Morgunblaðið - 05.11.1961, Síða 11
✓ Sunnudagur 5. n^v. 1961
MOnrnxryT 4 r> 1 Ð
11
SÍÐUSTU sex árin hefur skær stjarna á kvikmyndahimn-
inum hulizt æ þéttara mistri, en nú ætlar hinn frægi kvik-
myndíistjóri Otto Preminger að greiða bólstrana aftur frá
henni.
Þegar það er haft í huga að stjaman er Gene Tierney,
sama stjarnan og Preminger hóf til frægðar fyrir sautján
árum í kvikmyndinni „Laura“, má segja að hann tefli djarft.
Þá var hún 26 ára, ljómandi fögur og rik. í dag getur hún
ekki lengur talizt ung, né heldur jafn fögur, þó auðurinn
hafi ekki þorrið. »
En í þá mund var hún hress og heilbrigð; nú er hún
nýlæknaður geðsjúklingur. Síðustu sex árin ftefur Gene
Tierney verið tekin með valdi og lögð inn til geðlækninga
hjá ýmsum sálfræðingum.
9 — Það hvíla álög á henni, segja vinir hennar og bæta
við með samúð: — Ferill hennar byrjaði svo glæsilega.
Gene Tierney ólst upp á hamingjuríku og auðugu heimili.
Henni var ekki fullkomlega ijóst, hvað hún ætti að taka
sér fyrir hendur, eftir að hún var búin að slíta bamsskónum
og fereldrar hennar höfðu haidið kynningardansleik hennar
á Waldorf Astoria. Hún hafði hug á að komast í kvikmynd-
imar, en gerði sér grein fyrir að því marki yrði ekki náð
fyrirhafnarlaust.
Hún fór því í nokkra leiklistartíma og fékk hlutverk í
leikriti, sem sýnt var á Broadway og nefndist: „The Male
Animal“. Leikritið vakti mikla hrifhingu og hún fékk
strax stór hlutverk í kvikmyndum. Nafn hennar var baðað
neon-ljósum næstu fimm árin.
• Oleg Cassini, greifi af ítölskum ættum, vakti fyrstu
alvarlegu ástina í brjósti hennar. Þá var hann ekki neitt,
í dag er hann frægur klæðskeri í Hollywood. Hjóna'band
þeirra byrjaði líkt og austurlenzkt ævintýri í kvikmynd.
Hann rændi henni. Fjölskyldan varð æf, en róaðist fljót-
lega, og allt virtist í himna lagi, þar til tveir afdrifaríkir
atburðir gerðust. Foreldrar Gene Tierney skildu og hún
eignaðist bam, sem dæmt var til að lifa í einangrun um
aldur og ævi.
Þunglyndi það og svartsýni, sem einkenndi hina frægu konu
um ánaraðir, eru talin eiga rót sína að rekja til þessara
atburða.
• — Hún má ekki hugsa of mikið um fortíð sína, ráð-
leggja sálfræðingamir. En nýlega sagði hún í viðtali, að
erfiðustu augnablik ævi sinnar hefðu verið þau, begar viss
hjúkrunarkona gekk á fund hennar, og þegar hún kynntist
vissu, heimsfrægu kvennagulli.
Hjúkrunarkonan var ein af ótaimörgum, sem störfuðu á
vegum Rauða krossins innan bandaríska hersins. Hún var
mikill aðdáandi Gene Tierney og þegar stjarnan hélt
skemmtun fyrir 'hermennina, náði hún tali af henni og
virti að vettugi að hún var í sóttkví. Hjúknunarkonan
gætti barna með smitandi sjúkdóma, mislinga, rauðu hund-
anna o. s. frv. Það er talin nokkurn veginn öruggt, að
hjúkrunarkonan hafi smitað Gene Tiemey og átti sök á
því að frumburður hennar fæddist vanheiil.
