Morgunblaðið - 01.12.1961, Blaðsíða 15
Föstudagur 1. des. 1961
MOKCVNBL4ÐIÐ
15
Helgi Hannessori
húsasmiður 60 ára
60 ÁRA er í dag Helgi Hannes-
son Hraunbraut 2, Kópavogi.
Helgi er fæddur 1. des. 1901 að
Svinadalsseli í Dalasýslu sonur
hjónanna Margrétar Kristjáns-
dóttur og Hannesar Guðnasonar
er þar bjuggu. Helgi dvaldist að
inestu í föðurhúsum framundir
tvítugsaldur en fór þá til tré-
smíðanáms til Daníels Tómasson-
ar að Kollsá í Strandasýslu og
kynntist þar konu sinni Sólveigu
systur Daníels. Þau giftust árið
1928 og hófu sama ár búskap á
hluta Kollsár og bjuggu þar til
ársins 1954. Þeim var fjögurra
barna auðið. Þrúður Ingibjörg,
sem lézt á fyrsta aldursári, Tómas
Valtýr sem var tvíburi Þrúðar
og býr nú á nýbýlinu Tómasar-
haga, býli úr landi Hofstaða í
Stafholtstuftgum og giftur er
Ingunni Ingvarsdóttur bóndadótt
ur þaðan og eiga þau tvær dætur.
Þorvald Sigurjón bílaviðgerðar-
mann hjá Landleiðum, kvæntan
Helgu systur Ingunnar 'og eiga
þau þrjá syni. Hannes Grétar
húsasmið nú starfandi hjá Slipp-
félaginu í Reykjavík, kvæntan
Margréti Pétursdóttur og eiga
þau tvö börn.
Þau ár sem Helgi bjó á Kollsá
vann hann ásamt búskap við
húsabyggingar víða norðanlands,
og nutu sveitungar hans þar
verklagni Helga og útsjónar-
semi því hann er mikill dugnað-
ar- og hágleiksmaður á hverju
sem hann snertir.
Helgi fluttist í Kópavog er
hann hætti búskap og hefur síðan
unnið eingöngu við sitt fag,
lengst hjá Sveinbirni Sigurðssyni
húsasmíðam. Helgi er hverj-
um manni skemmtilegri, kátur og
hnyttinn í tilsvörum eins og vinir
hans og kunningjar bezt þekkja.
Góður heimilisfaðir er hann og
njóta barnabörnin þess ekki hvað
sízt, síðan þau fæddust. Gestrisni
og greiðvikni ræður ríkjum á
heimili hans og nýtur hann þar
stuðnings sinnar góðu mannkosta
konu í hvívetna.
í dag dvelur Helgi á heimili
Tómasar sonar síns, og munu vin-
ir hans Og vandamenn senda hon-
um þangað hlýjar kveðjur.
Virtkonur.
Halla Haf-
steinsdóttir
Fædfl 1. des. 1958 — Dáin 24. okt. 1961
KVEÐJA FRÁ ÖMMU
Engan getur órað fyrir því,
að ekki dragi fyrir sólu ský.
Áður dagur líður fjólan fríð
fellur bleik 1 lífsins vetrar hríð.
Ætíð man ég augun brúnu þín.
Ætíð, þegar bjartast sólin skín,
minning rís um milda brosið þitt
er mun ég aldrei gleyma, bamið mitt.
Milli heims og heima hugur ber,
þá hjartans von og trú í brjósti mér
svo stutt sé bilið milli mín og þín
við munum aldrei skilja vina mín.
Drottinn leiðir lítið saklaust barn,
loka skrefið yfir dauðans hjarn.
Treystum því hann velur veginn bjarta
og vefur þig að sínu föður hjarta.
K. Þ.
Stúlka
vön afgreiðslu óskast í sérverzlun í Miðbænum
hálfan daginn til jóla, ekki yngri en 20 ára. —
Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 5. des. merkt:
„Ábyggileg — 191“.
Bazar — Bazar
í Landakotsskóla við Túngötu í dag,
-unnudag 3. des kl. 14.
Bazarnefndin
Sjálfvirk
hitaveitu stillitæki
nýkomin
Verð frá kr. 1415,—
E= HEÐINN ==
Vélaverzlun
Seljavegi 2, sími 24260
JÓLIN NÁLGAST
Bazar K.F.U.K.
hefst á morgun kl. 4 í húsi félagsins við Amt-
mannsstíg 2 B. Þar verður margt góðra og nytsamra-
muna, hentugt til jólagjafa. — Um kvöldið verður
SAMKOMA. Þar verður upplestur, einsöngur, píanó-
leikuí. Síra Bjarni Jónsson vígslubiskup talar. —
Gjöfum til starfsms veitt móttaka.
Allir velltomnir.
UNGLINGA
vantar til að bera blaðið í eftirtalið hverfi
FJ ÓLIGÖTU
FOSSVOGSBLETT
KJARTANSGÖTU
LAUGÁVEG EFRI
BLÖNDUHLÍÐ ^
RAUÐALÆK
SÓLHEIMA
HÁTEIGSVEG
LANGHOLTSVEG I.
FÁLKAGÖTU
SELTJARNARNES II.
(Melabraut)
CAMP KNOX
■
Flugfreyjur
LOFTLEIÐIR vilja ráða flugfreyjur frá 1.
apríl 1962, að undangengnu kvöldnám-
skeiði, sem haldið verður í jan. og febr. n.k.
Staðgóð kunnátta í ensku og einhverju
Norðurlandamalanna áskilin. Umsækjend-
ur skulu vera fullra 20 ára 1. apríl n.k.
UmsóknareyðubJöð fást í afgreiðslu félags-
ins, Lækjargötu 2 og aðalskrifstofunni,
Reykjanesbraut 6.
Umsóknir skulu hafa borizt ráðningadeild
félagsins fyrir 20. desember n.k.
Loftleiðir