Morgunblaðið - 05.11.1961, Page 2

Morgunblaðið - 05.11.1961, Page 2
2 MORCVNBL4Ð1Ð Sunnudagur 5. nðv. 1961 « Stjdrnarmyndun í Þýzkalandi Kanzlari kjörinn á þriðjudag Bonn, V.-Þýzkalandi, ý. nóv. — (AP) — TAI.ID er öruggt, að nú sé lokið hinum erfiðu samninga viðræðum um stjórnarmynd un í Vestur-Þýzkalandi, og Adenauer verði formlega kjörinn kanslari af sambands þinginu í Bonn n. k. þriðju- dag. Er það þá í fjórða sinn áhrif á utanríkisstefnuna hefur verið ákveðið að koma á fót inn- an utanríkisráðuneytisins nýju embætti sem jafnist að nokkru á við ráðherraembætti og falli í hlut einhvers úr flokki Frjálsra. Ákveðið er, að Adenauer fari í opinbera heimsókn til Washing- ton þegar í þessum mánuði. Hef ur borizt formlegt boð frá Kennedy Bandaríkjaforseta, sem verður afhent Adenauer, þegar er lýst hefur verið kjöri hans á þriðjudag. ---------------------------------D Danirnir mæta meisturunum Á mánudagskvöldið mæta þeir landsliði — siðasti leikur þeirra sem hann er kjörinn til þessa embættis. Samkomulagsviðræður Kristi- legra demokrata og Frjálsra diemokrata hafa staðið yfir í sjö vikur. I gaer lagði Adenauer fyrir þingflokk sinm og Erick Mende, formann Frjálsra, málamiðlunar- tillögu um stjómarsamstarfið Samþykktu Kristilegir tillöguna síðdegis í gær og Frjálsir eftir nokkurra klst. fund í gærkveldi. Þótt verulegrar andspyrnu gegn Adenauer hafi gætrt undan- farið þykir öruggt, að hann verði kjörinn á þriðjudag, — en kosn- ing er leynileg. Ekki hefur verið tilkynnt hverjir gegni ráðherra- embættum. Þó fengu Frjálsir demokratar því framgengt að Heinrich Von Brentano, utanríkis ráðherra, sagði af sér og 1 hans stað kemur núverandi innanrík- isráðherra í stjóom Kristilegra, Gerhard Schröeder. Til þess að gefa Frjálsum demokrötum meiri í DAG er fyrsti „stórleikur" ársins í handknattleik. Þá mætast íslandsmeistarar FH og danska handknattleikslið- ið ^Efterslægten. Leikurinn fer fram á Keflavíkurvelli. Tveir aukaleikir verða og hefst keppnin í húsinu kl. 2.45 e. h. Ferðir verða frá BSÍ kl. 1.15 og til baka strax að leiknum loknum. Bæði liðin tefla fram sínum sterkustu liðum og þar sem þessi leikur fer fram á nær fullstórum Islands- í dag velli þá er þetta ákjósanlegasti. samanburður milli danskt og íslenzks handknattleiks. í báðum liðum eru laildsliðsmenn — menn sem vakið haf aáhuga á handknattleiksíþrótt landanna beggja. A mánudagskvöldið leika Dan- irnir síðasta leik sinn í þessari heimisókn. Þá mæta þeir lands- liði. Sá leikur verður að Háloga- landi og hefst kl. 8.15. Landsliðið hefur ekki verið valið —, lands- liðsnefndin vill bíða eftir leikn- um á morgun og mun velja lið sitt þegar að honum loknum. Vegargerð að Heklu Hellu, 4. nóv. UM SlöUSTU helgi fóru 7 fé- lagar úr flugbjörgunarsveit Rangæinga í ferð að Heklu undir forustu Haiidórs Eyjólfssonar á Rauðalæk. Tilgangur fararinrnr var þríþættur: 1. Að kanna braut- argerð fyrir tæki, svo langt sem komizt yrði og merkja göngu- Df.iut. k. Almenn útiæfing í skainmdesi.þegar allra verða er von. 8. Að sjá Oskjuelda um Von arskarð. Brautarstæði er allgott norður eítir Næfuiholtsbjöllum að LitiU Heklu og er sú leið nú kuno. Vegvu: upp litlu Heklu er auf- unninn, svo sem vegur á Frosta- staðaháls við Landmannalaugar. Að þessu sinnj var ekki komizt lengra en að litlu Heklu, þvi þeir félagar hi epptu blindhríð, en ætlunin er að athuga brautar- stæði áfram í átt til Heklu á næsta vori Og kæmi þá væntan- lega til aðstoð Vegagerðar ríkis- ms. I þessari ferð ruddu þeir félag- ar hraumð frá Rangá að gamla Næfurholti og er það nú all greið- fært á fjailabílum. Vegagerðin fyrirhugar nú brúargerð á Ytn- Rangá innan við Galtalæk og er það góður áfangi í vegagerð á Heklu. Vegna snjókomu og storms sáu þeir félagar ekki eldana í öskju, en fengu aftur á móti góða æfingu í óveðrum i óbyggðum. — J.