Morgunblaðið - 01.11.1961, Side 22
22
MORGVTSBL ifílÐ
Miðvikudagur 1. nóv. 1961
I
Það voru 55000
manns á móti
— segja Sviar, sem ekki geta urmið
leik i Sviss
VIÐ erum þá ekfci enn í Chile.
— Þannig hefur fréttamaður
sænska íþróttablaðsins frásögn
sína af leik Svía og Svisslendinga
s.l. sunnudag. Sviss vann með
3—2. En jafnitefli hefði nægt
Svíum til að komast í úrslita-
keppnina. í stað þess verða þeir
nú aftur að mæta Sviss — á „hlut
lausum veili“. Sá leikur verður
í Berlín 12. nóv. n.k.
★ 55000 mótherjar
„Við getum ekki unnið leik í
Sv.<ss“ var ein fyrirsögn blaðsins
Og fréttamaðurinn segir. „Ellefu
svissneskir. leikmenn sem hungr-
aði eftir sigri og 55000 æpandi
svissneskir áhorfendur sáu um að
gömul venja heldur enn gildi
sínu. Sú venja að Svíar geta ekki
unr.ið knattspyrnuleik í Sviss.
Sjö sinnum hafa Svíar áður leik-
ið þar í landi — tapað sex sinn-
um og náð einu jafntefli. Það
var mál til komið að fara að sigra
og jafnteflið átti að minnsta kosti
að vera tryggt. En það gekk
ekki“.
★ Sár vonbrigði
Og vonbrigði Svía eru mikil
og ekki farið dult með. Þeir ger-
samlega buguðust fyrir því
hvernig áhorfendur stóðu gegn
þeim. Það getur aldrei orðið eins
slæmt í Berlín — og nú vona
Svíar hið bezta, þó þetta tap hafi
svínbeygt þá.
Einna mest fór í taugar þeirra,
þegar staðan var 3—2 og dómar-
inn blés leikslok. Þá þustu þús-
undir áhorfenda út á völlinn,
föðmuðu, kysstu og kjössuðu
Svisslendingana Og vildu að
„minnsta kosti fá að snerta þessa
leikmenn, sem höfðu gert það,
sem menn töldu að væri ómögu-
legt“ eins og sænski fréttamaður-
inn orðar það.
Heim tapaði
— Jarlenius skoraði
12 mörk
SÆNSKA liðið Heim, kunningjar
Okkar frá í fyrravetur, töpuðu
óvænt í síðustu viku fyrir
Skövde. 1 fyrra sigraði Heim
þetta lið, en mátti nú láta sér
nægja 17 mörk gegn 21. I fyrri
hálfleik hafði Heim eitt mark
yfir (9—8), en andstæðingarnir
komu sterkari út úr lokasprett-
inum og fékk Heim ekki við þá
ráðið. Liðið lék í heild mun veik-
ar en í fyrra, en Kjell Jarleníus
var nú þeirra eini ljósi punktur.
Hann skoraði hvorki meira né
minna en 12 af þessum 17 mörk-
um, þar af 6 úr vítaköstum. Tölu-
verð harka virðist hafa verið í
leiknum, 9 vítaköst voru dæmd
og tveim úr hvoru liði vísað af
leikvelli.
★ Leikurinn
Gailgur ieiksins var annars sá,
að Svíar tóku forystu þegar á
2. mín. Var það laus skallabolti
frá Simonsen sem markmaður
Sviss misreiknaði.
A 8. mín. jöfnuðu Svisslend-
ingar með fallegu og föstu skoti
sem Zamora markvörður hafði
engin tök á að verja.
A 23. mín. í síð. hálfleik tekur
Sviss forystuna með föstum og
vel miðuðum skallaknetti af
stuttu færi.
11 mín. fyrir leikslok jafna
Svíar. Það var útherjinn Yngve
Brodd sem skoraði fallegt mark.
En Adam var ekki lengi í Para-
dís. Tveim mín. síðar eða 9 mín.
fyrir leikslok skallar Eschman
aftur í net Svía. Það voru því
fyrst og fremst tvær höfuðspyrn-
ur sem komu í veg fyrir að Chile-
för Svia yrði þegar ákveðin.
