Morgunblaðið - 01.11.1961, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 01.11.1961, Qupperneq 11
Miðvikudagur 1. nóv. 1961 MORGVN BLAÐIÐ n Abstoðarstúlka á lækningastofu helzt ekki yngri en 30 ára, óskast. Verzlunar- eða gagn- fræðamenntun æskileg. Til- boð nr. >,7135“ sendist blaðinu ásamt upplýsingum um fyrri störf, menntun, aldur og helzt mynd og meðmælum, ef til eru. Vinsælar fermingargjafir Listskautar með skóm. Hockey-skautar með skóm. Skíðaútbúnaður Ljósmyndavélar Mataráhöld í töskum, 1—6 manna. V eiðistangasett Ferða-gasprímusar Áttavitar o. m. £1. Kjörgarði, Laugavegi 59. Falleg tizkuverzlun Ný tízkuverzlun á Klappar- stígnum milli La-ugavegs og Hverfisgötu, vakti athygli mína á dögunum. Það er allt- af eitthvað forvitnislegt við nýjar verzlanir. allt er svo nýtt og glæsilegt og öllu svo smekklega fyrirkomið. Nú- jæja, ég stóðst ekki mátið og gekk inn. Og varð sannarlega ekki fyrir neinum vonbrigð- run. Meðfram veggjum blasti við mér glæsilegt úrval af kápum, allar samkvæmt nýj- ustu tízku, enda var mér sagt að þær væru nýkomnar til landsins og verðinu virtist mér mjög í hóf stillt. Enn- fremur vakti það athygli mína að í þessari verzlun er mjög þægilegt að máta og skoða hverja einstaka kápu en það er sannarlega mjög mikils virði að viðskiptavin- um gefist tækifæri til þess að skoða það sem hann hefur áhuga á I vistlegum og rúm- góðum húsakynnum. I>að þarf ekki að orðlengja það að ég festj kaup á nýrri kápu — ekki af því að henni hafi ver- ið þrengt upp á mig, það er nú öðru nær — heldur af því að ég kunni vel við mig í kápunni og var búin að ráð- gera að fá mér nýja kápu fyrir veturinn. Og getið þið nú hvað verzl- unin heitir. í>að er annars ekkert leyndarmál. Hún heitir Guðrúnarbúð. Klapparstíg 27. Auglýsing. \ T H U G I Ð að borið saman að útbreiðslu ■>r langtum ódýrara að auglýsa Morgunblaðinu, en ðörum Möðum. — Þjdðarbúskap- ur og kaupgeta IMoregsbréf frá Skúla Skulasyni p. t. Osló, 12. okt. STÓRÞINGIÐ er tekið til starfa. Það kom saman til undirbúnmgs 2. okt. en var ekki sett fyrr en viku síðar, á mánudaginn var. Og daginn eftir lagði Bjerve fjár málaráðherra fram fjárlaga- frumvarp sitt, sem nú er rætt af kappi um land allt. Forsetakosningarnar báru þess ] merki. að stjórnarflokkurinn erj ekki ’lengur meirihlutaflokkur, | því að nú fék'k verkamannaflokkj urinn ekki nema helming forset-| anna og varaforsetana sex, en hefur haft fjóra áður. Langhelle var endurkosinn stórþingsfor- seti og hægriforinginn Alv Kjös varaforseti, en óðalþingsforseti var Per Borthen (miðflokkur- inn) og Jakob Pettersen varafor seti, og lögþingsforseti Nils Höns vald og varaforseti Einar Hareide (krl. flokkurinn). Þess- ir sex „presidium“ þingsins gegna forsetastörfúm til skipt- is, en til þrautavara eru kosnir þrír „varaforsetar". Einn þeirra varð Magnhild Hagelia; er hún fyrsta konan sem hlýtur tign- ina í Noregi. Samþykkt var tillaga kjör- bréfanefndar um að taba allar kosningar gildar nema í Vestur- Ögðum, þar sem atkvæði jreynd- ust talsvert fleiri en kjósenda- nöfnin, sem merkt hafði verið við á kjörskránni. Var samþykkt að láta kosningu fara fram aftur í þeim 4 hreppum (af 40 alls í kjördæminu), sem misfellur höfðu orðið í. En þingmenn kjör dæmisins taka sæti á þingi eigi að síður, enda ólíklegt að þessi endurkosning breyti úrslitunum. Ilásætisræðan. Síðan var Stórþingið sett með venjulegri viðhöfn á mánudag- inn var. Konungur las hásætis- r.