Morgunblaðið - 12.11.1961, Page 23

Morgunblaðið - 12.11.1961, Page 23
Sunnudagur 12. nóv. 1961 MORGUNBLÁÐIÐ 23 Hvar fellur helrykiö? EXNS OG MorgunMaðið hefur skýrt frá í fréttuim, saigði Krú- sjeff, forsætisráðherra Sovét- rikjanna, í samtali við frétta- menn fyrir skömimu, að mann kyninu stafaði hætta af því geislavirka ryki, sem falla mundi til jarðar vegna stór- sprenginga Sovétrikjanna und anfarnar vikur. Eins og gefur að skilja, hef ur fóiki hryllt við þessum ógn arlegu tilraunum Sovétríkj- anna ag ummæli Krúsjeffs hafa ekiki dregið úr þeim ótta, sem greip um sig, þegar 50 megalesta sprengjan var sprengd. Enda er það mála sannast, að flesitir vísinda- menn eru þeÍTrar skoðunar, að tilraunir Bússa muni hafa í för með sér hinar hrylli- legustu afleiðingar, margir munu fá krabba ait þeirra völdum, aðrir verða vanskap- aðir o.s.frv. Hins vegar veit enginn, hversu margir ein- staklingar verða fyrir barðinu á helrykinu, né heldur er ör uggt hvar helrykið verði mann lífi skaðvænlegast. Eins og Morgunlblaðið skýrði frá 30. okt. s.l., gerðu vísindamenn við veðurstofu Bandaríkjanna áætlun um, hvernig úrfall af strontium 90 vegna risasprengju Bússa mundi dreifast um heims- byggðina. Var kort þetta birt í Morgunblaðinu og fjölmörg um blöðum víða um heim. A því var gert ráð fyrir, að mest úrfall af strontinum 90 mundi falla til jarðar á fjórum svæð um í heiminum og var Is- land á einu þeirra. Auðvitað gerðu vísindamennirnir náð fyrir, að hér væri ekki um neina ákveðna niðurstöðu að ræða, heldur spádóm, sem byggður er á mestum lí'kum eftir nákvæmar athuganir. Síð an hafa komið fram ýmsar aðr ar kenningar umþað, hvar hel rykið af stórsprengjum Bússa verði mannkyninu hættuleg- ast. 1 síðasta hefti af banda- ríska timaritinu U.S. News and World Beport, er t.d. birt kort með nýjum spádómi blaðs ins. Samkvæmt honum mun helrykið frá stórsprengjum Bússa að mestu leyti falla á norðurhveli jarðar og eirtkum á breiðu belti fyrir sunnan ís- land (sjá meðfylgjandi kort). Blaðið segir, að 95% af öllu því geislavirka ryki, sem var í andrúmsloftinu áður en Rússar hófu tilraunir sínar nú, hafi fallið til jarðar á milli 30. og 50 breiddargráðu. Þá segir U.S. News enn- fretnur, að stærsta vetnis- sprengja, sem Rússar sprengdu, hafi verið milli 50 og 70 megalestir. Rússar hafa á 63 dögum sprengt a.m.k. 30 kjarnorkusprengjur. Fyrsta sprengjan var sprengd 1. sept. s.l. í þessum kjarnorku- sprengjutilraunum hafa þrjú tonn af geislavirku ryki farið upp í gufuhvolfið eða helmingi meira en allt það ryk, sem þyrlazt hefur frá jörðu í fyrri tilraunum stórveldanna. Visst magn af þessu helryki frá kjarnorkusprengju Sovétríkj- anna mun falla til jarðar í Sov étríkjunum sjálfum. Fyrir skömmu birtist skopteikning í einu stórblaðanna með rúss neskum bónda og konu hans þar sem þau stóðu úti á akri. Geislavirku ryki rigndi yfir þau. Maðurinn leit til himins og sagði: „Miklu er þetta nú auðveldara fyrir Krúsjeff en Stalin. Stalin sendi okkur til Síberíu, en Krúsjeff sendir Síberíu til okkar.“ U.S. News and World Re- ! port bendir á, að undirbúning j urinn undir tilraunirnar við j Novaja Semlaja hafi tekið j Rússa 34 mánuði. Þeir hafa! þannig allan tímann sem þeir ! sátu við samningaborð og þótt | ust vinna að því að koma á ] allsherjarbanni gegn kjarn- orkusprengjutilraúnum setið j á svikráðum, ekki aðeins við I Vesturveldin, heldur mannkyn j ið allt, og undirbúið þær ógnj arlegustu helsprengjutilraun- i ir, sem sögur fara af. í þessu sambandi er vert að geta þess, að blaðið skýrir ennfremur frá því í grein, sem það nefnir „Astæðan til þess að Banda- ríkin geta nú