Morgunblaðið - 03.11.1961, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.11.1961, Blaðsíða 10
MORCUNIJLAÐIÐ FSstudagur 3. nóv. 1961 VJ Litazt um í vetrarbyrjun Hagstætt sumar kveður. — Ldgt verð a hrossakjöti. — Agnuar d solu kartaílna. — Leiklist í öldudal SUMARIÐ er liðið, veturinn genginn í garð. Ekki verður þess þó enn vart hvað veðráttuna snertir, því varla verður sagt að frosið hafi á polli á þessu hausti og ekki síðan veturinn byrjaði. Nokkuð hefir verið úrkomusamt að undanförnu en veður þó frem ur góð. Nautpeningi hefir og verið beitt víðast hér um slóð- ir fram um miðjan október en úr því eru hagar víðast upp- bitnir fyrir mjólkurkýr, nema ef vera skyldi hjá þeim, er rækta fóðurkál en það helzt grænt og ófölnað langt fram eftir hausti. Eitt af því, sem fylgir vetrarkomu árlega er það tiltæki stjórnarvalda að seinka klukkunni frá svokölluðum sumartíma, sem hér gildir yfir sumarið. Engan hefi ég heyrt hér austan fjalls sem óskar eft- ir þvílíku hringli með klukk- una, og víst er ef að nokkuð er, þá styttir þetta heldur dag inn til að vinna ýmiss útiverk, sem í sveitum eru á haustnótt um eins og aðra órstíma ærið margvísleg. Og ekki getur þetta heldur verið gjört fyrir fólkið í bæjunum því þar lýsa götuljósin upp umhverfið ef einhverjum kynni að þykja dagsbirtan síðbúin á morgn- ana eftir sumartíma-klukkunni. Svo að samanlagt sýnist mér þessi venja bara vera vitleysa sem afnema beri tafarlaust. — Því myndu margir áreiðanlega fagna. Ekki þurfum við Sunnlending- ar að kvarta undan veðráttu nýliðins sumars því hún var hér með ágætum. Ekki svo að skilja að um þurrkasumar hafi verið að ræða, en þó nægilegt til þess að víðast hvar mun vera um góðan heyfeng að ræða >\ð vöxtum og gæðum. Að sjálf SvNgðu eins og fyrr, eitthvað nhNjafnt eftir því hversu hver og einn er vel til heyskapar- ins búinn að hinum ýmsu vél um, er reynslan sýnir að eru forserída þess að það fáa fólk, sem að framleiðslunni í sveit- unum vinnur, geti á skömm- um tíma aflað þeirra heybirgða er á hverjúm tíma er þðrf á. Fénaður allur átti við góðan 'cost að búa í sumar sökum góðviðra og hæfilegs jafnvægis milli þurrka og vætu. Mjólkui framleiðsla hefir og aldrei ver- íð meiri hér austan fjalls og dilkar eru víðast með vænsta móti. Ekki er þó kunn meðal- vigt dilka úr sláturhúsunum á Selfossi enda sauðfjárslátrun þar ekki lokið að fullu þegar þetta er skrifað. Hjá Slátur- félagi Suðurlands á Self. verður slátrað nær því alveg 50 þús. fjár og í sláturhúsi S. Ó. Ólafs sonar & Co 5 þús. Um allmikla slátrun nautgripa er að ræða svo sem jafnan er venja haust hvert, og er búist við að um 400 kúm verði fargað í slátur húsunum á Selfossi að þessu sinni. Varla verður sagt að nokkuð sé fárgað af hrossum í sláturhúsunum hér og mun þar valda miklu, óhæfilega lágt verð til framleiðenda á hrossa Bílaleigan hf. Ásbúðartröð 7, Fafnarfirði, leigir bíla án ökumanns. — Uppl. í síma 11144 kjöti, sem mörgum finnst hin bezta fæða. Er verðið frá 11 kr. fyrir það bezta niður í 4 kr. í eldri hrossum. Er ekki við því að búast að neinn ali upp og fargi hrossum á þvíliku verði. Það er hins- vegar ofurlítil bót fyrir þá, sem eitthvað eiga af hrossum, að nokkur markaður er fyrir þau til Þýzkalands og er verðlag á þeim vettvangi allgott eða frá 4 þús til 4.500 kr. fyrir band- vön og ung hross. Grænmeti Vöxtur garðamats var. hér víðast ágætur að þessu sinni og algengt að um 10—15 falda upp- skeru af kartöflum væri að ræða en á stöku stað komst hún allt upp í 20. falt. Nokkuð er rækt- að hér í sveitinni af kartöflum og gulrófum en þó hvergi um þessa atvinnu að ræða sem að- albúgrein heldur aðeins með annarri framleiðslu. Getur oft verið hér um drjúgum auknar tekjur að ræða einkum ef færð- ist í betra horf með það að bændur gætu vafningslítið losn að við þessa framleiðlu, en oft er engu líkara en Grænmetis- verzlun landbúnaðarins gjöri mönnum erfiðast fyrir í þessum sökum, þrátt fyrir árlegan inn- flutning kartaflna og ramakvein sumra spekinga á vorin yfir því að landsmenn rækti