Einn af heimsins
markvörðum leikur í kvöld
Hér er hinn frægi mark-
vörður Bent Mortensen að
verja. Hann er talinn einn
bezti markvörður heims-
ins og hefur margoft
bjargað heiðri Dana.
KR mætir gestum sinum „Efterslægten'
oð Hálogalandi
í K V Ö L D leikur danska
handknattleiksliðið fyrsta
leik sinn og verður hann í
Hálogalandi gegn gestgjöf-
unum KR. — Hefst leikurinn
kl. 8.15. —
*■ STERKT LIÐ
I Xiði Efterslægten eru 2
landsliðsmenn Dana, mark-
vörðurinn Bent Mortensen,
sem leikið hefur 41 landsleik
og er talinn bezti markvörð-
ur Dana fyrr og síðar, og
John Bernth, framherji, sem
leikið hefur 6 landsleiki. Þá
leikur með liðinu Erik Han-
sen, en hann lék í landsleik
gegn Islendingum 1949. Einn-
ig leikur með liðinu Henning
Houmann, varamaður í
danska landsliðinu í síðustu
heimsmeistarakeppni, og Bern
hard Deneke, miðframvörður
iiðsins, en hann er jafnframt
fyrirliði danska unglinga-
landsliðsins í knattspyrnu.
Aðalmarkskytta liðsins er
Arne Baun, en hann er erfitt
að dekka, því að hann skýt-
ur jafnvel með báðum hönd-
um og er 190 cm á hæð.
* GOTT KR LIÐ
Lið KR verður skipað eins
og gegn Val á sunnudagskvöld,
en liðið er nú efst í Reykja-
víkurmótinu, hefur skorað 31
mark gegn 14.
Þess skal getið til að forðast
misskilning, að aðeins verður
um eitt verð að ræða á að-
göngumiðum.
Skíðasnjórinn kom-
inn við Skíðaskálann
SKÍÐASNJÖRINN er kominn og
skíðafólkið er þegar byrjað að
njóta íþróttar sinnar hér í ná-
grenni höfuðstaðarins. Við Skíða-
skálann í Hverdölum er þegar
kominn skíðasnjór sem nota má.
Kristinn Benediktsson, hinn
kunni skíðagarpur og Islands-
meistari, var þar í gær og var
mjög ánægður.
Hafnar hafa verið kvöldferðir
í Skíðaskálann. Eru ferðir þessar
farnar frá BSR kl. hálf átta hvert
kvöid og komið aftur undir mið-
nætíið. Skíðaskálamenn hafa ljós
í brekkunni og er því hin ákjósan
legasta aðstaða til skíðaiðkana
þar. I skálanum er svo allt til
reiðu að taka á móti gestum sem
vilja fá sér hressingu.
Moirihiutí ieikjanna
voru ekki hoðlegir
A laugardagskvöláið vðru leikn
ir 7 leikir á handknattleiksmót-
inu. Voru þetta allt leikir í yngri
flokkunum og einkenndust flest-
ir þeirra af kunnáttuleysi kepp-
enda og jafnvel hreinni leikleysu.
Er ámælisvert, að selt skuli inn á
svona lélega keppni og ætti alls
ekki að misbjóða áhorfendum
með svona sýningum.
Þarna kepptu í B liðum algjör-
ir byrjendur í íþróttinni og er
þeim enginn greiði gerður með
því að koma fram fyrir almenn-
ing án þeirrar þjálfunar og til-
sagnar, sem nauðsynleg eru áður
en komið er fram opinberlega. —
Hlut/erk dómaranna í þessum
leikjum er meira kennsla og leið-
sögn en dómarastörf og stjórn.
Sem betur fer er þetta eina
kvöldið í leikskránni, þar sem
leikir B liða eru áberandi marg-
ir og sú ráðstöfun góð, að láta
flesta pessa leiki fara fram í fé-
lagsheimiium KR og Vals. En sú
ráðslöfun félaganna að senda til
keppni B-iið, án þess að hafa tiL-
tæka irambærilega þjálfaða kepp
endur er ekki rétt. Allit vilja fá
að keppa, en þegar svo er kom-
ið, ao ekkert þarf að leggja á
sig til pess, er ekki hægt að
vænt.a mikils árangurs.
