Morgunblaðið - 01.12.1961, Page 14
14
MORGUNBL4 DIB
Föstudagur 1. des. 1961
Þakka samstarfsfólki, Starfsmannafélagi Reykjavíkur-
bæjar og öllum þeim, sem sendu mér góðar óskir og
gjafir.
Karl Á. Torfason.
VéSbátur til solu
Til sölu er 50 tonna eikarbátur, smíðaður í Svíþjóð
1957, með 215 ha. MWM-dieselvél. Báturinn er bú-
inn radar, Simrad dýptarmæli með útfærzlu o. fl.
Nánari upplýsingar veittar í síma 3-67-29 eftir kl. 6ö
AustfirðiiigsfélEgið
heldur skemmtun í Breiðfirðingabúð í kvöld kl.
8,30.
1. Félagsvist
2. Dansað til kl. 1. Helgi Eysteinsson stjórnar
dansinum.
Austfirðingar fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Stjórnin
Faðir minn og tengdafaðir FILIPPUS JÓHANNSSON andaðist 29. þ.m. í sjúkradeild Hrafnistu. Ingveldur Filippusdóttir, Sigurður Einarsson
Hjartkær eiginmaður minn, faðir og bróðir GUNNAR E. JÓNSSON andaðist á heimili sínu Nönnustíg 12, Hafnarfirði 28. nóvember. Útför hins látna fer fram frá Þjóðkirkjunni laugardaginn 2 desember kl. 11 f.h. Guðrún Jónsdóttir, Jón Kr. Gunnarsson, Margrét Jónsdóttir.
Maðurinn minn BENEDIKT SÆMUNDS HELGASON sem andaðist 22. nóv verður jarðsunginn frá Akranes- kirkju laugardaginn 2 þ.m. — Athöfnin hefst með bæn að heimili hins látna, Heiðarbraut 35, Akranesi kl. 1,30. Sigríður Jóhannsdóttir
SKARPHÉÐINN ÞÓRÓLFSSON vélstjóri verður jarðsunginn n k. laugardag 2. des. kl. 10,30 frá Fossvogskirk i u. Vandamenn
Jarðarför 5 ÞÓRHALLS DANIELSSONAR fyrrverandi kauprnanns frá Höfn r Hornafirði fer fram frá Bjarnaneskirkju í Hornafirði, laugardaginn 9. des. kl. 10,30 f.h. — Kveðjuathöfn verður í Dóm- kirkjunni mánudaginn 4. des. kl. 10,30 og verður henni útvarpað. Börn, tengdabörn og barnabörn
Hjartanlega þökkum við öllum þeim mörgu fjær og nær, sem auðsýndu samúð og vináttu við andlát og jarðarför móður minnar JÓNÍNU Þ. ÞORSTEINSDÓTTUR Hverfisgötu 91 Unnur Jónsdóttir, tengdabörn og barnabörn
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför föður míns, JÓSEPS GÍSLASONAR þjóns Fyrir mína hönd, vandamanna og vina Grettir Jósepsson
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu samúð og vinarhug við andlát og útför bróður míns og fóstur- föður ÞÓRÐAR GUÐMUNDSSONAR frá ísafirði. Jóna Guðmundsdóttir, Jakob Jakobsson.
VETTVANGUR
Frh. af bls. 13.
látinn sæta refsingu, iþrótta-
maður, sem beitir svikum eða
áberandi ódrengskap í leik, er
gerður rækur af leikvelli. Hvers
vegna eiga blaðamenn eða
stjórnmálamenn að hafa þann
forgangsrétt að mega beita
bæði ódrengskap og svikum, án
þess að vera gerðir rækir af
leikvangi þjóðmálanna?
Það er þjóðarhneyksli, að
flokksblöðunum skuli ekki einu
sinni bera saman um hagfræði-
legar tölur eða einfaldar stað-
reyndir um atburði. Það er
líka þjóðarhneyksli, að blöðum
skuli haldast það uppi að fara
með fleipur um viðkvæm utan-
ríkismál, sem getur orðið stór-
hættulegt öryggi vor sjálfra eða
frændþjóða vorra. Hér þarf að
vera til hlutlaus dómstóll, sem
hefur vald til að dæma menn
fyrir grófar sakir af þessu tagi
og láta valda fjörbaugssök, sem
væri í því fólgin að svifta
menn rétti til að vera ábyrgð-
armaður að blaði, eins og öku-
níðingur er sviftur ökuleyfi,
eða skóggangssök, svo að maður
sé sviftur kosningarrétti og
kjörgengi um lengri eða
skemmri tíma.
Það má vel vera, að þetta
þyki rokkuð róttæk tillaga og
að fáir blaðamenn eða stjóm-
málamenn vilji ljá henni fylgi.
Þeir, sem hafa ranglát og hættu
leg forréttindi, sem skapazt hafa
eða viðhaldast í skálkaskjóli
venjunnar, eru sjaldnast sjálfir
með því að láta afnema þau. En
eg lít á þetta mál augum læknis
ins, sem hlífist ekki við að
setja heimili í sóttkví eða ein-
angra hættulegan smitbera, þeg-
ar tillitið til almennrar heil-
brigði krefst þess. Slíkar ráð-
stafanir sættu líka mótspyrnu,
meðan almenningur hafði ekki
fullan skilning á eðli farsótta.
