Morgunblaðið - 26.11.1961, Side 23
Sunnudagur 26. nðv. 1961
MORCVlSTtr 4 Ð1Ð
23
i Clarke hershöfðingl heilsar ungum skáta á Keflavíkurflug-
▼elli í gær. Edward Frederiksen, skátaforingi úr Hafnarfirði
1 etendur fyrir aftan hann og á milli þeirra sést skólastjóri
bandariska barnaskólans á Keflavíkurflugvelii.
(Lijósm. Heimir Stigsson).
— Óveðrið nyrðra
Framh. af bls. 24.
Akureyri er allt ófært, bæði
Vaðlaheiðarvegur og vegurinn
um Dalsmynni og þar með allt
vegasámband austur um land rof-
ið. Sömuleiðis er vegurinn til
Grenivíkur ófær, en stór bifreið
er að reyna að brjótast frá Sval-
barðsströnd til Akureyrar. Dal-
víkurvegur hefur ekki verið far-
inn og er talinn mjög erfiður yfir
ferðar, en þó munu öflugir mjólk
urbíiar gera tilraun til að komast
til Akureyrar í fyrramálið. Öxna-
dalsheiði er ekki talin mjög slæm
yfirferðar, en öxnadalurinn sjálf
ur illfær. Fram Eyjafjörð er
sæmilegt færi að vestanverðu og
hafa mjólkurbílar komizt þaðan
í dag, en enginn bíll hefur komið
úr austanverðum firðinum.
454 bandarískar skátadeildir
í Evrópu og við Miðjarðahaf
RAFMANGSTRUFLUN
Á AKUREYRI
Ennþá er rafmagnsskömmtun á
Akureyri og hefur hvert hverfi
rafmagn í um 4 klukkustundir í
einu. Knut Ottested rafveitustjóri
skýrði svo frá í kvöld, að orku-
verið við Laxá framleiði nú um
4500 kw. Auk þess er dieseltopp-
stöðin á Akureyri í fullum gangi
en hún framleiðir um 2000 kw.
morgun var vatnsrennslið úr
Mývatni aukið gegnum lokurnar
við Geirastaði, en það vatnsmagn
in ekki berast orkustöðvun-
um fyrr en í fyrramálið. Bændur
sem búa meðfram Laxá segja
hana fulla af krapi og snjó á
úm 3 km svæði og hindrar það að
sjálfsögðu m.iög vatnsrennslið.
Rafveitustjórinn gat þess að allt
yrði gert sem hægt er til þess að
koma rafmagnsmálunum í samt
lag, en ófærðin á vegunum kemur
í veg fyrir það í bráðina.
Veðrið á Akureyri núna, kl. 4,30,
hefur skánað að mun. Norðan
áttin hfeur lægt talsvert Og snjó-
koman minnkað. Það sést t. d.
sæmilega yfir í Vaðlaheiði, en
vegakerfi bæjarins er mjög illt
yfirferðar og fjöldi gatna með
áttin hefur lægt talsvert og snjó
ar hafa þó verið ruddar í dag.
— St. E. Sig.
KEFLAVÍK, 25. nóv. — Sl. föstu
dagskvöld hafði viðkomu á Kefla
víkurflugvelli B. C. Clarke, hers-
höfðingi, yfirmaður landhersveita
Bandaríkjamanna í Evrópu.
Clarke hershöfðingi er einnig for
■eti Evrópu — og Miðjarðarhafs-
deildar bandarískra skáta og var
tnr. Maynard, framkvæmdastjóri
þeirrar deiidar einnig í för með
honum en þeir voru á leið til
Bandaríkjanna.
Bdward Frederiksen skátaforingi
úr Haf.narfirði og tveir ungir
hafnfirzkir skátar tóku á móti
skátahöfðingjanum og ennfremúr
voru margir til að fagna gestun-
um. Mr. Baldwin, yfirforingi
skátahreyfingarinnar á Kefla-
víkurflugvelli, ásamt nokkrum
skátaforingjum og skátum frá
varnarliðinu.
