Morgunblaðið - 26.11.1961, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 26.11.1961, Qupperneq 2
2 M O R a rr \ Tt T. 4 fíJÐ Sunnudagur 26. n6v. 1961 Bjarni Benpdiktsson aöal- ræðumaður 1. des. Fullveldisfagnaður að Hötel Borg UNDIRBÚNINGI stúdenta undir hátíðahöldin á fullveld isdaginn, 1. desember, er nú JkS ljúka. Hafa stúdentar ákveðið, að dagurinn verði •S þessu sinni helgaður „vest rsenni samvinnu“, og mun aðalræða dagsins, sem Bjarni Benediktsson forsætisráð- herra flytur, fjalla um það afni. Einnig mun Stúdenta- blað, sem út kemur þann dag, að verulegu leyti fjalla nm þetta efni. Sajnkoman í hátíðasa] háskóJ- ans hefst kl. 14.00, og verður útvarpað frá henni. Hörður Ein- arsson stud. jur., formaður há- tíðanefndar stúdenta, setur sam komuna með stuttu ávarpi, en aS því loknu flytur forsætisráð- herra ræðu sína. Þá flytur Há- kon Guðmundsson hæstaréttar- ritari erindi um kjör og stöðu hins háskólamenntaða manns, og formaður SHÍ, Hörður Sigur- gestsson stud. oecon., flytur svo fultveldisfagnað sinn, sem ávarp. Á milli atriða leikur svo strengjatríó, sem í eru Jón Bjami Benediktsson Sen, Einar Vigfússon og Jórunn Viðar. Fyrr um daginn, eða kl. 10.30, verður guðsþjónusta í kapellu háskólans, sem einnig verður útvarpað. Þar prédikar Bolli Gústavsson stud. theol., en séra Garðar I>orsteinsson þjónar fyr- ir altari. Stúdentakórinn syng- ur við guðsþjónustuna, en stjórn andi hans er Þorkell Sigur- björnsson. Um kvöldið halda stúdentar — Sundlaug Framh. á bls. 2. byggmgarnefnd, og var Birgir Kjaran formaður hennar. Það tók nefndina fjögurra ára baráttu að fá fjárfestingarleyfi, en það fékkst loks árið 1957. önnur fjög ur ár hafa svo farið til ýtarlegs undirbúnings og smiði laugarinn- Hvergi hefur verið sparað til þess að gera laugina sem vandað- asta úr garði, og fylgzt hefur ver- ið með öllum nýjungum erlendis þessu viðkomandi. Bárður ísleifs son arkitekt teiknaði laugina, en Byggingarfélagið Brú sá um smíð ina. Laugin er 12 x 25 metrar auk 200 fermetra vaðlaugar. Gert er ráð fyrir, að 125 geti verið í lauginni í einu, en búningsklefar eru fyrir 108. Aðstaða verður fyr- ir sólbaðsiðkendur á sumrin, svo að alls geta á fjórða hundrað manns þá dvalizt þar í senn. Margs konar nýjungar eru í sam bandi við laugina. Vatnið er hreinsað með sérstökum klór- hreinsunartækjum, vönduð hita- stillingartæki eru í kjallaranum, útfjóluibláir geislalampar í útiskýl um, ljóskastarar undir vatnsyfir- borði og hitalagnir undir stétt- um. í kjallara er heit setlaug og gufubaðstofa. Uppi er komið fyrir fiskiþró — aquarium — með um 300 tegundum suðrænna skraut- fiska, og eru nöfn þeirra á vegg- töflu. Kerið stendur á líparitfót- stalli, sem Atli Már Árnason hef ur gert. Mjög fagrar skreytingar eru á vegg og í lofti eftir listakonuna frú Barböru Ámason. Gosbrunn heíur Guðmundur Einarsson frá Miðdal gert Birgir Kjaran skýrði að lok- um frá því, að umhverfis iaug- ina yrði hvildar- og skemmti- garður, þar sem fólk gæti unað í skjólkvosum og bölum. Þé afhenti hann bæjarstjórn Og borgarstjóra sundlaugina. Borgarstjóri, Geir Hallgrímsson, tók þessu næst til máls. Þakkaði hann byggingarnefnd, formanni hennar, Birgi Kjaran, fram- kvæmdastjóra hennar Gísla Hall- dórssyni og öðrum aðiljum fyrir störf þeirra. Minnti hann á, hvernig aðstaða til sunds hér í bæ hefur batnað frá því að menn fóru í gömlu laugarnar inni í Laugarnesi og í svo fulveldisfagnað sinn, sem að þessu sinni verður að Hótel Borg. Hefst fagnaðurinn með borðhaldi kl. 19. Fer þar fram fjölbreytt dagskrá, en veizlu- stjóri verður Jón E. Ragnarsson, stud. jur. Formaður SHl set- ur fagnaðinn, og ræðu kvöldsins flytur dr. Sigurður Þórarinsson, jarðfræðingur. Þá verður sýnd- ur skemmtiþáttur og að lokum leikur hljómsveit Björns R. Ein- arssonar fyrir dansi til kl. 2 um nóttína. Aðgöngumiðasala að fagnað- inum hefst n. k. mánudag og verður í skrifstofu SHÍ í há- skólanum á eftirtöldum tímum: mánudag kl. 11—12 og 3—5, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag kl. 11—12 og 2—3. 