Morgunblaðið - 26.11.1961, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 26.11.1961, Blaðsíða 24
Fréttasímar Mbl. — e/tir lokun — Innlendar fréttir: 2-24-84 Erlendar fréttir: 2-24-85 Reykjavíkurbrét Sjá bls. 13. 269. tbl. — Sunnudagur 26. nóvember 1961 Ófært um ullt Norðurlund Öveörinu held- ur að slota NOKKURT lát virtist í gær- kvöldi á hinum gífurlega veðurofsa, sem gengið hefur yfir Norðurland síðustu daga. Var orðið sæmilegt um vestanvert Norðurland, ið, og heldur lát á veðri um austanvert landið. Erfitt var að afla nákvæmra frétta af sumum stöðum á Norður- landi vegna sambandsleysis. T.d. var bilun á austurlín- unni frá Möðrudal og á Fljótsheiði. Einnig var fólk lítið farið að fara út til að kanna skemmdir. Ófeerð er viða mikil á vegum. í Þingeyjarsýslum og Eyjafirði er næsíUm ófært milli hiúsa. Á- æ<tlunarbíllinn, sem fór frá Aik- ureyri á fimmtudagsmorgun fest- ist í skafli í Blönduhlíð og voru farþegar enn í Varmahlíð í geer- kvöldi, utan 5, sem höfðu komizt út á Sauðárkrók og sótti flugvél Bjöms Pálssonar þá. Farþegar með Norðurleiðum að sunnan á fimmtudagsmorgun voru á leið- inni í bílalest, sem var að nálg- ast Blönduós undir kvöldmat í gær og gat komið til mála að reyna að brjótast áfram í Varma- við Langadalinn. VEGXJR OG FLUGVÖLLUR HURFU Fréttaritarar blaðsins á ýmsum stöðum símuðu eftirfarandi frétt- ir: — FljótsdalshéraSi, 25. nóv. — f fyrradag var norðan hvassviðri og hryssingur, en ekki teljandi snjókoma. Fyrri hluta dags í gær var bjart og sæmileg veður um Héraðið, en í dag og sl. nótt var stórhríðarveður og milkil snjó- koma öðru hvoru á Egilsstöðum. Þórshöfn, 25. nóv. — í gær dró nokkuð úr veðrinu, en hvessti síðan aftur. Er nú norðaustanátt og stendur betur á þorpið, svo sjórinn gengur ekki *eins langt upp og áður. Sumir af þeim sem flúið höfðu hús sín voru komnir í þau aftur, en aðrir ekki. í nótt Og dag hefur dengt niður miklum snjó. Ann- ars er lítið að frétta, eins og er, því ekki hefur enn gert þá upp- styttu að hægt hafi verið að at- huga skemimdir á hafnargarðin- um. Vegurinn hér sópaðist alveg burt á köflum, og helmingurinn af flugvellinum mun einnig hafa farið. — E.O. SÍMABILANIR TÖLUVERÐAR Húsavík, 25. nóv. — Áfram- haldandi hriðarveður er hér í dag. Dregið hefur úr veðurhæð, en snjókoman hefur aukizt og mikill snjór kominn í bæinn. Er ófært öllum bílum, því hann hef- ur dregið í stóra skafla. Mjódk var sótt á snjóbílum á næstu bæi, Kaldlbak, Laxamýri og Salt- vík, en nýi vegurinn frá Húsa- vík að Laxamýri er alveg snjó- laus. Byrjað er að hreinsa bæinn, og verður þá bílfært frá Húsa- vík á flugvöllinn þegar flugveð- ur fæst. Mjólkurbílar, sem áttu að leggja af stað í gærmorgun úr Reykjadal og Mývatnssveit, eru ófarnir, en bíllinn úr Aðal- dal fór af stað frá Staðarhóli kl. 18 og fór jarðýta fyrir honum, því að mikill snjór er sagður kom inn í Aðaldal og Aðaldalshraun. Um fjárskaða er enn efckert vitað, vegna*þess að veður hef- ur verið svo