V
Lýðræðinu stafar líka hætta
af sjúkdómi, sem líkja mætti
við kölkun og æðastíflu. Þing-
mönnum og flokksforingjum
hættir til að líta svo á, að kjör-
dæmin, flokkarnir og fólkið sé
þeirra eign, ef þeim hefur einu
sinni verið falið umboð almenn-
ings. Þessi hætta hefur aukizt
við það, að listakosningar voru
teknar upp, þótt það væri nauð-
synlegt. Enginn hámarksaldur
gildir fyrir alþingismenn, eins
og fyrir alla aðra opinbera
starfsmenn, og því lengur sem
einn maður hefur setið á þingi,
þess meiri heimtingu þykist
hann eiga á að vera hafður í
öruggu sæti á lista. Eðlileg
dreifing trúnaðarstarfa og æfing
sem flestra í þeim hindrast á
þennan hátt, alþingi og bæjar-
stjórnir verða með tímanum
öldungasamkundur, þar sem
ferskar hugmyndir eiga erfitt
uppdráttar og ellimörk færast á
stjómmálalífið. Vitur maður
einn taldi það í mín eyru einn
aðalkostinn, sem lýðræðið hefði
fram yfir einræði, að hægt væri
að skipta um stjóm án þess að
taka valdamenn þjóðfélagsins af
lífi. Það er í sjálfu sér mikill
kostur, en han rýrnar þó í gildi,
ef ellidauðinn á að verða eina
lausnin.
Mörg dæmi frá síðustu tím-
um sanna þessa hætu. Salazar
var á sínum tíma gagnlegur
einræðisherra þjóð sinni, sem
hann rétti við úr fádæma öng-
þveiti, er laus við lýðskrum og
hégómahátt, en hann hefur á
gamalsaldri fengið þá flugu í
höfuðið, að hann einn geti
ÍSLAIMD f DAG
er ein veglegasta bók sem gefin hefur
verið út á íslandi
20 nafnkenndir menn skrifa í hana greinar um land,
þjóð og atvinnunætti.
300 fyrirtæki kynna sögu sína og starfsemi og
nærfellt 900 myndír prýða bókina.
Þetta er tilvalin jóiabók, handa öllum, sem vilja
afla sér vitneskju um land sitt, þjóð og atvinnu-
hætti. Einmg er bún einkar heppileg gjöf íslend-
ingum erlendis.
EnsKa útgáfan verður tilbúin um áramót.
Bókin fæst nú í öllum bókaverzlunum, en þeim
viðskiptavinum, sem ætla að nota rétt sinn til að
panta hana hjá forlaginu, er bent á að gera sem
fyrst pöntun, þar sem upplagið er mjög takmarkað.
Landkynning h.f.
Pósthólf 1373 — Sími 36626
stjórnað landinu, og er þannig
að því kominn að steypa Portú-
gal út blóðuga byltingu. Ad-
enauer þrjózkast við að segja
af sér og stefnir stjórnmálum
lands sins í óefni. Bandaríkja-
menn hafa að nokkru sett und-
ir þennan leka, eftir þá dýr-
keyptu reynslu að kjósa Roose-
velt í þriðja sinn til forseta,
sjúkan og slitinn, en haldinn at-
vinnusjúkdómi stjórnmála-
manna, trúnni á sinn eigin ó-
mipsanleik. Nú eru það orðin
lög þar í landi, að engan for-
seta má endurkjósa nema einu
sinni hvað eftir annað, og sama
gildir um ríkisstjóra margra
ríkjanna, enda hafa allir þessir
menn mjög mikil völd og meiri
en konungar með þingbundna
stjórn.
V
Lýðræði í núverandi mynd,
með kjörna fulltrúa, sem fara
með atkvæði fjöldans í umboði
hans, er tiltölulega ungt og
stendur til ýmissa endurbóta.
Þær hljóta að koma mámsam-
an, ef menn trúa ekki í blindni
á steinrunnar kreddur. íslend-
ingar mynduðu á sínum tíma
þjóðskipulag, sem að vísu var
að efni til eftir fyrirmyndum
úr þeirri fyrra föðurlandi, en
sniðið eftir kröfum hins nýja
lands, stóðst í meira en þrjár
aldir, og var merkilegasta
stjórnarfar síns tíma. Enn ætt-
um vér að vera nógu vitrir tii
að móta íslenzkt lýðræði svo,
að það haldist heilbrigt og lif-
vænlegt um langan aldur. Til1
þess þarf fyrst og fremst meiri
virðingu fyrir meðferð sannleik;
ans. Sannleiksleitin er undir-
staða frelsis frá skorti og ör-
birgð. Án virðingar fyrir sann-
leikannum glatar lýðræðið gildr
sínu, en heimskan, ofstækið og
glundroðinn, sem er afleiðing
hvors tveggja, sviptir þjóðina
frelsi og þroska. Minnumst þess
á afmælisdegi íslenzks fullveld-
is, að frelsið er dýrmæt gjöf,
— frelsi frá erlendum yfirráð-
um, frelsi frá skorti, frelsi frá
ofstjóm og óstjórn, frelsi frá
illum og andfélagslegum hvöt-
um vors eigin innra jnanns.
Minnnumst þess gamla, heilaga
orðs:
Sannleikurinn mun gera yður
frjálsa.