Tíðindamaður Mbl. náði tali af
mr. Maynard, er hann sat yfir
kaffibolla á flugvallarhótelinu og
ræddi við ísl. og bandaríska
Safn ritverka
Tagores komið út
BÖKAÚTGÁFAN Fróði hefir
enn sent á max-kaðinn þrjár bæk-
ur og eru þá allar jólabækux út-
gáfunnar komnar út. Stærst og
inest bókanna er „Skáld ástar-
innar Rabindranaph Tagore." Er
þetta mikil bók og vönduð og
geymir ýmsar endurminningar
ekáldsins. Ijóð, leikrit og erindi.
Efni bókarinnar hefir séra
T a g • r •
Svelnn Víkingur valið og þýtt.
Tagore er viðurkenndur snill-
Ingur á ritvellinum og af ýmsum
talinn hafa orkt fegurstu ásta-
Ijóð bókmenntanna. En hann er
einnig boðberi ástarinnar á líf-
inu, spekinni og hinni óeigin-
gjörnu hljóðu fórn.
Bókmenntaverðlaun N ó b e 1 s
hlaut Tagore 1913. Hann er dáð-
ur og heimsfrægur.
Bókin er á fjórða hundrað síð-
ur. Fyrri helmingur hennar
geymir ýmsa þætti endurminn-
inga skáldsins. Þá kemur leik-
ritið „Fórnin“ og loks tveir fyrir-
lestrar skáldsins. Myndir prýða
þessa eigulegu bók.
Hinar tvær bækurnar, sem nú
koma út eru „Jólasögur frá ýms-
um löndum", en það er safn
frumsaminna og þýddra jóla-
sagna Eiríks Sigurðssonar. Er
þetta fjölbreytt bók að efni, ætl-
uð fullorðnum og einnig börn-
um, því að síðari hluti hennar
geymir barnasögur og ævintýri
almenns efnis.
Loka er barnabókin „Pipp
strýkur að heiman", eftir Sid
Roland í þýðingu Jónínu Stein-
grímsdóttur. Er þetta annar hluti
sögunnar, en fyrsti hlutinn hét
„Pipp fer á flakk.“ Þetta er
skemmtileg ævintýrasaga fyrir
5—10 ára börn.
skáta. Hónum sagðist svo frá, að
höfuðstöðvar hinnar bandarísku
skátahreyfingar í Evrópu væru
í Wiesbaden, en deildir væru í 16
iöndum, allt frá Noregi til Tyrk-
lands, íslandi til Marokko. Skáta
deildirnar væru alls 454. Þegar
blaðamaðurinn spurði sakleysis-
lega hvort framkvæmdastjórinn
gæti gizkað á hvað margir banda-
rískir skátar væru í þessum 16
löndum, svaraði hann. Það er
engin ágizkun. Þeir eru nákvæm
lega 17440 og hafa aldrei verið
fleiri en nú. Annars er talan dá
lítið breytileg, því unglingarnir
fylgja að sjálfsögðu foreldrum
sínum. Flestir skátanna eru syn-
ir bandarískra hermanna og
sendiráðsmanna. Þegar spurt var
hversu margir bandarískir skátar
væru á Keflavíkurflugvelli, varð
mr. Baldwin fyrir svörum og
sagði að peir væru 45 eða 50,
en hér væri það sama að segja,
talan væri stöðugum breytingum
háð.
Þeir skátaforingjarnir ræddu
nú um áhugamál sín Og heyrði
blaðamaðurinn á þeim umræð-
um, að góð samvinna hefur ver-
ið milli íslenzkra og bandarískra
skáta á undanförnum árum. Enn-
fremur ræddu þeir um hið nýja
General Clarke verðlaunamerki,
sem skátar í Evrópudeildum
keppa nú að ná. Merki þetta er
veitt þeim skátum, sem leyst hafa
a. m. k. 5 af 15 verkefnum, sem
öll miða að bættum skilningi
þjóða á milli, auknu bræðraþeli
milli skáta og auknum kynnum
af menningu og siðum þeirrar
þjóðar er menn dveljast hjá.
•Þar sem nokkur töf varð á að
flugvél hershöfðingjans færi, not
aði mr. Baldwin tækifærið Og
sýndi gestunum litskuggamyndir
frá skátastarfseminni á íslandi og
voru þar m. a. myndir frá heim'
sókn forseta íslands á skátamót
í Vatnaskógi sl. sumar. Eftir IV*
klst. viðdvöl á Keflavíkurflug-
velli héldu hinir bandarísku skáta
foringjar áfram för sinni vestur
um haf. —< B.Þ.