vont að engin leit hefur átt sér stað. Símabilanir eru töluverðar hér. Er ein lína milli Húsavíkur og Breiðumýrar, sem annars eru þrjár og til Kópa skers hefur ekkert heyrzt eða sézt síðan í fyrrakvöld, en Rauf- arhöfn hefur loftskeytasamband við Siglufjörð. Brimið hefur mikið gengið nið- ur og ekki eru frekari skemmdir vio höfnina á flóðinu í nótt eins og menn óttuðust. — Fréttaritari. KOLÓFÆRT f EYJAFIRÐI Akureyri, 25. móv. — Guð- mundur Benediktsson, forstjóri vegagerðarinnar á Akureyri skýr- ir svo frá ástandi veganna í Eyja- friði og nagrenni. Austur um frá Framh. á bls. 2. H.M.S. Russell _ Hefi aldrei komið í annað eins veður segir skipherra á Russell AKUREYRI, 25. nóv. — Brezka eftirlitsskipið Russell kom til Akureyrar laust fyrir hádegi í dag. Hafði skipið lent í hinu versta veðri í þessari eftirlits- ferð. Fréttamaður blaðsins brá sér um borð og hitti að máli kommander Snell og innti hann fregna af veðrinu. Hann skýrir svo frá: — Við fórum á mánudag frá Reykjavík í venjulega eftirlits- ferð austur um land. Eftir að við vorum komnir fram hjá Reykja- nesi, urðum við fyrst óveðursins varir. Þá voru komin þar 7—8 vindstig og mikill sjógangur. Við héldum áfram austur með Suður- ströndinni og norður með Aust- fjörðum og alltaf jókst veðrið. Er við vorum út af Bakkaflóa, austan Langaness, var komið hreint fárviðri. Yfir 12 vindstig og hafrót. Skipið lét mjög illa í r Arekstur á Hafn- arfjarðarvegi LAUST fyrir hádegið í gær varð allharður áreksttir á Hafnar- fjarðarvegi við gatnamót Ný- býlavegs er Volkswagenbílnum Y 954 var ekið aftan á Opel Caravan G 1945. Allmiklar skemmdir urðu á Volkswagen- bílnum, en meiðsli urðu ekki á mönnum. 2 sólarhringa í kolvitlausu veðri í Ólafsfja rðarhöfn AKUREYRI, 25. nóv.. — Vél- skipið Guðbjörg kom um kl. 7:30 til Akureyrar eftir að hafa verið um 2 sólarhringa á siglingu um höfnina í Ólafsfirði í alveg kol- vitlausri hríð og stórsjó. Skipið er mjög klökugt og isað uþp á masturstoppa. Skipstjórinn á Guð björgu, Ólafur Jóakimsson sagði í fáum orðum svo frá: „Skipið slitnaði frá bryggju um 9 leytið í fyrrakvöld. Áhöfn- in, 5 manns, var öll um borð og eetlaði ég þegar að komast út úr höfninni og leita vars annars staðar, en sjógangur var svo mik- ill að það var ekki tiltækilegt. Ekkert þýddi að leggjast við akk eri því þarna er sandbotn og mjög léleg akkerisfesta. Það var því ekki um annað að ræða en halda upp í veðrið og reyna að verja skipið áföllum og að það rækist ekki í hafnargarðana. U-.1 kl. 4 í dag hafði lægt það mikið að við áræddum að fara út úr höfninni. Það gekk vel og við héldum þegar til Akur- eyrar. Á meðap við vorum í höfninni höfðum við tvisvar sinn um samband við land gegnum talstöðina. Skipstjórinn segist ekki geta almennilega sagt um skemmdir í Ólafsfirði, því hríðin var svo mikil að hann gat ekki séð það, en þó segir hann að flestar tré bryggjurnar innan á nyrðri hafn argarðinum séu ýmist mikið brotnar eða alveg farnar. Skipverjum