Einn leikur var þó skemmti-
legur og spennandi á laugardag-
inn, en það var viðureign Ar-
manns og Þróttar í 2. flokki
kaila (a lið). Bæði þessi félög
hafa á að skipa sterkum og
skemmtilega leikandi ungum
mönnum, sem margir hverjir eru
þegar orðnir reyndir í meistara-
flokki.
Þróttur tók forystuna í leiknum
og skoraði tvö fyrstu mörkin, en
Armann minnkaði bilið og í miðj-
um hálfleiknum var staðan jöfn,
3:3. Þróttur náði aftur yfirhönd-
inni, en Armanni tókst að jafna
fyrir hlé.
Fyrri hluta síðari hálfleiks var
spenna mikil í leiknum og var
sem Þrótti tækist betur að halda
jafnvægi. Þeir komust yfir, Ar-
mann jafnaði aftur, en Þróttur
jók töluna í 6:5. Við þetta- mark
varð leikur Armanns lausari í
reipunum, þeir flýttu sér um of
og voru fálmandi í sókn sinni.
Skömmu fyrir leikslok var Þrótti
dæmt vítakast og gerði það út
um leikinn, sem endaði 7:5.
Framan af þessu kvöldi mættu
réttir domarar til sinna leikja,
enda var formaður dómarafélags
ins viöstaddur og hafði hönd í
bagga með framkvæmdum. En
svo þurfti hinn ötuli formaður
að fara og vissi ekki betur en
allt mundi vel fram fara. Brá þá
svo við, að upp kom hin mesta
dómarakreppa. Töluverð bið varð
á, að tveir síðustu leikirnir gætu
hafrzt, þar sem dómararnir mættu
ekki og eríitt reyndist að fá menn
í skarðið.
Það er að vísu vanþakklátt og
óeigingjarnt starf að vera dóm-
ari, en þeir menn sem á annað
borð gefa kost á sér til starfa,
verða að sjá sóma sin í að mæta,
Enska
knattspyrnan
EINS og skýrt var frá í blaðimr
í gær vann England Portugal
2—0 og tryggði þannig þátttöku
í úrslitakeppni 16 liða. sem fram
fer í CHILE í maí og júní næsta
ár. íþróttafréttaritarar í Eng-
landi eru þó ekki ánægðir með
enska landsliðið og er það álit
þeirra að liðið óbreytt nnuni ekki
ná langt í keppninni. Flestir
finna þeir að framlínunni og
segja að þar vanti menn til að
vinna úr vel uppbyggðum áhlaup
um þeirra HAYNES, CHARL-
TON og CONNELLY. Vilja þeir
fá GREAVES inn í liðið og vona
að hann komi fljótt aftur til
Englands. Skiptar skoðanir eru
um skipan í stöðu miðherja. Vilja
margir fá HITCHENS, sem nú
leikur á Ítalíu og hefur félag
hans þar tilkynnt að hann geti
leikið með enska landsliðinu
hvenær sem þess er óskað. Enn
aðrir vilja fá Smith inn í liðið
og telja að hann hafi þegar sýnt
að þeir eigi vel saman hann og
HAYNES.
Hvernig nú sem endanlegt val
verðar, þá er eitt víst, að enska
landsliðið er talið betra nú en á
síðustu heimsmeistarakeppni,
sem fram fór í Svíþjóð.
Til gamans Skal þess getið að
100 þús. áhorfendur voru á leikn
um milli Englands og Portugal
sem fram fór á Wembley-leik-
vanginum í London og greiddu
þessir áhorfendur 52 þús. pund í
aðgangseyri, sem er meira en
nokkru sinni áður.
eða að öðrum kosti að útvega
aðra í sinn stað. Þó að forráða-
menn dómarafélagsins séu dug-
legir, fá þeir ekki við þetta ráð-
ið meðan kæruleysi og óstund-
vísi er jafn almennt ríkjandi með
al dómara sem nú.
Urslit annarra leikja kvöldsins
urðu þessi: 3. fl. karla B: Ar-
mann—Valur 8:5. 2. fl. kvenna B:
Víkingur—KR 3:1, Armann —
Fram 2:2, 2. flokkur kvenna A:
Armann—Fram 7:5, KR—Valur
3:1, Víkingur—Þróttur 14:2.
Kormákr