TJÓN Á HAFNARGARÐI
Dalvík, 25. nóv. — Veðrið er að
ganga niður núna, en alls staðar
er ófært, milli húsa inni í þorp-
inu.
f óveðrinu var- veðurhæðin
ekki svo óskapleg eða öldurótið,
en það var flóðbylgjan sem var
svo gífurleg. Engar skemmdir
urðu á gamla hafnargarðinum,
en nýi garðurinn frá í fyrrahaust
er mjög illa farinn og hefur þar
orðið gífurlegt tjón. — S.J.
mun hafa farið alveg burtu.
Mér er sagt að víða vanti nokk
uð af kindum, en verið getur að
þær finnist þegar stittir upp.
— Björn. V(
KINDUR VANTAR Á SKAGA
Skagaströnd, 25. nóv. — Enn
er hér hríðarveður þótt veðrið
hafi nokkuð gengið niður. Feikna
mikill snjór er kom.inn hér í
þorpið og ófærð mikil. Bændum
á nærliggjandi bæjum, er selja
mjólk í þorpið, hefur gengið erf-
iðlega að koma henni á áfanga-
stað.
,Af bæjum þeim á Skaga, sem
áttu fé sitt ijti er veðrið skall á,
er þetta að segja:
í Ásbúðum náðist allt fé inn,
en nokikrar skemmdir urðu þar
af sjógangi, t.d. bar brknið mik-
ið grjót á túnið þar.
í Víkum var talið að allt flé
væri fundið en nokkrar kindur
varð að draga úr fönn.
í Höfnum náðist allt fé.
Á Tjörn vantar enn 50 fjér. f
viðtali við bóndann þar, Sveia
Sveinsson, sagðist hann ekki geta
sagt hverng þessu fé myndi reiða
af, en taldi þó sennilegt að brim-
ið hefði þegar hremmt eitthvað
af því, og þeim yrði ekki bjarg-
að. Einnig sagði hann að á mUli
30 og 40 kindur vantaði frá Ósi,
næsta bæ, og þær mundu trú-
lega allar vera í heiðinni.
Þarna var þá enn leiðinda-
veður og ekki hægt að hafast
meira að fyrr en veður batnaðL
— Þórður.
Nætureyðslan á heita vatninu
UNDANFARNAR nætur hafa
Reykvíkingar eytt um 60% af
því magni af heitu vatni, sem
|>eir nota að deginum þegar me&t
*r. Þessar nætur hefur þó ekki
verið nema 6 stiga frost, en rok,
•—7 vindstig og er hitaþörfin þá
•Utaf meiri. Þessa tölu fékk blað-
ið í gær hjá Heiga Sigurðssyni,
hitaveitustjóra.
Helgi sagði, að á fimmtudags-
morgun hefðu varageymarnir
verið fullir. Síðaa hefur bærinn
notað meira en allt vatnið frá
Reykjum að deginum. Það sem
farið hefur í geymana er aðeins
frá varastöðinni og bæjarholun-
um. Aðfaranótt föstudags settist
svolítið krap 1 inntaksristarnar,
svo það dró um stund úr vatns-
magninu. A föstudagsmorgun
voru geymarnir því hálfir, en í
gærmorgun var aðeins meira í
þeim.
Á föstudag tæmdust geymarn-
ir ekki yfir daginn, en aiit að
því og á laugardag tæmdust þeir
milli kl. 6 og 7, og var búizt við
að svipað yrði í gær.
Ríður nú á að bæjarbúar fari
eins vel með heita vatnið og
hægt er. — Ef fólk léti ekki
renna svona mikið á nóttunni,
hefðum við meira á daginn. Við
fáum 100 lítra í viðbót á sek.
daginn frá geymunum meðan
þeir endast, sagði hitaveitustjóri.
Annars var heldur að draga úr
frostinu í gær og lygna, svo von-
andi kemur þetta ekki að sök.
MESTA BRIM f MINNI
ÁTTRÆÐS MANNS
Ólafsfirði, 25. nóv. — Sami
veðurofsinn hélzt í nótt, en í dag
er heldur lát á. Báturinn sem héit
sjó hér í höfninni fór inn á Eyja-
fjörð í dag. Þá var hann búinn að
halda sjó í höfninni í óveðrinu
á þriðja sólarhring.