leið vel um borð. Þeir höfðu nægar olíubirgðir og nægan mat og sváfu til skiptis. —. St. E. Sig. þessum sjógangi og er óhætt að segja að enginn um borð hafi getað ' sofið eða haldizt við í rekkjum sínum síðustu 3 sólar- hringana. Ég er búinn að vera mikið á sjó á brezkum herskipum víða um heim. En út í slíkt óveð- ur hefi ég aldrei komið. Við spyrjum um skemmdir á skipi hans eða öðrum brezkum skipum við Island. — Nei, sem betur fer urðu engir skaðar hjá okkur. Mér er kunnugt um 12 brezka togara að veiðum hér við land. Við höfum haft samband við þá alla og hef- ur ekkert komið fyrir hjá þeim, enda komust þeir fljótt í land- var. Einn togari mun þó hafa verið að veiðum í fyrradag um 60 mílur út af Vestfjörðum, en hann komst einnig slysalaust I landvar. Kapteinn Snell segir að lokum: — Við komum hingað til Akur- eyrar til þess að sofa. St. E. Sig. Ég get ekki snert hljdðfæri um sinn sagði Pall ísólfsson eftir bílveltu d Holtavörðuheiði ÁÆTLUNARBIFREIÐ Norð- urleiða, sem fór frá Reykja- vifc á fimmtudagsmorgun, lenti í blindhríð á Hioltavörðu- heiði. Fór bíllinn tvisvar út af og valt í seinna skiptið. Páll ísólfsson var einn af 30 far- þegum í bílnum, og náðum við tali af hönum í sima seinni hluta dags í gær. Þá var hann enn staddur á Laugabakka í Miðfirði, og hinir farþegarn- ir þar eða á bæjunum í kring. Pálil kvaðst hafa verið á leiðinni norður tál Akureyrar, þar sem hann ætlaði að vígja nýtt kirkjuorgel. Er áætlunar- bíllinn, sem hann var með kom á Holtvörðuheiðina var þar blind ösku hríð. Bílstjór- inn var harðduglegur, en hamdi ekkert í veðurofsanum. Fór bíllinn út af, en með hjálp góðra manna náðist hann aft- ur upp á veginn. Var svo hald- ið áfram ferðinni þangað til komið var á móts við Lauga- bakka, skammt frá Miðfjarð- ará. Fór þá bíllinn aftur út af og vallt. — Þetta var nofckuð há-tt fall, sagði Páill og bíllinn lenti á þeirri hliðinni sem hurðirn- ar eru, svo það varð að brjóta rúðurnar, svo fólkið kæmlst út. Margir höfðu sfcrámast og skorizt litilsháittar á glerbrot- um og einn eldri maður var fluttur í sjúfcrahús á Hvamms- tanga. Þegar við inntum Pál eftir því hvort hann hefði meiðst, sagðist hann vera marinn á baki og handleggjum, Oig mundi nú snúa við til Reykjá- vífcur, þegar færi gæfist. — Það þýðir ek'ki að halda áfram ferðinni úr þessu. Bg get ekki snert hljóðfæri um sinn, sagði hann. Páll sa'gði að tekið hefði ver ið á móti öllum þessum farþ,- hópi á Laugabakka og bæjun- um í kring og færi mjög vel um þá. Héraðslæknirinn á Hvammstanga hefði komið þangað og búið um sárin. Þarna hafði ferðafólkið ver- ið síðan á fimmtudagskvöld. Lengst af hefði verið cnar- vitlaust veður. f gær var þó farið að lægja. Bílalest var á leið yfir Holtavörðuheiði frá Fornahvammi og ætluðu Norð anmenn að komast átfram norð ur í þeim bílum. En Páll og nokfcrir aðrir ætluðu að bíða eftir að komast suður yfir, hve lengi vissi Fáll ekki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.