ekki hafið til- raunir með stórar spr.engjur“, að Bandaríkjastjórn hafi með an á samningaviðræðunum stóð hætt öllum undirbúningi undir kjarnorkusprengjutil- raunir. Ýmsar ákýringar hafa kom ið fram á því, hver sé ástæðan til þess að Rússar hófu nú að gera kjarnorkusprengjutilraun ir og í jafnríkum mæli og raun ber vitni. Var t.d. ástæða til þess að sprengja stóru sprengj urnar? í forystugrein Morgunblaðs ins nú nýlega, þar sem vakin var athygli á þeirri skoðun bandaríska stórblaðsins New York Times, að Krúsjeff sé reiður yfir þeim mistökum að geta ekki beygt albanska og kínverska kommúnista undir alræði sitt og vilja því sýna þeim og öðrum í tvo heimana. Stefna hans um friðsamlega sambúð hafi mistekizt. And- stæðingar hans bendi sífelld- lega á Ungverjaland og Paster nak því til sönnunar, og því hafi hann tekið upp nýja stefnu, stefnu helsprengjunn- ar og megalestanna. U.S. News and World Report túíkar ekki ósvipaða skoðun, þegar það segir: „önnur ástæðan fyrir tilraununum var sú að reyna að hræða umheiminn og hafa áhrif á kommúnistaleiðtogana í heiminum, sem komu sam- an í Moakvu á 22. flokksþing- ið. Nikita Krúsjeff vildi ekki aðeins sýna hinum tryggustu fylgismönnum sinum þessi nýju vopn, heldur vildi hann einnig, ef unnt væri, hræða leiðtoga Rauða Kína, sem eru honum ósammála". En blaðið bætir því við, að engin á- stæða sé til að setla að ótti hafi gripið um sig í Bandaríkj unum eða Vestur-Evrópu. En hvað sem þessu liður hljóta þjóðir heimsins að ein blína á þá staðreynd, að kjarn orkusprengjutilraunir Sovét- rikjanna undanfarið hafa eitr að andrúmsloftið og gert líf mannsins á þessum hnetti ó- tryggara en það nokkurn tima hefur áður verið. Hitt er »vo annað mál, að tkninn mun leiða í ljós, á hvaða þjóðum helryk Rússa kemur harðast niður. Við skulum efcki gleyma því, að helrykið er börnum okkar hættulegast, eða eins og Nóbelsvisindamað urinn dr. Henmann J. Muller komat nýlega að orði, þegar hann var spurður: — Er hætt an meiri fyrir börn en full- orðna? — Hún er meiri fyrir börn- in, sag'ði v':::ndariaðurinn. Athugasemd frá Sambandi ís- lenzkra trygginga- félaga VEGNA ummæla hæstvirts sjáv arútvegsmálaráðherra, Emils Jónssonar, á íundi Landssam- fcands ísl. útvegsmanna síðastl. föstudag, og höfð voru eftir ráð- herranum í blöðum og útvarpi, þess efnis að tryggingarkjör fiskiskipaflotans hér á landi séu 200% dýrari en í Noregi, og jafnvel meira, vill stjórn Sam- bands íslenzkra tryggingafélaga taka eftirfarandi fram: ^ 1. Sú rannsókn, sem ráðherr- ann vísar til, og greinargerð, sem henni fylgdi, nær eingöngu til þeirra fiskiskipa, sem skyldu- tryggS eru hér á landi sam- kvæmt lögum, þ.e.a.s. þilfars- fiskiskip undir 100 brúttó tonn. flins vegar var ekkert samband eða samvinna höfð við þau trygg ingafélög, sem tryggja skip á frjálsum markaði, þ.e.a.s. skip 100 tonn og stærri. 1 2. f»að skal skýrt tekiS fram, að eigi er nægjanlegt að horfa á iðgjaldstaxtana sjálfa, held- ur er einnig nauðsynlegt að gera samanburð á tryggingarskilmál- unum. Hér á landi eru trygg- ingarskilmálar þeirra fiskiskipa, sem tryggð eru á frjálsum mark- aði hinir víðtækustu sem til eru í heiminum, svo að þegar þeir verða bomir saman við norska skilmála hlýtur að koma í ljós hvfer reginmunur er hér á. 3. Þessir fullkomnu skilmálar voru teknir upp hér á landi eftir tilmælum útgerðarmann- anna sjálfra, sem vildu heldur greiða lítið eitt hærri iðgjöld en fá á móti meiri bætur. 4. Iðgjöldin á frjálsum mark- aði byggjast fyrst og fremst á tjónareynslu hvers einstaks skips og kemst iðgjaldstaxti fyrir þessa fullkomnu skilmála niður Samkomuc Bræðraborgarstigur 31 Sunnudagaskóli kl. 1.30. Almenn samkoma kl. 8.30. Allir velkomnir. Almennar samkomur Boðún fagnaðarerindisinsi í dag sunnud. að Austurg. 