Sjórinn gekk alveg jafn langt
á land í nótt, upp að húsum og
jafnvel inn í þau, einkum inn 1
bei tningaskúra.
Óhemju sjór er ennþá. Hluti
af miðbryggjunni .á hafnargarð-
inum hefur farið Og rekið upp í
sand, en sjórinn gengur enn yfir
garðinn. Til marks um það hvað
sjórinn gekk langt á land, má
geta þess að hann gekk yfir
veginh sinn hvoru megin við
brúna vestan megin kaupstaðar-
ins. Og minnist enginn þess að
þetta hafi komið fyrir áður.
Árni Jónsson, bóndi á Syðri-Á,
maður á áttræðisaldri sem b'úinn
er að búa hér alla ævi, fullyrðir
að þetta sé mesta brim sem hann
minnist að hafa séð í Ólafsfirði.
■— Jakob.
SKIPIN KOMIN TIL
SIGLUFJARÐAR
Siglufirði, 25. nóv. — Hér var
allt með kyrrum kjörum í nótt,
bæði veður og sjógangur með
minna móti en við var búizt.
Var semsagt minni ofsi en í fyrri
nótt og olli ekki tjóni sem orð
er á gerandi.
Hér er áfram norðanátt Og snjó
koma og enn nokkuð hvasst. Tölu
verður snjór er kominn á götur
Og eru þær ófærar öllum farar-
tækjum, en ýta byrjaði að ryðja
þær í morgun.
Skipin, sem lágu inni á Eyja-
firði, eru að koma. Eskjan kom
in og Drangur, Laxá Og Reykja-
foss væntanleg í dag, en þau leit-
uðu undan veðrinu inn á Eyja-
fjörð. — Steíán.
160 ÁRA SJÓBÚÐIR
SÓPUBUST BURT
Bæ, Skagafirði, 25. nóv. — Á
Lónkotsmel voru þrjár sjóbúðir,
sem eru sjálfsagt búnar að standa
í heila öld, þær sópuðust allar
burtu í briminu í gær. Þar stóðu
trillubátar í naustum, en eigend-
urnir voru búnir að bjarga þeim,
er þeir sáu hvað verða vildi.
Þjóðvegurinn við Sandós fór
alveg burtu og þjóðvegurinn með
fram flugvellinum á Sauðárkróki
10 BÍLA LEST
f HRÚTAFIRÐI
Stað, Hrútafirði, 25. nóv. — Hér
er ágætt veður í dag. 10 bíilar að
sunnan voru að fara héðan úr
hlaði, en það eru bílarnir, seim
komu frá Fornáhvammi. Á und-
an fór vegagerðarbíll. í hópnum
var áætlunarbíll frá NorðurleiS-
um. Ætlaði bíll að koma á móti
lestinni frá Blönduósi.
Á flestum bæjum hér var flé
í húsi, þegar hríðin skall á, þvtf
flestir smöluðu í fyrradag. Ekki
er mjög mikill snjór hér. Það
var þó nokkurt hriðarkótf, en snjó
inn dreif í lægðirnar. — Magnús.
Jóhanna Egilsdótt-
ir áttræð
FRÚ Jóhanna Egilsdóttir for-
maður Verkakvennafélagsins
Framsóknar átti 80 ára afmæli í
gær. Jóhanna hefur í áratugi haft
forystu í málefnum verkakvenna
á íslandi. Má fullyrða að engin
kona hefur notið slikar virðingar
og vinsælda í verkalýðshreyfing
unni sem Jóhanna EgiLsdóttir,
enda hefur hún lagt alla krafta
sína fram af óeigingimi og ósér-
plægni í þágu verkakvenna.
Störf Jóhönnu I verkalýðssam-
tökunum hafa verið til fyrir-
myndar og er vonandi að sem
flestir foringjar samtakanna til-
einki sér þá prúðmennsku og ein
urð í starfi, sem hún hefur gert.
Vinir og samstarfsmenn þess-
arar merkiskonu, óska henni tU
hamingju með afmælið og ég
veit að undir þær hamingjuóskir
taka allir þeir, sem kynnzt hafa
henni á lifsleiðinni.
G. H.