aðliggjandi löndum, en lægðarsvæði þrá- Norðurland til Austfjarða, lát á Grænlandshafi og norðurmið og NA-mið: Simn- S-Grænlandi. Lítur því út fyr an gola eða kaldi, úrkomu- ir hlýtt og vætusamt veður- lítið og hlýtt. lag hér við land næstu dægr- in. SA-land, Austfjarðarmíð og Veðurspáin kl. 10 I gærkvöldl SA-mið: Sunnanátt, allhvass SV-land og miðin: AUhvass í nótt, rigning með köflum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.