Morgunblaðið - 01.12.1961, Side 22
22
MOHCVTSnr 4 ÐIÐ
Föstudagur 1. des. 1961
Skrifstofumaður
Loftleiðir vilja ráða til sín frá 1. jan 1962
ungan skrifstofumann með verzlunarpróf
eða hliðstæða menntun. Staðgóð ensku-
kunnátta áskilm. Reynsla í meðferð bók-
haldsvéla æskileg.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu félags-
ins, Lækjargötu 2 og í aðalskrifstofunni,
Reykjanesbraut 6. Umsóknir skulu hafa
borizt ráðningadeild félagsins fyrir 20. des.
n.k.
LOFTLEIÐIR
föt
á ferð um
landið
★
Skemman, Akranesi.
K.f. Patreksfjarðar,
Patreksfirði.
París, ísafirði.
K.f. Skagfirðinga,
Sauðárkróki
Herradeild Jóns M.
Jónssonar, Akureyri
Sólvangur, Vestmannaeyjum
Faco, Reykjavík
★
Fatagerð Ara & Co. h.f.
Laugavegi 37, Reykjavík
Blómlegur hagur ÍR
félagslega og íþróttalega
Sigurjón Þórðarson kjórinn
formaður
AÐALFUNDUR Iþróttaféla^s
Reykjavíkur var haldinn í fyrra-
kvöld. Af skýrs’u stjórnarinnar
og endurskoðuSum reikningum
kom í ljós að ÍR stendur núna
með miklum blóma bæði íþrótta
lega séð og er mjög félagslega
stirkt. Albert Guðmundsson, sem
verið hefur formaður félagsins
undanfarin 3 kjörtímabil baðst
eindregið undan endurkjörL —
Margir fundam.anna þökkuðu
honum frábært starf í þágu fé-
lagsins og lýstu með mörgum
orðum hvernig Albert hefði ráð-
ist á mikinn f járhagslegan vanda
félagsins þá er hann tók við og
leyst hann sérlega farsællega.
Formaður félagsins var kjörinn
Srgurjón Þórðarson forstjóri,
sem verið hefur varaformaður
undanfarin 3 kjörtimabil.
★ Minnst Iátins félaga.
Albert Guðmundsson setti
fúndinn og minntist látins heið-
ursfélaga ÍR. Björns Jakobs-
sonar fyrv. skólastjóra, og vott-
uðu fundarmenn minningu hans
virðingu sína. Fundarstjóri kjör-
inn Benedikt G. Waage forseti
ÍSÍ, einn af fyrrverandi formönn
um ÍR.
Skýrsla stjórnarinnar bar
með sér öflugt starf félagsstjórn-
ar að málefnum félagsins, eink-
um fjárhagnum. Þá kom í Ijós
að starf í 6 deildum félagsins hef
ur stórum eflzt að undanförnu
og starfar nú hver deild sjálf-
stætt og hefur það gefið mjög
góða raun.
Hinar 6 deildir félagsins eru
fimleikadeild, handknattleiks-
deild, körfuknattleiksdeild frjáls
íþróttadeild, sunddeild og skíða-
deild.
Fimleikastarfið hefur mjög
eflzt hjá félaginu, og náð lengst
með drengjaflokki sem vakið hef
ur athygli. Handknattleiksdeild-
in starfaði og keppti í öllum
flokkum karla og náði yfirleitt
ágætum árangri.
Körfuknattleiksdeild gekk nær
óslitna sigurbraut á árinu og
vann t.d. 4 bikara til eignar á
síðasta íslandsmóti. Á yfirstand-
andi Reykjavíkurmóti hafa flokk
ar félagsins unnið hvern sigurinn
af öðrum.
Frjálsíþróttadeild telur innan
vébanda sinna marga af beztu í-
þróttamönnum landsins. Og á
íslandsmóti s.l. ár unnu ÍR-ingar
flest meistarastig allra félaga í
öllum aldursflokkum samanlagt.
