Morgunblaðið - 01.12.1961, Page 6
6
MORCUNBLAÐI.
Föstudagur 1. des. 1961
Ámi Kristjánsson og Björn Ólafsson á æfingru
Sónötukvöld í Austurbæjarbíói
Árni Kristjánsson og Bjorn Ölafsson
flytja þrjár kunnar sónotur
Mikið úrval bðka hjá
Menningarsjóði
NÆSTKOMANDI mánudags- og
þriðjudag-skvöld, kl. 7 síðd., halda
þeir Árni Kristjánsson og Björn
Ólafsson tónleika í Austurbæjar
bíói fyrir styrktarfélaga Tónlist
arfélagsins, og verður þetta „Són
ötukvöld" tiundu tónleikarnir
fyrir styrktarfélaga á þessu ári.
— x —
Á efnisskránni eru þrjár sónöt
ur fyrir fiðlu og píanó, allt kunn
verk, sem tónlistarunnendur
þekkja, þótt ekki hafi þær allar
heyrzt hér nýlega á tónleikum.
Fyrst er hin fræga og stórbrotna
Kreutzersónata Beethovens, þá
sónata í g-moll eftir Debussy og
loks sónata í A-dúr eftir César
Franok.
Þeir Árni og Björn eru nýbún
ir að halda tónleika á Akureyri
á vegum Tónlistarfélagsins þar. 1
BÓKAÚTGÁFA Menningarsjóðs
gefur út rúmlega 20 bækur á
þessu ári, auk tímaritanna
tveggja, Andvara og Almanaks
hins islenzka Þjóðvinafélags. Tíu
þessara bóka komu út í vor og
haust, en í gær komu tíu bækur
út hjá forlaginu, svonefndar fé-
lagsbækur, auk nokkurra ann-
arra bóka.
Þeir Gils Guðmundsson og
Helgi Sæmundsson skýrðu blaða
mönnum nánar frá útgáfubókum
íélagsins á fundi, sem þeir héldu
með þeim í gær.
FÉLAGSBÆKUR
Árgjaldið, sem félagsmenn
greiða er enn ekki nema 210 kr.
(án bands) og fyrir þetta gjald
fá félagsmenn Almanakið, And-
vara og eina bók í bókaflokknum
Lönd og lýðir, en hún er að þessu
sinni Mannkynssaga, eftir Ólaf
Hannsson, menntaskólakennara,
fyrri hluti. Þetta er menningar
sögulegt rit og fjallar um frum
stæðar þjóðir. Er hún 13. bókin
í bókaflokknum Lönd og lýðir,
sem notið hefur mikilla vinsælda
almennings.
Kristilegt stúdentablað
kemur út í dag
KRISTILEGT stúdentablað kem-
ur út í dag eins og venja er
til 1. desember, og er þetta 26.
árgangur blaðsins. Blaðið er gef-
ið út af Kristilegu stúdentafélagi,
en ritstjóri þess og ábyrgðarmað-
ur er Frank M. Halldórsson cand.
theol.
Af efni blaðsins má nefna
grein um séra Friðrik Friðriks-
son eftir Ásgeir B. Ellertsson
cand. med. Henni fylgir Svana-
söngur séra Friðriks Friðriksson-
ar, sálmur í 12 erindum. Þá er
viðtal við norska stúdentaprest-
inn Leif M. Michelsen, sem nefn
ist „Nemendur vilja hlusta ef
þeir heyra ákveðinn boðskap“.
Segir séra Michelsen frá kristi-
legu starfi í norskum skólum.
„Bréf frá íslendingi í Kanada"
er frásögo séra Ingþórs Indriða-
sonar af starfi sínu í Langhuth
í Manitoba, en þar hefur hann
verið prestur undanfarin tvö ár.
Þá kemur „Hátíðaljóð á 50 ára
afmæli Háskóla íslands" eftir
Pál V. G. Kolka lækni, en það
fékk sem kunnugt er önnur verð-
laun í samkeppni um hátíðaljóð.
í blaðinu eru ennfremur birt-
ar afmælikveðjur til Kristilegs
stúdentafélags, sem varð 25 ára
17. júní s.l., frá biskupi Islands,
herra Sigurbirni Einarssyni, og
frá Jóhanni Hannessyni prófessor,
sem var fyrsti formaður félagsins.
Kveðjunum fylgir myndaopna úr
25 ára starfi félagsins.
