Morgunblaðið - 01.12.1961, Side 12
12
MORCCTSfíL 4ÐIÐ
Föstudagur 1. des. 196
CTtgeíandi: H.f Arvakur. Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ót>m.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: A.rni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og avgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
7. DESEMBER
dag minnist íslenzka þjóð-
in fullveldisins. Þennan
dag fyrir 43 árum sáu lands-
menn rætast drauminn um
það sjálfsforræði, sem barizt
hafði verið fyrir um langan
aldur. Þessa dags hljótum
við því ætíð að minnast
þakklát í huga.
Sú venja hefur myndazt,
að stúdentar hefðu forystu
um hátíðahöld þennan dag,
og er það vel, því að ís-
lenzka þjóðin metur mennta-
menn sína mikils, og hún
vill fylgjast með skoðunum
þeirra og sjónarmiðum á
hverjum tíma. Að þessu
sinni hafa stúdentar helgað
daginn vestrænni samvinnu,
ekki að ófyrirsynju.
ií Heiminum er nú ógnað af
einhverri mestu ofbeldis-
stefnu allra alda. Fullveldi
sérhverrar þjóðar er í hættu.
Lýðfrelsið og menninguna
verður að verja, og það er
einmitt vestræn samvinna,
sem fram að þessu hefur
megnað að stöðva útþenslu
heimskommúnismans.
Ekkert er lýðræðisríkjun-
um helgara en rétturinn til
að ráða eigin málefnum,
frelsi til orðs og æðis, og
varðveizla fornra og nýrra
menningarverðmæta. Þess-
um þjóðum er það ljóst, að
hver þeirra um sig megnar
ekki að tryggja þessi mestu
verðmæti, þegar að er sótt,
en sameinaðar eru þær
styrkari en nokkurt annað
afl, sem um getur.
Með hverju árinu, sem
líður, styttast vegalengdir,
svo að segja má að allar
þjóðir séu nú í nábýli. Þess
vegna hefur þróazt marg-
háttuð alþjóðleg samvinna,
þar sem menn hafa af fús-
um og frjálsum vilja fórnað
nokkru af fullveldi þjóða
sinna til að tryggja það, sem
mest er um vert. Víðtækust
eru þar samtök hinna Sam-
einuðu þjóða, þeim hefur
hins vegar ekki tekizt að
tryggja frið og öryggi. Þess
vegna hafa vestrænar lýð-
ræðisþjóðir stofnað sín eigin
samtök í samræmi við heim-
ild í stofnskrá Sameinuðu
þjóðanna.
Atlantshafsbandalagið er
þau meginsamtök, sem
tryggt hafa þjóðunum frið
og frelsi. Á þeim samtökum
hefur fullveldi íslands, sem
annarra þjóða, byggzt síð-
ustu árin. Án stofnunar
þess værum við nú vafalaust
í helfjötrum. En samskipti
lýðræðisþjóða aukast líka á
menningar- og viðskipta-
sviði. Með stofnun Efnahags-
bandalags Evrópu rísa vissu-
lega upp ný vandamál, en
jafnframt skapast mikil tæki
færi til stórbættra lífskjara
V estur-Evr ópuþ j óða.
Við íslendingar munum
fylgjast með framvindu
þeirra mála, eins og ann-
arra, sem varða meginhags-
muni þjóðarinnar, og taka
síðan afstöðu — byggða á
þekkingu — með hliðsjón af
því, sem bezt þjónar okkar
eigin hag*
KOMMÚNISTAR
í NÝJU GERVI ?
J>irt hefur verið ávarp frá
" hinum svokallaða Flokks-
stjórnarfundi Sósíalistaflokks
ins, þar sem frá því er skýrt
að kommúnistar hyggist taka
á sig nýtt gervi, stofna enn
eina „samfylkingu“. í álykt-
uninni segir orðrétt:
„Flokksstjórnin telur, að
hinn næsti áfangi, sem keppa
verður að, sé að starfsstéttir
íslands myndi allsherjar
bandalag þeirra einstaklinga,
samtaka og flokka, sem
bjarga vilja þjóðinni úr
yfirvofandi hættu og vinni
þannig stórsigur í næstu
Alþingiskosningum“.
Athyglisvert er, að Sósíal-
istaflokkurinn tekur þannig
ákvörðun um að breyta
hinu svonefnda Alþýðu-
bandalagi eða leggja það
beinlínis niður. Alþýðubanda
lagið hefur frá fyrsta degi
verið viljalaust verkfæri í
höndum Moskvukommún-
ista, og nú er niðurlæging
þess svo algjör, að kommún-
istaflokkurinn, hinn gamli
kjarni, ákveður að ráða ör-
lögum þess til lykta.
í hinni framangreindu yfir
lýsingu felst það væntan-
lega, að kommúnistar reyni
að tengja saman þau vinstri
sinnuðu flokkabrot, sem hér-
lendis eru, Sósíalistaflokk-
inn, Alþýðubandalagið og
Þjóðvarnarflokkinn. Væntan
lega munu þeir svo ætla að
styðjast við hjálparsveitir
sínar eins og Samtök her-
námsandstæðinga, Menning-
ar- og friðarsamtök kvenna
og hvað það nú allt saman
heitir. Það verður ekki óálit-
leg hjörð, sem ætlar sér að
vinna „stórsigur í næstu Al-
þingiskosningum“.
Og ávarpið heldur áfram:
„Yrði síðan mynduð sterk
þjóðholl stjórn, sem beitti
ríkisvaldinu til tryggingar
sjálfstæði landsins og upp-
byggingu atvinnulífsins“.