1. desember verða aðgöngumið- ar svo seldir að Hótel Borg. Að venju gefa stúdentar út Stúdentablað 1. desember, eins og áður segir. Ritstjóri blaðsins er Björn Matthíasson stud. oecon. ‘Wí'i' - váíjsfc,'--. Mfch*. 'm/: ; *wiií /jhhi Benedikt Gröndal Jón Skaftason Matthías A. Mathiesen Varðbergsfund- ur á Akureyri VARÐBERG, félag ungra áhugamanna um vestræna samvlnnu, efnir til almenns fundar í Borgarbíói á Akureyri mánudaginn 27, nóvember næstkomandi. Fundurinn hefst klukkan 8:30 og verðiur fundarefni „Island og vestræn samvinna“. Frummælandur á fundinum verða: Benedikt Gröndal, alþingismaður, Jón Skaftason, alþingismaður, og Matthias Á. Mathiesen, alþingismaður. Að ræðum frummæienda loknum verða frjálsar umræður. —„ Stuðningsmenn vestrænnar samvinnu eru hvattir ttl fjöl- menna á fundinn. Segir Starfsmannafélag Rvíkurbæjar sig úr BSRB? sjóinn við Effersey (örfirisey). Síðan hafa sundlaugarnar verið endurbættar, sundhöll reist Og nú sundlaug í Vesturbænum. Unnið væri að nýju sundlauginni í Laugardal, sem væntanlega yrði tekin í notkun að rúmura tveim- ur árum liðnum. Þá minntist borgarstjóri á þá hugmynd að hita upp sjóinn í Nauthólsvík. Tilbúin er áætlun xim framkvæmd þess. Kvað hann bæjarsjóð hafa veitt sl. 4 ár 18 milljónir króna til íþróttamann- virkja. Að lokum mælti borgarstjóri: „Að þessu leyti er þetta mann- virki eitt merki þess, að í vaxandi borg verður sífellt að fara meira inn á þá braut að leysa þarfir borgaranna í hinum ýmsu hverf- um, þar sem þeir búa. Um leið og ég óska því Vestur- bæingum til hamingju með Sund laug Vesturbæjar, áskil ég þó okkur hinum allan rétt til afnota af þessari skemmtilegu laug. Megi hollusta og heUl fylgja öllum, sem hingað koma“. Er menn höfðu skoðað öll mannvirki þarna, var sundlaugin vígð. Steyptu sér fyrst fjórar stúlkur út í til sunds, en síðan fjórir piltar. Stúlkurnar voru Margrét Óskarsdóttir, Sigrún Sig valdadóttir og systurnar Hrafn- hildur og Kolbrún Gunnarsdætur, en pUtarnir Guðmundur Gísla- son, Siggeir Siggeirsson, Erlingur Jóhannesson og Guðmundur Þ. Harðarson. Forstöðumaður Sundláugar Vesturbæjar er Höskuldur Goði Karlsson. TIL tíðinda dró á aukaþingi Bandalags starfsmanna ríkis og bæja á föstudagskvöldið er lagt var fram irumvarp að samnings- rétti til handa opinberum starfs- mönnum. Er frumvarpið var lagt fram lýstu fulltrúar Starfsmanna félags Reykjavíkurbæjar því yfir, að þeir teldu að frumvarpið skorti þann samningsrétt, sem fé- lagið hefði þegar áunnið sér, og hallaði mjög á starfsmannafélög bæjanna. Yrði það samþykkt þá yrði tekið til athugunar að Starfs mannafélag Reykjavíkurbæjar sagði sig úr samtökunum, en það er stærsta félagið innan þeirra. Mbl. átti tal við Þórð Ágúst Þórðarson, formann Starfsmanna félags Reykjavíkurbæjar, í gær varðandi mál þetta. Skýrði Þórð- Leiðrétting AKRANESI, 25. nóv. — Árni Helgason, skipaskoðunarmaður, sagði mér að ranghermt hefði verið um bátinn Sigurvon. Vegna þess hringdi ég til skipstjórans, Einars Jónssonar Mýrdals, og purði hann hvað hið sanna væri um Sigurvonina. Ekkert kjalsvín var sett í bátinn. Báturinn strand aði, er hann var á Hvalfjarðar- sundi 1947, og þá var gert við kjalskemmdirnar