Heimsfræga kvennagullið var Aiy Khan. Hann var þá
nýskilinn við Ritu Hayworth og var ekki seinn á sér að
stofna til nýs ástarævintýris með annarri kvikmyndastjömu
frá Hollywood, Gene Tierney. Um það ástarævintýri var
mikið talað um heim allan. En Aga Khan, faðir hfms,
lagði blátt bann við öðru hjónabandi — og þegar Aly
Khan neyddist til að segja sinni heittelskuðu frá tíðindun-
um, var hún flutt á geðveikissjúkrahús.
• Hún hvarf í fjögur ár. Þá skaut henni skyndilega upp
aftur í kjólaverzlun í Topeka í Kansas. Þar vann hún sem
afgreiðslustúlka, hún var orðinn virkur þátttakandi í lífinu
á ný.
• Saga hennar vakti bá gífurlegt umtal í blöðum. Og ekki
batnaði það, þegar hún gifti sig í annað sinn. Sá hamingju-
sami var olíukóngurinn Howard Lee, núverandi eiginmaður
hennar. Þau hafa iifað hamingjusömu og rólegu lífi út áf
fyrir sig, ásamt yngstu dóttur hennar frá fyrsta hjónabandi,
Þannig leit Gene Tierney út, þegar hún var upp á sitt bezta.
Christina, þar til Otto Preminger tókst að tala um fyrir
þeim og fékk hana til að reyna að sigra á ný.
Af þeim sökum er hún aftur farin að leika í kvikmynd-
um. Hún leikur aðal-kvenhlutverkið í kvikmyndinni:
„Hneyksli í Washington“, sem er alvarleg hugvekja um
spiHinguna á æðstu stöðum. Meðleikarar hennar eru Peter
Lawford, mágur Kennedys forseta, Henry Fonda og Charles
Laughton. Betri félaga getur hú nvart kosið sér.
Kvikmyndatakan fer ekki fram eftir gömlu uppskriftinni.
Enginn hefur aðgang að upptökuherberginu, enginn má
horfa á baráttu hennar fyrir framan kvikmyndavélina.
Aðeins tveir menn gæta hennar; Otto Preminger og
Howard Lee.
En það verða móttökur kvikmyndahúsgesta, sem dæma
um það hvort stjarnan getur skinið af eigin rammleik, eða
hvort hér sé aðeins um endurkast að ræða.
íbúðir óskast
Höfum kaupendur að tveggja, þriggja og fjögurra
herbergja íbúðum. Fjögurra til fimm herbergja íbúð
með sérinngangi og sérhiia, óskast nú þegar.
Mikil útborgun.
SVEINN FINNSSON, lidl.
málflutningur — ver'ðbréfasala
fasteignasala — skipasala
Laugavegi 30 — Sími 23700.
Iðnaðarhúsnæði
um 250—500 ferm. óskast til kaups á góðum staS
í bænuin.
Nýfa fasfeignasalan
Bankastræti 7 — Sími 24300.
og kl. 7,30—8,30 e.h. Sími 18546
Vasaljós
20 mismunandi tegundir
Krómuð og mislit
Verð frá kr. 57,50
Gú mmí vasal jós
Pennavasal jós
V asaljósabatterí
Vasaljósaperur
Borðlampar
Hengilampar
Vegglampar
Gaslugtir
Olíuofnar
Smíðajárnslampar
•
Olíulampar 10‘“
Olíutýrur
Lampaglös
Handlugtir
Handlugtarglös
Lampakveikir
Arinsett ('smiðajám)
Fýsibelgir
Sandriken Sagir
Þverskerar
Langskerar
Stingsagir
Bergs sporjárn
1/16“—2“
Hallamál, aluminíum
Klaufhamrar
Borsveifar
Brj óstborvélar
Járnsagir
Blikkskæri
Heflar, jám
Útsögunarsagir og blöð
Skátaaxir
Skátadolkar
•
Þjalir
Flatar
Hálfrúnnar
Rúnnar
Ferkantaðar
Þrístrendar
Sverðþjalir
Tréraspur
•
Tengur
fjölbreytt úrval
Plast þéttilistar
fyrir hurðir og glugga
Gólfmottur
Kókus> margar stærffir
Gúmmímottur
Járnmottur
Klossar
lágir og með spennum
Sandalar með trébotni
Verzíun
0. Ellingsen