Morgunblaðið - 03.11.1961, Qupperneq 4
4
MORGVNBLAÐÍÐ
Föstudagur 3. nóv. 1961
1—2 herbergi og eldhús
óskast til leigu. Uppl. í
síma 2C163.
Bflaleigan hf.,
Asbúðartröð 7, Hafnarfirði,
leigir bíla án ökumanns.
Uppl. í síma 11144.
Tökum að okkur
alls konar viffgerðir og
breytingar. Uppl. í síma
18079.
ísbúðin, Laugalæk 8
Rjómaís, — mjólknrís
Nougatís.
Isbúðin, sérverzlun
Mótorhjól
til sölu. Uppl. í síma 15635
milli kl. 7.30 og 8.30 næstu
kvöld.
Tvær stúlkur
óska eftir kvöldvinnu. —
Margt kemur til greina.
Uppl. í síma 23798.
Sauma
telpna og unglingakjóla —
Uppl. í síma 16842, Hólm-
garði 18.
íbúð
3ja herb. íbúð á hæð ásamt
risi á eignarlóð til sölu. —
Hitaveita. Útb. kr. 80 þús.
Uppl. í síma 10110.
fsskápur til sölu
10,6 cbf fet. Brigidaire ís-
skápur, 2ja dyra. til sölu.
Uppl. í síma 16881.
Ný 3ia herh. íbúð til leigu
um næstu mánaðamót. —
Tilboð sendisit Mbl. fyrir
15. þ. m., merkt: „íbúð —
7501".
Bílskúr
Góður bílskúr óskast til
leigu. Uppl. í síma 19694
milli sex og atta á kvöldin.
Aftaníkerra
til sölu og öxlar undir
kerrur og heyvagna. ódýrt.
Uppl. í síma 36820.
Rauðamöl
Seljum mjög fína rauða-
möl. Ennfremur gróft og
fínt vikurgjall. Sími 50997.
Kona óskast
í káuptún norðanlands. —
Má hafa með sér barn.
I 'tt starf. Tilboð sendist
afgr. Mbl., merkt: „Ráðs-
kona — 7504".
Óska eftir verzlunarplássi
á góðum stað í bænum. —
Tilboð merkt: ,.Verzlun —
7503“, sendist MbL fyrir
10. þ. m.
í dag er föstudagnriim 3. nóvemlier.
307. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 2:03.
Síðdegisflæði kl. 14:24.
Slysavarðstofan er opin allan sólar-
hrínginn. — JLæknavörður L.R. (fyrlr
vitjanir) er á sama stað frá kl. 18—8.
Sími 15030.
Næturvörður vikuna 28. okt.—4. nóv.
er I Laugarvegsapóteki.
Holtsapótek og Garðsapótek eru
opin alla virka daga kl. 9—7. laugar-
daga frá kL 9—4 og helgidaga frá
kl. 1—4.
Kópavogsapótek er opið alla vlrka
daga kl. 9,15—8, laugardaga frá kl.
9:15—4, helgid. frá 1—4 e.h. Sími 23100.
Ljósastofa Hvítabandsins, Fornhaga
8: Ljósböð fyrir böm og fullorðna.
Uppl. 1 síma 16699.
I.O.O.F. 1 « 1431138^ = kvm.
RMR Föstud. 3-11-20-VS-MT-HT
FREITIR
Félag austfirzkra kvenna: •— Bazar
félagsins verður þriðjudaginn 7. nóv.
í Góðtemplarahúsinu. Félagskonur og
aðrir velunnarar félagsins vinsamlega
styrkið bazarinn. Nánari upplýsingar
veita: Ragna Ingvarsdóttir, Langholts-
vegi 174, Dóra Elísdóttir, Smáragötu
14, Sigurbjörg Pálsdóttir, Hólavalla-
götu 11, Guðrún Guðmundsdóttir, Nóa
túni 30 og Guðbjörg Guðmundsdóttir,
Nesvegi 50.
Kristilegt stúdentafélag: — Fundur
í húsi KJ.U.M. og K. við Amtmanns-
stíg kl. 8:30 í kvöld. Fundarefni: Dr.
theol. Bjami Jónsson, vígslubiskup
talar um efnið: „Stúdentsárin og ei-
lífðin". Allir stúdentar velkomnir.
Frá Handíða- og myndlistaskólanum.
Samkvæmt ósk skólans hefur verzl-
unin „Brynja", Laugavegi 29, nú fengið
nokkrar birgðir af bókbandstækjum.
Núverandi og eldri bókbandsnemend-
ur skólans, sem enn skortir þessi
tæki eru því beðnir að snúa sér til
verzlunarinnar Brynju. Þess skal get-
ið, að bókbandstæki þessi eru dönsk
og mjög vönduð, af sömu gerð og
tæki þau, sem skólinn hefur notað ár-
um saman.
- MESSUR -
Kaþólska kirkjan: — Kvöldmessa kl.
6:15 e.h.