6, Hafnarfirði, kl. 10 f. h. að Hörgis- hlíð 12, Rvik kl. -8 e. h. Barna- samkoma kl. 4 e. h. (litskugga- myndir). i.■: ■■ FORD CONSUL CAPRI ÞAÐ hefur mikil breyting orð- ið á bílasöiumálunum hér eftir að innflutningur bifreiða var gefinn frjá’s. Nú keppast um- boðin um að kynna vörur sín- ar og sanna væntanlegum kaup jndiini ágæti bifreiðanna. Bílasýninj ai eru halduar þar sem kaupendurnir geta skoðað bifreiðirnar í stað þess sem áður var þegar ljósm>ndir urðu að rægja. A föstudagskvöld opnaði Sveinn Egi’sson h.f. sýningu að Laugavegi 105 og verður í um 3% af tryggingarfjárhæð- inni, 5. Samband ísl. tryggingafé- laga leiðir hjá sér að fara út í einstök atriði í þeirri greinar- gerð, sem ráðherrann vísaði til, þar sem það telur það frekar verkefni bátaábyrgðarfélaganna og Samábyrgðar íslands á fiski- skipum, en til viðbótar framan- rituðu má einnig benda á að- stöðumuninn hér á landi og í Noregi, hvað snertir hafnarskil- yrði, veðurfar og fleira. Reykjavík, 11. nóv. 1961 1 stjórn Sambands íslenzkra tryggingaf élaga: Stefán G. Björnsson Ásgeir Magnússon Gísli Ólafsson. hún opin til kl. 10 I kvöld. Þarna eru sýndar tvær brezkar Fordbifreiðir, Consul 315 og Consul Capri. Consul 315 er nokkuð ný gerð, kom fyrst á markaðinn í sumar eftir lang- varandi tiiraunir og reynslu- akstur víða um heim. Var bif- reið þessari lýst hér í blað- inu í sumar og hafa a. m. k. tvær bifreiðir af þessari gerð sézt á götum höfuðborg- arinnar undanfarið. Hin bif- reiðin Consul Capri, er alveg ný. Þetta er „sport“ útgáfa af Consul 315, tveggja manna bif reið með mjúkum og fallegum útlínum. I sambandi við sýninguna hjá Sveini Egilssyni h.f. kom hingað til lands fulltrúi frá Ford verksmiðjunum i Dagen- ham, Mr. A. E. Lawrence. Við opnumna ávarpaði hann gesti og skýiðt helztu kosti Fordbif reiðanna. Sagði hann að Consut bifreiðirnar væru sér- staklega sterkbyggðar og þaul reyndar við öll skilyrði. Aður en fram.eiðsla hófst var bif- reiðum af þessari gerð ekið 36 þúsund km vegalengd í Norð- ur Ameríku, sömu vegalengd í Afríku og 100 þús. km. vega- lend í Þýzkalandi. Consul 315 er með aftur- rúðu, sem hallar inn að neðan, en þessi nýung var fyrst tek- in upp hjá Anglia bifreiðum frá sömu verksmiðju. Sagði Mr. Lawrence að þessi nýung væri til afar mikilla hagsbóta. A rúðuna settist hvorki regn né snjór og útsýni væri afar gott. Einnig eykst mjög geymslurými í „skotti" við þessa tilhögun og farþegar , aftursæti fá aukna hæð undir loft. A sýningunni eru einnig dísilvéiar í bifreiðir og báta og eldri bifreiðir af ýmsum gerð- um, sem settar hafa verið í Ford disilvélar. Sýr.mgin er hin athyglisverð asta, en líklegt er að flestum verði sta.ldi að lengst við augna yndið Ford Consul Capri. Fíladelfía Sunnudagaskóli kl, 10.30. — Á sama tíma að Herjólfsgötu 5, Hafnarfirði. Brotning brauðsins kl. 4. Almenn samkoma kl. 8. — Hoovard Anderson talar og syngur. Hann biður einnig fyrir sjúkum. — Allir velkomnir! Zion Austurgötu 22, HafnarfirSi Sunnudagaskóli kl. 10.30. Almenn samkoma kl. 4. Allir velkomnir. Heimatrúboð leikmanna. Hjálpræðisheriim Kl. 11: Helgunarsamkoma. Kl. 14: Sunnudagaskóli. Kl. 20: Hjálpræðissamkoma. Kaft. Anna Ona stjórnar. Samkomur dagsins. t Allir vetkomnir. ■ AIMDESPIL Husk Srets störste Andespll Tirdag den 14. nóv. kl. 21.00 í Sjálfstæðishúsinu. Billetter fás í VINNUFATA- KJALLARINN, Barónsstíg 12 og í GOÐABORG, Hafnar- stræti 1 Foivningen Dannebrog.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.