Þá er þýddur kafli úr bók eftir
Frederik Wislöff, og nefnist hann
„Unaðsheimur heiðingjanna — í
musteri gyðjunnar Kali“. Auk
þess eru í blaðinu allmargar
styttri greinar eftir innlenda og
erlenda, stúdenta um trúarlega
reynslu þeirra. Hölundar þessara
greina eru Sigurbjörn Guðmunds
son verkfræðingur, Inger Idsöe,
læknastúdent við Háskóla ís-
lands, Nils Gunnar Nilsson fil.
stud., Hilmar E. Guðjónsson stú-
dent og Svandís Pétursdóttir,
stud. phil. Loks er starfsannáll
Kristilegs stúdentafélags Og þátt-
urinn „Úr ýmsum áttum“.
Kristilegt stúdentablað kostar
15 krónur og verður selt á götun-
um í dag. Um næstu helgi munu
stúdentar fara til nágrannabæj-
anna og selja blaðið og halda
samkomur.
Kápan á Kristilegu
stúdentablaði.
VALBÆKUR
Ofannefndar þrjár bækur eru
fastar félagsbækur, en síðan geta
félagsmenn valið 2 bækur til
viðbótar af 5, sem forlagið gefur
út. f þessum flokki er Segðu mér
að sunnan, úrvalsljóð eftir skáld
konuna Huldu, valin úr sjö ljóða
bókum, sem hún gaf út. Dr. Sig
urður Nordal héfur samið for-
mála að bókinni um skáldkonuna
og skáldskap hennar. Þá er skáld
saga eftir franska Nóbelsverð-
launaskáldið Albért Camus, Út-
lendingarnir. Þýðandi þeirrrar
bókar er Bjarni Benediktsson frá
Hofteigi. Þetta er 5. bókin, sem
Menningarsjóður geifur út eft
ir Nóbelsverðlaunahafa. Þriðja
bókin er Strönd og vogur, sagna
þættir og frásagnir af Suðurnesj
um eftir Árna Óla, ritstjóra. —
Fjórða bókin er Bréf frá fslandi,
ferðabók eftir sænska guðfræðing
inn — Og síðar biskup — Uno von
Troil, í þýðingu Haraldar Sig-
urðssonar, bókavarðar. Þessi bók
er ein merkasta ferðabók skrif
uð um ísland á 18. öld. Bókin var
frumsamin á sænsku, en var fljót
lega þýdd á aðrar tungur, ,m.a.
ensku, þýzku og dönsku. Það gef
ur þessari fyrstu íslenzku útgáfu
af bókinni sérstakt gildi, að um
60 myndir fylgja henni, teiknjng
ar af húsum, fólki, landslagi og
kvenSkrauti O.fl. Frumteikning
arnar eru allar gerðar af færum
teiknurum á 18. öld, og eru þær
geymdar í British Museum, —
Fimmta valbókin er Veröld sem
var, sjálfsævisaga austurríska
skáldsnillingsins Stefan Zweigs.
Sú bók köm áður út hjá forlaginu
en var þá ekki válibók.
BARNABÆKUR
Auk þessara bóka, gefur Menn
ingarsjóður út fjórar barnabæk
ur, en það er aukin liður í bóka
útgáfu forlagsins. Þrjár barna-
bókanna eru frumsamdar á ís-
lenzku. Ævintýraleikir er ein
þessara bóka, annað bindi leikrita
handa börnum, ,eftir Ragnheiði
• Gígar eða gígir?
J.E. skrifar:
Hver er hin rétta fleirtölu-
mynd af orðinu (eld)-gígur?
Eg þykist hafa lært að skrifa
gígar í flt. en nú tók ég eftir
því, að allir blaðamenn virð-
ast samtaka um að rita gígir í
flt. í stafsetningarorðabók
Halldórs Halldórssonar er fl.
gígar. Væri ekki æskilegt að
hafa það sem sannara reynist í
þessu efni. Dagblöðin geta
skapað mikinn glundroða með
því að endurtaka daglega vafa
samar orðmyndir.
• Hvað er rétt?
Ja, vafasamar orðmyndir.
J.E. flettir upp í orðabók H.
Halldórssonar Og fær þar
fleirtölumyndina gígar, Vel-
vakandi fletti upp hjá Blön-
dal og fékk gígir. Þá varð það
til ráða að hringja í Orðabók
Háskólans. Dr. Jakob Bene-
diktsson varð fyrir svörum, og
sagði að orðabókarmenn hefðu
hvoratveggja orðmyndina. —
Þeir hefðu að vísu eldra diæmi
um flt. gígar, en orðmyndin
gígir næði góðan spöl aftur á
19. öldina, svo ekki hafa blaða
menn a. m. k. fundið hana
upp. Þetta mun sem sagt hafa
verið skrifað sitt á hvað í ára-
tugi.