Frjóvgur blær, sem flötinn bærir,
fjalli ljær sinn andardrátt,
báran tær, sem blærinn hærir,
björgum færir hjartaslátt.
(Eftir Hannes Hafstein).
Ég er mæddur, böli bræddur,
blárri klæddur skyrtu líns,
kaffibelgur, óráðselgur,
einnig svelgur brennivíns.
(Eftir Sigluvíkur-Svein).
Mörgum ævi leiðist leiðin,
leið þar margur erfið kjör;
öðrum skein þar heið í heiði
heiðurssólin, lán og fjör.
(Eftir séra Helga Sigurðsson).
Ofan lúðir fjallið fóru
fornar slóðir liljuranns;
átta búðix í honum vóru,
úti stóð þar fjöldi manns.
(Úr Úlfarsrímum).
Loftleiðir h.f.: — Föstudaginn 3. nóv.
er Snorri Sturluson væntanlegur frá
N.Y. kl. 05:30 og fer til Luxemborgar
kf. 07:00. Kemur aftur kl. 23:00 og fer
til N.Y. kl. 00:30. — Þorfinnur karls-
efni er væntanlegur frá Hamborg,
Kaupmh., Gautaborg og Ósló kl. 22:00
og heldur áleiðis til N.Y. kl. 23:30.
Flugfélag íslands h.f.: — Millilanda-
flug: Skýfaxi fer til Glasg. og Kaupmh.
kl. 08:30 í dag. Væntanlegur aftur kl.
17:00 á morgun. — Hrímfaxi fer til
Óslóar, Kaupmh. og Hamb. kl. 08:30
í fyrramálið. — Innanlandsflug: í dag
Til Akureyrar (2), Fagurhólsmýrar,
Hornafjarðar, ísafjarðar, Kirkjubæjar-
klausturs og Vestmannaeyja. — Á
morgun: Til Akureyrar (2), Egilsgtaða,
Húsavíkur, ísafjarðar, Sauðárkróks og
Vestmannaeyja. '
H.f. Jöklar: Langjökull er í
Reykjavík. — Vatnajökuli er á leið til
Rvíkur.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla er í Ventspils. — Askja er á
Vestur- og Norðurlandshöfnum.
Skipadeild SÍS: — Hvassafell er á
leið til Gdynia. — Amarfell losar á
Austfjörðum. — Jökulfell er í Rends-
burg. — Dísarfell er á leið til Akur-
eyrar frá Svíþjóð. — Litlafell er í
olíuflutningum í Faxaflóa. — Helga-
fell er á leið til Rússlands. — Hamra-
fell er í Reykjavík.
Ulbricht tryggir sér sess í minnisvarðanum yíir „óþekkta
alþýðulýðræðissinnann". — (tarantel press).
ÞangaS hnígur lyst, sem lögmál
bannar.
Langir svefnar löstum safna.
Þungur er synda svefn.
Svefn og losti setja þunga kosti.
50 ára varð 30. okt. s.l. Alfreð
Hilmar Þorbjörnsson, trésmíða-
meistari, Lækjargötu 10, Hafnar
firðL
Fimmtugur er í dag Kári Þórð-
arson, rafveitustjóri í Keflavík.
Forseti Finnlands, Urho
Kekkonen, var fyrir skömmu
í heimsókn í Bandaríkjunum.
Sést hann og kona hans hér
á myndinni í hótelherbergi
sínu í New York. Litli dreng-
urinn, sem Kekkonen hossar á
fæti sínum er sonarsonur hans,
Timo, sem er á fimmta árinu.
Faðir Timo, Tanili Kekkonen
er formaður sendinefndar
Finna hjá Sameinuðu þjóðun-
um.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína Guðrún Erna Sigurbaldurs-
dóttir verzlunarmær frá Isafirði
Og Sigurður Hólm Þorsteinsson
málari Njarðargötu 61. Uvík.
JÚMBO OG DREKINN
Copenhogcn
+ + +
Gunnar Júlíusson vélsmiður,
Reykjavíkurvegi 29, er 60 ára í
dag.
Teiknari J. Mora
1) Júmbó tókst að róa vesalings
manninn, sem hafði auðvitað orðið
afar hverft við. Hann gat loks stun-
ið því upp, að hann héti Madsen og
vseri fangi í kafbátnum, ásamt tveim
öðrum „hetjum“, sem falið hafði
verið að drepa drekann mikla.
2) — Nú verð ég víst að færa
þorpurunum nýtt vín, sagði Madsen.
Þá fékk Júmbó eina af sínum ágætu
hugmyndum: — Ég hef hérna eitt
glas af svefnlyfi, sem okkar ástkæri
galdrameistari hefur bruggað.
3) — Við hellum því saman við
vínið, og.... — Nú, jæja— svo við
gerum það! heyrðist sagt grófri
röddu frá dyrunum. í sama mund
kom stýrimaðurinn inn.... og aum-
ingja Júmbó missti glasið með svefn-
lyfinu af einskærri skelfingu.