Sunddeildin hefur sömu sögu að
segja. Margir af beztu sundmönn
um landsins hafa unnið félaginu
ótal sigra.
Skíðadeildin leggur höfuð-
áherzlu á skálabyggingu í
Hamragili sem væntanlega
verður vígð á 55 ára afmæli
félagsins 11. marz. n.k. Er
skálinn hið myndarlegasta hús
og mjög vel gert. Skiðamenn
félagsins — o,- reyndar fleiri
— hafa lagt alls um 12000
sjálfboðaliðavinnustundir i
bygginguna og ber það vott
um góðan félagsanda.
í stjóm fyrir næsta ár voru
kjörnir Sigurjón I>órðarson for-
maður en auk hans Finnbjörn
Þorvaldsson, Atli Steinarsson,
Gunnar Bjarnason og Reynir
Sigurósson. í varastjórn voru
kjörnir'örn Eiðsson og Haukur
Hannesson.
Benedikt G. Waage. Sigurjón
Þórðarson, Jón Kaldal og Jakob
Albertsson fluttu Albert miklar
þakkir fyrir frábær störf í þágu
ÍR. Albert þakkaði góð orð og
óskaði félaginu allra heilla.
Sigurjón Þórðarson mælti
hvatningarorð til fundarmanna,
hvatti ÍR-inga til aukins sam-
starfs og brýndi þá tíl frekari
dáða.
Billy Wriglit
ENSKA knattspyrnuliðið Arse-
nal hefur gert hinum heimsfræga
knattspyrnumanni Billy Wright
hjá Wolverhamton tilboð um að
gerast þjálfari hjá Arsenal.
Billy Wright, sem lék 104 sinn
um í enska landsliðinu, hefur enn
ekki svarað.
Bylli er þessa dagana í Hollandi,
þar sem hann er fararstjóri með
unglingalandsliði Englands.
Kutz orðinn
skólastjóri
HINN , heimsfrægi sovézki
hlaupari Vladimir Kutz, sem
undanfarin ár hefur hvergi sézt
né verið getið, hefur nú fengið
nýja stöðu í Moskvu.
Tass fréttastofan skýrir frá
því að Kutz verði skólastjóri i
nýstofnuðum „hlaupaskóla" í
Moskvu. Tass segir að Kutz hafi
lokið þjálfaraprófi frá íþrótta-
skóla í Leningrad.
:
■niit
\jir kJukkiu^
s kjfiaxx (/miÁ r\ i r
Sicjufþóf Jórvssorv 3c co
FÁIR íþróttamenn — oe eng ,
in íþróttakona — hefur áunn-
ið sér svo mikla frægð og að-
dáun sem bandaríska stúlkan
Wilnr.a Rudolph. oft hefur hún
komið mönnum á óvart — en
það hefur fram að þessu ætið
verið á iþróttavellinum. Þrjú
gull vann hún í Róm. og fjórða
„gullið“ hennar þar var
bandariski hlauparinn Ray
Norton. Það fóru miklar sögur
af fundum þeirra þar leyni-
legum og opinberum oe alls
konar spádómar um miklar
framtíðarhlaupastjörnur kom-
ust á kreik
En nú hefur Wilma komið
irönnum á óvart á öðrum
vettvangi. Hún er skyndilega'
gift kona. Og eiginmaðurinn
er ekki Norton eða nokkur
frægur íþróttamaður. Hinn
hamingjusami heitir William
Ward og er skólabróðir
Wilmu. Hér sjást bau saman
|hin nýgiftu.
Ungverjor í „8
liðn urslit"
UNGVERSKA knattspyrnu-
liðið Ujpest Dozsa befur tryggt
sér réttinn til keppni í „átta liða
úrslitum" í keppninni um Evrópu
bikarinn í knattspyrnu. í gær
vann liðið hollenzka liðið Ajax
með 3:1. f hálfleik stóð 1:0 fyrir
Ungverja.
Fyrri leikurinn var á heima-
velli Ajax og unnu Hollendingar
þá með 2:1. Það er i 1 marki sem
Ungverjarnar komast í úrslitin.