ekki nægar kartöflur til neyzlu í landinu. Ef forráðamönnum þess arar stofnunar landbúnaðarins er einhver akkur í því að hér sé í landinu unnið að kartöflu- ræktun og ef þeir sömu aðilar telja einhvers virði að styðja bændur til aukinnar tekjuöflun- ar, þá ber þeim að gjöra allt hvað þeir mega til að styðja að þessari atvinnu með margvísleg- um leiðbeiningum um meðferð framleiðslunnar, og í hvemig ásigkomulagi óskað er að fram- leiðendur láti vöruna í hendur Grænmetisverzlunarinnar eða umboðsmanna hennar. En á þessu er nú mikil vöntun. Ekki er langt síðan að bóndi einn hér eystra sendi bílfarm af kartöflum svo um búnum sem hann vissi bezt og eftir fyrri venju. Ekki liðu þó margir dag- ar þar til að hann fékk einarða kvörtun og fyrirmæli um að honum bæri að umsekkja farm- inn og setja í tiltekna poka sem að vísu fást keyptir en kosta ,aðeins“ 14 kr. stk. Er þetta til að gjöra mönn- um hægara fyrir um framleiðsl- una? Hefði ekki verið hægt strax og uppskerutíminn hófst, að gefa um það upplýsingar hvernig framleiðendur skyldu ganga frá þessari vöru sinni og spara með því dýrmætan tíma og fyrirhöfn að ógleymdum þeim kostnaði, sem slíkar ráðstafanjr um umbúðir hafa í för með sér fyrir framleiðendur. Þetta sem ég hefi hér nefnt er bara eitt dæmi um skringi- lega starfshætti Grænmetisverzl unarinnar en í ýmsum öðrum atriðum er þar um stirfin vinnu brögð að ræða. Félagslíf Kennsla hófst í barnaskóla Gaulverja hinn 2. október. — Skólastjóri er Þórður Gíslason og kennir hann börnunum í tveimur deildum. Um 30 börn eru í skólanum í vetur og er þeim að mestu ekið í skólann á morgnana og heim á daginn. Félagslíf er 'hér með líku sniði og oftast áður en yfirleitt virð- Staiísstúlka óskast í eldhús KLIJBBIJRIIMIM Lækjarteig 2 Lœknisráð vikunnar Practicus ritar um: Þegar móðurmjólkina vant ar eru ungbörn oftast alin á kúamjólk. 1 síðustu grein var rætt um yfirburði konumjólk urinnar, en ýmislegt af því þarf að endurtakast. Kúamjólk er að ýmsu eyti öðru vísi samsett en irjóstamjólk (sjá mynd). Eggjahvítuinnihald kúa- njólkurinnar er nærri tvö- ialt meira, og mestur hluti þess er kasein (osta-eggja- hvíta), eða % á móti % í brjóstamjólk. Brjóstamjólk ’ielst því nærri fljótandi í maganum, en kúamjólkin yst ir, hún hleypur saman í lekki. Af þessum orsökum neltist kúamjólkin ver og íægðirnar verða harðari, enda er harðlífi miklu algeng- ara meðal pela- en brjósta- >arna. Mótefnin í kúamjólk- nni eru ætluð sem vörn gegn íautgripasjúkdómum og erða því börnum að engu ;agni. Skortur hinna nauð- ynlegu mótefna verður til iess, að pelabörnum verður íiklu hættara við sjúkdóm- m fyrsta ár æfinnar. Pelabörnum er einnig af ■irum orsökum hættara við kingu af völdum sýkla. 7,2 Felabörnin leggja meira fyrir af eggjahvítu og kalki en brjóstaböm. Vöðvar pela barnanna eru um það 14 stærri. Þrátt íyrir betta er þeim hættara vio beir.kröm, en í henni er kölkun bein- anna óeðlileg. Af því, sem hér hefur ver ið sagt mætti ólíta, að hættu legt væri að láta ungbörn nærast á kúamjólk, en það er ekki rétt. Hér er einung is bent á, að móðurmjólk- in er þeim betri fæða, og að Mataræði ungbarna PELABÖRN n Kúamjólk bindur maga- sýru ungbarnsins miklu meira en brjóstamjólkin. Af leiðingin verður sú, að engin sýra verður til að drepa sýkla, sem kunna að berast niður í magann með mjólk- inni, og þeir eiga því greiða leið gegnum veggi þarm- anna. Ennfremur breytist efnasamsetning þarmanna, og barnið á því hægara með að hagnýta sér sum fjör- efni og málma fæðunnar. Hinir venjulegu gerlar þarm anna eiga einnig erfiðara uppdráttar. Gerjun í ristlin um er mikil í brjóstabörn- um, en hana skortir alveg í pelabörnum. Þetta á einnig þátt í hinum harðari hægð um pelabarnanna. 