Sjálfur mundi ég kjósa að
nota fleirtöluna gígar, og það
aðeins til að geta notað þágu-
fallið gígum, sem samsvarar
þeirri fleirtölumynd, og losnr
við jafn Ijótt orð og þágu-
fallið gíjum.
• Atvik úr umferðinni
R.P. skrifar og er gramur:
í dag, þriðjudaginn 28. þjn.,
kl. 5 e.h. bar fyrir mig svo-
fellt atvik. Eg var staddur
með tvo hesta þétt við dyr
Söluskálans á Bústaðavegin-
um. Til að hafa handfestu á
hestunum, bað ég litla telpu
er stóð þar í dyrunum að
kaupa fyrir mig hlut sem mig
Hátíðamerki
Jóns Sigurðssonar
HÁTÍÐAMERKI það, sem Rafns
eyrarnefnd lét gera í sumar í til
efni af 150 ára afmæli Jóns Sig-
urðssonar, verður til sölu I
Reykjavík 1. des. Eru það að lílk
indurn síðustu forvöð fyrir menn
að eignast merkið.
Stúdentaráð Háskóla fslands
hefur tekið að sér að sjá um sölu
merkisins, Og mun það verða
selt víða um bæinn. Merkið er
mjög vel gert, Og gildi þess varan
legt. Er það blár skjöldur með
upphleyptri vangam.ynd af Jóni
Sigurðssyni, og er hún siifruð.
Undir myndina er letrað: 1811 —■
17. júní — 1961. Merkið kostar
25 krónur. Ágóði af sölunni renn
ur í Rafnseyrarsjóð.
Jónsdóttur. Bókin er mynd-
skreytt af Sigrúnu Guðjónsdótfc
ur. Þá er Kóngsdóttirin fagra og
Álfagull eftir Bjarna M. Jóns-
son, námsstjóra. Fjórða bókin
er Ævintýrabók, sem Júlíus
heitin Havstein þýddi og endur
sagði. Ævintýrin í bókinni eru
frá ýmsum löndum.
AÐRAR BÆKUR
Enn eru væntanlegar þrjár bæk
ur í bókabúðir næstu daga frá
Menningarsjóði. Ein þeirra er úr
val smásagna eftir Friðjón Stef-
ánsson. önnur er Þorsteinn á
Framh. á bls. 8.
vantaði og gerði hún það. Þeg
ar ég var að taku við honum,
kemur strætisvagn brunandi
og snarbremsar með tilheyr-
andi loftbremsuhávaða, svo að
fólik sem þetta sá hafði orð
á hvers konar kappakstur
þetta væri. En á Bústaðavegi
virðist ekki þurfa að a'ka þétt
að skálanum, því nóg er pláss
ið. Eg gerði tilraun til að
hemja hestana í þessum ósköp
um, en tókst ekki og ruku
þeir út í loftið, en við það féll
ég á götuna og var mildi að
ekki varð þarna slys. Eg stóð
á fætur til að huga að hestun-
um og fann þá upp við Hólm-
garð.
Er ég komst í bæinn varð
ég var við, að ég hafði tapað
peningaveski með ca kr. 4000,
er ég taldi líklegt að ég hefði
misst í þessum ósköpum og
fór aftur inneftir, en fann það
vitanlega ekki.
Er nú nauðsynlegt að aka
með þvílíkum hraða alveg að
stoppistöð, jafnvel þó brems-
urnar séu í góðu lagi? Eins
finnst mér margir bílstjórar,
alls ekki allir, hafa það fyrir
venju að klína sér óþarflega
nærri ríðandi mönnum á veg-
um úti, þvert ofan í öll lög
Eg skrifa þetta að vísu gram-
ur í geði, finnandi að ég er að
bólgna á læri og handlegg og
hefi verk í síðu.
Þó er ljós punktur í öllu
þessi fargani. í kvöld auglýsti
ég eftir veskinu og fékk það
með sömu ummerkjum. —-
Hringdi til mín kona á Rétt-
arholtsvegi 83 og kvað son
sinn og Jón Eiríksson bifreiðar
stjóra hafa fundið veskið.
— R.P,