Þ. ------------------ > Sendinefndir 106 ríkja geta nú rúmazt í hinum stærri sam- komusölum aðalstöðva Sam einuðu þjóðanna í New York, eftir að breytingar voru gerðar á stórbygging- unni við Austurá. — Aðild- arríki SÞ er nú orðin 103, eins og kunnugt er, svo að ekkj má fjölga til muna í samtökunum, ef húsakynn- in eiga að rúma starfsem- ina. Spennandi dönsk bók BLAÐINU hefur borizt bókin „Tiden derefter“, eftir James Bar low (The Patriots) frá Det Schþnbergske forlag. Bókin fékk viðurkenningu brezkra gagnrýn- enda sem mest spennandi bók ársins og þykir höfundur hennar einn efmlegasti yngri rithöfunda sem komið hefur fram í langan tíma. Bókin fjallar um Reg Mills sem er fyrrveiandi fallhlífarhermað- ur. Hann kemur heim úr seinni heimsstyrjöldmni með skamm- byssu og heiðursmerki og upp- götvar að ekki verður lifað af því. — Hann tilheyrir hinum smáu í þjóðfélagi, sem hefur ekki lengur þörf fyrir karlmennsku og hugrekki. Inn í bókina eru fléttaðar raun- sæ.iar og spennandi frásagnir úr stríðinu. Þessi bck er eins og skáldsögur eiga að vera með persónum sem lifa, frásögn sem heldur athygli lesandans frá upphafi til enda. „Det Schþnbergske Fórlag" hef ur sent frá sér margar mjög skemmtilegar skáldsögur og tek- ur þessar mundir þátt í dönsku bókasýningunni í Bókaverzl. Sig- fúsar Eymundssonar. ""ALÞINGIS sameinaðs Alþingis mánudaginn 6. nóv. 1961, kl. 1:30 s.d. Rannsókn kjörbréís. Dagskrá neðri deildar Alþingis mánu daginn 6. nóv. 1961, að loknum fundi í sameinuðu þingi: 1. Skráning skipa og aukatekjur ríkissjóðs, frv. — 1. umr. 2. Bráðabirgðabreyting og framlenging nokkurra laga, frv. — 1. umr. — 3. Seðlabanki íslands, frv. — 1. umr. — 4. Ráðstafanir vegna ákvörðunar um nýtt gengi, frv., — 1. umr. — 5. Efna- hagsmál, frv. — 1. umr. — 6. Ferðaskrif stofa ríkisins, frv. — 1. umr. — 7. A\- mannatryggingar, frv. — 1. umr. Sprengingar í Ghana Accra, 4. nóv. — (AP) — | ÞAÐ bar við í Accra í dögun í morgun, að sprengjur sprungu á nokkrum stöðum í borginni. Urðu nokkrar skemmdir, a. a. munaði litlu að líkneski mikið af Nkrumah væri sprengt af stalii sínum. Sérstaka athygli vek ur. að sprengjumar sprungu á stöðum. þar sem ákveðið er að Elisabet Englandsdrottning verði viðstödd ýmiss konar athafnir, en hún er væntanleg í opinbera heimsókn til Ghana í næstu viku. Mesta spremigingin var við stóra bronzstyttu af Nkrumah. Styttan sjálf skemmdist mikið og munaði litlu að hún fyki af stallinum — en þar er letrað stóru letri: Leitic konungdóms stjómmálanna og yður mun veit- ast allt antnað. Lögreglumenn stóðu vörðu um styttuna í dag og bægðu frá forvitnum áhorfend-i um. Þá sprakk önnur sprengja á torgi nokkru, þar sem fyrir hug- að er að halda mikla hersýningu Elisabetu drottningu til heiðurs. Stórskemmdist þar minnismerki um fallna herm. Loks var sterk- ur orðrómur um, að tveim sprengjum hefði verið komið fyr ir í Kristjánsborgar kastala, þar sem Elisabet á að dveljast með- an hún dvelzt í Accra. Lögregla fékkst ekki til að staðfesta þá fregn en þar er nú öflugur vörð- ur. Þetta mum vera í fyrsta sinni sem til ofbeldisaðgerða er gripið í baráttuimi gegn stjórn Nkruma'h — en mikill urgur er nú í ibú- um Ghana vegna hinnar nýju löggjafar um að settir verði á stofn sérstakir dómstólar er