æðuna og hefur hún ekki vak- ið miklar umræður. Þar var end urtekin utanríkisstefna stjórnar- innar frá liðnum árum og því heitið, að atómvopn skuli ekki leyfð ’í Noregi. Þá var því heit- ið að lögð yrði fyrir þingið grein- argerð um sameiginlega mark- aðinn og afstöðu Noregs til hans. Má telja örugt að stjórnin leggi til að sótt verði um hlutdeild, því að þeir tveir ráðherrar, sem mest koma við málið. utanríkis- ráðherrann og verzlunarmálaráð herrann, hafa látið ótvírætt í ljósi, að Noregi sé óhjákvæmi- legt að lenda innangarðs, en verði hinsvegar að fá sérstaka skilmála varðandi landbúnaðar- og sjávarafurðir. Þetta mál verð- ur áreiðanlega það mál, sem rnest verður deilt um í Noregi í vetur, en þegar er farið að ríf- ast um ýmis atriði því viðvíkj- andi. svo sem hvort bera skuli málið undir þjóðaratkv., eins og Röiseland foringi vsintriflokks- ins hefur lagt til. Margir taka munninn svo fullan að segja, að þetta sé mkilsverðasta mál sem komið hefur til þjóðarinnar kasta síðan 1905, er konungs- skiptin urðu við Svíþjóð, og má því segja að þjóðaratkvæði væri þarflegt. En hinsvegar er á það að líta, að málið en- í eðli sinu svo margþætt og flókið, að ekki er hægt að ætlast til að al- menningur geti myndað sér rök- studda skoðun á því. — 1 hásætisræðunni var boð- að, að athuguð yrði þörfin á nýjum verzlunarbanka, sem rík- ið reki, sömuleiðis að lögð yrðu fram frumvörp til nýrra vega-, umferðar- og sérleyfislaga. Sér- stök áherzla var lögð á, að hrað- að yrði stækkun háskóla og æðri skóla og að námsstyrkir yrðu auknir. Ennfremur að hraðað yrði framkvæmd laga um níu ára barna- og unglingaskóla. en 59 fræðsluhéruð í landinu hafa nú tekið upp það fræðslukerfi. Lofað var að hraða vegalágn- ingum og styrkja landbúnað og fiskveiðar betur en nú. Og að lokum vax lofað að hækka al- mennan ellistyrk frá 1. apríl n.k. og skipa nefnd til að gera tillög- ur um eftirlaun handa öllum þjóðfélagsborgurum. Hæstu fjárlög Noregs. Daginn eftir þingsetningu steig fjármálaráðherrann, Petter Jakob Bjerve í stólinn með fjár- lagafrumvarpið „upp á vasann“. Fylgdi hann því úr hlaði með eftirtektarverðri aðvörunarræðu. Hann dró ekki dul á, að velmeg- un almennings skapaði ýmis vandamál, sem ráða þyrfti bót á. Vegna mikillar kaupgetu flyttu Norðmenn inn meira af ýmsum varningi en viðskiptajöfn uðinum væri hollt. A þessu ári mundi jöfnuðurinn verða óhag- stæður um 1500 milljónir, og er það meim en nokkurntíma áður. Eitt ráðið til þess að lagfæra þetta væri það, að draga úr út- lánum bankanna, því að Þá minnkaði hraðinn á verklegum framkvæmdum, en hann væri þegar nægur til þess að nýta allt það vinnuafl, sem til er í landinu, enda eru mjög fáir at- vinnulausir nema þá part úr ár- inu. Bjerve kvað stjórnina vilja gera sitt í þessum málum, meðal annars með því að gera þáð skil- yrði fyrir opinberum fram- kvæmdum, að