Ekki fer á milli mála,
hvað átt er við með þessum
HEIMATILBÚINN
VAN GOGH
Mörgum af eldri kynslóð-
inni er enn í minni hneyksl-
ið varðandi myndir van
Goghs skömmu eftir fyrri
heimsstyrjöldina. Þá var það
að leigubílstjóri í Berlín,
Otto Wacker, opnaði dag
nokkurn mikla listaverzlun.
Fjölda listfræðinga var boð-
ið að vera við opnunina. Þá
fUrðaði mest á því að á
veggjunum héngu rúmlega 30
málverk eftir van Gogh. —
Wacker skýrði frá því að
listaverk þessi kæmu frá
furstaætt, sem vegna dýrtíð-
ar eftirstríðsáranna hafi
neyðst til að láta þessa dýr-
gripi. Þetta var ’ ekkert ó-
*«W<i
Þetta er ein þekktasta listafölsun nútímans. Mynd þessl
nefnist „Lærisveinarnir í Eramaus" og átti að vera eftir
einn þekktasta n-.ilara Hollands, Vermeer, sem uppi var
um 1600. „Listamaðurinn“ var hinsvegar van Meegeren,
sem lézt 1947. Hann mun hafa hagnazt um 90 millj. króna
á fölsunum sínum, en varð að greiffa þaff allt til baka og
sat lengi í fangelsi.
NÝLEGA er komin út í
Noregi bók um listaverka-
fölsun, eftir sérfræðing-
inn dr. Frank Arnau. En
listafölsun er ekkert nýtt
fyrirbæri, heldur senni-
lega jafn gamalt listinni
sjálfri. Að minnsta kosti
er vitað að þessi iðja hef-
ur verið stunduð í mörg
þúsund ár, og henni er
haldið áfram enn í dag.
Óslóarblaðið Aftenpost-
en gerði þetta mál að urn-
ræðuefni um daginn í
sambandi við útkomu
bókar dr. Arnaus, sem
listaverkin. Hafði hann þar
notið aðstoðar föður síns,
sem var dugandi listmálari.
Og einnig hafði systir Ottos
lagt þar hönd að verki.
Otto var dæmdur til eins
árs fangelsisvistar. Hann á-
frýjaði dómnum og yfirrétt-
urinn í Berlín bætti sjö mán-
uðum við refsinguna.
★
Að sjálfsögðu ef hverjum
sem er heimilt að líkja eftir
hinum miklu meisturum. En
þegar eftirlíkjandinn setur
„undirskrift“ meistarans und
ir verkið er hann kominn út á
hálan ís. 1 eftirmála bókar
dr. Arnaus ritar forstjóri
norska listmunasafnsins nokk
ur orð um málverkafalsanir
í Noregi.
Til vinstri: Svikinn Rembrandt. Gegnumlýsing sýndi aff
myndin var máluff 100 árum eftir lát meistarans. Til
hægri: Fölsuff stytta af Cæsar. Höggmyndin er gerff á 18
öld. En British Museum lét blekkjast og keypti styttuna
í góffri trú.
Listin að falsa list
blaðið segir að sé jafn
„spennandi“ og reyfari. í
greininni segir m.a.:
ERFIÐARA NÚ A
A DÖGUM
Falsanir listaverka hafa
verið stundaðar frá morgni
listarinnar. Það má ef til vill
á vissan hátt skilja það að
maður, sem ekki er of siða-
vandur, láti freistast af þeim
miklu upphæðum, sem fá má
fyrir falsanir. Þar er að sjálf
sögðu átt við þegar fölsun-
in tekst. Og það kemur fyrir.
Fölsunin getur verið það vel
unnin að jafnvel fremstu sér
fræðingar falla í gildruna.
Nú á dögum er ekki jafn
auðvelt og áður að falsa
verk gömlu meistaranna. —■
Gegnumlýsing með röntgen-
geislum, efnagreiningar, vefn
aður léreftsins skoðaður í
smásjá, jafnvel rykið, sem
sezt í málninguna þegar
verkið er unnið, allt er
gaumgæfilega rannsakað. —
Þetta hefur leitt til þess að
fjöldamargir ósvífnir svikar-
ar hafa verið teknir.
sennilegt. Vitað var að van
Gogh fylgdist ekki með því
hvað varð um verk hans.
Sérstaklega ekki síðustu veik
indaárin. Hann málaði stanz-
laust, en málverkin lentu oft
á háaloftum og geymslum,
eða jafnvel seld á götunum
fyrir smánarverð. Þetta stað-
festi einnig bróðir van
Goghs við réttarhöld, sem
hófust skömmu síðar.
Mál þetta vakti feikna at-
hygli í listaheiminum. Það
kom nefnilega í ljós að Otto
Wackner hafði sjálfur málað
orðum. Vinstri samfylkingin
á að taka upp samstarf við
Framsóknarflokkinn og þessi
ölf eiga síðan saman að fara
með stjórn landsins.
Morgunblaðið hefur áður
bent á, að foringjar Fram-
sóknarflokksins væru að
marka utanríkismálastefnu,
sem slík samfylking gæti
fallizt á. Virðist þannig vera
um að ræða samspil milli
foringja kommúnista og
Framsóknar. Kommúnistar
eiga að safna saman vinstri
fylkingunum, en Framsókn-
arflokkurinn að reyna að
halda hægra fylgi sínu. Síðan
á .að mynda samstjórn, sem
í flestu myndi svipa til
stjórna þeirra, sem stofnaðar
voru í leppríkjunum, og
leiddu til þess að þau glöt-
uðu sjálfstæði sínu.