hafi urslitavald til að dæma menn — jafnvel tiL dauða — fyrir brot gegn ríkinu. HÆÐIN yfir Grænlandi varð að vtkja fyrir lægðum, sem sóttu .aÖ úr suðvestri. I gær var o;'ðið þitt um land allt og horfur á frostlausu verði næstu dagana. Kalt heimskautaloft flæðir nú suður um vestanverða Evrópu, svo að þar kom víða nætuxfrost í fyrrinótt, jafn- vel í Frakklandi. # KVIKMYNDIR * KVIKMYNDIR * KVIKNlYNDIR * KVIKMYNDIR * Gamla Bíó: KÖTTUR A ÍIEITU ÞAKI Þessi ameríska mynd, sem tek- in er í litum, er byggð á hinu fræga verðlaunaleikriti „Cat oh a Hot Tin Roof“ eftir ameríska leikritahöfundinn Tennesse Willi ams, en höfundinn munu margir hér kannast við, því eftir hann hafa verið sýnd hér leikritin „Glerdýrin" (L.R.) og „Surnri hallar“ (Þjóðl.), og kvikmynd gerð eftir leikriti hans „A Street car Named Desire“. „Köttur á heitu þaki“ gerist í Suðurríkjum Bandaríkjanna á búgarði Pollitts gamla, eða „Big Daddy“ eins og hann er nefndur, en hann er eigandi víðlendustu bómullarekranna þar suður frá og vellauðugur. Synir hans, Brick og Gooper eru í heimsókn hjá gamla manninum ásamt konum sínum í tilefni af 65 ára afmæli hans. Briok yngri sonur Pollitts ög hin unga og fagra kona hans Maggie hafa verið gift í nokkur ár, en eru barnlaus, enda hjóna- band þeirra ófarsælt að heita rná frá upphafi vegna atburðar, sem Brick hefur ekki getað gleymt og varð til þess að hann hneigð- ist til dryikkjuskapar meira en góðu hófi gegndi. Reynir Maggie allt til þess að vinna aftur ástir manns síns, en árangurslaust. En átökin eru ekki aðeins milli þess- ara ungu hjóna. Pollitt gamli hafði byrjað með tvær hendur tómar en ásetningur hans að safna auði varð öllu öðru yfir- sterkari, svo að honum gleyimd- ist að sýna konu sinni og börn- um þá ástúð, sem skapar heim- ilisgleði og lifshamingju. Því ber Briok þungan hug til föður síns og með þeim verða miklar senn- ur oig Gooper og kona hans hugsa ekki u-m annað en að komast yfir eignir gamla mannsins að honum látnum. En kona „Big Daddy’s" ann manni sínum heitt þrátt fyr- ir allt, enda verður henni ákaf- lega um er hún verður þess áskynja að hann er haldinn ban- vænum sjúkdómi. Efni myndar- innar verður ekki rakið hér nán- ar. Aðeins skal þess getið að myndin er frábær í einu og öllu, efnismikil og áhrifarík og stór- kostlega vel leikin og verður i því efni vart gert upp á milli leikaranna sem fara með veiga- mestu hlutverkin, en þeir eru Elizabeth Taylor, sem leikur Maggie, Paul Newman, sem leik- ur Brick, Burt Ives, sem fer með hlutverk „Big Daddy’s", Judith Anderson, sem leikur konu hans, Jack Carson, í hlutverki Goopers og Madeleine Sherwood er leik- ur Mae konu hans. Allir fara þessir leikarar afburðavel með hlutverk sín, sem áður segir, en þó er leikur Judith Anderson’s ef til vill beztur, — blátt áfram óviðjafnanlegur, þar sem á reyn- ir. — Eg gæti séð þessa mynd oft. Stjörnubíó: UMKRINGDUR Allur heimurinn dóðist að hetju lund og baráttuhug Norðmanna er Þjóðverjar hernóimu land þeirra í heimsstyrjöldinni síðari, Var hin leynilega mótspyrnu- hreyfing heima fyrir mikilsverð- ur þáttur Norðmanna í viðnámi þeirra gegn kúgurunuim, enda vöru þar margir ofurhugar að verki, reiðubúnir að fórna lífi sínu fyrir föðurland sitt. Um baráttu þessara manna fjallar hin norska mynd, sem hér er um að ræða og byggð er á sönnum at- burðum frá hernámsárunum. — Bandamenn sendu marga fallhlífa menn inn yfir Noreg til þess að njósna um ferðir Þjóðverja, víg- búnað þeirra og aðrar aðgerðir, Framh. á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.