44 A □ Konumjó/k Kúamjólk Samanburður á hinum föstu efnum í brjóstamjólk og kúamjólk tölurnar eru hundruðustu hlutar. A. eggjahvítu- efni. B. fita. C. mjólkursykur. D. ólífræn efni. ist mér að ungmennafélögin séu að gefast upp á þeim þætti starfsemi sinnar er sneri að leik list og þarf engum að koma það á óvart sem, athugar allar aðstæður. Hinar tíðu ferðir leik flokka um landið hafa unnið bezt að því að þessi. starfsemi er nú að verða óframkvæman- leg á vegum ungmennafélag- anna. Enginn skilji þó orð mín svo, að ég álíti að umferðarleik- flokkamir hafi tekið þessa starf semi sína upp til þess að fyrir- gera sams konar viðfangsefnum heimamanna, síður en svo. En staðreyndin er bara sú, að þeg- ar þessir flokkar koma, hvort heldur er frá Þjóðleikhúsinu eða á annarra vegum, þá bjóða þeir upp á svo fullkomna tækni við flutning sinna viðfangsefna, að það er ógjörningur fyrir fjár vana félagsskap að ætla sér að bjóða upp á nokkuð svipað. Og því verður þessi starfsemi að hverfa í skugga fjársterkari að- ila, því áhorfendur vilja eðli- lega fyrst og fremst sjá við- fangsefni á leiksviði, sem tek- izt hefir að skapa hin full- komnustu skilyrði bæði að um- búnaði og flutningi. En þótt þessi starfsemi minnki hjá ungmennafélögunum og jafn vel hverfi, hafa þau engu að síður margvíslegu og veglegu hlutverki að gegna í menningar- lífi hvers sveitarfélags, þar sem á annað borð jarðvegur er í hjarta fólksins fyrir skilning á gagnsemi blómlegs félagslífs. Sá félagsskapur á öðrum frem ur mestan þáttinn í að hin nýju félagsheimili hafa risið upp á undanfömum árum, og þó að segja megi að í þeim málum hafi ekki alls staðar gætt nægra hygginda, er um hitt ekki hægt allra hluta vegna er betra að komast hjá að hafa þau á pela. Því miður er ekki allt af mögulegt að hafa börn á brjósti, og þarf þá að gera þeim kúamjólkina eins auð- melta og mögulegt er. 1 fyrstá lagi verður mjólk- in að vera eins laus við sýkla og kostur er á. Ger- ilsneyðing og góðar um- búðir eru mikilsverð atriði. Ókleift er að drepa alla gerla og sýkla í mjólkinni, áður en hún kemur til neyt enda, til þess þyrfti að hita hana svo mikið og lengi, að fólk, sem vanist hefur óhit- aðri mjólk myndi aldrei vilja líta við henni. Korn- barnið er þó undantekning — Það hefur aldrei kynnst óhitaðri mjólk, og þessvegna má auðveldlega sjóða hana áður en það fær hana. Bezt er að gera þetta strax og mjólkin er komin heim, og blanda þá alla þá _ mjólk, sem barnið á að fá þann dag. Strax og búið er að blanda og sjóða mjólkina og taka það, sem nota á þegar í stað. á að setja hana í kalda geymslu í lokuðu íláti. Suðan verður einnig til þess, að mjólkin hleypur minna í maga barnsins. Einn ig þarf að þynna mjólkina, venjulega er blandað til helminga fyrstu 1V2 til 2 mánuðina, síðan má hafa 70% mjólk í blöndunni, unz barnið er hálfs árs. Á þeim aldri þola flest börn óþynnta mjólk. Þægilegast er að nota vatn til að blanda mjólk- ina með, en betra er að nota bland, sem inniheldur sterkju, því hún minnkar kekkina í maganum og hefur góð áhrif á hægðir barns- ins. Ágætt er að nota bygg-, hafra- eða hrísgrjónaseyði. — Þar sem kúamjólkin inni- heldur minni sykur en konu mjólkin er sett í hana syk- ur, venjulega eru látin um það bil 5 grömm í 100 gr. af mjólkurblandi. Þarma- gerjun barnsins verður þá betri. Eðlilegt væri að álíta, að mjólkursykur væri bezt- ur, en hann veldur of á- kafri gerjun, venjulegur syk- ur er betri. Barnið þarfnast aukalega C, D og A fjörefna. járns. C fjörvi og járn eru í ávaxta- og grænmetissafa, A og D fjörva má fá úr lýsL að deila að það er mikill sóml hverju sveitarfélagi að eiga vist legt aðsetur fyrir félagslíf sitt. Hitt er öllu heiðarlegu fólki harmsefni hversu óhugnanlegan blæ margar skemmtisamkomur bera sem haldnar eru í þessum fallegu húsum og þar þyrfti vissulega að breyta um til batn- aðar. Engum aðilum treysti ég betur til þess en éinmitt ung- mennafélögunum á hverjum stað, að standa hér að með breyttum siðum ef yfirvöld rík- is og héraða vilja eiga við þau einlægt samstarf í þessum efn- um. Oss á að þykja á vissan hátt vænt um þessi heimili fé- lagslífsins og það þarf með hygg indum og festu að bæja frá þeim herskörum, sem ekki geta um- gengizt þessa staði á sómasam- legan hátt. Seljatungu 25. okt. Gunnar Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.