á honum í Reykjavík. Kjalskórinn er 8,25 m langur. Sett voru 4 umför í hana bakborðsmegin af húsýjum. Að lokum sagði Einar slippstjóri, að Sigurvon væri alveg ófúið skip. — Oddur. ur svo frá, að aukaþing Banda- lags starfsmanna ríkis og bæja hefði verið kvatt saman til þess að ræða launa- og samningsrétt- armál opinberra starfsmanna. Frumvarpið ekki senl til umsagnar Þórður sagði, að frumvarp það, sem lagt var fram af stjórn bandalagsins í gær, hafi ekki kom ið fyrir sjónir fulltrúanna fyrr en þá og var það ekki sent félög- unum til athugunar og umsagnar áður. Væri þessi afgreiðsla máls- ins með öllu óviðunandi, og teldi Starfsmannafélag Reykjavíkur- bæjar að ekki væri hægt að af- greiða málið á þessu þingi. Auk þess skerti frumvarpið þann samningsrétt, sem Starfsmanna- Fullvelldisfognaður Stúdentu- iélngsins verður í Lídð 30. nóv. HINN 30. nóv. gengst Stúdenta- félag Reykjavíkur að venju fyrir fullveldisfagnaði og verður vel til hans vandað og ýmislegt sér til gamans gert. Fagnaðurinn verður haldinn í veitingahúsinu Lídó og hefst með borðhaldi kl. 7. Ræðumaður kvöldsins verður Torfi Hjartar- son, tollstjóri. Árni Tryggvason leikari flytur gamanmál sem Guð mundur Sigurðsson hefur samið í tilefni dagsins. Páll ísólfsson sér um að ekki slakni á gleð- skapnum og stjórnar almennum söng. Við þetta tækifæri verða nokkrum velunnurum félagsins veitt gullstjarna Stúdentafélags- ins. Að lokum verður dansað. í fyrra seldust miðar upp á skómmum tíma og er því viss- ara að láta ekki dragast að tryggja sér aðgang að fagnaðin- um. Aðgönumiðasala verður í Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds- sonar þriðjudaginn 28. nóv kl. 4—6 og verða borðpantanir af- greiddar um leið. félag Reykjavikurbsejar hefði þej ar áunnið sér hjá Reykjavíkurbaa og hallaði á starfsmannafélög bæjanna yfirleitt. Fulltrúar Starfsmannafélag* Reykj avíkurbæj ar fluttu því yfir- lýsingu á þinginu á föstudags- kvöldið þess efnis að ef frum- varpið um samningsrétt yrði af- greitt á aukaþinginu mundi Starfsmannafélag Reykjavíkur- bæjar taka til athugunar hvort það ætti lengur samleið með Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja. Fer yfirlýsingin orðrétt hér á eftir: „Þar sem vér höfum ekki haft tækifæri til að ræða frumdrög til laga um samningsrétt opinberra starfsmanna við umbjóðendur okkar á almennum félagsfundi og vér getum ekki séð að nægur skilnaður sé gerður á samnings- réttaraðild ríkisstarfsmanna og bæjarstarfsmanna, einkum þó starfsmanna Reykjavíkurborgar, tökum vér ekki þátt í atkvæða- greiðslu um frumdrög þessi á þinginu, en gerum fyrirvara um úrsögn félagsins með þeim hætti, sem lög bandalagsins gera ráð fyrir“. Undir yiirlýsingu þessa rituðu allir viðstaddir þingfulltrúar Starfsmannafélags Reykjavíkur- bæjar. t „Gasljós64 sýnt í Hlégarði Leikfélag Hveragerðis hef- ur að undanförnn sýnt leikritið „Gasljós“ í ná- grenni Reykjavíkur og eru sýningar nú orðnar 12. — Næsta sýning á leiknum verður n. k. sunnudags- évöld kl. 9 í Hlégarði i Mosfellssveit. /* NAIShnúter / SV 50 hnútor H Snjókomo f OS/ 7 Skúrk R Þrumur Wítit Kutíooh! Hitoskif HHmt 1 HELDUR var farið að draga úr óveðrinu á Vestfjörðum og Norðurlandi í gærmorgun, en einna verst var það þá á Norð Austurlandi, 8—9 vindstig Og snjókomá. Ekki gat heitið, að snjókoman næði til Suður- lands, en þó voru él til fjalla. Hitinn var um frostmark á Austfjörðum og SuðAustur- landi, en víðast 4—5 stiga frost annars staðar. — Lægðin fyrir austan land var farin að grynn ast, en aftur á móti var hæðin yfir Grænlandi vaxandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.