þeim yrði frestað sem lengst fram á næsta ár. — Við verðum að draga úr við- skiptahallanum, en til þess þarf að halda innlendu eftirspurninni niðri, og nota fjármagn þjóðar- innar til þess að auka afköst út- fiutningsframleiðslunnar. Fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir 7.305 miljón króna tekjum. Af því eru 6.290 milljónir beinir skattar, tollar, söluskattur og við skiptagjöld og er söluskatturinn dropadrýgstur, því að hann á að gefa ríkinu 2.350 milljónir (í ár 2.100), en tekju- og eignaskattur 1500 milljónir (1400), tollar 500 (420), áfengisálagning 548 (492), tóbaksálagning 325 (310), bifreiðagjöld 737 (607), — allt í milljón kr. og svigatölurnar upphæðin í núgildandi fjárlög- um. En þær 1015 milljón kr. tekj- ur, sem vantar upp á heildar- upphæðina, eru tekjur af eign ríkisins í opinberum bönkum, at- vinnurekstri ríkisins o. fl. — Gjöld ríkisins eru áætluð 8.415 milljón krónur. Þar af her varnakostnaður 1.286 milljónir, atvinnurekstur ríkisins 869 millj. (þar af 760 millj. til nýrra fram kvæmda), f élagsmálaráðuney t- ið fær 839 milljónir til umráða (þar af 575 millj. til styrktar- starfsemi) og kirkju- og kennslu málaráðuneytið 784 milljónir. Kaup- og verðlagsmálaráðuneyt ið fær 771 milljón, og gengur nær öll sú upphæð til niður- greiðslna og framleiðsluuppbóta. Hér hafa verið taldir stærstu gjaldaliðirnir. Þeir hafa flestir, hækkað lítið ,nema helst til nýrra vega (61 milljón kr. hækk| un) og til fræðslumála (einkum vegna aukins kostnaðar við æðri skóla). Um tekjuliðina er það að segja, að þeir hafa yfir- leitt hækkað, en þó ekki vegna tollhækkana heldur vegna vænt anlegs auka á umsetningunni. All ir skattar haldast óbreyttir, en afgjald á sterkum drykkjum hef- ur verið hækkað á tvennan háttj og nemur hækkunin alls 12,5%, og gjald af innlendu öli hækkað] um 20 aura á lítra. Þá hefur benzíngjaldið verið hækkað um 6 aura á lítra, liklega vegna aukj inna fjárframlaga til vega, en þau eru ávallt talsvert lægri én tekjur þær, sem ríkið fær af bifi reiðum. Reikningslega verður 1110 milljón króna halli á fjárlögun- um, og á hann að jafnast með lánum. En raunverulega gefur frumvarpið tekjuafgang, því að þár eru taldar til gjalda 643 milljónir, sem ganga til afborg- unar á inn- og erlendum ríkis- 11 Svo þægilegt , Svo hrein- fji;;;:: legt /r ir t,y....f W Svo * endingar- : gott Vistieg hótel FORMICA plötur gera öll herbergi á hótelum vistlegr! — og þér getið valið úr 100 mismunandi litum, mynstrum og fallegum litasamsetningum. FORMICA er ódýrt þegar tillit er tekið tU endingar. Það er endingarbetra en nokkuð annað efni af líkri gerð. Það er helmingi ódýrara að halda FORMICA hreinu, því að nægilegt er að strjúka yfir það með rökum klút, þá er það aftur sem nýtt. Forðist ódýrari eftirlíkingar. Látið ekki bjóða yður önnur efni í stað FORMICA, þótt stælingin líti sæmilega út. — Ath. að nafnið FORMICA er á hverri plötu. G. Þorsteinsson & Johnson hf. Grjótagötu 7 — Sími 24250 skuldum, og ennfremur 732 milljónir, sem ríkissjóður mun lána þeim bönkum sem hann á. Eru þetta samtals 1375 milljónir, eða á þriðja hundrað milljónum meira en hallanum nemur. ★ Lesandanum mun finnast nóg vera komið af tölum í bili (þó þær þyrftu eiginlega að vera fleiri). Eg yfirgef því fjárlögin og vík að þeim atburði, sem hæst hefur borið síðustu dag- ana: Aldarafmæli Nansens. Það er ekki um að viUast, að Norðmenn telja Friðþjóf Nan- sen mesta mann sem þjóðin hafi alið. Og víðfrægari hefur hann orðið en sjálfur Ölafur helgi. Blöðin hafa flutt meira um hann undanfarna daga en nokkur maður kemst yfir að lesa og fær ir menn keppast um að lýsa skapgerð hans og afrekum og brýna fyrir fól'ki að taka hann sér til fyrirmyndar og gleyma ekki afrekum hans. Minnispen- ingur með mynd hans hefur ver- ið gefinn út og er seldur um land allt, Aschehaugs-forlagið gefur út heildarútgáfu af ritum hans í átta bindum og háskóla- forlagið og Nansenssjóðurinn tvö bindi með bréfum Nansens. Og vitanlega hefur póststjórnin gefið út Nansens-frimerki, og var þó alveg nýbúin að gefa út Hákonarhallar-frímerki. A afmælisdaginn fylktu nem- endur í Aars- og Voss Skole (þar sem Nansen var nemandi) liði og fóru að Fram-húsinu á Bygdö og lögðu blóm við standmynd Nansens, sem þar er. Þar héldu ræður Ellef Ringnes aðalkonsúll, sem er formaður Fram-nefndar- innar, og Felix Schnyder, formað ur flóttamannastofnunarinnar í Geneve. Var þeirri athöfn lokið um kl. 11, en 11,30 var athöfn á „Polhögda“ við gröf Nansens þar í garðinum og lagði konung ur blóm á leiðið, en Erling Christophersen prófessor hélt ræðu. Kl. 13,30 hófst sjálf minn- ingarathöfnin í hátíðasal háskól ans, að viðstöddu úrvals fjöl. menni. Þar var konungur og krónprins, ríkisstjórnin, þing- forsetar, sendimenn erlendra ríkja og aðrir erlendir boðsgest* ir, meðal þeirra Schnyder og fleiri frá stofnuninni í Geneve og Philip Nœl-Baker, vinur Nan sens og samverkamaður. Þar flutti Langhelle stórþingsforseti ávarp, Olaf Holtedal fyrrv. pró. fessor flutti fyrirlestur um vís- indamenns'ku Nansens, en loks flutti Jac. S. Worm-Múller að- alræðuna og mæltist aðdáanlega. Þá var konungur sæmdur hinni nýstofnuðu Nansens- medalíu, sem framvegis verður heiðursmerki fyrir afreksverk, unnin í Nansens anda. Konung- ur þakkaði og kvaðst taka við þessum heiðri fyrir hönd þjóð- arinnar. — Fram-nefndin hafði skömmu fyrir fundinn ákveðið að veita Olav Holtedal „Fram. verðlaunin" svonefndu og af- henti Ruud háskólarektor þau, en í þetta skipti voru þau veitt tvenn, og fékk Odd Nansen arkitekt önnur. Eru þessi verð- laun 10 þús. krónur. Klukkan 19,30 um kvöldið hélt ríkisstjómin veizlu í Akershus. Þar voru alls 129 gestir, en við 'háborðið, beggja vegna konungs, norskir ráðherrar og forseti hæstaréttar og sendiherrar ís. lands, Italiu, Sovét-Rússlands, Svíþjóðar og Finnlands. Ræður héldu Halvard Lange, Felix Schnyder og Odd Nansen, en Einar Gerhardsen bauð gesti vel komna og konungur þakkaði fyr ir matinn. — Um viða veröld hefur ald- arafmælisins verið minnst, með samkomum, útvarpserindum, í kennslustundum skólanna og í blöðunum. I Israel var sérstak- lega vandað til minningarhátíð- Samkeppni í söng. „Aftenposten" efndi nýlega til samkeppni meðal ungs söngfólks Framhald á bls. 14.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.